Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1991, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1991, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 1991. 25 Fólk í fréttum Kj artan Magnússon Kjartan Magnússon, blaðamaður og sagnfræðinemi, var kjörinn formaður Heimdallar á aðalfundi félagsins í síðustu viku. Starfsferill Kjartan fæddist í Reykjavík 5.12. 1967 og ólst þar upp, í vesturbænum. Hann lauk stúdentsprófi frá MR árið 1988 og stundar nú nám í sagn- fræði viðHÍ.Í sumar hefur hann verið blaðamaður við Morgunblað- ið. Kjartan hefur setið í stjórn Heim- dallar frá 1989 og verið gjaldkeri félagsins þann tíma, setið í utanrík- ismálanefnd félagsins og situr í varastjórn SVR. Fjölskylda Bróðir Kjartans er Andrés Magn- ússon, f. 28.4.1965, blaðamaður Við Morgunblaðið. Hálfsystir Kjartans er Guðrún Magnúsdóttir, f. 11.2.1956, húsmóðir í Reykjavík, gift Jóhanni Hilmars- syni múrara og eiga þau tvær dæt- ur, Jóhönnu, f. 20.2.1981 og Stein- unni, f. 14.1.1986. Foreldrar Kjartans eru Magnús Þórðarson, f. 6.9.1932, fram- kvæmdastjóri Upplýsingaskrifstofu Atlantshafsbandalagsins á íslandi, og Áslaug Ragnars, f. 23.4.1943, rit- höfundur. Ætt Magnús er sonur Þórðar, doktors og hæstaréttardómara í Reykjavík, bróður Andrésar, alþingismanns í Síðumúla í Hvítársíðu. Þórður var sonur Eyjólfs, b. á Kirkjubóli í Hvít- ársíðu, bróður Katrínar, ömmu Guðmundar í. Guðmundssonar ráð- herra. Eyjólfur var einnig bróðir Magnúsar, prófasts og alþingis- manns á Gilsbakka, fóður Péturs ráðherra, fóður Ásgeirs, fyrrver- andi alþingismanns og bæjarfógeta í Kópavogi. Þá var Eyjólfur bróðir Páls, langafa Andrésar Valdimars- sonar, sýslumanns í Árnessýslu, og Geirs Gunnarssonar, fyrrv. alþing- ismanns, föður Lúðvíks, formanns BÍ. Eyjólfur var sonur Andrésar, hreppstjóra í Syðra-Langholti, bróð- ur Helga í Birtingaholti, fóður Ág- ústs, alþingismanns í Birtingaholti, afa Helga leikara og Ólafs biskups Skúlasona. Andrés var sonur Magn- úsar, alþingsimanns í Syðra-Lang- holti, Andréssonar. Móðir Andrésar f Syðra-Langholti var Katrín Eiríksdóttir, dbrm. og ættíoður Reykjaættarinnar, Vigfús- sonar, og Ingunnar Eiríksdóttur, b. og ættföður Bolholtsættaripnar, Jónssonar. Móðir Eyjólfs var Katrín Eyjólfsdóttir frá Snorrastöðum. Móðir Þórðar var Guðrún Brynj- ólfsdóttir frá Eystri-Kirkjubæ á Rangárvöllum. Móðir Magnúsar Þórðarsonar var Halldóra Magnúsdóttir, útgerðar- manns óg forstjóra í Reykjavík, Magnússonar, formanns á Nesi við Seltjörn, Guðmundssonar. Móðir Halldóru var Ragnheiður Guð- mundsdóttir, í Ofanleiti í Þingholt- unum í Reykjavík, Sigurðarsonar, og Ragnheiðar Árnadóttur, b. í Narfakoti, Hallgrímssonar, prests í Görðum á Akranesi, Jónssonar, stiftprófasts á Staðastað, Magnús- sonar, bróður Skúla fógeta. Móðir Árna var Guðrún Egilsdóttir, systir Sveinbjöms rektors, föður Bene- dikts Gröndals skálds og Sigríðar Böndals, langömmu Syeinbjargar Kjaran, ömmu Birgis Ármannsson- ar, fyrrv. formanns Heimdallar. Áslaug er dóttir Kjartans Ragnars, sendifulltrúa í Reykjavík, bróður Ólafs Ragnars, föður Gunnars, framkvæmdastjóra Útgerðarfélags Akureyringa en systir Kjartans er Guðrún Ragnars, móðir Sunnu Borg leikkonu. Kjartan er