Alþýðublaðið - 22.06.1967, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 22.06.1967, Blaðsíða 4
íEmm Rltstjóri; Benedikt Gröndal. Simar 14900—14903. — Auglýsingasími: 14906> — Aðseturr. AlþýBuhúsið við Hverfisgötu, Rvik. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. Simt 14905. — Áskriftargjald kr. 105.00. — 1 lausa- sölu kr. 7.00 eintakið. — Útgefandi: Aiþýðuflokkurinn. Heimili og neytendur ÞESSA DAGA stendur yfir í Reykjavík fundur nor- rænu neytendamálanefndarinnar, en 'hún er einn af ávöxtum Norðurlandaráðs. Má af því marka áhuga norrænu þjóðanna á málefnum neytenda, að slík nefnd skuli vera til. Gylfi Þ. Gíslason viðskiptamálaráðherra flutti ræðu við upphaf fundarins. Þar lýsti hann meðal annars þeirri skoðun sinni, að hann teldi fyllilega tímabært fyrir íslendinga að koma upp sérstakri deild við viðskipta- eða félagsmálaráðuneytið til að vinna að fjölskyldu- og neytendamálum. Gylfi sagði, að íslendingar hefðu ekki sinnt þess- um málum sem skyldi og væru komnir aftur úr hin- um Norðurlöndumim. Þar fjölluðu víðast sérstök ráðuneyti um þessi mál og væru talin hin mikilvæg- ustu af því að þau snerta daglegt líf og afkomu heimilanna. Kvað Gylfi nauðsynlegt að bæta úr þessu hér á landi. Fyrr á árum lagði 'hin vinnandi alþýða megin- áherzlu á samtök til að berjast fyrir hærra kaupi og þarmeð bættum lífskjörum, ásamt öðrum rétt- indum. í seinni tíð hefur það orðið með hverju ári ljósara, að þetta er aðeins önnur hlið málsins. Hin hliðin er sú spurning, hvað fæst fyrir kaupið, og þá koma allir fram sem neytendur. Það er ánægjulegt, að Gylfi Þ. Gíslason skyldi láta í ljós þær skoðanir, að íslendingar þurfi að sækja fram á þessu sviði — og er vonandi að það verði gert frekar fyrr en síðar. i Eru þeir nízkir? FYRIR NOKKRUM ÁRUM hélt Iðnaðarmálastofn- unin sýningu í Iðnskólanum, og fjallaði hún um „framleiðni“. Þótti hún nýstárleg, enda orðið og jafnvel hugtakið mörgum mönnum nýtt. Síðan hefur æ fleirum orðið ljóst, að aukin fram- leiðni er kjárninn í efnahagsvandamálum íslendinga. Að framleiða sem mest með sem minnstum tilkostn- aði er lykillinn að góðri afkomu fyrirtækis eða ein- staklings. Nokkrir erlendir aðilar taka nú þátt í framkvæmd- um hér á landi. Svo er að heyra á kunnugum, að Islendir>ííum þyki þessir útlendingar „nízkir“. Þeir hika við að setja mann í þetta og mann í hitt og kaupa eitt eða annað, sem einhverjum dettur í hug. Vafa!ar’'-t er þetta rétt athugað. En skyldi það ekki veya, að úlendingar þessir gættu þess hetur að hyggingakostnaður hélcV áætlun og þeir næðu hetri árangri með ,,nízku“ sinni en aðrir með bullandi stórhug og sukki? 4 22. júní 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ Kosningahóf á vesturlandi Síðastliðinn föstudag hélt Alþýðuflokkurinn í V esturlandskjördæmi kosningahátíð í félagrsheimil- inu að Arnarstapa á Mýrum. Kom þangað fjöldi fólks víða að, allt frá Akranesi til Hellisands. Guð mundur Vésteinsson, formaður kjördæmaráðs, stjárnaði samkomunni, en til máls tóku Benedikt Gröndal. Pétur Pétursson, Háldán Sveinsson og Bjarni Andrésson. Myndin sýnir Guðmund Jónsson söngvara og hluta af samkomugestum. (Mynd: ÞórJur Þórðarson). ★ 17. JÚNÍ. Þjóðhátíðardagurinn er liðinn og fóru hátíðahöldin að þessu sinni fram á nýjum stað og með nýju sniði. Veðrið var fremur óhag- stætt, hvassviðri og rigning, einkum þegar á dag- inn Ieið, og kom það auðvitað niður á skemmti- atriðunum og dró úr aðsókninni. Talsverð óánægja og gagnrýni hafði komið fram út af fyrirhuguðum breytingum á hátíðahöldunum, sér í lagi niðurfellingu dans- leiksins og flutningi þeirra úr miðbænum inn í Laugardal. Á siðustu stundu breytti þó þjóðhá- tíðarnefndin ákvörðun sínni um að fella niður dansleikinn og ákvað, að hann skyldi verða við Laugardalshöllina um kvöldið. Segja. má, að ekki hafi verið ó- eðlilegt, að þjóðhátíðamefnd leitaði fyrir sér með nýtt fyrirkomulag hátiðahaldanna, nefndin hefur undanfarin ár legið undir nokkurri gagnrýni fyrir litla tilbreytni og hefðbundin skemmtiatriði. — Þess vegna var þessi tilraun kannski réttmæt og út af fyrir sig góðra gjalda verð. Nokkur reynsla hefur nú fengizt. Það hefur t. d. komið í ljós, að í grundvallaratriðum vill almenningur halda hinu hefðbundna fyrirkomulagi, sem verið hefur að skapast á liðnum árum. Bæjarbúar vilja sem sagt halda barnaskemmtuninni að deginum, sömu- leiðis útidansleiknum um kvöldið og auðvitað í- þróttunum, um þær hefur aldrei verið deilt, og margir vilja hafa hátíðahöldin áfram í miðbæn- um, a.m.k. að einhverju leyti. 1 ★ ÓAFSAKANLEGT HIRÐU- LEYSI. Af þessari tilraun ætti þjóðhátíð- arnefnd að geta nokkurn lærdóm dregið. Hátíða- höldin eru auðvitað fyrir bæjarbúa og við sann- gjarnar og eðlilegar óskir þeirra ber að miða þau. Mér sýnist, að lausnin gæti verið sú, að skipta dagskránni milli tveggja eða jafnvel fleiri staða. T. d. að hafa útidansleikinn í miðbænum fyrst uxni sinn, en önnur skemmtiatriði annars staðar í bæn- um og kemur þá Laugardalurinn auðvitað fyrst og fremst til greina, enda sérlega vel til þess fallinn og verður það þó í enn ríkara mæli, þegar timar Iíða. Annars fóru hátíðahöldin eftir at- vikum vel og skikkanlega fram, en auðvitað spilltl veðrið ánægjunni og dró nokkuð úr þátttöku. Að einu leyti var þó um veru- Iega afturför að ræða. Undanfarið hefur hátíðar- svæðið verið hreinsað vel og vandlega þegar að hátíðahöldunum loknum. Nú var- ekkert um það hirt, bréfarusl, flöskubrot og annað dót lá eins og hráviði út um allt daginn eftir, merkjaveifur héngu uppi og öskutunnur stóðu eða lágu hingað og þangað og gubbuðu af offylli, en islenzki fán- inn blakti hátíðlega yfir viðurstyggðinni. Ekki veit' ég hver ber ábyrgð á þessu, en hirðuleysið er óafsakanlegt. — S t e i n n .

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.