Dagur - 21.01.1992, Blaðsíða 9

Dagur - 21.01.1992, Blaðsíða 9
8 - DAGUR - Þriðjudagur 21. janúar 1992 Þriðjudagur 21. janúar 1992 - DAGUR - 9 ÍÞRÓTTIR Jón Haukur Brynjólfsson Handknattleikur: Stjaman átti aldrei möguleika gegn KA-mönnum KA-menn unnu öruggan sigur á Stjörnunni, 27:21, í 1. deild Islandsmótsins í handknattleik í KA-húsinu á föstudagskvöld- ið. KA-menn höfðu mikla yfir- burði í leiknum, munurinn var um tíma 10 mörk, en kæruleysi í lokin kom í veg fyrir að sigur- inn yrði stærri. KA-liðið er geysiiega sterkt á heimavelli, hefur unnið þar fimm leiki í röð, og verður að teljast ólík- legt að liðið tapi fleiri stigum heima á þessu keppnistímabili. Það var rétt fyrstu mínúturnar sem gestirnir náðu að hanga í KA-mönnum en um miðjan fyrri hálfleik voru heimamenn komnir með 7 marka forystu. Það var ótrúlegur munur á leik liðanna, KA-menn sterkir í vörn og sókn og Axel frábær j markinu á með- an allt var hriplekt hjá Stjörnunni og sóknarleikurinn vandræðaleg- ur. Staðan í hléi var 16:9 og eftir að KA skoraði þrjú fyrstu mörk- in í seinni hálfleik var aldrei spurning hver úrslitin yrðu. Axel Stefánsson átti frábæran fyrri hálfleik í marki KA, varði þá 10 skot en lék lítið í seinni hálfleik, hugsanlega vegna þess að hann fékk skot í andlitið. Erlingur var geysisterkur í vörn og sókn og Sigurpáll sýndi frábær tilþrif í horninu. Þorbergur Aðal- steinsson hlýtur að hafa Sigurpál í huga þegar hann velur lið fyrir B-keppnina, Sigurpáll hefur aldrei leikið betur en þessa dagana og er erfitt að benda á betri mann í þessari stöðu í dag. Ládeyðan var allsráðandi hjá Stjörnumönnum og var greinilegt að hin gríðarlega stemmning í KA-húsinu kom þeim í opna .skjöldu. Furðu vakti að þjálfari liðsins lét bæði Brynjar Kvaran og Patrek Jóhannesson byrja á bekknum og komu þeir ekkert við sögu fyrr en í seinni hálfleik þótt liðið léki afleitlega. Mörk KA: Sigurpáll Árni Aðalsteinsson 10/5, Erlingur Kristjánsson 6, Altreð Gíslason 3, Jóhann Jóhannsson 3, Pétur Bjarnason 3, Stefán Kristjánsson 2. Axel Stefánsson varði 12 skot og Birgir Friðriksson 2. Mörk Stjömunnar: Magnús Sigurðsson 8/7, Skúli Gunnsteinsson 5, Patrekur Jóhannesson 4, Hafsteinn Bragason 3, Axel Björnsson 1. Brynjar Kvaran varði 6 skot og Ingvar Ragnarsson 3. Dómarar: Guðjón L. Sigurðsson og Hákon Sigurjónsson. Afar slakir. Karlalið KA vann HK auðveldlega - en kvennalið Völsungs og KA töpuðu bæði Haukur Eiríksson og Rögnvaldur Ingþórsson hafa náð ÓL-Iágmarkinu sem og Sigurgeir Svavarsson. Frá norrænugreinanefnd SKÍ: Þijá göngumenn á ÓL Vegna frétta í fjölmiðlum síðustu daga um val á skíðagöngumönn- um á Ólympíuleikana í Albert- ville 1992 vill norrænugreina- nefnd Skíðasambands Islands (NGN) koma á framfæri eftirfar- andi upplýsingum: Ólympíunefnd íslands hefur gefið út lágmörk fyrir skíða- göngumenn til þátttöku á leikun- um. Þrír skíðagöngumenn