Alþýðublaðið - 28.05.1968, Síða 14
Tilkynningar
Framhald af 5. síSu.
tryggingar nýjum atvinnugrein-
um, sem minna eru háðir jafn
duttlungafullum atvikum, sem
veðrátta, aflagengd og erlent
verðlag fiskafurða, hlýtur ávalit
að verða.
Framtíðarverkefnin í íslnzk-
um sjávarútvegi, verða því tví-
mælalaust þau að tryggja svo
sem kostur er rekstur veiðiflot-
ans og vinnslustöðva með því
gjaldþoli, sem þjóðin hefur yfir
að ráða. Þá byrjun, sem í heild
hefur vel af stað farið, þótt ein
staka byrjunarmistök hafi átt
sér stað, um betri ög meiri nýt-
ingu sjávaraflans og færa hana
nær kröfum neytandans. Við
þurfum nauðsynlega að beita
þeim veiðiflota, sem við höfum
yfir að ráða nú, til hinna ýmsu
veiðigreina þótt aðrar bregðist
um sinn, þar sem það er þjóðar
nauðsyn, að sem minnst lilé
verði á nýtingu sem fjölbreyti-
legastra veiðiaðferða flotans.
Við þurfum einnig og ekki sízt
á því að halda að sem öflugast
verði við haldið þeim veiðigrein
um, er mest hafa lagt bjóðarbú-
inu til, bolfisk- og síldveiðar
hafa og munu áfram verða uppi-
staðan i sjávaraflanum og at-
vinnu í landi. Þeim útgerðar-
mönnum og sjómönnum sem ó-
trauðir hafa lagt út í veiðar á
áður óþekktum slóðum, til að
tengja vertíðarúthöld betur sam
an, skulu því hér færðar sérstak-
ar þakkir fyrir frumkvæðið, sem
lýsir íslenzkum þrótti, þori og
framtakssemi.
Eftir fjárhagslegri getu er
þjóðinni brýn nauðsyn á að auka
á fjölbreyttari endurnýjun veiði
flotans, og er í þvi efni uppi sú
spurning hvort við höfum efni
á að vera fátækir, þegar jafn mik
ið er að veði.
Ef einhver efast um sannleiks-
gildi þessara orða bið ég þann
sama að gefa sér tíma til að
skoða af gaumgæfni sjávarút-
vegssýnjnguna „íslendingar og
hafið.“ Þar mun almenningur
sannfærast.
í trausti þess, að okkur megi
nú sem fyrr, þrátt fyrir erfiðleik
ana er að steðja um sinn, auðn-
ast að feta veginn fram á við
óska ég sjómönnum og ættfólki
þeirra öllu til hamingju með
þennan hátíðisdag og þjóðinni
allri með sjómennina okkar.“
Lítið um óhöpp
Framhald úr opnu.
Reyndar mun hafa orðið smá-
óhapp á Miklatorgi klukkan átta
um morguninn, en bílarnir voru
farnir af staðnum, þegar lögregl-
an kom á' vettvang.
ÍJmferð í Reykjavík var lítil
fyrst eftir hádegið miðað við
hina miklu umferð fyrir liádegið,
en umferðin jókst síðan stöðugt
og var orðin gífurlega mikil í
eftirmiðdaginn. Mynduðust mikl-
ir umferðarhnútar víða í borg-
inni, en að sögn lögreglunnar
hegðaði umferðin sér mjög í sam-
ræmi við það, sem lögreglan
hafði búizf við.
Aðeins sex minmháttar um-
ferðaróhöpp urðu á timabilinu
Érá hádegi til klukkan sjö á
sunnudagskvöld. Eitt umferðar-
slys varð á þessu tímabili á Sund
laugarveginum, en þar hjólaði
11 ára gamall drengur í veg fyf-
ir jeppabifreið. í þeim sex tilvik-
um, sem áður er getið varð
hvergi slys á mönnum.
Á sunnudáginn voru allir veg-
farendur að „stíga fyrstu skref-
in” í liægri umferð. Allir voru
að æfa sig í hinni breyttu um-
ferð. Ökumenn sýndu varfræni
og tillitssemi gagnvart öðrum i
.umferðinni og hlýddu hraðatak-
mörkunum þeim, sem settar voru
vegna breytingarinnar og gilda
munu áfram um nokkurt skeið.
Umferðin á sunnudag var ekki
eðlileg, þar sem enginn var að
flýta sér. Tafir og umferðarhnút-
ar skiptu ekki máli, og sýndu
menn biðlund og þolinmæði.
Eftir kvöldmat á sunnudag
var all-nokkur umferð á götum
borgarinnar, en hún minnkaði
verulega, er líða tók á kvöldið.
Yeður var leiðinlegt, rigning og
dumbungsveður. Á tímabilinu
frá klukkan 19.00 til 24.00 urðu
alls r fjögur umferðaróhöpp í
Reykjavík og voru þau öll smá-
vægileg.
