Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1993, Blaðsíða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1993, Blaðsíða 48
56 LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1993 Fréttir________________________________ðv Formaður félags starfsfólks í húsgagnaiðnaði: Gruggug mál í útboðum og heildsalar græða - heildsalar segja íslenska framleiðendur stunda undirboð Erlend framleiðsla er tekin fram yfir innlenda, segja viðmælendur DV í húsgagnaiðnaði. Þeim finnst undar- legt og óeðlilegt að þetta gerist þrátt fyrir að bæði verð og gæði séu sam- bærileg og jafnvel betri. Heildsalar segja þetta út í hött. Innlend fram- leiðsla hirði meginhluta útboða og segja þeir íslenska framleiðendur stunda tilboð sem eru undir kostnað- arverði. Borgað undir borðið „Mér finnst þetta vera rosalega svart allt saman,“ segir Björn Krist- jánsson, formaður Félags starfsfólks í húsgagnaiðnaði. „Markaðsstaða ís- lensks húsgagnaiðnaðar eins og maður sér í útboðum og tilboðum, sem hafa verið í gangi, er íjarri því að vera góð. Þó svo við séum sam- keppnisfærir í verði þá virðist heild- Regína ThDiaransen, DV, Gjögri; Hjónin Vilborg Traustadóttir og Geir Zoöga verkfræðingur héldu veislu á Hótel Djúpuvík 12. ágúst í tilefni af 75 ára afmæli Trausta Magnússonar og var þar fjölmenni. salinn alltaf einhvem veginn geta komið sér betur inn með þetta út- lenska. Manni fmnst oft vera gmgg- ug mál sem þar hafa verið í gangi. Það er eins og séu einhverjar sporsl- ur undir borðið gæti maður haldið." Þessi orð Björns voru borin undir aðra sem starfa í húsgagnaiðnaði og innflutningi. Ekki út í bláinn „Að ýja að þessu er ekkert alveg út í bláinn en það er ekki hægt að sanna neitt svoleiðis", sagði Ingvar Þor- steinsson, húsgagnasmiður í Ingvari og sonum. „Ég veit það bara að ég átti lægsta tilboðið í Loftleiðir. Búið var að óska mér til hamingju og taka í höndina á mér enda öll tilboðin opnuð í einu. Þá er hringt þremur vikum seinna og sagt, heyrðu, það kom lægra tilboð." Trausti, sem var sjómaður hér um slóðir, ólst upp á Gjögri - dugnaðar- forkur og drengur góður. Hann tók við Sauðanesvita - skammt frá Siglu- firði -1959 og flutti þá frá Djúpuvík. Trausti og kona hans, Hulda Jóns- dóttir, eignuðust sex böm. Islensk undirboð „Það er deginum ljósara að þeir sem ná útboðum í húsgögnum eru í 95% tilvika íslensk framleiðsla," seg- ir Kjartan Kjartansson, fram- kvæmdastjóri heildverslunar Penn- ans. „Það eru feikileg undirboö hjá sumum innlendum framleiðendum. Ákveðnir aðilar, sem reknjr eru af Landsbankanum og fleirum, viröast í útboðum vera komnir langt undir kostnaðarverð á vöranni. Ég átta mig því ekki á þessum sögusögnum." Kjartan sagði langstærstan hluta húsgagnamarkaðarins í útboðum vera innlenda framleiðslu. Tréhús- gögn fyrir skrifstofur sagöi hann ekki vera flutt inn að neinu ráði. Allir flyttu hins vegar inn skrifstofu- stóla og þess háttar vöra. Það var fróðlegt að heyra Vilborgu, dóttur þeirra heiðurshjóna, lýsa upp- vexti sínum á-Sauðanesvita. Vilborg setti jafnframt samkomuna sem tókst vel og var hin ánægjulegasta. TiUcynningar Nafnspjalda og korta- sjálfsali í Kringlunni Nafnspjalda- og kortasjálfsali hefur verið opnaður í Kringlunni. Um er að ræða sjálfsala þar sem viðskiptavinurinn út- býr og hannar sín eigin nafnspjöld, þakk- arkort, boðskort, sölutilkynningar og fl. Hægt er að velja á milli 20 mismunandi kortauppsetninga og leturgerða. Auk þess að búa til venjuleg nafnspjöld bregða margir á leik með hinum ólíklegustu starfsheitum og tilkynningum. Fyrir 400 kr. fást 40 nathspjöld eða 20 