Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1994, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1994, Blaðsíða 5
KlIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 1994 5 Fréttir Deilur prjónastofa við Arctic Island 1 Þýskalandi: Arctic skuldar rúma milljón „Ásta byrjaði að kaupa af mér í haust og greiddi fyrstu tvo reikningana en hún fékk fjórar sendingar frá mér. Hún skuldar mér í kringum 400 þús- und og er málið komið í lögfræð- ing,“ segir Eðvarð Jónasson, fram- kvæmdastjóri prjónastofunnar Glófa á Akureyri. Fyrirtækið Arctic Island í Dank- endorf í Þýskalandi skuldar þremur pijónastofum hér á landi rúma millj- ón vegna prjónavara sem Arctic fékk frá prjónastofunum án þess að greiða fyrir þær. Fyrirtækið hét áður Ála- foss íslandssport og var í eigu Jóns Páls Haraldssonar. Ákveðiö var að Jón Páll drægi sig út úr fyrirtækinu og við tæki Ásta Guðmundsdóttir, eiginkona Ásgeirs Sigurvinssonar knattspymumanns. Samkvæmt heimildum DV skuldar Arctic Island Glófa 400.000 krónur, Pijónastofunni Prýði á Húsavík 150.000 krónur og Saumastofunni Evu á Blönduósi í kringum 600.000. Málin eru komin í lögfræðing. „Manni finnst þetta skrítið því þetta er fólk sem allir telja vel efnað sem svíkur lítil fyrirtæki uppi á ís- landi. Ég er margbúinn að senda henni fax og segja henni að ég sé að fara með þetta í lögfræðing en það gerist ekkert," segir Eðvarð. „Ásta skuldar mér talsverða upp- hæð og þetta er komið í lögfræðing. Ég sendi vörur til Þýskalands með sérstakri ábyrgð svo að hún næðist ekki út nema hún yrði greidd. Ásta náði sendingunni án þess að greiöa hana vegna mistaka hjá Eimskip en Eimskip er búið að endurgreiða mér hluta vörunnar," segir Zophanías Zophaníasson, framkvæmdastjóri saúmastofunnar Evu á Blönduósi. Að sögn Þorkels Sigurlaugssonar, framkvæmdastjóra Eimskips, eru engin málaferli við Ástu í gangi enn- þá heldur hefur félagið gert kröfu á hendur henni vegna peninga sem voru greiddir saumastofunni Evu. „Vara sem ekki átti að afhendast var afhent án þess að búið væri að Einkamál mitt og fyrirtækjanna - segir Ásta Guðmundsdóttir, annar eigenda Arctic Island „Ég vil ekki tala um þetta mál, þetta er einkamál á milli mín og fyr- irtækjanna. Eimskip er að gera stóra vitleysu en hefur ekki stefnt mér,“ segir Ásta Guðmundsdóttir, annar eigandi Arctic Island í Þýskalandi, en samkvæmt upplýsingum frá þremur -prjónastofum skuldar hún þeim rúma milljón. Jón Páll Haraldsson ætlaði að draga sig út úr Arctic en er í raun og veru ennþá ábyrgur fyrir fyrir- tækinu. Hann sagði í samtali við DV að Ásta hefði tekið við fyrirtækinu af sér en hann hefði unnið með henni í þessu. „Við erum í máli við saumastofuna Evu á Blönduósi. Hún sá um prjóna- skap og saum á megninu af þeim flík- um sem Arctic keypti. Samkvæmt útreikningi Evu skuldar Arctic henni peninga þrátt fyrir að Ásta hafi alltaf borgað fyrirfram í formi þess að leggja út fyrir bandinu sem var notað í framleiðsluna," segir Jón. Búið er að senda öll gögn til lög- fræðinga saumastofunnar Evu en Ásta og Jón hafa ekki heyrt neitt frá þeim ennþá. Máhð er því í biðstöðu núna. „Ásta borgaði bandið fyrir þá því þeir voru komnir á staðgreiðslu hjá Istexi, þaðan sem bandið var keypt, og áttu ekki peninga til að leysa út bandið. Samkomulag var gert við Zophanías Zophaníasson, fram- kvæmdastjóra Évu, um hvaða verð yrði á vörunum og honum var bent á í faxi í febrúar að með því að kaupa bandið væri að hluta til búið aö borga fyrir pijóna- og saumaskapinn líka,“ segir Jón Páh. Að sögn Jóns Páls skuldar sauma- stofan Eva Ástu 200.000 krónur þegar búið er að draga bandkaupin frá en ekki öfugt. Zophanías vildi ekki láta draga bandið frá í fyrstu og skrifaði, að sögn Jóns Páls, reikninga fyrir hverri flík fyrir sig á fullu verði, fyr- ir band, pijón og saum. Fyrirtækið hefur verið í biðstööu á meðan lög- fræðingamir eru látnir gera út um málin. greiða sendanda hana. Við þurftum að greiða saumastofunni Evu þessa upphæð að hluta og erum með end- urkröfu á móttakanda," segir Þor- kell. NONAME ---cosmetics- ZANCASTER maxFactor INTE RNATIONAl EUZABLTH ARDEN í tilefni af því aö við höfum flutt verslunina af Laugaveginum á Suöurlandsbraut 52 bjóðum við 207c afslátt frá 20. júni til 16. júlí ULFALDim 94 mBHBRBHHnHHi Sumarhátíð SÁÁ 15.-17. júlí Glæsileg dagskrá full af gleði Föstudagur 15. júlí Kl. 17.00 Svæðið opnar. Kl. 22-03 Dúndur dansleikur með Snigla- bandinu. Laugardagur 16. júlí Kl. 9.00 Morgunkaffi í Merkihvoli. Kl. 10.00 íþróttir barna. Kl. 12.45 AA-fundur Kl. 12.45 Hestar fyrir börnin. Kl. 13.45 Skemmtun á palli. Borgardætur með kabarett, Bossanova- bandið, leikir og fleira. Kl. 17.00 íþróttir fullorðinna. Enginn hámarksaldur. Kl. 19.30 Sameiginlegt útigrill. Kl. 19.30 Beint frá HM fyrir þá sem engu mega missa af. Kl. 21.00 Tónleikar Sniglabands- ins og Borgardætra. Kl. 22.30 Bossanovabandið í léttri sveiflu. Kl. 23-03 Dansleikur með Sniglabandinu. Sunnudagur 17. júlí Kl. 9.00 Morgunkaffi í Merkihvoli. Kl. 11.00 Hugvekja. Kl. 14.00 Mótsslit. Miðaverð kr. 2.500 og frítt fyrir börn innan 12 ára aldurs. Hægt er að fá leigða hesta á svæðinu í stuttar ferðir og einnig er hægt að komast í veiði í Tangavatni skammt frá. Samtök áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann ÚLFALDim 94 Sumarhátíð SÁÁ Galtalækjarskógi 15.-17. júlí

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.