hafa nú náð þessum lágmörkum, þeir Haukur Eiríksson og Rögnvaldur Ingþórsson frá Akureyri og Sig- urgeir Svavarsson frá Ólafsfirði. Þetta kemur skýrt fram í þeim gögnum sem Bo Eriksson, þjálf- ari skíðagöngulandsliðsins hefur sent NGN og komið hefur verið á framfæri við Ólympíunefnd. í tillögu landsliðsþjálfara og NGN til Ólympíunefndar er lagt til að helst verði sendir þrír skíða- göngumenn á leikana en að lág- marki tveir. Einnig telur lands- liðsþjálfarinn að nauðsynlegt sé að hafa varamann ef um veikindi yrði að ræða. Það kemur því nefndinni mjög á óvart að lesa það í fjölmiðlum að Ólympíunefnd íhugi nú að senda aðeins einn skíðagöngu- mann á leikana. Það er álit NGN að þar sem ofangreindir þrír skíðagöngumenn hafa náð því lágmarki sem Ólympíunefnd setti þá eigi að senda þá alla á Ólympíuleikana í Albertville 1992. íslandsmótið í blaki: Frjálsar íþróttir innanhúss: Fyrsta Norðurlandsmótið haldið í íþróttahöUinni á Akureyri Fyrsta Norðurlandsmótið í frjálsum íþróttum innanhúss var haldið í íþróttahöllinni á Akureyri á laugardaginn. Skráningar voru um 200 talsins, 70 keppendur mættu til leiks og náðist ágætur árangur í flestum greinum. Það var Ungmennafélag Akur- eyrar sem hélt mótið og heppn- aðist það mjög vel. Þess má til gamans geta að húsvörður lét þau orð falla að umgengni um húsið hefði verið einstaklega góð og frjálsíþróttafólki til fyrirmyndar. Keppt var í þremur aldurs- flokkum og urðu úrslit þessi: 40 in hlaup karlar 1. Helgi Sigurösson, UMFT 5,2 2. Kristján Gissurarson, UMSE 5,3 3. Friðrik Steinsson, UMFT 5,4 40 m hlaup drengir 1. Atli Örn Guðmundsson, UMSS 5,1 2. Illugi Már Jónsson, HSÞ 5,4 3. Þorvaldur Guðmundsson, HSÞ 5,4 40 m hlaup sveinar 1. Stefán Gunnlaugsson, UMSE 5,3 2. Freyr Ævarsson, UFA 5,5 3. Bjarmi Skarphéðinsson, UMSE 5,7 40 m hlaup konur 1. Snjólaug Vilhelmsdóttir, UMSE 5,8 2. Sigurbjörg Kristjánsd., USAH 6,2 40 m hlaup stúlkur 1. Linda Sveinsdóttir, UMSE 6,0 2. Sonja Sif Jóhannsdóttir, UMSS 6,2 3. Sigríður Hjálmarsdóttir, UMFT 6,3 40 m lilaup nteyjar 1. Katla Skarphéðinsdóttir, HSÞ 6,0 2. Sigríður Hannesdóttir, UFA 6,1 3. Hrönn Bessadóttir, UFA 6,2 50 m grindahlaup karlar 1. Gísli Sigurðsson, UMFT 7,3 2. Unnar Vilhjálmsson, HSÞ 7,5 3. Hreinn Karlsson, UMSE 7,9 50 m grindahlaup drengir 1. Þorvaldur Guðmundsson, HSÞ 7,9 2. Illugi Már Jónsson, HSÞ 8,0 3. Hreinn Hringsson, UMSE 8,0 50 m grindahlaup sveinar 1. Skarphéðinn F. Ingason, HSÞ 8,2 50 m grindahlaup konur 1. Snjólaug Vilhelmsdóttir, UMSE 8,1 2. Sigurbjörg Kristjánsd., USAH 9,3 50 m grindahlaup stúlkur 1. Elísabet Jónsdóttir, UFA 8,9 2. Maríanna Hansen, UMSE 8,9 3. Gunnhildur Hinriksdóttir, HSÞ 9,0 50 m grindahlaup meyjar 1. Jóhanna Erla Jóhannesd., UFA 9,9 2. Elín Gréta Stefánsdóttir, UMSS 10,0 800 m hlaup karlar 1. Sigurbjörn Á. Arngrímss., HSÞ 2.19,3 800 m hlaup drengir 1. Þorvaldur Guðmundsson, HSÞ 