Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1993, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1993, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 1993 Neytendur DV kannar verd á hreinlætisvörum: Mestur verðmunur á wc-hreinsi og gólfþvottaefni í verðkönnun DV síðastliðinn laug- ardag, þar sem borið var saman verð í Reykjavík, London og á Flórída, kom fram að hreinlætisvörur eru til- tölulega ódýrar hér á landi. Af því tilefni gerði neytendasíða DV verð- könnun á hreinlætisvörum í fimm verslunum á höfuðborgarsvæðinu um miðjan daginn í gær. Þær verslanir, sem fyrir valinu uröu, voru Fjarðarkaup í Hafnar- firði, Garðakaup í Garðabæ, Kjöt og fiskur í Mjódd, Hagkaup í Skeifunni og Bónus í Faxafeni. Kannað var verð á 15 vörutegund- um, á Þrif gólfþvottaefni frá Sjöfn, 1600 g, Fix gólfsápu, 11, Hreins gólf- hreinsi, 750 ml, klór frá Frigg, 930 ml, sítrónu Hreinoli, 500 ml, Blik uppþvottadufti, 950 g, Glitra upp- þvottadufti, 20 dl, Ajax wc-hreinsi, fljótandi form og duft, 600 g, Fix wc- hreinsi, 11, Jif, 500 ml, nýjum Geisla, 520 ml, Brasso fægilegi, 150 ml, Silvo fægilegi, 150 ml, og Brillo stálull, 10 stk. Hjá Bónusi fengust einungis þijár af ofantöldum vörutegundum, þ.e. Þrif og Ajax duft og fljótandi, og mið- ast meðcdverðið því við fjórar versl- anir í hinum tilvikunum. Allt að 40% verðmunur á gólfþvottaefni Mikill verðmunur reyndist vera á 1600 g pakkningum af Þrif gólfþvotta- efni frá Sjöfn. Þar sem þær voru dýr- astar kostuðu þær 229 krónur en 165 krónur í Bónusi þar sem þær voru ódýrastar. Meðalverðið er 195 krón- ur en milliveröin voru 176, 179 og 225. Þama er 39% verðmunur. Lítill verðmunur var hins vegar á lítrabrúsa af Fix gólfsápu en hún kostaði 293 kr. í tveimur verslunum og 289 í Hagkaup og í Kjöti og flski þar sem hún var ódýrust. Meðalverð- ið er 291 kr. Tólf prósent verðmunur var á Hreins gólfhreinsi. Hann var ódýr- astur í Kjöti og fiski þar sem hann kostaði 213 kr. en kostaði annars 225, 231 og 239 kr. Meöalverðið er því 227 kr. Með morgunverði, semeftirréttur, eðabara...bara. Klór og uppþvottalögur Klór í 930 ml umbúðum frá Frigg kostaði á bihnu 129-136 kr. Ódýrast- ur var hann í Garðakaupum en milli- verðið var 131 og 135 kr. Meðalveröið er 133 kr. en verðmunur mihi versl- ana reyndist um 5%. Tíu króna munur reyndist á hæsta og lægsta verði á Hreinol sítrónu- uppþvottalegi í 500 ml umbúðum en hann kostaði á bilinu 89-99 kr. Ódýr- astur var hann í Garðakaupum en milhverð voru 90 og 93 kr. Meðal- verðið er því 93 kr. og er verðmunur- inn 11%. Meirimunurá Bliki en Glitra Meiri verðmunur reyndist á upp- þvottaduftinu Bliki þar sem hann var 16% en á uppþvottaduftinu Ghtra þar sem hann reyndist einungis 6%. Bhk kostaði á bilinu 198-229 krónur og var ódýrast í Fjarðarkaupum. Milhverðin voru 209 og 211 og er meðalverðið því 212 kr. Glitra kostaði á bilinu 279-296 krónur og var ódýrast í Hagkaupi. Mihiverðin voru 283 og 285 og er meðalverðið því 286 kr. Jif í 500 ml umbúðum kostaði frá 108 krónum í Hagkaupi upp í 136 krónur. Milhverðin voru 109 og 129 krónur. Meðalverðið er því 121 kr. og er verðmunurinn 26%. 