Dagur - 27.05.1986, Page 6
6 - DAGUR - 27. maí 1986
Vorhreingeming á Húsavík:
Bærinn hreinsaður
M pra til fjalls
Það var gott að fá pyl.su eftir allt púlið.
„Munið að margar hendur
vinna létt verk,“ stóð í bréfi er
undirbúningsnefnd á vegum
Foreldrafélagsins við Barna-
skóla Húsavíkur skrifaði til
barna og foreldra í bænum.
, Nefndin var að skipuleggja
hreinsunarherferð sem fór fram
síðdegis á miðvikudag. Fullyrð-
ing nefndarmanna um margar
hendur og létt verk urðu að veru-
leika, 6-700 manns tóku þátt í
hreinsunarherferðinni og nú er
hreint á Húsavík frá fjöru til
fjalls. Steingrímur Hallgrímsson,
Ingibjörg Jónsdóttir og Sólveig
Skúladóttir skipuðu undirbún-
ingsnefndina. Þau skiptu bænum
og næsta nágrenni í sjö svæði, á
hverju svæði unnu tveir flokks-
stjórar, börn úr öllum bekkjum
skólans og foreldrar við að tína
og safna saman rusli.
í byrjun var iagt upp með 350
stóra ruslapoka en þeir dugðu
ekki svo útvega þurfti fleiri með
hraði.
Böm og foreldrar tína rusl.
Um daginn hreinsaði fjöldi
fólks lóðir sínar og haft er á orði
að bærinn sé eins og nýr eftir
þessar framkvæmdir.
Bæjarstarfsmenn sáu síðan um
að fjarlægja ruslið og var það
ærinn starfi, giskuðu þeir á að
rúmlega tíu vörubílshlössum af
rusli hefði verið ekið á haugana.
„Við erum mjög ánægð, þetta
gekk miklu betur en við áttum
von á og ég vil þakka öllum
bæjarbúum, fyrirtækjum og
bæjarstarfsmönnum fyrir sitt
framlag," sagði Sólveig að lokn-
um framkvæmdunum.
Mikil veisla var haldin við
bamaskólann að hreinsun lok-
inni. Þar voru snæddar 500
pylsur, kleinur sem í þurfti 25 kg
af hveiti voru steiktar og borðað-
ar, einnig var kaffi og fernu-
drykkir á boðstólum.
Mörg fyrirtæki í bænum
styrktu foreldrafélagið vegna
hreinsunarherferðarinnar, bæði
með peningagjöfum og vöruút-
tekt fyrir veisluna. Rekstraraf-
gangur dagsins var um 40 þús. kr.
og verður hann notaður til að
bæta aðstöðu forskólabarna og/
eða lagfæringa á skólastofu sem
notuð er m.a. sem félagsaðstaða.
IM
Hreinsað umhverfis íþróttavc
_jvannlft_________________
Grunnskólinn Blönduósi:
Föstudaginn 16. maí var haldið
heilmikið “karníval“ á
Blönduósi undir yfírskriftinni
Fjör - Egg ’86. Það voru
nemendur og starfsfólk
Grunnskólans á Blönduósi
sem stóðu fyrir uppákomunni
og var hún endapunktur svo-
kallaðrar opinnar viku í
skólanum.
Dagskráin hófst með skrúð-
göngu sem fór vítt og breitt um
bæinn og var þó nokkur háreysti
göngunni samfara svo það gat
varla farið fram hjá neinum að nú
stóð mikið til. Síðan var arkað
sem leið liggur að Hótel Blöndu-
ós þar sem göngumenn þáðu veit-
ingar í boði hótelsins, bakarísins
og mjólkurstöðvarinnar, en á
meðan hvílst var og matast fór
fram leiksýning á svölum hótels-
ins og fengu krakkarnir lögreglu-
stjórann í lið með sér við þá sýn-
ingu.
Síðan var marserað áfram
um stund en þá tekin stutt hvíld
þar til dagskrá hófst að nýju
klukkan 20 í skólanum. Sýningin
í skólanum var stórkostleg og
greinilegt að mikið og fórnfúst
starf lá þar að baki. Krakkarnir
höfðu farið í fjörur og víðar tii að
Þarna sést hluti skrúðgöngunnar nálgast hótelið
þar sem þau hvíldust og nutu veitinga.
safna efnivið sem síðan var flutt-
ur í skólann þar sem þeir breyttu
honum í listaverk sem síðan voru
notuð til að skreyta íþróttasalinn,
sundlaugina og fleiri staði í
skólanum. Kvölddagskráin hófst
í íþróttasalnum þar sem sérstakir
gestir dagsins, nemendur Lauga-
landsskóla í Eyjafirði, skemmtu
gestum með söng og stuttum leik-
þáttum. Þá var komið að rúsín-
unni í pylsuendanum, en það var
leiksýning sem fór fram í sund-
lauginni og það sem meira er,
það var vatn í lauginni! Sund-
laugin hafði verið útbúin sem
bráðlaglegur veitingasalur og út í
Þetta listaverk úr lambakjöti var framlag hótelsins.