2.19,9 2. Hákon Sigurðsson, HSÞ 2.20,0 800 m hlaup sveinar 1. Ingólfur Pétursson, UFA 2.29,5 2. Sigurður B. Sigurðsson, UMSE 2.32,7 3. Birgir Örn Reynisson, UFA 2.49,5 800 m hlaup konur 1. Laufey Hreiðarsdóttir, HSÞ 2.48,6 2. Sigríður Gunnarsdóttir, UMSE 2.52,2 800 m hlaup stúlkur 1. Sonja Sif Jóhannsdóttir, UMSS 2.54,6 2. Hrefna Guðmundsd., USAH 3.06,6 3. Jóna Rósa Stefánsdóttir, UMSS 3.14,1 800 m hlaup meyjar 1. IngibjörgElínHalldórsd.,UMSE 3.01,3 2. Heiðdís Þorsteinsdóttir, UMSE 3.01,5 3. Bjarnfríður Ellertsdóttir, HSÞ 3.28,6 Langstökk án atr. karlar 1. Flosi Jónsson, UMSE 3,27 2. Helgi Sigurðsson, UMFT 3,19 3. Gísli Sigurðsson, UMFT 3,04 Langstökk án atr. drengir 1. Hákon Sigurðsson, HSÞ 2,98 2. Hreinn Hringsson, UMSE 2,82 3. Jóakim Júlíusson, HSÞ 2,78 Langstökk án atr. sveinar 1. Stefan Gunnlaugsson, UMSE 3,04 2. Freyr Ævarsson, UFA 2,71 3. Guðni R. Helgason, HSÞ 2,67 Langstökk án atr. konur 1. Snjólaug Vilhelmsdóttir, UMSE 2,67 Langstökk án atr. stúlkur 1. Gunnhildur Hinriksdóttir, HSÞ 2,36 2. Sonja Sif Jóhannsdóttir, UMSS 2,36 3. Elísabet Jónsdóttir, UFA 2,26 Langstökk án atr. meyjar 1. Sigurrós Friðbjörnsdóttir, HSÞ 2,42 2. Jóhanna Erla Jóhannesd., UFA 2,41 3. Katla Skarphéðinsdóttir, HSÞ 2,34 Þrístökk karlar 1. Helgi Sigurðsson, UMFT 9,39 2. Gísli Sigurðsson, UMFT 8,84 3. Friðrik Steinsson, UMFT 8,60 Þrístökk drengir 1. Hákon Sigurðsson, HSÞ 9,17 Þrístökk sveinar 1. Stefán Gunnlaugsson, UMSE 8,81 2. Skarphéðinn F. Ingason, HSÞ 8,07 3. Magnús Þorvaldsson, HSÞ 7,86 Þrístökk konur 1. Snjólaug Vilhelmsdóttir, UMSE 7,91 Þrístökk stúlkur 1. Sonja Sif Jóhannsdóttir, UMSS 6,59 Þrístökk meyjar 1. Sigurrós Friðbjörnsdóttir, FISÞ 7,05 2. Jóhanna Erla Jóhannesd., UFA 7,03 3. Katla Skarphéðinsdóttir, HSÞ 6,85 Hástökk karlar 1. Unnar Vilhjálmsson, HSÞ 1,91 2. Sverrir Guðmundsson, HSÞ 1,75 3. Stefán Friðleifsson, UFA 1,70 Hástökk drengir 1. Magnús Skarphéðinsson, HSÞ 1,83 2. Bergþór Björnsson, UÍ A (gestur) 1,60 Hástökk sveinar 1. Skarphéðinn F. Ingason, HSÞ 1,75 2. Stefán Gunnlaugsson, UMSE 1,70 3. Guðni R. Helgason, HSÞ 1,65 Hástökk konur 1. Sólveig Sigurðardóttir, UMSE 1,50 Hástökk stúlkur 1. Maríanna Hansen, UMSE 1,58 2. Elísabet Jónsdóttir, UFA 1,55 3. Gunnhildur Hinriksdóttir, HSÞ 1,45 Hástökk meyjar 1. Katla Skarphéðinsdóttir, HSÞ 1,35 2. Hrönn Bessadóttir, UFA 1,20 Hástökk án atr. karlar 1. Gísli Sigurðsson, UMFT 1,59 2. Unnar Vilhjálmsson, HSÞ 1,53 3. Friðrik Steinsson, UMFT 1,50 Hástökk án atr. drengir 1. Hreinn Hringsson, UMSE 1,50 Hástökk án atr. sveinar 1. Skarphéðinn F. Ingason, HSÞ 1,40 2. Stefán Gunnlaugsson, UMSE 1,30 Kúluvarp karlar 1. Unnar Vilhjálmsson, HSÞ 12,52 2. Flosi Jónsson, UMSE 12,06 3. Hreinn Karlsson, UMSE 11,30 Kúluvarp drengir 1. Hreinn Hringsson, UMSE 11,80 2. Jóakim Júlíusson, HSÞ 10,20 Kúiuvarp sveinar 1. Páll Þórsson, UFA 9,45 2. Bjarmi Skarphéðinsson, UMSE 