Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1992, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1992, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1992. Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, 105 RVlK, SlMI (91)63 27 00 SlMBRÉF: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDGÖTU 25. SlMI: (96)25013. Blaðamaður: (96)26613. SlMBRÉF: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF., ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Askriftarverð á mánuði 1200 kr. Verð í lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr. Gorbatsjov-dagar bænda Bændur tala ekki lengur einum rómi fyrir hinu sjálf- virka afsetningar- og verðlagningarkerfi, sem hefur vemdað þá fyrir umhverfi sínu í liðlega þrjá áratugi. Sumir vilja sættir við neytendur og skattgreiðendur og enn aðrir vilja horfast í augu við veruleikann. Á nýloknum fundum samtaka bænda í sauðfjár- og nautgriparækt og stéttarsambands þeirra komu fram sjónarmið, sem flokka mætti í þrennt. í fyrsta lagi skjaldborg um fortíðina, í öðm lagi undanhald fyrir nútímanum og í þriðja lagi sókn inn í framtíðina. Miðstefnan hefur tekið völdin hjá forustumönnum samtakanna. Þeir telja, að ekki sé pólitískur vilji í þjóðfé- laginu til að leggja auknar byrðar á neytendur og skatt- greiðendur til þess að sauðfjár- og nautgripabændur geti haldið áfram að framleiða eins og þá lystir. Miðstefnumenn vilja taka mið af, að komið hefur í ljós, að sífellt verður dýrara fyrir neytendur og skatt- greiðendur að sjá um, að allir bændur geti framleitt eins og þeim þóknast í skjóli þess, að þeir geti losað sig við allar afurðirnar og það á fastákveðnu verði. Miðstefnumenn telja henta bændum að fallast á tak- mörk framleiðslumagns á móti því, að þjóðfélagið haldi áfram að veija um 8% af ríkisútgjöldum til stuðnings landbúnaði, sumpart í nýju formi, og sætti sig við, að neytendur fái ekki ódýrari afurðir frá útlöndum. Þetta er einmitt stefna stjórnvalda um þessar mund- ir. Kostnaði skattgreiðenda er haldið óbreyttum, en pen- ingunum er varið á annan hátt, sem síður hvetur til offramleiðslu. Jafnframt er kostnaði neytenda haldið óbreyttum, hátt yfir því, sem þekkist í útlöndum. Sumir eru ósáttir við undanhaldið og vilja halda til streitu hinum ótakmarkaða framleiðslurétti, sem gilti í þijá áratugi. Þeir neita að horfast í augu við kvótaskerð- inguna, sem fer senn að verða tilfinnanleg, og saka for- ustumenn sína um svik við málstað landbúnaðarins. Aðrir bændur eru hvorki á því, að halda beri dauða- haldi í steinrunna fortíð, eins og gert var til skamms tíma, né að rétt sé að fara á skipulegu undanhaldi, eins og byrjað er að gera um þessar mundir. Þeir vilja taka örlögin í eigin hendur og sækja inn í framtíðina. Sumir þeirra hafa þegar gert þetta fyrir eigin reikn- ing með því að færa sig úr hefðbundnum búgreinum yfir í staifsemi, sem er utan hins flókna landbúnaðar- kerfis og nýtur ekki stuðnings neytenda og skattgreið- enda. í þessum hópi eru ferðabændur og hrossabændur. Aðrir standa upp á aðalfundum sauðfjár- og naut- gripabænda og mæla með fijálsum markaði, meira að segja uppboðsmarkaði. Einn þeirra kvað upp úr með, að fijáls verzlun væri hluti af lýðræðinu og að hæpið væri fyrir menn að byggja afkomu sína á styrkjum. Líkja má stöðu hefðbundins landbúnaðar við ástand Sovétríkjanna á Gorbatsjovs-tímanum. Þá hafði stein- runnu kerfi verið hafnað þar eystra og við tekið milli- bilsástand skipulegs undanhalds, áður en kerfið hrundi og friðsöm bylting lýðræðis og auðhyggju tók við. Líklegt er, að skipulega undanhaldið verði ekki lang- vinnt í landbúnaði á íslandi fremur en það var í sovézk- um kommúnisma. Það leiðir til hraðrar tekjurýmunar allra bænda, en ekki til þeirrar grisjunar, sem ein getur haldið uppi lífskjörum þeirra, sem eftir standa. Millileiðin mun bresta. Annaðhvort reyna bændur að komast til baka á flótta inn í vemdað gróðurhúsið eða þeir reyna að brjótast út úr því til frelsis. Jónas Kristjánsson Finnur segir alvarlegt ef ríkisstjórnin neiti að horfast í augu við þá erfiðleika sem hún hafi skapað. Framsókn boðar sókn í stað samdráttar Fyrir skömmu birtist kjallara- grein í Dagblaðinu Vísi eftir Bjöm Bjamason alþingismann undir heitinu „Framsókn boðar átök“. Tilefni greinar Bjöms var sam- þykkt sameiginlegs fundar þing- flokks og landsstjórnar Framsókn- arflokksins sem gerð var á Egils- stöðum um miðjan ágúst. í