Dagur - 14.06.1994, Síða 5
Þriðjudagur 14. júní 1994 - DAGUR - 5
441KAUPÞING
NORÐURLANDS HF
FÉSÝSLA
Vikuna 5.-11. júní voru heild-
arviðskipti með hlutabréf 7,9
milljónir króna. Mest voru við-
skipti með hlutabréf í íslands-
banka hf. eða fyrir 5,7 milljónir
króna á genginu 0,90-0,95.
Heildarviðskipti með húsbréf
voru 125 milljónir, spariskírt-
eini ríkissjóðs 94,7 milljónir og
ríkisvíxla 2.250 milljónir króna.
DRATTARVEXTIR
Ma( 14,00%
Júní 14,00%
MEÐALVEXTIR
Alm. skuldabr. lán maí 10,20%
Alm. skuldabr. lán júní 10,20%
Verðtryggð lán maí 7,60%
Verðtryggð lán júnl 7,70%
LÁNSKJARAVÍSITALA
Maí 3347
Júnl 3351
SPARISKÍ RTEINI
RÍKISSJÓÐS
Tegund Kgengi K áv.kr.
91/1D5 1,4039 4,82%
92/1D5 1,2442 4,82%
93/1D5 1,1610 4,82%
93/2D5 1,0974 4,82%
94/1 D5 1,0053 4,82%
HÚSBRÉF
Flokkur K gengi 1,1713 K áv.kr.
93/2 4,96%
93/3 1,0405 4,96%
94/1 1,0004 4,96%
94/2 0,9832 4,96%
VERÐBREFASJÓÐIR
Avðxtun 1. jan umfr.
verðbólgu siðustu: (%)
Kaupg. Sðlug. 6mán. 12 mán.
Fjárfestingarfélagið Skandia hl.
Kjarabrél 5,223 5,385 8,9 10,3
Markbréf 2,840 2,928 12,7 11,7
Tekjubréi 1,563 1,611 14,5 14,0
Skyndibrél 2,094 2,094 52 5,3
Fjölþjúðasjódur 1.407 1,451
Kaupþing hf.
Einiigabrél 1 7,132 7,263 4,5 4,9
Einingabréf 2 4,159 4,180 8,5 10,1
Einingabrél 3 4,683 4,769 4,5 5,0
Skammtímabréf 2,537 2,537 8,3 8,8
Einingabréf 6 1,147 1,182 6,0 20,5
Verðbréfam. Islandsbanka hf.
Sj. 1 Vaxtarsj. 3,525 3,543 6,7 5,8
Sj. 2 Tekjusj. 2,000 2,030 15,5 122
Sj. 3 Skamml. 2,428
Sj.4Langl.$j. 1,670
Sj. 5 Eignask.lrj. 1,644 1,660 23,3 16,0
Sj. 6 island 861 904 12 5.0
Sj. 7 Þýsk hlbr.
Sj. 10 Evr.hlbr.
Vaxlarbr. 2,4802 67 5,8
Valbr. 2,3248 67 5,8
Landsbréf hf.
