Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1992, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1992, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUfi 1. SEPTEMBER 1992. Útlönd Jens Dabgaard, DV, Færeyjum: Alit útlit er fyrir að Færeyingar fái þijú þúsund tonna þorskveiði- kvóta í Barentshafi í skiptum fyr- ir tuttugu þusund tonna kol- munnakvóta Rússa á Færeyja- miðum. Viðræður um kvótaskiptin fara fram um þessar mundir og er niðurstaðna að vænta í þessum rnónuði. Sjö færeyskir togarar voru reknir úr Barentshafi fyrir skömmu og eru norskir togarar nú komnir í þeirra stað. Fær- eysku togararnir höfðu greitt samtals um íimmtíu miUjónir ís- lenskra króna fyrir kvótann en þeir munu eiga að fá þá peninga endurgreidda. Kvótakaupend- ui-nir vita þó ekM hvar Qármun- imir eru niöurkomnir nú. Móðursýkirann- sökudíind- verskuþorpi Sálfræöingar hafa verið sendir til þorps nokkurs í norðaustur- hluta indlands til að rannsaka móðursýkilegan söng, dans og öskur íbúanna. Að sögn frétta- stofu á Indlandi hafa margir íbú- anna hagað sér undarlega í nokkra daga. íbúamir syngja, dansa og öskra þangaö til þeir eru orönir ör- magna, eins og þeir væru haldnir einhverri fjöldamóðursýki. Þetta hefur orðið tii þess að heiibrigt fólk í þorpinu hefur flúið burt skelfingu lostið. Allirbílarseld- ustáMoskvu- Allir erlendir þílar, sem voru til sýnis á fyrstu bílasýningunni í Moskvu, seldust upp á fimm dögum. EinstaMingar keyptu rúman helming bflanna. Jafnvel brynvarinn Mercedes Benz með öllu sem kostaði hátt í tuttugu miiljónir íann nýjan eig- anda í landi þar sem meðalmán- aðariaun eru um fimmtán hundr- uð krónur. MiMð íjör er nú í bíla- sölu í Rússlandi og vex markað- urinn þar hröðum skrefum. Svlinn Johan Egelstedt, sem kom til Englands til að vinna sem heimilishjálp en yfirvöld ætluðu að gera afturreka af því að hann er ekki kvenmaður, fékk í gær leyfi til aö dveJja einn mánuð í landinu. Á þeim tíma má hann ekM starfa sem heimilishjálp. Það var innanríMsráðherrann sjálfUr sem tók þessa ákvörðun eför aö mólið fékk mikla uraflöll- un í bresku blöðunum, Eftir mán- uð má pilturinn sækja um Iram- lengingu dvalarleyfis. Ensk lög vera ógift kona, 17-27 ára. bvfkfttnlrnna noit. KVVIMAVnd IMíH" ar að þvo dóp þungum stafla af óhreinum þvotti á dögunum. Það var ungt bara í bæntan Almeida sem kom með mttinn til konunnar. EkM er vitað hver á fötin en rannsóknar- Bill Clinton eykur forskot sitt á Bush forseta upp í 20 prósent: Kraftaverk ef Bush heldur embættinu - segja stjómmálaskýrendur í Bandaríkjunum eftir nýjustu skoðanakönnunina Bill Clinton eykur stöðugt forskot sitt á George Bush forseta sam- kvæmt nýjustu skoðanakönnunum um fylgi forsetaframbjóðendanna. í nýrri könnun, sem ABC-sjónvarps- stöðin birti í gærkvöldi, fengi Clinton 56% atkvæða en Bush aðeins 36%. Munurinn eykst því stöougt en hann varð minnstur 6% við lok flokks- þings repúblikana í Houston fyrr í mánuðinum. Hjá ABC var ályktaö út frá þessari skoðanakönnun aö ávinningur Bush frá því á flokksþinginu sé nú endan- lega runninn honum úr greipum. Nú verði forsetinn og menn hans að grípa til róttækra ráðstafana ef kosn- ingamar eiga ekM að tapast. Haldi svo fram sem horfir þurfi kraftaverk Bush verður nú að gripa til örþrifa- ráöa til að halda velli. Símamynd Reuter að koma til ef Bush á að sitja í Hvíta húsinu næsta kjörtímabil. Chnton fer nú hamfórum í kosn- ingabaráttunni enda eflist hð hans með hverjum degi og hverri nýrri skoðanakönnun. Bush hefur ekki teMst að gera hann tortryggilegan eins og hann reyndi þó með öllum ráðum á flokksþinginu. Ásakanir um vingulshátt í skatta- málum hafa enn ekM skaðað Clinton. Þvert á