Þannig urðu alls 12 umferðar-
óhöpp í hægri umferð á sunnu-
dag. Aðeins eitt þessara óhappa
er alvarlegs eðlis, þó að ekki
hafi þar verið um alvarlegustu
gerð umferðarslysa að ræða. —
Drengurinn, sem fyrir jeppabif-
reiðinni varð á Sundlaugarvegin-
um mun ekki hafa slasast hættu-
lega og vona allir, að þetta
fyrsta fórnarlamb hægri umferð-
ar nái sér fljótt og um leið, að
slysum í umferðinni fækki nú
með aukinni umferðarfræðslu,
auknu umferðareftirliti og sam-
hug allra vegfarenda í breyttri
umferð.
íþrcttir
Framhald 10. síðu.
átt að hafa það hugfast, að eng-
inn leikur er tapaður fyrr en dóm
arinn hefur blásið af.
Einar Hjartarson dæmdi leik-
inn rétt laglega. — x.
Iþrcttir
Frámhald af 11. síðu.
stökk 1,42 m.
Kuldi vorsins hefur komið í
veg fyrir að útiæfingar hinna
ungu ÍR-inga gætu hafizt, en nú
ingar þeirra eru byrjaðar, og
verða þær nú, eins og síðastliðið
sumar, undir stjórn hins vinsæla
þjálfara ÍR-inga. Æft verður
fyrst um sinn mánud. þriðjud.
er þó svo langt komið, að æf-
fimmíud. og föstudaga frá kl.
16,30 til 17,30 alla dagana.
EkiS of hratt
Frh. af 1. síðu.
Sagði hann við þetta tækifæri:
„Allt of mikið ber á því, að
menn brjóti hraðaákvæðin.
Kannski er ekki hægt að segja,
að óeðlilega mikið sé um það,
að menn brjóti þessi ákvæði,
þar sem lögreglunní hafi verið
fullkunnugt um það, að tals-
verður misbrestur hafi verið
á í þessu efni, áður en um-
ferðarbreytingin kom lil. Hitt
er svo annað mál, að menn
ættu að gera sér grein fyrír
því, að nú eru komin til sög-
14 28. maí 1968 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
unnar gerbreytt viðhorf í
þessum efnum og ættu því að
vera miklu gætnari gagnvart *
ökuhraðanum en áður.”
Arnþór kvað flestar þær
bifreiðir, sem stöðvaðar voru
í gær, hafa verið á hraða, sem
væri talsvert yfir þeim há-
markshraða, sém leyfður er.
Þá sagði Arnþór, að mjög
strangri gæzlu vegna öku-
hraða bifreiða yrði haldið
áfram og öllum ráðum beitt í
því efni að stöðva þá öku-
menn, sem brytu hraðatak-
mörkin í umferðinni. Til þess
væri jöfnum höndum beitt
radarmælingum og mælingum
á dögreglubiflreiðum og bif-
hjólum.
Þyrla Liandhelgisgæzlunnar
og Slysavarnafélagsins var
notuð mikið bæði á sunnudag-
inn og í gær til þess að fylgj-
ast með gangi umferðarinnar,
einkum með tilliti til þess,
hvar umferðarhnútar mynd-
uðust.
Stærsta verkalýðssamband
Frakklands, sem kommúnistar
ráða yfi, neitaði í gær að
undirrita samkomulag það,
sem ríkisstjórnin, vinnuveit-
endur og fulltrúar launþega
geðu með sér í gærmogun
eftir rúmlega sólarhrings
samningafund.
ísl. ungtemplarar 10 ára
Á SUMARDAGINN FYRSTA
síðastliðinn voru tíu ár liðin frá
stofnun félagssamtakanna ís-
lenzkir ungtemplarar. í afmælis-
riti samtakanna kemst formaður
þeirra, Einar Hannesson m. a.
svo að orði:
— Fróðlegt er að horfa um öxl
og rifja upp það, sem gerzt hef-
ur þessi ár í starfsemi íslenzkra
ungtemplara. Skipzt hafa á skin
og skúrir í starfinu, eins og eðli
legt er. En það sem mestu máli
skiptir, ef undan er skilin gagn-
semi starfsins fyrir unga fólkið,
er að samtökin hafa náð ör-
uggri fótfestu, en innan vébanda
sambandgins eru nú rúmlega
1200 félagsmenn.
Margir menn hafa komið við
sögu ÍUT, sem þakka ber þeirra
mikilsverða þátt við stofnun og
í uppbyggingu samtakanna. Þrír
menn hljóta á þessum tímamót-
um að koma öðrum fremur í
sviðsljósið. Eru það þeir Sune
Persson, Gissur Pálsson og Árel-.