9,34 3. Magnús Þorvaldsson, HSÞ 8,83 Kúluvarp konur 1. Sólveig Sigurðardóttir, UMSE 8,92 2. Drífa Matthíasdóttir, UFA 8,28 3. Stefanía Guðmundsdóttir, HSÞ 8,13 Kúluvarp stúlkur 1. Lára Jóhannesdóttir, USAH 7,71 Kúluvarp meyjar 1. Katla Skarphéðinsdóttir, HSÞ 6,99 2. Eva Bragadóttir, UMSE 6,94 KA tyllti sér í annað sæti 1. deildar karla í blaki þegar liðið vann næsta öruggan sigur á HK, 3:0, í KA-húsinu á sunnu- dag. Norðlensku liðunum í 1. deild kvenna, Völsungi og KA, gekk hins vegar ekki jafn vel gegn sama liði, töpuðu bæði 1:3 og Ijóst er að það er erfíð barátta framundan hjá þeim við að tryggja sér sæti í fjögurra liða úrslitakeppni um Islandsmeistaratitilinn. Karlalið HK átti afar slakan dag gegn KA á sunnudaginn og KA-menn þurftu ekki á neinum stórleik að halda til að tryggja sér sigurinn. Lokatölurnar urðu 15:2, 15:7 og 15:12. HK-ingar gerðu mikið af mistökum, sér- staklega í uppgjöfunum framan af en þegar þær komust í lag í síðustu hrinunni virtist móttakan hjá KA-mönnum ekki með á nót- unum og gestirnir skoruðu 7-8 stig beint úr uppgjöfum. Að öðru leyti léku KA-menn ágætlega og áttu ekki í vandræðum með að innbyrða sigurinn. „Eg er þokkalega ánægður með þetta. Eg átti von á basli þar sem þeir hafa oft verið okkur erf- iðir en þetta var auðveldara en ég átti von á. Við prófuðum nýja uppstillingu sem gekk ágætlega en við þurfum að bæta okkur ef við ætlum að eiga möguleika á titlinum,“ sagði Haukur Valtýs- son, fyrirliði KA. Úrvalsdeildin í körfuknattleik: Þórsarar mísstu móðinn - og töpuðu 95:106 fyrir Val liðsins en í fyrra. Liðið hefur fengið austurevrópskan uppspil- ara sem styrkir liðið gríðarlega og árangurinn lætur ekki á sér standa. Liðið byrjaði á því að vinna 3:1 sigur á Völsungi á laug- ardaginn. Völsungur vann fyrstu hrinuna 15:8 en HK tók þá við sér og vann þrjár næstu, 15:9, 15:10 og 15:12. „Mótttakan var léleg hjá okkur og við náðum ekki að byggja neitt upp. Það verður erfitt að komast í fjögurra liða úrslitin, við eigum útileiki gegn HK og Breiðabliki um næstu helgi og það verða hálf- gerðir úrslitaleikir," sagði Jóna Matthíasdóttir, leikmaður Völsungs. KA-stúlkur fengu sömu útreið gegn HK daginn eftir. KA vann fyrstu hrinuna 15:12 en tapaði þremur næstu, 4:15, 10:15 og 12:15. Leikurinn var nokkuð jáfn lengst af en uppgjafirnar brugð- ust hjá KA á meðan þær voru eitt sterkasta vopn HK. Katrín Páls- dóttir átti stórleik hjá KA en aðrir leikmenn liðsins voru mis- tækir og léku undir getu. Sigurpáll Árni Aðalsteinsson leikur frábærlega þessa dagana og vekur furðu að landsliðsþjálfarinn skuli ekki hafa not fyrir hann. Mynd: Golli HK-stelpur heim með fjögur stig Allt annað er nú að sjá til HK- Þórsarar náðu ekki að halda haus þegar þeir mættu Val í úrvalsdeildinni í körfuknatt- leik í íþróttahöllinni á Akur- eyri á sunnudag. Leikurinn var jafn allan túnann, Þórsarar oft með