Alþýðublaðið - 07.05.1967, Page 1

Alþýðublaðið - 07.05.1967, Page 1
Sunnudagur VERÐ 7 KR. m%MM) VELFERÐ ALDRAÐRA Erlendur Vilhjálmsson deildarstjóri hjá Trygg- ingarstofnun ríkisins skrifar grein í opnuna í dag, sem nefnist VEL FERÐ ALDRAÐRA. Fjallar hún um vel- ferðarmál aldraða fólks ins og er hin skelegg- asta umræða um þau. ER SUMARIÐ LOKSKOMIÐ? Skyldi sumarið nú loks ins vera komið? Menn spurð'u hvern annan þess arar spurningar í gær og höfðu vissulega ástæðu til. Það var einmuna gott veður í Reykjavík í gær, sólskin og blíðviðri. Myndin er tekin niðri við Tjörn DÝPKUNARFRAMKVÆMDIR Á AKUREYRI Vegna dýpkunarframkvæmda við dráttarbrautina á Akureyri eru þeir, sem leið eiga um athafnasvæðið beðnir að gæta varúðar. Þessi tilkynning frá vitamálastjóra hefur heyrzt í hljóðvarpinu undanfarna daga, og hér kemur svo mynd af framkvæmdunum. Þarna er verið að undirbúa byggingu nýrrar dráttarbrautar, sem á að geta tekið allt að 2000 tonna skip, en efnið í stöðina er frá Póllandi. Þegar dýpkunarfram kvæmdunum er lokið, verður hafizt handa við að ramma nið ur stálþil og síðan verður drátt arbrautin sett upp. Áætlaður byggingartími er tvö ar. — Jr. Snemma í gærmorgun fundu í- búar Reykjavíkur og nágrennis jarðskjálftakipp. Jafnaðarmanna- flokkur stofnaður á Grænlandi UNNIÐ er nú að stofnun jafn- aðarmannaflokks á Grænlandi. Færeyska blaðið Sósíalurinn hefur það eftir Knud Hertling þing manni frá Grænlandi, að verið sé að vinna að stofnun flokksins og hefur hann skýrt frá því, að fái flokkurinn mann kjörinn á danska þjóðþingið muni hann skipa sér í þingflokk danskra jafnaðarmanna, alveg eins og fær eyski j afnaðarmannaþingmaðu rinn hefur gert, en annars hefur venj an verið hin að þingmenn Fær eyja og Grænlands hafa ekki tek ið beinan þátt í baráttu dönsku stjórnmálaflokkanna. H í því sambandi leitaði blaðið upplýsinga hjá Ragnari Stefáns svni hjá jarðeðlisfíæðideild Veð urstofunnar. Sagði hann að kipp ur þessi ætti upptök sín að rekja 27 km. frá Reykjavík, eða skammt austur af Kleifarvatni. Var hér um að ræða tvo kippí og var sá fyrrl mjög vægur og hefur að likindum hvergi fundizt, Sá seinni sem kom einni mínútu síðar, eða kl. 7,29 var nokkuð stærri og fannst hann í Reykjavík, Kópa vogi, Hafnarfirði og víðar. Mæld ist hann 2,7 á richter-kvarða. Ragnar sagði, að hér væri að eins um venjulegan jarðskjálfta kipp að ræða en jarðskjálftar væru mjög fíðir á þessum slóðum. - á foísSssllM 7

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.