íus Níelsson. Sune, sem kveikti
neistann, Gissur, sem átti mest-
an þátt í að koma málinu í fram-
kvæmd, og Árelíus, formaður
ÍUT í átta ár.
f riti samtakanna er einnig
kveðja frá' Stórstúkunni, sem
Ólafur Þ. Kristjánsson ritar,
Hlutverk íslenzkra ungtemplara,
sem Árelíus Nielsson ritar og
kveðjur frá ÍUT-deildum úti á
landsbyggðinni. Ennfremur er
birt dagskrá norræna ungtempl-
aramótsins, sem haldið verður
í sumar í Sviþjóð. Þá má og geta
yfirlits um tíu ára starfssögu og
stutts viðtals við Ómar Ragn-
arsson.
Stjórn ÍUT skipa nú: Einar
Hannesson, formaður, Grétar
Þorsteinsson, varaformaður, Að-
alheiður Jónsdóttir fræðslustjóri,
Gunnar Þorláksson ritari, Hregg-
viður Jónsson gjaldkeri og Sævar
Halldórsson meðstjórnandi.
Um 6000 bænd.ur frá öllum
sex löndunum í Efnahags-
• bandalaginu söfnuðust í gær
fyrir utan aðalstöðvar banda-
lagsins í Brússel til að mót-
mæla landbúnaðarstefnu banda
lagsins. Öflugur lögreglu-
vörður vopnaður byssum stóð
vöð um bygginguoia, og til
reiðu voru um 20 brunabílar,
en til þess kom ekki að þeir
væru notaðir.
Félag aldraðra í Hafnarfirði
NÝLEGA var stofnað í Hafn-
arfirði Styrktarfélag aldraðra.
Stjórn félagsins gerir grein fyr
ir markmiði félagsins, sem hér
segir:
Ýmsum þe-ám, sem gamlir
verða mæta á efri árum lífs-
venjubreytingar, sem kannske
eru þyngsta þrautin á lífsleið
inni.
Þó er það svo, að gamalt
fólk getur notið lifsins engu
síður en á yngri árum, ef að-
stæður eru ákjósanlegar.
Flestir munu kjósa að halda
sitt heimili sem lengst. Það
mun og æskilegast frá félags-
legu og þjóðhagslegu sjónar-
miði.
Sumir þurfa þó óhjákvæmi-
lega á hælisvist að halda. Aðrir
gætu bjargað sér lengur, ef
betur væri að þeim búið.
Af þessum sökum telur Syrkt
arfélag aldraðra, að vinna beri
að því að veita öldruðu íólki
skipulega heimilishjálp í viðlög
um og í öðru lagi að byggja
hentugar íbúðir handa þeim,
sem í óhentugu húsnæði búa
og stuðla með því, að fólki geti
átt sitt eigið heimili lengur en
ella.
Þá telur félagið nauðsyn bera
til þess að létta opinberum
gjöldum af þurftarlaunum gam
als fólks. Sú hætta er fyrir
hendi, ef óhóflega nærri er
gengið gjaldþoli þess með álög
um, að það neyðist til að leita
á náðir opinberra stofnana fyrr
eií efni standa til að öðru leyti.
Þeim öldruðu, sem daglegrar
umönnuna þarfnast, þarf að
búa vistlegt dvalarheimili, sem
eingöngu er þeim ætlað.
Heilbrigt gamalt fólk á ekki
að dvelja á sjúkrahúsum.
iStyrktarfélag aldraðra vill
vinna að þessum málum með
því að leitast við að sameina
krafta bæjarbúa til liðsinnis
við málefnið og vekja áhuga
bæ'/aryfirvalda og ríkis á nauð-
sya þess.
Félagið mun beita sér fyrir
fjársöfnun til stuðnings málefn
friu og hafa því þegar borizt
gjafir, og verður nánar frá því
sagt síðar.
Gjafir til félagsins eru leyfð
ar til frádráttar skattskyldum
tekjum.
í stjórn félagsins eru: Jóhann
Þorsteinsson fyrrv. forstöðumað
ur Sólvangs, formaður, Elín Jós
efsdóttir, fyrrv. bæjarfulltrúi,
ritari, Sverrir Magnússon lyf-
sali, gjaldkeri, Gísli Kristjáns-
son fyrrv. útgerðarmaður, Ólaf
ur Ólafsson yfirlæknir, Oliver
Steinn bóksali og Sigurborg
Odd=dóttir frú.
Leförétting
Þau leiðu mistök urðu í jass-
þættj sunnudagsblaðsins, að
röng mynd var birt og sögð
vera af Count Basie. Lesendur
eru beðnir velvirðingar á mis
tökum þessum og fá hér að
sjá hinn eina sanna Count
Basie. - Þá brenglaðist, einn-
ig utanáskrift jazz-hátíðar-
innar í Molde í Noregi í sum-
ar. Rétt er hún á þessa leið
Storyville Club, Molde, Nor
ge.
m &
Móðir okkar
ARNDÍS JÓNSDÓTTIR,
Njálsgötu 9, 1
andaðist laugardaginn 25. maí.
Ólafur Tryggvason
Árni Tryggvason. -