íslandsbrét 1,567 1,596 82 8.3
Fjórðungsbréf 1,221 1,238 132 10,8
Þingbréf 1,839 1,863 26,8 21,6
Öndvegisbréf 1,686 1,708 202 14,9
Sýslubréf 1,516 1,537 14,6 7,3
Reiðubréf 1,515 1,515 6,1 6,9
Launabrél 1,062 1,077 20,5 14,8
Heimsbrél 1,472 1,516 •0,2 15,1
HLUTABREF
Sölu- og kaupgeng á Verðbréfaþingi íslands:
Hagst. tilboð
Lokaverð Kaup Sala
Eimskip 4,25 4,25 4,28
Flugleiðir 1,15 1,10 1,25
Grandi hl. 1,93 1,90 1,95
islandsbanki hf. 0,95 0,90 0,95
Olis 2,12 2,15 2,18
Útgerðarfélag Ak. 2,85 2,75 2,82
Hlutabréfasj. VÍB UO 1,13 1,19
ísl. hlutabréfasj. 1,10 1,11 1,16
Auðlindarbréf 1,03 1,05 1,11
Jarðboranir hf. 1,79 1,74 1,79
Hampiðjan 1,38 1,38 1,40
Hlutabréfasjóð. 1,06 1,06 1,12
Kaupfélag Eyf. 2,10 2,10 2,35
Marel hf. 2,69 2,60 2,72
Skagstrendingur hf. 1,22 1,40 1,74
Sæplast 2,60 2,61 2,95
Þormóður rammi hf. 1,72 1,74 1,74
Sölu- og kaupgengi á Opna tilboðsmarkaðinum:
Alm. hlutabr.sj. hl. 0,88 0,88 0,91
Ármannsíell hf. 0,90 0,50 0,95
Árnes hf. 1,85
Bifreiðaskoðun isl. 2,15 1,20 1,95
Eignfél. Alþýðub. 0,80 0,81 1,15
Haraldur Böðv. 2,20 1,80 2,20
Hiutabréfasj. Norðurl. 1,12 1,13 1,19
Hraðfrystihús Eskifjarðar 2,50
isl. sjávarafurðir 1,10 1,10
isl. útvarpsfél. 2,80
Kðgun hf. 4,20
Oliufélagið hf. 5,40 5,27
Pharmaco 8,25 7,95
Samskip hf. 1,12
Samein. verktakar hf. 6,50 6,50 6,70
Sölusamb. Isl. liskframl. 0,60 0,40 0,70
Síldarvinnslan hf. 2,65 2,60
Sjóvá-Almennar hf. 5,40 4,77 5,70
Skeljungur hf. 4,04 4,00 425
Softis hf. 3,00
Tangi
Tollvörug. hf. 1,10 1,00 126
Tryggingarmiðst. hf. 4,80
Tæknival hf. 1,00
Tðlvusamskipti hf. 2,50 3,00
Þróunarfélag islands hf. 1,30 1,30
Frá fermíngu til lögræðis
- ávarp Haraldar Bessasonar, rektors Háskólans á Akureyri, á háskólahátíð 11. júní sl.
Fyrir um það bil tveimur árum
flutti Páll Skúlason heimspekingur
fyrirlestur við Háskólann á Akur-
eyri, skyggndist víða um og gat
sér þess til að á þroskaferli sínum
væri mannkyn að nálgast ferming-
araldur.
Tilgáta Páls er allrar athygli
verð, ekki síst vegna þess að í
hcnni er fólgin sú bjartsýni að
ferntingaraldurinn, sem mér virð-
ist Páll hafa notað í mannfræði-
legri merkingu í áðurnefndum fyr-
irlestri, sé ekki lokaáfangi. Enn
ntá láta sér detta í hug að einhverj-
ir úr þeim fjölmenna hópi sem
notið hafa þeirra forréttinda að
stunda nám við æðstu mennta-
stofnanir hljóti aö hafa kafað
nægilega djúpt í sitt Helgakver til
þess að ná þeim þroskastigum sem
ætla má að búi fermingu að baki
og hafi jafnvel haldið eitthvað
lengra áleiöis.
Uppsprettulindir íslenskrar
tungu og menningar
I því sambandi er rétt að svipast
ögn um á okkar séríslenska sviði.
Það er að vísu fremur þröngt í
landfræðilegum skilningi, en þó
heimkynni Iangrar og furðu þrótt-
mikillar menningar sem við flest
þekkjum að einhverju leyti. Ég
leyfi mér að nefna bókmenntir ís-
lensku þjóðarinnar sem dæmi.
Bókmenning og verkmenning eru
þó naumast aðgreinileg sviö,
hvorugt getur án hins þrifist. Þó
má taka svo til orða að í bók-
menntum sé mannshugurinn til-
tölulega óbundinn af flóknum
kerfum og sköpunargáfu gefinn
laus taumur. Hugsanir verða þó
ekki til án kerfisbundinnar leið-
sagnar, hver svo sem uppruni
hennar kann að vera. Ég bendi á
tvö dæmi um uppsprettulindir ís-
lenskrar tungu og menningar sem
eru í raun nátengd og hafa dugað
þessari þjóð allt frá fornöld til nú-
tíðar, og er báðurn jafnan gerð all-
rækileg skil í kennslubókum.
