Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1994, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1994, Blaðsíða 12
12 Spumingin MÁNUDAGUR 11. APRlL 1994 Heldurðu að Sophia Hansen fái stúlkurnar sínar aftur? Svandís Grétarsdóttir: Ég vona þaö hennar vegna. Þorsteinn Jónasson: Ég vona þaö. Dagmar Traustadóttir: Ég vona það. Inga Óskarsdóttir: Ég reikna ekki með því. Mér finnst það eiginlega vonlaust. Einar Pétursson: Ég vona það besta. Berglind P!örnsdóttir: Ég vona það hennar vegna en eins og karlinn er búinn að haga sér þá reikna ég ekki með því að hann virði lögin frekar núna. Lesendur Sjálfstæðismenn standa við gefin loforð: Reynslan er ólygnust Áframhald á stefnu vinstri flokkanna í ríkisfjármálum hefði leitt efnahags- legt hrun yfir þjóðina, segir m.a. í bréfi Magnúsar. - Siðasta rikisstjórn vinstri flokkanna. Kjartan Magnússon skrifar: Grétar nokkur skrifar lesendabréf í DV sl. miðvikudag þar sem því er haldið fram að kjósendur eigi að refsa Sjálfstæðisflokknum þar sem hann hafi svikið þau kosningaloforð sem gefin voru fyrir síðustu alþingis- kosningar. - Það verður ekki hjá því komist að hressa upp á minni Grét- ars og leiðrétta rangfærslur sem koma því miður fram í grein hans. Grétar segir að Sjálfstæðisflokkur- inn hafi lofað að lækka skatta en hins vegar hafi þeir stórhækkað í tíð núverandi ríkisstjórnar. Þetta er rangt. Frambjóðendur Sjálfstæðis- flokksins lofuðu aidrei aö lækka skatta, en tóku skýrt fram að koma yrði lagi á fjármál hins opinbera og stöðva útþenslu ríkisbáknsins eftir þriggja ára óstjórn Alþýðuflokks, Framsóknarfiokks og Alþýðubanda- lags. Það tókst. Á síðustu þremur árum hefur tek- ist að draga úr ríkisútgjöldum um 7% aö raunvirði. Að sjálfsögðu verð- ur að taka með í reikninginn að minnkandi þjóðartekjur hafa í fór meö sér minnkandi skatttekjur. Vinstri stjómir hafa venjulega brugðist við slíkum aðstæðum með því að hækka skatthlutfalliö. Grétar hlýtur að vera ánægður með að ríkis- stjóm Davíðs Oddssonar fór aðra leið og kom í veg fyrir enn frekari skatta- hækkanir með því að spara duglega í ríkisrekstrinum. Af þessu sést að Grétar má vera stoltur af að hafa veitt Sjálfstæðis- flokknum atkvæði sitt í síðustu al- þingiskosningum enda heföi áfram- hald á stefnu vinstri flokkanna í rík- isfjármálum leitt efnahagslegt hrun yfir þjóðina. - Sjálfstæðisflokkurinn hefur átt erfitt með að gefa skýr kosningaloforð fyrir alþingiskosn- ingar þar sem hann hefur alltaf þurft aö mynda stjórn með öðrum flokkum og þannig þurft að semja um flest atriði og slá af eftir þörfum. í Reykjavík hafa sjálfstæðismenn hins vegar gefið skýr kosningaloforð fyrir hverjar kosningar og staðið við þau. Um leið og ég sendi Grétari kæra kveðju skora ég á hann að bera saman efndimar á kosningaloforð- um vinstri manna fyrir borgarstjóm- arkosningarnar 1978 og loforðum sjálfstæðismanna fyrir kosningarnar 1982, 1986 og 1990. - Þá sæi hann af hverju Reykvíkingar þurfa ekki að sjá eftir því að veita sjálfstæðismönn- um atkvæði sitt. Þrír varaf orsetar og velsæmið Haraldur Guðnason skrifar: Fyrir nokkru hljóp á snærið hjá RÚV og öðram fjölmiðlum. - Marg- endurtekið að Alþingi heföi sagt upp áskrift að meira en 80 eintökum af Pressunni, fyrir eina milljón króna á ári. í útvarpi (rás 1) var svo sérstak- ur þáttur um málið. Valgerður Sverrisdóttir, þingfrú með meira, upplýsti, að á hinu háa Alþingi hefði virðuleg nefnd komist að því að Pressan væri ekki lengur kratakálfur Alþýðublaðs og því dæmt rétt vera að segja upp blaðinu og spara milljónina. Frú forseti Alþingis kom með aðra ástæðu. Henni og virðulegri forsæt- isnefnd bæri að gæta þess aö ekki sé talað eða skrifað óvirðulega um for- seta íslands og því ekki við hæfi að bera nefnt blað á borð alþingis- manna. En keypt gætu þeir blaðið sjálfir ef þeir vildu ekki missa af efni þess margvíslegu. - Þá mætti spyija hvort kjör þingmanna væru svo bág að þeir hafi ekki efni á að kaupa t.d. dagblööin? Oþarft var að birta heilsíðumynd af forseta, svo vel sem hún er þekkt, og enn síöur að fella þar inn í mynd af strípalingi, þrátt fyrir vaxandi vin- sældir slíkra. Og lítt varðar okkur, undirsáta valdamanna, um það, hvaða frúr eru í saumaklúbbi forset- ans. Tímar breytast og viðbúið aö hætt verði að tala og skrifa um æðstu embættismenn kerfisins í upphöfn- um helgitón en vitaskuld verður að huga að velsæmi. - Nú er tímabær spurning hvort leggja ætti forseta- embættið niður, þá kjörtímabilinu lýkur og gera aðra skipan þar á? - Og