Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1992, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1992, Blaðsíða 24
36 MÁNUDAGUR 26. OKTÓBER 1992. Mig langar til þess að koma hér að hugleiðingum minum um fækk- un í áhöfnum fiskiskipa og far- skipa. Mér finnst með ólíkindum hvað lítið hefur heyrst frá Sjó- mannasambandinu um þessi mál og er það eftir öðru frá forystu þessa félagsskapar. Slysum hefur stórfjölgað um borð í skipunum og tel ég þessa fækkun eiga stóran þátt í því. Þessa óheillaþróun verð- ur að stöðva með öllum ráðum og þá meina ég með öllum ráðum!!! Sömu lögmál Mér og mörgum félögum mínum finnst vera komið að tímamótum og finnst vera kominn tími til að skipta um mannskap í brúnni að einhverju leyti, enda menn að verða hálfsteinrunnir eftir langa setu í stjóm sambandsins. Eflaust hefur núverandi stjórn gert góða hluti og er það vel. En nú er kominn tími til að leyfa ein- hverjum öðrum að spreyta sig, helst sem fyrst. Og oft hvarflar að mér og fleirum sem um þessi mál hugsa að til séu forystumenn í verkalýðshreyfingunni sem hugsa þannig: „Hvað getur félagið gert fyrir mig,“ en ekki „Hvað get ég gert fyrir félagið." Til sjós er það yfirleitt venjan að ef skipstjórinn fiskai- ekki og það er talin hans sök er skipt um og annar fenginn í staðinn. Þvi dæmið gengur ekki upp fyrir áhöfn og út- gerð ef ekkert fiskast. Ég get ekki séð betur en að sömu lögmál eigi að gilda hjá forystumönnum sjó- manna og annarra samtaka. Ég tel að ef vel er unnið fyrir Sjó- mannasamband íslands af stjóm þess og félögum sé hægt að gera Sjómannasámband íslands að Fyrir Sjómanna- sambandsþing Kjallariim Birgir Björgvinsson í sljórn Sjómannafélags Reykjavikur mannaafsláttinn aftur þangað til hún nær honum öllum. Menn virð- ast hafa gleymt því að hann kom inn í kjarasamningum og slegið var af öðrum kröfum í staðinn. Reikninginn yfir borðið Komi til að aftur veröi ráðist á sjómannaafsláttinn og hann tekinn af „aivöru" sjómönnum á skilyrðis- laust að rétta reikninginn yfir borðið til útgerðarinnar því að af- slátturinn var þáttur ríkisins til styrktar útgerðinni til að Uðka fyr- ir kjarasamningum. Nú á komandi árum veitir okkur ekki af sterkri og öflugri forystu í stéttarfélögum sjómanna í því að halda störfum okkar til sjós og lands. Það stefnir í harðnandi sam- keppni á vinnumarkaði og þá er enginn undanskilinn fyrir ásókn „Eflaust hefur núverandi stjóm gert góða hluti og er það vel. En nú er koni- inn tími til að leyfa einhverjum öðrum að spreyta sig, helst sem fyrst.“ öflugum félagsskap sem hlustað er á og tekið mark á og menn úti á sjó fái trú á Sjómannasambandinu og er þá vel. Eins og staðan er í dag líta menn á Sjómannasambandiö eins og enn eina óþarfa stofnun. Við stjómarkjör í verkalýðsfélög- um eru notaðar sömu aðferðir og hjá stjómmálamönnum, öllu lofað og engar efndir. Tökúm sem dæmi sjómannaafsláttinn. Það heyrðist varla stuna frá Sjómannasamband- inu og er ég handviss um að ríkis- stjórnin á eftir að kmkka í sjó- erlends vinnuafls nema þá helst ráðherrar. En þeir eru nú sá vinnu- kraftur sem helst mætti skipta út vegna lélegra vinnubragða, enda sést það best á því aö þeir leita allra ráða til að koma okkur inn í EES svo að þeir geti leitað aðstoðar er- lendra kerfiskarla því þeir virðast algjörlega ráðþrota og gjörsamlega úr öllu sambandi við fólkið í land- inu. Við í Sjómannafélagi Reykjavík- ur erum aðilar að Norræna flutn- ingaverkamannasambandinu og Greinarhöfundur telur að sömu lögmál eigi að gilda hjá forystumönnum sjómanna og annarra samtaka. Alþjóða flutningaverkamanna- sambandinu og munum nýta okkur þau sambönd í baráttunni við að halda störfum okkar gegn ódýru erlendu