Önnur er sagan um skáldamjöðinn
þar sem fimlega er rakin þróun frá
lægsta stigi mannlegrar viðleitni
upp á hæsta tindinn þar sem við
blasa guðdómleg snilld og eilífur
andi. Hin cr myndmál íslenskrar
tungu og þá sérstaklega kenningar
skáldanna þar sem vegvísar benda
leitendum fram eftir vegi sem
liggur frá dauða til eilífðar. Má í
þessum tvcini tilvikum greina
mjög haglegt kerfi sem þjónar
leitandi hugsun eins og henni
sæmir og umlykur kjarna allra ís-
lenskra hugverka frá upphafi, það
er aö segja þcirra sem einhver
veigur er í. Þau eiga það cinnig öll
sammerkt aó vera samin úr ís-
lenskum þáttum með erlendu
ívafi.
Að hátindi fræða
Meó nokkrum sanni rná segja aó
hér sé á ferðinni íslcnskur háskóli
af þeirri gerð sent Halldór Lax-
ness eitt sinn kenndi við Stephan
G. Stephansson skáld. Benedikt á
Auðnunt gekk líka í slíkan há-
skóla, cins og nýlega var óbeint
tekió frant í sögu hans. Vitaskuld
endurreisunt við ekki nú undir lok
20. aldar háskóla þeirra Stephans
G. og Benedikts. Ög rétt að gera
hér nokkurt uppihald á oröaleik
því aldrei gengu þessir mcnn á há-
skóla, ekki einu sinni á barna-
skóla. Sitt hvoru megin á jarð-
kringlunni tókst þeim engu að síö-
ur að nýta sér áðurgreint kerfi til
þess að ná hátindi í menntum.
Varla cr ofmælt, ef við höfum í
huga notkun Páls Skúlasonar á
orðinu fcrming um tiltekinn
áfanga á þróunarskciði ntannsins,
Frá háskólahátíðinni.
að báðir hafi þeir félagar einnig
lokið þeim áfanga sem hefst um
fermingu og lýkur í námunda við
lögaldur, og rúmlega það.
Háskólar stefna því fólki sem
þangað sækir að hátindi þeirra
fræða sem þar eru í boði. Sú er
skylda þeirra og hlutverk. Þeim
ætti ekki að verða skotaskuld úr
því aö nýta sér kerfið sem áður
var vikið að og sem hefur verið
mannsandanum til stuðnings og
styrktar í þroskaleit hans á öllum
öldum. Kerfi þetta á sér enga sér-
staka höfunda, en rætur þess
liggja þó ugglaust hið innra meó
hverjum einstaklingi. Það þarfnast
ekki skilgreiningar, er hafið yfir
lof og last, en er engu að síóur sú
ósýnilega máttarstoð sem aldrei
bregst, sé á hana treyst. Virðist
ekki út í hött að hvetja starfsfólk
og nemendur við Háskólann á Ak-
ureyri að beina þangað athygli.
Lögin hafa dugað
Háskólanum vel
Liggur þá næst fyrir að hugleiða
fáein atriöi sem varóa háskólastarf
eins og það blasir við bæði hér á
Akureyri og í öðrum stöóum. Há-
skólum er ætlað að starfa meó
lýóræðislcgum hætti í samræmi
við lög. Lögin mæla fyrir um
ráðningu hæfs starfsfólks sem sjái
nemendum fyrir staógóðri mennt-
un, komi þeim til þroska og starfi
jafnframt að rannsóknum á vett-
vangi vísinda og fræða. Þctta er
andi laganna og óskynsamlegt aó
beita hann gagnrýni. Vil ég aðeins
skjóta því inn í meginmál að andi
laganna hefur dugað Háskólanum
á Akureyri vel. Hingað hefur ráó-
ist gott starfsfólk sem hefur stutt
nemendur meó ráðum og dáð og
getið háskólanum góðan orðstír.
