Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1991, Blaðsíða 21
LAUGARDAGUR 27. APRÍL 1991.
21
Heimurinn og ég
| Fólk fyrir fólk, á kosfnaö fólksins.
! Lítil saga um lýðræði
„Borgaraflokkurinn var stofnaöur
kringum fótboltahetju sem núna er
komin til útlanda," sagði Jón Baldvin
krataformaöur á stjórnmálafundi í
fyrra.
Og það var eins og við manninn
mælt; eftir að Albert yfirgaf Borgar-
ana brast á flótti í lið þeirra og hann
var svo almennur aö rétt fyrir kosn-
ingar voru þingmenn og ráöherrar
flokksins orðnir fleiri en þeir sem
sögðust ætla að kjósa hann í kosning-
um.
Þá var í skyndi stofnaður nýr
flokkur sem auglýsti þegar eftir fylgi
undir merkjum Fijálslyndra hægri-
Umsjón
Þorsteinn J.
Vilhjálmsson
manna.
Á þeirri stundu var ekkert eftir af
flokki Borgaranna utan fáeinar
milljónir í flokkssjóði sem hið opin-
bera hafði lagt flokknum til í blaða-
og útgáfustyrk eins og það heitir á
opinberu máli.
Og eftir að fyrstu tölur voru lesnar
upp á kosninganóttina og ljóst að
ósigur Fijálslyndra væri alger, sagði
kona úr röðum þeirra í sjónvarpinu
að sér þætti helvíti hart að fjölmiðlar
hefðu einatt blandað Borgaraflokkn-
um inn í innanríkismál hins nýja
Frjálslynda flokks.
Þetta heitir að skilja ekki samhengi
hlutanna því þarna sannaðist, svo
ekki verður um villst, auglýsinga-
slagorðið „fólk fyrir fólk“ sem Frjáls-
lyndir beittu í kosningunum um leið
og þeir skömmtuðu sér fé til barát-
tunnar úr flokkssjóði Borgarara-
flokksins í nafni fijálsræðis, já og
auðvitað lýðræðis og á kostnað okkar
fólksins.
TILBOÐ ÁRSINS
■
I
" 'I
*
VEGNA HAGSTÆÐRAINNKAUPA
GETUM VIÐ BOÐIÐ
UM 47.000,- KR. VERÐLÆKKUN
Rubin ljós eik, 160 x 200 cm, með náttborðum og dýnum
(spring- eða latexdýnur).
Verð kr. 102.457,- stgr. og lánaverð kr. 109.457,-
Áður kr. 146.355,- stgr. og lánaverð kr. 156.529,-
Dæmi um greiðslumáta:
1) Visa/Euro raðgreiðslur í 2) Munalán í 30 mánuði.
11 mánuði, ca 10.888,- Utborgun 27.364,-, afborgun
hvern mánuð. á mánuði ca 3.500,-
Grensásvegi 3 • sími 681144
Umboðsmenn: Austurland: Hólmar hf., Reyðarfírði.
Norðurland: Vörubær, Akureyri. Vestfirðir: Húsgagnaloftið, ísafirði.
\ II//LASER;
fyrir leik,
lærdóm og störf
Laser XT/3 10 MHz
m/40MB hörðum diski, VGA litaskjár
Tilboðsverð kr. 99.572 stgr.
/ »5: >:ol KÁ
Laser 286 AT/2X 12 MHz
3,5" drif og 45MB harður diskur
Verð frá kr. 98.730 stgr.
Laser 386 SXE 16 MHz
3,5" drif og 45MB harður diskur
Verð frá kr. 138.870 stgr.
tSmm
Laser 386 25MHz og 85MB HD
Verð frá kr. 239.580 stgr.
Laser 386 33MHz og 85 MB HD
Verð frá kr. 256.950 stgr.
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suðurlandsbraut 16 • Sími 680780