móti hafa Bush og Dan Qua- yle varaforseti orðið uppvísir að að tala tveimur ttmgum um skattalækk- anir á næsta kjörtímabili. Bush lof- aöi skattalækkunum en hafði vart sleppt orðinu þegar Quayle varð að viðurkenna að hann hefði ekM hug- mynd um hvernig þeir félagar ætl- uðu fara að þvi. Það þyMr og eftirtektarvert að James Baker hefur ekM enn sýnt yfir hvaða brögðum hann býr í kosn- ingabaráttunni. Hann hefur stokkað upp í starfsliðinu en Bush er í sömu vandræðunum og áður. Þó má búast við að sMpt verði um áherslur í bar- áttunni á næstu dögum enda er nú að duga eða drepast. Kosið verður 3. nóvember. Clinton hamast á Bush á kosninga- fundum og í sjónvarpsauglýsingum. Hann sakar forsetann um ráðaleysi þegar kemur að því að bæta úr sívax- andi atvinnuleysi. Sjálfur hafi hann sýnt góð tilþrif í atvinnumálum heima í Arkansas. Reuter Talið er aö 300 þúsund fióttamenn hafl safnast saman í bænum Belet Huen I Austur-Sómalíu og bíði þess að hjálp berist. Bandaríkjamenn halda uppi loftbrú til landsins með mat og lyf þannig að hungurvofunni hefur verið bægt frá í bili. Símamynd Reuter Bobby Fischerer alltaf jafn sérvitur Skáksnillingurinn Bobby Fischer hefur engu gleymt í sérviskunni frá því hann tefldi við Borís SpassMj um heimsmeistaratitilinn í Reykjavík fyrir tuttugu árum. Þeir ætla að end- urtaka einvígið í borginni Sveti Stef- an í Júgóslavíu og verður fyrsta skáMn tefld á morgun. Fischer hefur þegar hafnað sex eða sjö taflborðum. Hann vil að áhorf- endum verði haldið í minnst fimmt- án metra flarlægð og að speglar verði settir á veggina fyrir aftan bæði hann og SpassMj svo hann geti séð allt sem fram fer. Skáksérfræðingar efast um að þessar kröfur hafi nokkur áhrif á SpassMj. Hann hefur þegar fallist á allt og segir að Fischer standi í puð- inu fyrir sig. Margir skákáhugamenn segja að það sé einmitt svona prímadonnu- hegðun sem hafi gert skákeinvígi af þessu tagi að heimsviðburðum. Það hafi bætt öll skilyrði til taflmennsku og gert hana ábatasamari. Reuter Stjómvöld í Bagdad: Undirbúum ekki land- hernað gegn sjítum Stjómvöld í Irak vísuðu á bug í gær að þau.væru að undirbúa landhemað á hendur sjítaíslömmn í suðurhluta íraks þar sem Bandaríkjamenn og bandamenn þeirra úr Persaílóastríð- inu hafa lýst yfir loftferðabanni. íraska fréttastofan INA hafði það eftir Iyad al-Rawi, yfirmanni her- ráðsins, að slíkar fréttir væru til- hæfulausar og hluti af „lygum og uppspuna Bandaríkjamanna og vest- urveldanna til að réttlæta árásir á írak“. Fréttastofan sagði að Rawi væri að svara ummælum Brents Scowcrofts, öryggismálaráðgjafa Bandaríkjafor- seta frá því á sunnudag þegar hann lét aö því liggja að írakar hefðu í hyggju að sækja að sjítum landleið- ina. Bandaríkjamenn og bandamenn þeirra, Frakkar og Bretar, lýstu í síð- ustu viku yffr loftferðabanni sunnan 32. breiddargráðu. Þeir höfðu áður sakað Saddam Hussein íraksforseta um að ráðast á andófsmenn á fenja- svæðunum í suðurhluta landsins. írakar þræta fyrir að nota flugvélar eða þyrlvu- gegn sjítum á fenjasvæð- unum og hafa ekM sent flugvélar suður fyrir 32. breiddargráðu frá þvi loftferðabannið gekk í gildi. Lið kjamorkueftfrlitsmanna Sam- einuðu þjóðanna kom til Bagdad í gær og sagði leiðtogi hópsins, Maurizio Zifferero, að hann hefði enga ástæðu til að ætla að írakar yrðu ekM samviiuiuþýðir. Zifferero sagði að hann byggist ekM við að loftferðabannið hefði áhrif á störf þeirra. Níni've / Kirkuk Baiji f ko Samaka Habbaniyah'- Karbala At Rutba Babylon Verndarsvæði Kúrda 36° brekldargraða SÝRLANb IRAN An Nasiriyah n '■ Ur Verndarsvæði Sjita n Fornminjar — Olíuleiðslur SAUDI-ARABIA Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.