Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1991, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1991, Blaðsíða 17
I.AÚÍJAkDAGUR 16’ FEBRÚAR 1991. 17 t____________________Bridge Omar Sharif spilar á Bridgehátí ð' 91 I gærkvöldi hófst á Hótel Loftleið- um Bridgehátíð ’91 með þátttöku fjölda erlendra bridgemeistara. Það fer ekki á milli mála að mesta at- hygli hlýtur að vekja þátttaka kvik- myndastjörnunnar og bridgemeist- arans Omars Sharif sem spilar í fyrsta sinn á bridgehátíð. Makker hans er franski stórmeistarinn Paul Chemla, sem fyrir nokkrum dögum vann Sunday-Times tví- menningskeppnina á móti landa sínum Perron. Chemla hefur einn- ig Evróputitla undir beltinu ásamt flölda Frakklandsmeistaratitla, auk heimsmeistaratitils. Sveitarfélagar þeirra í Flugleiða- mótinu verða Pakistaninn Zia Mahmood og ísrelinn Schmuel Lev. Zia þarf ekki að kynna fyrir ís- lenskum bridgespilurum því hann hefir margoft spilað á bridgehátíð- um. Liklega verður erfitt að verja fyrsta sætið fyrir þessari sveit. Frá Bandaríkjunum koma Mark Molson og Boris Baran, en sveitar- félagar þeirra verða Mike Polowan og Tommy Gullberg. Molson hefur komið oft áður og Tommy Gullberg er líklegast sigursælasti spilari bridgehátíðar fyrr og síðar. Omar Sharif. Austurríkismenn eiga verðuga fulltrúa og fyrrum Evrópumeist- ara. Þar eru mættir Franz Terrano, Alfred Kadlec, Henrich Berger og Wolfgang Meinl. Sennilega sam- spilaðasta sveitin á mótinu. Þá eru ótalin þrjú dönsk pör, Thorvald Aagaard og Jon Thore- sen, Mads og Nils Kröjgaard og Ib Lundby og Inge Keith Hansen. Þau tvö síðastnefndu munu spila með Gylfa Baldurssyni og Sigurði B. Stefánssyni í sveitakeppninni. Eins og fyrr segir hófst keppnin í gærkvöldi og ég vil hvetja alla bridgeunnendur til að gera sér ferð niður á Hótel Loftleiðir um helgina, þó ekki væri nema til þess að berja Bridge Stefán Guðjohnsen í lokaða salnum höfnuðu sveitar- félagar Sharifs í þremur gröndum eftir laufopnun austurs. Suður ák- vað að spila út frá lengri hálitnum og þar með voru níu slagir auðveld- ir. kvikmyndastjörnuna augum. Sharif og Chemla hafa spilað saman um árabil og síðasti stór- leikur þeirra var gegn bandarísku heimsmeisturunum í fyrra. Heims- meistararnir unnu leikinn auð- veldlega þrátt fyrir að Sharif næði geimsveiflu í eftirfarandi spili með því að opna létt í þriðju hendi. S/A-V * K 10 8 V G 10 7 ♦ K86 + D 7 5 4 * G432 V 964 ♦ ÁD10942 + ♦ 9 7 V D 8 5 ♦ G 7 3 + G 10 8 6 3 N V A S W U 0 o V ÁK32 ♦ 5 Á V Q O í opna salnum með Sharif í norð- ur og Chemla í suður gengu sagnir á þessa leið: Suður Vestur Norður Austur pass pass 1 lauf! dobl pass 2tíglar pass 3grönd pass pass pass Opnun Sharifs fældi a-v ekki frá geimi, en hún hafði úrshtaáhrif því suður spilaði náttúrlega út laufi, og þar með var sagnhafi búinn að missa frumkvæðið. Hann reyndi hvað hann gat með því að drepa strax á laufás, spilaði tígli á ás og svínaði spaðadrottningu. Áætlunin var að fá þrjá slagi á spaða, ef norð- ur ætti kónginn annan. Þegar það misheppnaðist var engin leið að vinna spilið sem varð einn niður. Það er hins vegar athyglisvert að á hvorugu borðinu komst a-v í fjóra spaða, en eins og spilið liggur er ávallt hægt að vinna sex spaða. n 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 i 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 HÉR ERU ÞÆR ALLAR MEÐ TÖLU Taflan, hér að neðan, sýnir hve oft hver tala hefur komið upp frá _ 10. september 1988 (þegar Bónustalan bættist í hópinn) til 9. fébrúar 1991. 30 29 28 27 26 25 24 23 22 21 20 19 18 17 16 15 14 13 12 11 10 il 11 E 8| 9|10|11|12|13 14 I 15 16 17 I 18 i ~ 21 22 23 24 25 26 27 28 _ 29 30 31 i 32 33 37 1 Mj Tilviljun ræður öllu um hvaða tölur koma upp í Lottóútdrætti hverju sinni. Fólk hefur misjafna trú á einstökum tölum og eru margvíslegar aðferðir notaðar við val talna. Það er gaman að skoða hve oft hver Lottótala hefur komið upp og hver veit nema einhver talnaspekingurinn geti fundið hinar einu sönnu lukkutölur. VERTU MEÐ - ÞAÐ ER GALDURINN □ LOTTÓTÖLUR 0 BÓNUSTALA UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI: 681511 LUKKULÍNA: 991000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.