sonur Ragnars Friðriks, stórkaupmanns ogræðis- manns á Akureyri, Ólafssonar, gest- gjafa á Skagaströnd og Akureyri, Jónssonar. Móðir Ragnars var Val- gerður Narfadóttir, hreppstjóra á Kóngsbakka í Helgafellssveit, Þor- leifssonar. Móðir Kjartans var Guð- rún, dóttir Jóns Á. Johnsen, sýslu- manns á Eskiflrði, bróður Þóru, móður Ásmundar Guðmundssonar biskups. Jón var sonur Ásmundar, prófasts í Odda, Jónssonar og Guð- rúnar Þorgrímsdóttur, systur Gríms Thomsens. Móðir Guðrúnar Jónsdóttur var Þuríður, systir Guðnýjar, langömmu Jónasar Har- alz. Þuríður var dóttir Hallgríms, prófasts á Hólmum við Reyöarfjörð, bróður Jóns, þjóðfundarmanns í Lundarbrekku og Benedikts, föður Hallgríms, stórkaupmanns og al- þingsimanns, föður Geirs forsætis- ráðherra. Systir Hallgríms var Sól- veig, móðir Kristjáns ráðherra, Pét- urs ráðherra og Steingríms alþing- ismanns og bæjarfógeta Jónssona Kjartan Magnússon. auk þess sem Sólveig var amma Haraldar Guðmundssonar ráðherra og langamma Jóns Sigurðssonar iðnaðarráðherra. Hallgrímur var sonur Jóns, ættföður Reykjahlíðar- ættarinnar, Þorsteinssonar. Móðir Áslaugar Ragnars er Ólafía Þorgrímsdóttir skipstjóra Sigurðs- sonar. Móðir Ólafíu var Guðrún Jónsdóttir Jónssonar á Fossi, Ein- arssonar. Móðir Jóns var Guðný Jónsdóttir á Heiði í Mýrdal, Jóns- sonar, skálds og prests á Bægisá, Þorlákssonar. Afmæli Eysteinn Bergmann Guðmundsson Eysteinn Bergmann Guðmunds- son verslunarstjóri, Vallargerði 28, Kópavogi, er fimmtugur í dag. Starfsferill Eysteinn fæddist í Skerjafírðinum og ólst þar upp. Hann hefur starfað hjá Byggingaversluninni Húsinu i Skeifunni í nær þijátíu ár. Eysteinn hefur verið félagi í knatt- spyrnufélaginu Þrótti í Reykjavík þar sem hann lék bæði knattspyrnu og handbolta auk þess sem hann sat í stjórn Þróttar í mörg ár. Hann tók ungur dómarapróf og dæmdi knatt- spyrnuleiki í þrjátíu ár, var alþjóða- dómari í fimmtán ár og dæmdi fjöl- marga leiki á erlendri grund en hætti að dæma fyrir þremur árum. Þá hefur hann tekið þátt í félags- störfum dómara og setið í ráðum og stjórnum á þeirra vegum en hann situr nú í nefndum dómara á vegum KSÍ. Fjölskylda Eysteinn kvæntist 11.9.1965 Sól- veigu Auði Friðþjófsdóttur, f. 21.6. 1943, starfsmanni hjá Kópavogs- kaupstað, en hún er dóttir Friðþjófs Helgasonar, sem er látinn, og Berg- dísar Ingimarsdóttur. Böm Eysteins og Sólveigar eru Friðþjófur, f. 8.7.1965, starfar við framleiðslu og sölumennsku, kvæntur Lilju Baldursdóttur og eiga þau eina dóttur, Sólveigu Auði, f. 24.5.1990; Bergdís, f. 11.1.1972, nemi við Fjölbrautaskólann í Garðabæ. Systkini Eysteins eru Ragna Berg- mann, f. 1933, formaður Verka- kvennafélagsins Framsóknar, bú- sett í Reykjavík, gift Jóhanni Ingv- arssyni leigubílstjóra og á hún sjö börn á Ufi; Hulda Bergmann, f. 1934, húsmóðir í Reykjavík, gift Brynjólfi Vilhjálmssyni vörubílstjóra og eiga þau þrjá syni; Edda Bergmann, f. 1936, saumakona og húsmóðir í Reykjavík, gift Kristjáni Ólafssyni, húsverði við Danska sendiráöið, og eiga þau eina dóttur; Ólafia Berg- mann, f. 1939, húsmóðir í Bandaríkj- unum, gift Larry B. Lyle og á hún þrjá syni; Sigurður Bergmann, f. 1944, bílstjóri í Reykjavík. Foreldrar Eysteins voru Guð- mundur Bergmann Bjömsson, f. 6.3. 