stærri kort sem prentast út á einni mínútu. Það er fyrirtækiö Passamyndir hf. sem annast rekstur þessarar nafnspjaldavélar sem staðsett er á annarri hæð Kringlunnar beint á móti Hagkaup. Kvennaklúbbur Hafnarfjarðar heldur konukvöld i kvöld. Verður þetta kvöld tileinkað Keflavik og verða sæta- ferðir frá SBK, Keflavík, kl. 20.15. Far- gjald 500 báðar leiðir. Boöið verður upp á snarl og drykki milli kl. 21 og 22. Sýnd- ur verður leikþáttur og fatafella kemur í heimsókn og ýmsar uppákomur. Rædd verða ýmis mál tengd kvennaklúbbnum. Allar konur velkomnar. Aðgangur ókeypis. Kvenfélag Fríkirkjunnar í Reykjavík Hin árlega skemmtiferð kvenfélagsins verður farin fostudaginn 3. september. Lagt verður af stað frá Frikirkjunni kl. 17. Allar upplýsingar mn ferðina eru gefnar í síma 699932 eða 30317, Auður, s. 42551, Helga, og s. 43549, Sigríður. Nýlega héldu þessir tveir piltar, sem heita Dagur Snær Sævarsson og Amar Ólafsson, tombólu til styrktar Rauða krossi íslands. Alls söfnuðu þeir 1596 krónum. Dagur vatnsins í dag, laugardag, er dagur vatnsins og þá bjóða Vatnsveita Reykjavikur og Hita- veita Reykjavikur aUa velkomna að skoða mannvirkin í Gvendarbrunnum og á Nesjavöllum. í Gvendarbrunnum verður opið fyrir almenning frá kl. 10-16. í boði verða skoðunarferðir um brunna- svæðið í Heiðmörk þar sem m.a. borholur og tilheyrandi dælur verða skoðaðar og gestir fræddir rnn vatnstöku kalda vatns- ins. Gestum verður ekið frá bílastæðum við Rauðhóla að hinu sérstaka Gvendar- brunnahúsi þar sem m.a. verður sýnt myndband þar sem saga vatnsmála Reykvíkinga allt frá landnámstíð til dags- ins í dag er rakin. Þá verður til sýnis gamall slökkviliðsbíll, aldamótavatns- póstur, bmnahanar og margvísleg tæki og búnaður vatnsveitumanna. Vatns- veita Reykjavikur býður til kaffidrykkju og meðlætis í Jaðri þar sem er vistleg aðstaða starfsmanna vatnsveitunnar. A Nesjavöllum verður opið fyrir almenning frá kl. 10.30-17. Skoðunarferðir verða um orkuverið með leiðsögn þar sem gestnm er m.a. skýrt frá uppbyggingu þess og hvernig kalt vatn er hitað með jarðhita- vatni og gufu og það síðan leitt til höfuð- borgarsvæðisins. Þegar gestir hafa skoð- að NesjavaUavirkjim býður Hitaveita Reykjavíkur til kaffidrykkju og meðlætis í Nesbúð sem er veitinga- og gististaður á Nesjavöllum skammt frá orkuverinu. Allar nánari upplýsingasr fást hjá Vatns- veitu Reykjavikur í síma 697000 og hjá Hitaveitu Reykjavikur í síma 600100. Trompetar með orgeli Hallgrímskirkju Sunnudaginn 22. ágúst leika Ásgeir Her- mann Steingrímsson og Eiríkur Öm Pálsson trompetleikarar og Hörður Áskelsson, organisti Hallgrímskirkju, á áttundu orgeltónleikum Hallgrímskirkju í tónleikaröðinni Sumarkvöld við orgehð og hefjast tónleikamir kl. 20.30 Þeir félag- ar em þekktir í íslensku tónlistarlífi síð- ari ára en þetta verður í fyrsta skipti sem nýja orgeliö hljómar með einleikshljóð- færi á tónleikunum. Safnaöarstarf Laugardagur 21. ágúst Hallgrímskirkja: Tónleikar kl. 12.00. Orgel: Hörður Áskelsson. Trompet: Ás- geir H. Steingrimsson og Eiríkur Öm Pálsson. Sunnudagur 22. ágúst Seltjarnarneskirkja: Btmdur í æsku- lýðsfélaginu í kvöld kl. 20.30. Mánudagur 23. ágúst Hallgrimskirkja: Fyrirbænaguðsþjón- usta þriðjudag kl. 10.30. Beðið fyrir sjúk- um. Seltjarnarneskirkja: Foreldramorgunn þriðjudag kl. 10-12. Andlát Karitas Kristinsdóttir, Árhóli, Dal- vík, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri miðvikudaginn 18. ágúst. Rannveig Stefánsdóttir, Dalbæ, Dal- vík, lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 19. ágúst. Margrét Kristjánsdóttir, áður