64% verðmunur á Ajaxi Verðmunurinn reyndist mestur á Ajax wc-hreinsi í duftformi en þar var Bónus með langlægsta verðið, 115 krónur fyrir 600 g. Næst kom Hagkaup með 129 kr. en verðið var annars 141,179 og 189 kr. Munurinn er 64% en meðalverðið reiknast 151 kr. Einnig reyndist 50% verðmunur vera á Ajax wc-hreinsi í fljótandi formi en hann var einnig ódýrastur í Bónusi þar sem hann kostaði 109 krónur. Næst kom Hagkaup með 119 krónur en verðið var annars 128,159 og 164 kr. Meðalverðið er 136 kr. Fix wc-hreinsir í lítraumbúðum kostaði frá 236-239 kr. og reyndist U Jj 166 kr. a 3 <0 4É «0 <o (O O Hæst Lægst Allt að 64% verðmunur getur verið á Ajax wc-hreinsi og 39% verðmunur á Þrif gólfþvottaefni samkvæmt verð könnun sem DV gerði í gær. verðmunur þar aðeins vera um 1%. Ódýrastur var hann í Hagkaupi en mihiverðið var 237 kr. og meðalverð það sama. 15-20% verðmunur á fægilegi Nýr Geisli, rúðuúði í 520 ml um- búðum frá Sjöfn, kostaði á bilinu 209-214 kr. Hann var ódýrastur í Garöakaupum og Fjarðarkaupum en kostaði 211 kr. þar sem hann var næstdýrastur. Verðmunurinn er um 2% og meðalverð reiknast 211 kr. 15% verðmunur reyndist vera á Brasso fægilegi í 150 ml umbúðum. Hann kostaði á bihnu 177-204 og var ódýrastur í Garðakaupum. Mihiverð var 198 og 203 en meöalverð reiknast 196 kr. Silvo fægilögur var einnig ódýrast- ur í Garðakaupum þar sem hann kostaði 166 krónur en annars 174,189 og 199 kr. Verðmunurinn er 20% og reiknast meðalverð 182 kr. Að lokum reyndist sárahtill verð- munur vera á Briho stálull. Tíu stykki kostuðu á bilinu 114-118 kr. og var meðalverðið 117 krónur. Stál- ullin var ódýrust í Kjöti og fiski en verðmunurinn er einungis tæp 4%. -ingo jJL>-JJlziJJJzjJ LJUTS 189 kr. 115 kr. « 3 C 'O 03 Hæst Lægst Vörutegund Hæsta verð Lægsta verð Meðal- verð Þrif, 1600 g (Sjöfn) 229 165 195 Fix gólfsápa, 1 I 293 289 291 Hreins gólfhreinsir, 750 ml 239 213 227 Klór, 930 ml (Frigg) 136 129 133 Hreinol, sítrónu, 500 ml 99 89 93 Blikuppþvduft, 950 g 229 198 212 Glitrauppþvduft20dl 296 279 286 Ajax wc-hreinsir, duft 189 115 151 Ajax wc-hreinsir, fljótandi 164 109 136 Fix wc-hreinsir, 1 I 239 236 237 Jif, 500 ml 136 108 121 Nýr Geisli (Sjöfn), 520 ml 214 209 211 Brasso fægil., 150 ml 204 177 196 Silvofægil., 150 ml 199 166 182 Brillo stálull, 10 stk. 118 114 117 rilrijju 2U ' 296 kr. 279 kr. a 3 CO JX O) ro I Hæst Lægst 229 kr. 198 kr. a 3 (0 i- CO «2 <0 ir Hæst Lægst TJl * * * 99 kr. \tj(j 89 kr. a 3 <ö JC (0 <2 m <D Hæst Lægst a 3 <0 (0 2 <0 (3 Hæst Lægst ¥ANTAR ÞIG PENING? Auglýstu í smáauglýsingum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.