Rétt er þó að benda á að víóa um
lönd hci'ur samstarf æðri mennta-
stolnana við þennan anda laganna,
sem þó á sér rætur í göfugri hugs-
un og lýðræðislegri hcfð, stundum
reynst fiókið og þungt í vöfurn.
Lög fæóa af sér reglugerðir, sem
krefjast endalausra vióauka og
fyrirntæla unt þaö hversu stjórna
skuli, hversu dæma skuli og þar
fram eftir götunum. Með öðrum
orðum er stundum ekki annað
sýnna en að kerfi af þessurn toga
taki að lifa sínu eigin lífi og færi
síðan út kvíarnar án þcss að nokk-
ur fái rönd við rcist og hneppi að
lokum skapandi hugsun t fjötra.
Háskólinn á Akureyri
án fjötra
Háskólinn á Akureyri hefur ckki
verið hnepptur í fjötra, cn honum
ber að fylgjast með þróun há-
skólastarfs bæði hér heinta og er-
lendis og halda þannig vöku sinni.
Efnilegu og hæi'u fólki sem hing-
að ræðst til starfa er hollt að hugsa
til kollega sinna í öórurn löndurn
sem hafa látið til sín heyra um
þann vanda sem þeir stundum
tclja að kerfið baki sér. Ég las til
Mynd: Robyn.
að mynda fyrir sköntmu greinar-
gerð tveggja ungra erlendra vís-
indamanna sem sögðu upp störf-
um við tiltekinn háskóla, einfald-
lega vegna þess að stjórnhættir
þeirrar stofnunar hefðu gert þeim
með öllu ókleift aó gegna eðlileg-
um skyldum við kennslu og rann-
sóknir. Eftir glæsilegan námsferil
höfðu báðir þessir menn verið
dæmdir hæfir til þess að kenna við
háskóla og hugðust láta þcgar til
skarar skríða, en þá tóku óboðin
ljón aó birtast á veginum. Fyrsta
kennsluárið urðu þeir að gera ná-
kvæma skýrslu um störf sín í
hverjum mánuði, sern þcim var
síóan gert að verja á fundi niats-
nefndar sem skipuð var sjö spurul-
um kollegum. Þar nteð var ekki
nema hálf sagan sögð. Sjálfir voru
þessir menn þegar skipaðir í fimm
matsnefndir hvor urn sig til þess
aó rannsaka og dæma störf koll-
ega sinna. Vitanlega var þcssum
starfsháttum ætlað að tryggja það
að fólk rækti kennslu og rann-
sóknir af kostgæfni. En sam-
kvæmt greinargerð tvímcnning-
anna varð þó raunin sú aö skipti
þeirra við „rannsóknarréttinn",
svo að notuð sé bein ívitnun, gáfu
þeirn lítió sem ekkert svigrúm til
þess að inna af hendi skapandi
rannsóknarstörf, hvað þá að undir-
búa fyrirlestra nteð vióunandi
hætti. Höfðu þeir jafnvel neyðst til
þess að alboóa kennslu sakir að-
kallandi fundarstarfa. Þetta töldu
þeir hafa skapaó mikinn vanda
sem hcfði vaxið deild þeirra gjör-
samlega yfir höfuð. Dómstörlln
sögðu þeir krefjast svo mikillar
hugarorku að sjállt stjórnkerfið
sem þau væru hluti al' yrði að telj-
ast fjandsamlegt þeim markmið-
um sem því væri þó ætlað aó
þjóna, fiest vötn rynnu því önd-
vert og upp í mót. Viö slíkar aö-
stæður yrði eftirlit og krölugerð í
vitund fólks að fjötrum scm hvcr
smíðaði öðrurn og þá líklcga ör-
skammt í sali Goðntundar kon-
ungs á Glæsivöllum þar sent
gagnkvæm mannvíg voru unnin „í
góósemi".