til heimilis að Miklubraut 7, er látin. Aðalsteinn Guðmundsson frá Stakkadal, Aðalvík, síðast til heimilis á Droplaugarstöðum, Snorrabraut 58, Reykjavík, andaðist í Borgar- spítalanum aðfaranótt 18. ágúst. Jarðarfarir Ásgeir Gunnarsson, Silfurbraut 10, Höfn, verður jarðsunginn frá Hafn- arkirkju í dag, laugardaginn 21. ág- úst, kl. 14.00. Kristný Valdadóttir, Brekastíg 29, Vestmannaeyjum, verður jarðsung- in frá Landakirkju í dag, laugardag- inn 21. ágúst, kl. 14.00. Sigurður Oddsson, Ásabraut 14, Sandgerði, verður jarðsunginn frá Hvalsneskirkju í dag, laugardaginn 21. ágúst, kl. 15.00. Emelia Lárusdóttir, Suðurgötu 24, Sauðárkróki, verður jarðsungin frá Sauðárkrókskirkju í dag, laugardag- inn 21. ágúst, kl. 14.00. Kristín Halldórsdóttir frá Oddastöð- um verður jarðsungin frá Kolbeins- staðakirkju í dag, laugardaginn 21. ágúst, kl. 14.00. Einar Jónsson frá Móbergi, Húsavík, verður jarðsunginn frá Húsavíkur- kirkju mánudaginn 23. ágúst kl. 14.00. Jón Ingþór Friðbjörnsson, Víðgrand 26, Saúðárkróki, verður jarðsunginn frá Sauðárkrókskirkju í dag, laugar- daginn 21. ágúst, kl. 16.00. Greiðsluáskorun Sýslumaðurinn á Patreksfirði skorar hér með á gjald- endur, sem ekki hafa staðið skil á gjöldum, sem voru álögð 1990, 1991, 1992 og 1993 og féllu í gald- daga til og með 15. ágúst 1993 og eru til innheimtu hjá ofangreindum innheimtumanni ríkissjóðs, að greiða þau nú þegar og ekki síðar en 15 dögum frá dagsetningu áskorunar þessarar. Gjöldin eru þessi: tekjuskattur, útsvar, eignaskattur, sérstakur eignaskattur, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa, tryggingagjald, iðnlánasjóðs- og iðn- aðarmálagjald, lífeyristryggingagjald skv. 20. gr. laga nr. 67/1971, slysatryggingagjald atvinnurekenda skv. 36. gr. sömu laga, atvinnuleysistryggingagjald, kirkjugarðsgjald, gjald í framkvæmdasjóð aldraðra, skattur af verslunar- og skrifstofuhúsnæði, launa- skattur, bifreiðaskattur, slysatryggingagjald öku- manna, þungaskattur skv. ökumælum, viðbótar- og aukaálagning söluskatts vegna fyrri tímabila, skemmtanaskattur og miðagjald, virðisaukaskattur af skemmtunum, tryggingagjald af skipshöfnum ásamt skráningargjöldum, vinnueftirlitsgjald, vöru- gjald af innlendri framleiðslu, aðflutningsgjöld og útflutningsgjöld, verðbætur á ógreiddan tekjuskatt og verðbætur á ógreitt útsvar, virðisaukaskattur, stað- greiðsla og tryggingagjald. Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara fyrir van- goldnum eftirstöðvum gjaldanna að liðnum 15 dög- um frá birtingu áskorunar þessarar. Athygli er vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnámsaðgerð í för með sér verulegan kostnað fyrir gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að kr. 10.000 fyrir hverja gerð. Þinglýsingargjald er kr. 1000 og stimpilgjald 1,5% af heildarskuldinni, auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem fyrst til að forðast óþægindi og kostnað. Jafnframt mega þeir, sem skulda virðisauka- skatt, staðgreiðslu og tryggingagjald, búast við að starfsstöð verði innsigluð nú þegar. Sýslumaðurinn á Patreksfirði, 20. ágúst 1993. Það borgar sig að vera áskrifandi! Áskriftarsíminn er 63 27 OO GIFTING ER STUND GLEÐI OG FEGURÐAR. UMHVERFIÐ, ÞJÓNUSTAN OG FRÁBÆRAR .VEITINGARNARÁ HÓTEL HOLTI OG ÞINGHOLTI FULLKOMNA HAMINGJURÍKAN DAG SEM LIFIR í ENDURMINNINGUNNI. KAFFIVEITINGAR FRÁ 1.100 KR. Á MANN. ÞRIRÉTFAÐUR KVÖLDVE RÐUR FRÁ 2.450 KR. ÁMANN. ÞINGHOLT ER GLÆSILEGUR VEISEUSAEUR FYRIR 20-120 GESTI. AEEAR NANARI UPPLYSINGAR SÍMA 25700 -DBE Af mæiishóf á Djúpuvík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.