forystuna og höfðu yfir í hléi, 48:46. Slæmur kafli í seinni hálfleik varð hins vegar til þess að Valsmenn náðu for- ystu sem þeir létu ekki aftur af hendi og í lokin dró í sundur með liðunum enda helstu sprautur Þórsara þá komnir á bekkinn með 5 villur. Leikurinn var slakur af beggja hálfur, mikið um mistök á báða bóga, varnarleikur lítill sem eng- inn en hittni ágæt á köflum. Þórs- arar höfðu oftast frumkvæðið en töpuðu leiknum um miðjan seinni hálfleik þegar staðan var 72:67. Þá fór allt í vaskinn hjá þeim og Valsmenn skoruðu 17 stig gegn 2 og Þórsarar náðu ekki að vinna þann mun upp á nýjan leik. Reyndar voru þeir ekki langt frá því, náðu að breyta stöðunni í 84:86, en voru of fljót- færir og munurinn jókst aftur í lokin. Guðmundur Björnsson átti góðan leik fyrir Pór meðan hans naut við en hann fór út af um miðjan seinni hálfleik með 5 vill- ur og fór þá að síga á ógæfuhlið- ina. Harge átti spretti og Björn Sveinsson átti góðan leik í sókn- inni og hitti ótrúlega á köflum. Konráð Óskarsson skoraði aðeins tvö stig í leiknum en hann lenti Guðmundur Björnsson átti góðan leik en fór útaf um miöjan seinni hálfleik með 5 villur. snemma í villuvandræðum og hvíldi töluvert. Hjá Val var Booker yfirburða- maður og gerði marga stór- skemmtilega hluti, sérstaklega í seinni hálfleik. Hann skoraði alls 45 stig, þar af aðeins 12 í fyrri hálfleik. Þess má geta að Magnús Matthíasson lék ekki með Vals- mönnum af ástæðum sem sagðar voru persónulegar. Stig Þórs: Björn Sveinsson 26, Joe Harge 25, Guðmundur Björnsson 21, Helgi Jóhannsson 8, Högni Friðriksson 8, Jóhann Sigurðsson 3, Konráð Óskarsson 2, Árni Þór Jónsson 2. Stig Vals: Franc Booker 45, Ragnar Jónsson 21, Tómas Holton 12, Símon Ólafsson 10, Ari Gunnarsson 8, Matthías Matthíasson 4, Svali Björgvinsson 3, Gunnar Þorsteinsson 2, Sveinn Zoega 1. Dómarar: Kristján Möller og Víglundur Sverrisson. Stefán Magnússon og Þröstur Friðfinnsson áttu náðugan dag um helgina. Mynd: JHB Hajidknattleikur 1. deild KA-Stjarnan 27:21 Selfoss-FH 30:31 Grótta-Fram 20:20 HK-Valur 17:22 ÍBV-Víkingur frestað FH 15 12-2- 1 423:340 26 Víkingur 14 11-2- 1 365:303 24 Fram 15 7-4- 4 348:355 18 Stjarnan 15 7-1- 7 365:345 15 Selfoss 14 7-1- 6 375:366 15 ÍBV 14 6-2- 6 377:360 14 KA 14 6-2- 6 335:337 14 Valur 13 4-5- 4 321:315 13 Haukar 14 5-3- 6 337:342 13 HK 14 3-2- 9 319:339 81 Grótta 15 2-4- 9 306:373 8 UBK 14 1-2-11 254:340 4 2. deild HKN-Þór 22:27 Ögri-Ármann 15:31 ÍR-ÍH 29:19 ÍR 10 10-0- 0 276:170 20 Þór 8 8-0- 0 217:144 16 HKN 11 8-0- 3 274:204 16 UMFA 10 7-0- 3 215:189 14 Ármann 12 5-0- 7 264:253 10 ÍH 9 5-0- 4 191:202 10 Fjölnir 10 3-1- 6 195:230 7 KR 9 2-1- 6 195:190 5 Völsungur 11 2-0- 9 224:276 4 Ögri 11 0-0-11 161:296 0 Úrvalsdeild A-riðill UMFN-KR 76:74 Snæfell-UMFN 80:107 Skallagrímur-KR 70:88 UMFN 17 14- 3 1606:1359 28 KR 16 12- 4 1455:1301 24 Tindastóll 16 8- 8 