Þessi dæntisaga fjallar ckki um
ný vandantál og hún er staðbund-
in. Vil ég því forðast að nota ntér
öfgarnar sem hún lætur að liggja
til alhæfingar um menntastofnan-
ir. Engu að síóur þekkjum við
þess dænti á okkar tíð að fólk hafi
ánetjast kerfunt í blindni og með
skelfilegum afleiðingum.
Að þekkja vörðurnar
Næstu árin munu innlendar
menntastofnanir, eins og löngum
fyrr, sníða störf sín að erlendri
fyrirmynd, en þó með kerfis-
bundnara hætti en áóur vegna
aukinnar samstööu þjóða í menn-
ingarmálum. Við trúum því og
treystum að sú samstaða verði í
raun það kerfi sem geri manns-
andanum kleift að breyta gömlum
hernaðarbandalögum í varanleg
grióamál. Skipist málin á þann
veg mun háskóli okkar, rétt sem
aðrar sambærilegar stofnanir, ekki
þurfa að bera kvíðboga fyrir kom-
andi tíð.
Ekki ætla ég mér þá dul að
boða á þessari stundu afturhvarf
til fortíðar. Mér eru þeir Stephan
G. Stcphansson og Benedikt á
Auðnum mjög hugstæðir. Veit þó
mæta vel að hvorugur verður
kvaddur til starfa við þcnnan há-
skóla í hefðbundnum skilningi.
Báðir cru þeir löngu komnir úr
kallfæri. Hins vegar nefni ég nöfn
þeirra af ráónum hug. Þeir voru
báóir rammíslenskir heimsborgar-
ar, fylgJu menntakerfi þar sem
hvergi ikeikaði urn hlutföll og
kunnu i bókstaflegri merkingu að
aka sc; lum eftir vindi. Slíkum
einstaki.ngum hljóta íslenskar
mcnntastofnanir að gefa nokkurn
gaurn. Leióarmörkin kann ég ekki
aó skilgreina í smáatriðum. Þó
þykist ég vita að meóal þeirra sé
að finna hófsemd og heilbrigða
skynsemi, og aó samanlögö varði
þau veginn, ekki einungis að því
þroskastigi sem prófessor Páll
Skúlason hefur í líkingamáli sínu
kennt við fermingaraldurinn held-
ur næsta áfangann sent ég, að
dæmi Páls, leyfi mér að kenna við
lögaldurinn, sem vitaskuld yrði þó
ckki lokaáfangi.
Er það ósk mín Háskólanum á
Akurcyri til handa aö hann bcri
gæfu til þess aó þekkja vörðurnar
sem fyrir löngu voru reistar til
þess að forða vegfarendum frá því
að villast út á auðnir og ófærur.
Þcini scm brautskrást frá háskól-
anum flyt ég sömu ósk.
Millifyrirsagnir eru bluósins.
Akureyri:
Nonnasýning í Deiglunni
Dagana 15.-19. júní verður sýning
í Deiglunni á vegum Zontaklúbbs
Akureyrar. Þar verða til sýnis
ýmsir munir, myndir og bækur
sem tengdar eru minningu Jóns
Sveinssonar, Nonna.
Margt af þessum munum hefur
ekki áður verið til sýnis á Akur-
eyri. Þar á meðal er biblía, sem
móðir Nonna gaf honum þcgar
hann hélt út í heint 12 ára gamall.
Einnig má nefna 3 Akureyrar-
myndir eftir Collingwood sem
notaðar eru í Nonnabókum og
teikningar Arngríms Gíslasonar af
Manna og Sveini Þóararinssyni.
Þá mun Jón Hjaltason, sagn- Sveinsson (Nonni).
fræðingur, kynna bók sína unt
Nonna og Nonnahús. Sýningin er ókeypis. Nonnahús er opió eftir
opin frá kl. 14-22 og er aðgangur sem áóur alla daga frá kl. 10-17.