1909, d. 1989, umsjónarmaður hjá Flugmálastjórn, og kona hans, Gróa Skúladóttir, f. 21.10.1908, d. 1971, húsmóðir. Ætt Guömundur var sonur Björns Bergmann, sjómanns í Gálutröð í Eyrarsveit og síðast í Látravík, bróður Ingibjargar, móður Jóns Bergmanns skálds. Björn var sonur Jóns Bergmanns, b. í Mýrarhúsum í Eyrarsveit, og Jódísar Jónsdóttir. Móðir Guðmundar var Jósefína Ragnheiður Jóhannesdóttir frá Krossnesi. Gróa var dóttir Skúla, b. að Norð- ur-Fossi í Mýrdal, Unasonar, b. að Syðri-Kvíhólma, Runólfssonar, b. og skálds í Skagnesi, Sigurðssonar, prests á Ólafsvöllum, bróður Sæ- mundar, föður Tómasar Fjölnis- manns en systir Sigurðar var Guð- ríður, langamma Þorsteins Erhngs- sonar skálds og amma Jóns, afa Erlends Einarssonar, fyrrv. for: stjóra SÍS. Sigurður var sonur Ög- mundar, prests að Krossi, Presta- Högnasonar, á Breiðabólstað, Sig- urðssonar. Móðir Sigurðar á Ólafs- völlum var Salvör Sigurðardóttir, systir Jóns, afa Jóns Sigurðssonar forseta. Móðir Gróu var Þorbjörg, Eysteinn Bergmann Guðmundsson. dóttir Ólafs, b. í Berjanesi undir Eyjafjöllum, Magnússonar og Elín- arÁrnadóttur. Eysteinn og kona hans eru stödd á The Manor House Hotel í Torquay á Englandi á afmælisdaginn. 90 ára 70 ára Sigurbjörg Benediktsdóttir, Kristján Loftsson, KJeppsvegi 130, Reykjavik. Kvíabala4, Kaldrananesi. Sigríður S. Jónsdóttir, 85 ára Hlunnavogi 7, Reykjavík. Ólöf Sigvaldadóttir, Þórunnargötu 1, Borgarnesi. 60 ára JWíUgLút' nUSMliUSULHlIl ^ Krossi,Berunesi. Sveinbjörn Hjálmarsson, Kirkjubæjarbraut 2, Vestmanna- eyjum. 80ára Eria Sörladóttir, Hraunbæ 64, Reykjavík. Pólína Þorleifsdóttir, Guðni Hans Bjarnason, Nýlendu, Garði. Einarsnesi 66, Reykjavík. Gestur Ólafsson. Svavar Jónsson, Suðurgötu 3, Hafnarfiröi, Laugarholti 7e, Húsavik, 75 ára 50 ára Jóhanna Lind Pólsson, Jón Már Gestsson, Gunnlaugsgötu 10, Borgamesi. Hringbraut 119, Reykjavík. Ólina Guðmundsdóttir, Grenivík, Grímsey. Eiríkur Þóroddsson, Efstahjalla lc, Kópavogi. Bodil Villúólmsson, Gaukshólum 2, Reykjavík. Eysteinn B. Guðmundsson, Vallargerðí 28, Kópavogi. Elsa Bj arnadóttir, Stóra-Fjarðarhorni, Fellshreppi. 40ára_______________________ Guðrún Árnadóttir, Seiðakvísl 17, Reykjavík. Sigurgeir Benediktsson, Kirkjubraut 14, Höfn í Hornafirði. Halldór Sigurðsson, Syðri-Sandhólum, Tjömesi. Björg Pétursdóttir, Dalatanga 1, Reykjavik. Lárus Ögmundsson. Dunhagal7, Reykjavík. & - h JL t Jte BLAÐ BURÐARFÓLK t t ■ff i* AUSTURSTRÆTI HAFNARSTRÆTI ’ 1? PÓSTHÚSSTRÆTI LÆKJARGATA t t I •h A AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 11 4? n t $ í SIMI 27022 ÆTTFRÆDINAMSKEID Hin vinsælu ættfræðinámskeið hefjast á ný um miðjan sept. og standa í 7 vikur (ein mæting á viku). Þátttakendur fá kennslu og þjálfun í ættrakn- ingu og úrvinnslu heimilda, þ.á m. leiðbeiningar um tölvuvinnslu á ættartölum og niðjatölum og afnot af alhliða heimildasafni. Leiðbeinandi: Jón Valur Jensson. Upplýsingar og innritun í síma 27101 og 22275. Ættfræðiþjónustan tekur saman niðjatöl og ættar- tölur fyrir einstaklinga og fjölskyldur. Mikið úrval ættfræðibóka til sölu. Ættfræöiþjónustan, Sólvallagötu 32A, sími 27101

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.