vinnuafli sem útgerðar- menn á farskipum sækjast stíft eft- ir. Enda veitir okkur ekki af öflugri samstöðu til að halda okkar rétt- indum þegar við virðumst vera á fullri ferð inn í EES sem opnar all- ar gáttir fyrir erlendu vinnuafli. Frábær tillaga Nú eru íslenskar kaupskipaút- gerðir að segja upp sjómönnum, á meðan eru erlend leiguskip með erlendum áhöfnum að sigla hingað í áætlunarsiglingum. Vona ég að komandi Sjómannasambandsþing, sem verður í lok þessa mánaðar, taki ákveðna afstöðu til þessa máls, því ég sé ekki betur en að þetta séu fyrstu skrefin til að útrýma ís- lenskri sjómannastétt. Og hveijir verða næstir? Einn félagi minn í Sjómannafé- lagi Reykjavíkur kom með frábæra tillögu sem mér finnst eiga fullan rétt á sér. Hún gengur út á þaö að sjómenn, sem starfað hafa við fisk- veiðar í áraraðir og þurfa að fara í land einhverra hluta vegna, gangi fyrir um úthlutun krókaveiðileyfa þegar þeim er útbýtt. Þessir sjómenn hafa átt stóran þátt í því að afla viðkomandi út- gerðum þeirra kvóta með vinnu sinni um borð í skipunum. Birgir Björgvinsson Er EES-samningur- inn mikilvægur - íslenskum sjávarútvegi og fiskvinnslu? Svarið við spumingunni er tví- mælalaust já. Mikilvægi Evrópu- bandalagsmarkaðarins kemur skýrast fram í þeirri staðreynd að 80% af útflutningi íslendinga er útflutningur á sjávarafurðum og 67% af öllum útflutningi fer til EB-landanna. Því er ekki hægt að líta framhjá þeim samkeppnislega ávinningi sem íslendingum hlotn- ast með miklum tollalækkunum í kjölfar gildistöku samningsins. Þar sem ég þekki til erlendis er verð á fiski talsvert hærra en á kjötvör- um. Strax við gildistöku samnings- ins falla 76% núverandi tolla- greiðslna niður sem mun væntan- lega koma að miklu leyti fram í lægra vöruverði á fiskafurðum. Það sem er þó mest um vert er að með brottfalii þess 18% tolls, sem lagður er á unnar ferskar fiskaf- urðir í dag, opnast nýir og mikil- vægir möguleikar til verkunar og útflutnings á ferskum unnum sjáv- arafuröum sem getur gefið af sér mikinn virðisauka fyrir íslendinga. Erlend eignaraðild? En hvað um erlenda eignaraðild í sjávarútvegi og fiskvinnslu? Mun samningurinn leiða til þess að er- lendum aðilum verði heimilt að fjárfesta í þessum greinum? Samningurinn mun ekki afnema eða leiða til breytinga á núverandi ákvæðum laga um fjárfestingar og eignarhald erlendra aðila í sjávar- útvegi og fiskvinnslu. Það liggur alveg ijóst fyrir, því er allur gamal- dags ótti um að útlendingar muni koma til íslands og kaupa allt upp óþarfur. Þar sem spurt er um er- lendar fjárfestingar þá er Ijóst aö við íslendingar höfum hingað til viljað ráða yfir okkar fiskimiðum og hvar fiskurinn er unninn enda er það eðlilegt. Aftur á móti er ekki eðhlegt að bera ótta í bijósti í garð erlends eignarfjármagns því hægt er að ná fram markmiðunum um yfirráð íslendinga yfir fiskauðlind- um okkar með einfaldari hætti sem ekki útilokar allt erlent hlutafé. Erlent fjármagn gæti styrkt rekst- „Erlent fjármagn gæti styrkt rekstur og fjármögnun íslenskra útgeröar- og fiskvinnslufyrirtækja," segir m.a. i greininni. ur og fjármögnun íslenskra útgerð- að tengja hana viö sjálfstæði þjóö- ar- og fiskvinnslufyrirtækja. Ein- arinnar. Þetta eru tvö óskyld mál angrunarstefna er löngu orðin úr- sem okkur mun lærast aö skilja. elt fyrirbæri og tímabært að hætta Jóhann Þorvarðarson Kja]larinn Jóhann Þorvarðarson hagfræðingur Verslunarráðs íslands „Þaö sem er þó mest um vert er að með brottfalli þessa 18 % tolls, sem lagður er á unnar, ferskar fiskafurðir í dag, opnast nýir og mikilvægir möguleikar tn verkunar og útflutnings á ferskum unnum sjávarafurðum...“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.