meðal annarra orða: Fyrirfinnst annaö ríki en okkar þar sem varafor- setar era þrír? Sjávarútvegs- oglandbúnaðarstefna Sjálfstæðisflokksins: Grétar skrifar: Sjávarútvegsstefna Sjálfstæðis- flokksins er að mínu mati engin. Eða ætlar flokkurinn bara aö láta þetta handónýta kerfi reka á reiðanum? Láta sægreifa með LÍÚ að vopni ráða ferðinni fyrir sig og sína? Sjávarút- I vegurinn skilar 80% af útflutnings- tekjum þjóðarinnar og þar liggur stærsti vandinn því engin haldbær stefna né stjómun er í þessum mál- um og alls engin sem miðar að þjóð- arhag. Mér sýnist sem hagsmunahópar (t.d. sægreifamir) innan Sjálfstæðis- flokksins hafi risavaxin ítök í flokkn- um og þess vegna næst ekki nein skynsamleg stjómun í fiskveiðimál- unum. Sægreifamir halda sínu og komast upp með það. - Braska með þessa þjóðarauðlind sem þeir fá hins vegar úthlutað ókeypis. Landbúnaðarmál Sjálfstæðis- flokksins era einnig nokkuð skrýtin „Sjávarútvegurinn skilar 80% a( útflutningstekjum þjóðarinnar og þar ligg- ur stærsti vandinn því engin haldbær stefna er i þessum málurn," segir bréfritari m.a. svo vægt sé til orða tekiö, a.m.k. eigi flokkurinn aö teljast flokkur einka- framtaks. Stefna flokksins virðist vera sú í þessum málum að viðhalda þeirri landbúnaðarstefnu sem við- gengist hefur á síðustu áratugum, hvað sem það kostar. Okrað er á neytendum og engu má breyta sem gæti lækkað verö á landbúnaöaraí'- urðum. Ausa skal áfram milljörðum í landbúnaðinn, hneppa bændur í íjötra og okra á almenningi. - Ég trúði hreinlega ekki að Sjálfstæðis- flokkurinn myndi viöhalda svona stefnu. En annað hefur komið á dag- inn. Flokkarnirkosn- ingabandalög Bjöm Jónsson skrifar: Mér finnst sífellt minna og minna kveða að íslenskum stjóramálaflokkum og á það við þá aila. Stefnur þeirra hafa fariö fyrir lítið. Nú síðast hjá Samtök- unum um kvennalista sem hafa nú blandast Öðrum flokkum með sameiginiegu framboði til borg- arstjórnar. Flokkarair eru í mesta lagi kosningabandalög eins og einn nýlátinn stjórnmálafor- ingi okkar lét um mælt í blaðaviö- tali. Ég sé ekki hvaða erindi stjómmálaflokkar eiga þá við okkur, almenna þjóðfélagsþegna. Það mætti allt eins kjósa nokkra menn í beinni kosningu til ríkis- stjóraar í stað flokkakerfisins. Uppþotúiaf uppsögn! Jóhanna Ólafsdóttir hringdi: Ég lýsi yfir hneykslun minni á því uppþoti sem orðið hefur í fjölmiðlum vegna uppsagnar konu í heilbrgiðisgeiranum og sem er þó engin uppsögn þar sem konunni er boðið vinna á vöktum i stað dagvinnu sem hún getur vart sinnt vegna starfa að félags- málum. Hvað má fólk segja sem hefur verið sagt upp fyrirvara- laust og hefur ekki heilt féiag á bak við sig eins og þessi kona í sjúkraliðafélaginu? En svona er þetta alltaf þegar einhverjum er sagt upp hjá því opinbera. Það hafa hins vegar fáir samúð með þessum kröfukindum. Brussels-gengiö glattmeðsitt Gísli Guðmundsson skrifar: Það er mikiö látið meö strákana ílentust í Brussei á vegum EES, EFTA og hvað þetta nú allt heitir í skammstöfunum. Reyndar lika í Genf sömu erinda og Brussels- gengið. Ríkisútvarpið hefur ekki undan aö skipuleggja viðtöl viö einhvem úr þessum kreðsum og það lætur vel af sér liðið. Þorra- blót meö heföbundnum hætti í Genf, og allir eru glaöir með sitt. Nú síðast var viðtal í morgunút- varpi RÚV við Magnús nokkurn Ólafsson. Var viðtalið í ætt við önnur slík úr þessum áttum. - En m.a. orða: Er allt þetta fólk á launum hjá okkur eða hinum al- þjóðlegu stofhunum? Þvíþögðu þingmenn um Pressuna? Knútur hringdi: í fréttum ffá Alþingi segir að forseti Alþingis hafi sagt upp Pressunni, þessu blaði sem segist gera út á fféttir en nærist í raun á fáu öðru en klögumálum frá fólki með mismunandi brenglað hugarfar. Það sem mann undrar mest er þaö að alþingismenn skuli ekki sjálfir hafa kveðið upp úr um Pressuna sem óhæft les- efni sem hefur oftar en ekki vegið að alþýðunni í landinu og reynd- ar hverjum sem á vegi hennar varð. Þingmenn hafa að vísu skrifað í hana sumir en mér er sama. - Skyldu þeir þá ekki hafa mikils í misst við að fá ekki Press- una senda fría? í lesendabréfi Jóns Tryggva í DV 5. apríl sl. undir fyrirsögninni „Húmanísk bylting í Reykjavik“ er hér birtur kafli sem lenti í oröabrengli. - Kaflinn er hér ieiö- réttur: „Það er rétt athugað aö þær hugmyndir sem þarna eru settar fram um lýðræðislegra og skilvirkara stjórnkerfi eru mark- verðar og eru í raun fyrsta skref- ið i að færa stjórn Reykjavíkur í hendur borgarbúa sjálfra."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.