1450:1458 16 Snæfell 16 3-13 1267:1493 6 Skallagrímur 16 3-13 1294:1551 6 B-riðill ÍBK-UMFG 83:80 Þór-Valur 95:106 ÍBK 16 15- 1 1610:1344 30 Valur 16 10- 6 1486:1403 20 UMFG 17 7-10 1433:1385 14 Haukar 15 6- 9 1343:1447 12 Þór 15 2-13 1265:1456 4 Blak 1. deild karla KA-HK 3:0 Umf. Skeið-ÍS 0:3 ÍS 10 10- 0 30: 6 20 KA 9 7- 2 23: 9 14 HK 10 7- 3 22:14 14 Þróttur N. 12 4- 8 19:26 8 Þróttur R. 9 2- 7 12:24 4 Umf. Skeið 12 1-11 6:33 2 1. deild kvenna Völsungur-HK 1:3 KA-HK 1:3 Víkingur 9 9-0 27: 4 18 ÍS 9 7-2 23:15 14 HK 9 5-4 19:15 10 Völsungur 9 5-4 19:15 10 UBK 8 4-4 15:17 8 KA 9 3-6 17:19 6 Þróttur N. 9 1-8 7:24 2 Sindri 6 0-6 0:18 0 Knattspyrna: Gústaf aðstodar Ásgeir Gústaf Adólf Björn.sson hefur verið ráöinn aðstoöar- ntaöur Ásgeirs Elíassonar, landsliösþjálfara í knatt- spyrnu, til næstu tveggja ára. Gústaf er íþróttakennari með framhaldsmenntun í stjórnun íþrótta frá íþrótta- háskólanum í Osló og hefur hann þjálfaö mikið undanfarin ár, bæði í knattspyrnu og handknattleik. Ásgeir og Gústaf munu sinna bæði A-landsliði Islands og landsliði leikmanna undir 21 árs. íslenska A-landsliðinu hef- ur nú verið boðið til Samein- uðu arabísku furstadæmanna og leikur þar tvo leiki 2. og 4. mars nk. Leikirnir verða gegn A-landsliði og U-19 liöi Sam- einuöu arabísku furstadæm- anna. Fyrsta alþjóðlega snókeraiótið Fyrsta alþjóðlega opna snókermótið, Pepsi Open, fer fram dagana 24.-26. janúar nk. Mótið er haldiö á vegum Billjardsambands íslands með aðstoð Flug- leiða og Gosan og er háð samtímis á fjölmörgum billj- ardstofum á höfuðborgar- svæðinu. Reiknað er með aö um 100 manns taki þátt í mótinu og þar af korni 30-40 keppendur erlendis frá. Mótið telst vera þriggja stjörnu mót. eða í efsta flokki, enda nema heild- arverðlaun 10.000 dollurum eöa tæplega 600 þúsund kr. Mótiö er opið ölluni snóker- leikurum. Mikið um félagsskipti Fjölmörg félagsskipti voru sainþykkt á stjórnarfundi KSÍ sl. fiinmtudag. M.a. hef- ur Bjarni Jónsson nú skipt úr Stjörnunni í KA en hann hefur verið tregur til að gefa yfirlýsingar um að hann hygðist skipta aftur til Akur- eyrarliðsins. Af öðru félagsskiptum má nefna að Árni Sveinsson skipt- ir úr Dalvík í Stjörnuna, Arn- ar Kristinson úr UMSE-b í SM, Ásmundur Vilhelmsson úr Þrótti R. í Hvöt, Bjarki Pétursson úr KR í Tindastól, Gísli Gunnarsson úr Völsungi í Hvöt, Hermann Arason úr Hvöt í Stjörnuna, Jónas Sigur- steinsson úr Bolungarvík í SM, Jóstcinn Einarsson úr Árvakri í Hvöt, Lára Gunn- arsdóttir úr Þór í Stjörnuna, Lýður Skarphéðinsson úr Ein- herja í Tindastól, Pétur Pét- ursson úr KR í Tindastól, Rósberg Óttarsson úr Leiftri í Reyni, Sigurjón Birgisson úr Ægi í Einherja, Sigurður Ágústsson úr Tindastól í Hvöt, Stefán Guðmundsson úr HSÞ-b í Einherja, Tryggvi Tryggvason úr ÍA í Tindastól, og Þorvaldur Jónsson úr UBK í Leiftur.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.