Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1993, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1993, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 1993 Fréttir Sigurður Á. Siguijónsson leigubílstjóri um úrskurð Mannréttindadómstóls Evrópu: Hagsmunir almennings en ekki stéttarinnar ráði „Ég hélt að ég yrði ekki stressaður yfir þessu en þegar ég heyröi úrskurð Mannréttindadómstólsins fann ég ákveðinn létti. Mín fyrstu viöbrögð eru að vinna að því að heiðarleg umræða fari fram á Alþingi þegar lögum um leigubifreiðar verður Stuttar fréttir Mlkilhækkunámat 50 til 60% af vörum matvöru- buða mun hækka vegna gengis- feliingarinnar samkvæmt Mbl. Lækkun rækju Breskir rækjukaupendur gera kröfu um 7% lækkun á íslenskri rækju í kjölfar gengisfellingar- innar. Ekkertál Jóhannes Nordal, formaður ís- lensku álviðræðunefndarinnar, segir að tvö til fjögur ár muni liða þar til erlend stórfyrirtæki sýni á nýjan leik áhuga á að reisa stór- iðju á íslandi. Mikiðtap banka Tap íslandsbanka fyrstu fjóra mánuði þessa árs var 195 milljón- ir króna en forráðamennirnir eru samt bjartsýnir á að árið verði tapiaust. Vernda smáfiskinn Sjávarútvegsráðuneytiö undir- býr nú aögerðir til verndar smá- fiski og verða varanlegar lokanir þar sem mest er um undirmáls- flsk skv. Mbl. Bítillvinurhvals Bítillinn Paul McCartney ætlar að sýna myndband af veiðum ís- lensku hvalbátanna fyrir tón- leika á heimsferð sinni en áætlað er að þrjár milljónir manna muni hlýða á kappann. Grásleppafluttút Ötflutningur grásleppuhrogna til fullvinnlsu erlendis er hafinn á ný en innlendar stöðvar sjá fram á mun styttri vinnslutíma vegna hráefnisskorts og eru mjög óhressar að sögn Tímans. Ferðaheigi Búist er viö góðri ferðahelgi á Suðurlandi um næstu helgi og er talið að þúsundir hugsi sér að fara í Þórsmörk og Þjórsárdal. 66milljónirístörf Atvinnuleysistryggingasjóður hefur á þessu ári veitt 66 milljón- um króna í aö skapa 609 störf í Reykjavík. Tapítvöár Rúmlega 65 milljóna króna tap varð af rekstri Söltunarfélags Dalvíkur á síðasta ári. 50 milljóna tap var árið áður. Nóg hefur verið að gera hjá bílaumboðum, heimilistækja- verslunum og slíkum þar sem fólk kaupir vörur áður en þær hækka vegna gengisfeUingarinn- ar. -Ari breytt. Stéttahagsmunir hafa alltaf verið látnir ráða í stað stjórnarskrár- innar og almenningshagsmuna en með þessari niðurstöðu vona ég að það breytist. Ég vil endilega biðja fólk.að fylgjast vel með því þegar lagabreytingar fara fram svo hags- munir þess verði tryggðir," sagði Sig- urður Á. Sigurjónsson leigubílstjóri sem vann mál sitt fyrir Mannrétt- indadómstóli Evrópu eins og sagt var frá í DV í gær. Átta dómarar af níu komust að þeirri niðurstöðu að íslensk stjóm- völd hefðu gerst brotleg viö ákvæði mannréttindasáttmálans um félaga- frelsi með því að skylda Sigurð til að vera í Bifreiðastjórafélaginu Frama. Dómarinn sem greiddi mót- atkvæöi var fulltrúi íslands, Þór Vil- hjálmsson, forseti Hæstaréttar. Jón Steinar hæstaréttarlögmaður var verjandi Sigurðar í máh hans fyrir Mannréttindadómstólnum í Strasborg. „Ég er mjög ánægður með niðurstöðuna. Ég tel að í henni feUst þungur áfeUisdómur yfir Hæstarétti íslands vegna þess að á sínum tíma komust 7 dómarar hans einróma að þeirri niðurstöðu að lagasetning samgönguráðuneytisins um skyldu- aðild að leigubílstjórafélögum bryti ekki í bága við íslensku stjómar- skrána, en stjórnarskráin er ekkert ósvipuð mannréttindasáttmála Evr- ópu hvað þetta