greininni snýr Bjöm út úr og rangtúlkar ályktunina í þeim til- gangi að fegra stjómarstefnu ríkis- stjómar Davíðs Oddssonar. Stjóm- arstefnu sem hefur leitt tíl: - Stöðnunar, samdráttar og gjald- þrota fjölda margra fyrirtækja. - Atvinmfleysis sem fer ört vax- andi um allt land með þeim alvar- legu afleiðingum sem það hefur í för með sér. - Kaupmáttarskerðingar heimil- anna, vegna stóraukinna skatta- álagna. - Vonleysis hjá þjóðinni, vegna þess bölmóðs sem ríkisstjórnin el- ur á og heft hefur framtak þjóðar- innar. - Stórkostlegra eignatilfærslna í gegnum gjaldþrotastefnuna. - Hræðslu launafólks við að beij- ast fyrir bættum kjörum því ríkis- stjómin notar atvinnuleysiö til að halda kjömnum niðri. Það er gegn þessari stjómar- stefnu sem Framsóknarflokkurinn mun beijast. Það er þessum stjórnarháttum sem PYamsóknarflokkurinn hafn- ar algjörlega og lýsir ábyrgð á hendur þeim stjómmálaflokkum sem þannig hafa starfað og virðast ætla að starfa áfram. Bimi Bjama- syni er auðvitað vorkunn því hann er fangi þessarar stjómarstefnu. Atvinnulífið er að stöðvast Það alvarlega er að ríkisstjómin neitar að horfast í augu við þá erf- iðleika sem hún hefur skapað. Öll hennar vinnubrögð einkennast af ábyrgðar- og úrræðaleysi. Ríkis- stjómin leggur allt sitt traust á bjargráð erlendis frá með samn- ingnum um evrópskt efnahags- svæði og á sama tíma er stjómar- stefnan að sigla íslensku atvinnu- lífi í strand. Ef ríkisstjómin leið- réttir ekki starfsskilyrði íslensks atvinnulífs þá verður enginn hagur af opnari markaði Evrópu, hvemig svo sem viö íslendingar tengjumst honum. Á áðumefndum sameiginlegum fundi þingflokks og landsstjómar framsóknarmanna var þessari íhaldsstefnu ríkisstjómar Sjálf- Kjálkriim Finnur Ingólfsson alþingismaður Framsóknar- flokksins í Reykjavík stæðisflokks og Alþýðuflokks al- gjörlega hafnað. Fundurinn hvatti til samstillts átaks ríkisvalds, laun- þega og atvinnurekenda til þess að þjóðin gæti hafið nýja framfara- sókn og þannig losað sig út úr þeim vanda sem ríkisstjómin hefur skapað. Út úr vítahringnum Fundur landsstjómar og þing- flokks Framsóknarflokksins lagöi áherslu á eftirfarandi aðgerðir sem gætu m.a. verið fyrsta skrefið til nýrrar sóknar: - Starfsskilyrði atvinnuveganna verði lagfærð með fjárhagslegri endurskipulagningu. Tryggt verði að raungengi krónunnar sé skráð í samræmi við getu útflutningsat- vinnuveganna. Raungengi þarf að lagfæra með lækkun kostnaðar. - Raunvextir lækki til samræmis við það sem algengast er í helstu viðskiptalöndum okkar. - Dregið verði úr kostnaði at- vinnulífsins. Þar gangi stjórnvöld á undan með því t.d. að fella niður aðstöðugjald og önnur kostnaðar- tengd gjöld. - Þeim skattálögum sem ríkis- stjóm Davíðs Oddssonar hefur lagt á atvinnulífið verði aflétt. - Aflaheimildum Hagræðingar- sjóðs verði deilt út án endurgjalds til stuðnings þeim byggðarlögum sem verða fyrir mestri skerðingu á þorskveiðiheimildum. - Eytt verði þeirri óvissu sem rík- isstjóm Davíðs Oddssonar hefur skapað í sjávarútvegi. Framsókn- arflokkurinn hafnar gjörbreyttu fyrirkomulagi við stjórnun fisk- veiða, m.a. upptöku veiðileyfa- gjalds. - Nú þegar verði dregið úr at- vinnuleysi. Stjómvöld beiti opin- bemm aðgerðum til að draga úr sveiflum í hagkerflnu. Við núver- andi aðstæöur ber aö flýta fram- kvæmdum sem hagkvæmt er að ráðast í. - Opinbert fjármagn verði lagt fram til að örva framkvæmdir í nýjum atvinnugreinum og rann- sóknir og þróunarstarf í því skyni. Fyrsta skrefið. Hér hefur verið gerð grein fyrir þeim tillögum sem þingflokkur og landsstjóm Framsóknarflokksins telja aö geti losaö þjóöina út úr þeim vítahring stöðnunar og aftur- halds sem ríkisstjóm Alþýðuflokks og Sjálfstæðisflokks hefur leitt hana í. Ástæðan fyrir því að þessi vett- vangur er valinn til að gera grein fyrir þeim tillögum er sú að ekki var hægt aö láta lesendur blaðsins sitja uppi með rangtúlkanir og út- úrsnúning Bjöms Bjamarsonar á samþykktum þingflokks og lands- stjómar Framsóknarflokksins. Finnur Ingólfsson „Ríkisstjórnin leggur allt sitt traust á bjargráð erlendis frá með samningnum um evrópskt efnahagssvæði og á sama tíma er stjórnarstefnan að sigla ís- lensku atvinnulífi í strand. Ef ríkis- stjómin leiðréttir ekki starfsskilyrði íslensks atvinnulífs verður enginn hag- ur af opnari markaði Evrópu, hvernig svo sem við Islendingar tengjumst hon- 11VV. u

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.