varðar," sagði Jón „EðUleg og rétt viðbrögð við niður- stöðu Mannréttindadómstólsins eru að breyta lögunum um skylduaðild að leigubílstjórafélögum. Það hefur alla tíð verið ljóst að lögin voru um- deild og orkuðu tvímæUs. Viðbrögð samgönguráðuneytisins vom skyn- samleg,“ sagði Þorsteinn Pálsson dómsmálaráðherra viö DV en sam- gönguráöuneytið ákvað í gær að láta breyta lögum um skylduaðUd að leigubílstjórafélögum sem Alþingi samþykkti sumarið 1989. Þorsteinn var inntur eftir við- brögðum við ummælum Jóns Stein- ars Gunnlaugssonar þess efnis að úrskurður Mannréttindadómstóls- ins væri þungur áfelUsdómur yfir Hæstarétti íslands. Hann sagði að Mannréttindadómstóll Evrópu í Strasborg fann íslensk stjómvöld sek um aö hafa brotið 11. grein mannrétt- indasáttmálans um félagafrelsi. Af níu dómumm komust átta að þeirri niðurstöðu. Fulltrúi íslands, Þór Vil- hjálmsson, forseti Hæstaréttar, var með mótatkvæði og skilaði séráliti þar um. Þór sagði í samtali við DV, þá ný- kominn frá Strasborg, að efasemdir væru uppi um að 11. greinin ætti við um neikvætt félagafrelsi. „Þetta var í annað sinn sem ég lýsti þvi í dómi. í fyrra skiptið vorum við þrír dómar- arnir um þá meiningu en í seinna skiptið var ég orðinn einn. Ég byggi Eitt fyrsta verk Sigurðar verður að segja sig úr Frama en gegn vilja sín- um hefur hann greitt þangað félags- gjöld síðustu misseri. Sigurður hefur háð mikla baráttu síðustu 9 ár og núna stendur hann uppi sem sigur- vegari. -bjb Steinar í samtali við DV. „Ég vona að þessi dómur verði hvatning fyrir Hæstarétt íslands og raunar lögfræðinga almennt til að taka sig á í málum sem varða túlkun á mannréttindum og öðrum réttind- um borgaranna. Dómurinn hefur það í för með sér að það þarf að breyta lögunum um leigubifreiðar. íslenska ríkið er búið að skuldbinda sig til þess að hlíta dómum Mannrétt- indadómstólsins og verður að sjálf- sögðu að gera það nú,“ sagði Jón Steinar. úrskurðurinn væri alveg eins þung- ur áfellisdómur yfir Alþingi að hafa samþykkt þessi lög. „Að baki lagasetningunni voru sjónarmið um ákveðna hagsmuna- gæslu og þau sjónarmið hafa lengi verið umdeild. Félagafrelsiskrafan hefur veriö að styrkjast og túlkun mannréttindasáttmálans á félaga- frelsi hefur rýmkast. Aö mínu mati er það eðUleg og góð þróun,“ sagði Þorsteinn. Þorsteinn lagði fram frumvarp á Alþingi í vor þar sem er lagt til að mannréttindasáttmáli Evrópu verði lögfestur og gerður að íslenskum lög- um. Frumvarpið verður endurflutt í haust og sagðist Þorsteinn vona að þaðyrðisamþykkt. -bjb áUt mitt á ákveðnum atriðum í und- irbúningi greinarinnar." Sigurður Á. Siguijónsson leigubíl- stjóri er þriðji Islendingurinn sem sækir mál sitt fyrir Mannréttinda- dómstóli Evrópu og hafa íslensk stjómvöld tapað í þeim öllum. „Dóm- ar af þessu tagi era ekki góðir fyrir okkur. En hvað mannréttindi varðar held ég að ísland sé vel statt í þeim efnum. Helstu mannréttindaríki heims eru að fá á sig hvern dóminn á fætur öðrum,“ sagði Þór en vildi ekkert segja um ummæli Jóns Stein- ars Gunnlaugssonar um Hæstarétt íslands. -bjb Sigurður Á. Sigurjónsson, leigubilstjóri og stöðvarstjóri 3x67, kynnir sér niðurstöðu Mannréttindadómstóls Evrópu í Strasborg sem hann fékk á faxi að utan. DV-mynd GVA Jón Steinar Gunnlaugsson: Áfellisdómur yf ir Hæstarétti -bjb Þorsteinn Pálsson: Alveg eins áfellis- dómur yf ir Alþingi Þór Vilhjálmsson, forseti Hæstaréttar: Ekki gott fyrir okkur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.