Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1994, Page 29

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1994, Page 29
MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 1994 41' Fréttir Torf ur fyrir ut- an Hvolsá og „Þetta hefur sjaldan verið svona líflegt hérna fyrir utan ósinn hjá okkur, bæði laxar og silungar. Veiði- stoppið í Silfurlaxi skilaði sér strax, eins og reyndar í Haukadalsá. Ég hef frétt þar hafi komið stór ganga fyrir þremur dögum,“ sagði Sæmundur Kristjánsson við ósa Hvolsár og Stað- arhólsár í gærkvöld. Menn eru sammála um að sam- komulagið við Silfurlax, sem gengur út á það að takmarka veiðar stöðvar- innar, sé farið að hafa veruleg áhrif. Ekki er veitt frá miðnætti til klukkan átta á morgnana, né á sunnudögum. „Laxamir sem við fáum þessa dag- ana eru tveggja ára fiskar, fallegir og vel haldnir úr sjónum. Það er ekki spurning að þetta stopp hefur sitt að segja,“ sagði Sæmundur og rýndi niður að ósnum í von um fleiri laxa og silunga. Þetta er það sem veiðimenn eru að leita eftir í veiðiánum, stórir og fal- legir laxar eins og Herdis Benedikts- dóttir fékk úr Kjarrá í Borgarfirði fyrir skömmu. Þú sem ert félagshyggjumaður. Af hverju að kyssa á vöndinn? Hefur Mogginn haldið uppi vörn fyrir skoðanir þínar? félagshyggjublaðið. Sími 631-600 Mokveiði í Þórisvatni -veiddul20fiska Það hefur veiðst vel í Norðlingafljóti i Borgarfirði það sem af er sumri. Hún Þuríður Sverrisdóttir 9 ára veiddi þennan lax í Brúarhyl fyrir fáum dögum eftir mikla baráttu. DV-myndir Svan Flugan sterkari en maðkurinn Það er gaman að sjá hvað flugan er miklu sterkari en maðkurinn í veiði- ánum þessa dagana. Þótt þetta séu nýgengnir laxar hefur það lítiö að segja. í Elhðaánum hefur flugan al- gera forystu núna, enda veiðist lítið á maðkinn. Laxinn tekur fluguna skemmtilega og er ekkert að hika við það. Teljarastrengurinn í Elliðaánum er skemmtilegt dæmi um þetta, en þar hefur veiðst vel á fluguna síðustu daga. Mörgum löxum hefur veríð landað en ennþá fleiri hafa sloppið. Veiðimenn hafa misst tugi laxa þarna síðustu daga. Rólegt í Laxá í Dölum „Þetta er frekar rólegt hérna hjá okkur í Laxá í Dölum. Núna eru komnir á land 115 laxar og hann er 19 pund sá stærsti," sagði Gunnar Bjömssón, kokkur í veiðihúsinu Þrándargili við Laxá í Dölum, í gær- kvöld. „Við eigum von á fiski héma hjá okkur kringum 20. júh það er venjan á hverju ári. Reyndarær orðið lítið vatn í ánni svo það mætti rigna dug- lega,“ sagði Gunnar enn fremur. Leitað að manni „Veiðin gekk feiknavel hjá okkur í Þórisvatni á Holtamannaafrétti, við fengum 120 urriða og þeir stærstu voru þrjú og hálft pund,“ sagði Ing- ólfur Kolbeinsson í gærkvöld en hann hefur stundað silunginn mikið síðustu helgar. Shungsveiðin virðist vera mjög góð í mörgum vötnum þessa dagana. „Það hefur verið mjög góð veiði hjá flestum þeim sem hafa farið þarna til veiða síðustu vikur, margir hafa veitt eins vel og við, jafnvel meira. Ég held að þetta vatn sé eitt það besta hérlendis. Stærsti urriðinn sem hef- ur veiðst er 4 pund ennþá en meðal- þyngdin í vatninu er góð á þessu sumri. Það var makríll, eggin, spúnn og fluga sem gáfu okkur þessa veiði. Ég fór í Friðmundarvötn í Skagafirði skömmu eftir þennan góða túr í Þór- isvatnið og veiddi vel, fengum 40 kíló af silungi. Síðan eru það Veiðivötn um næstu helgi en þar hefur verið góð veiði. Stærstu silungarnir sem hafa veiðst núna eru 10 pund,“ sagði Ingólfur í lokin. Þeir voru í Þórisvatni fyrir fáum dögum, Sigurður Vilhjálmsson og Ingólfur Sigfússon, og veiddu 120 fiska við fjórða mann. Hér halda þeir á tveim- ur urriðum en í kassanum eru 30. DV-mynd G.Bender Lögregla og hjálpar- og björgun- arsveitarmenn á höfuðborgar- svæðinu hafa leitað að Valgeiri Víðissyni, 30 ára Reykvíkingi, síð- an 30. júní sl. án árangurs. Valgeir fór frá heimili sínu við Laugaveg aðfaranótt 19. júní. Talið er að hann hafi verið á dökkleitu reiðhjóli. Valgeir er lágvaxinn, grannur og með skollitað hár. Hann var klædd- ur í ljósbláar gallabuxur, brúnan leðurjakka, köflótta skyrtu og í brún, reimuð stígvél. Þeir sem gefið geta upplýsingar um Valgeir í sambandi við hvarf hans eru beðnir um að hafa sam- band við lögregluna í Reykjavík. Valgeir Víðisson. Tapað fundið Hjól hvarf úr Barmahlíð Trek 820 Analope flallahjól, hvítt með bláum stöfum, meö brettum, bögglabera og nýjum festingum fyrir barnastól, hvarf frá Barmahlíð 12 helgina 8.-10. júlí sl. Þeir sem hafa orðið varir við hjólið vinsamlega láti Hafdísi vita í vs. 20096 eða hs. 20884. Hestar töpuðust af Snæfellsnesi Tveir hestar töpuðust úr girðingu á Snæ- fellsnesi 19. júní sl. Grunur leikur á að þeir hafi strokið suður til Borgarfjarðar og farið um Fróöárheiði. Annar er jarpur og ójámaður, hinn rauðtvístjömóttur og járnaður (skaflaskeifur). Báðir em eins markaöir: gagnbitaö bæði. Þeir sem verða hestanna varir vinsamlega hringi í s. 66920 (Ólafur Jens eða Ólöf Helga). Vitni óskast aö árekstri Mözdu 626 og Wolkswagen á mótum Miklubrautar og Kringlumýrar- brautar mánudaginn 20. júní sl. um kl. 16. Ef einhver hefur séð áreksturinn er hann yinsamlega beðinn að hringja í Erling Ágústson (collect) í síma 92-14632. Tilkyrmingar Tombóla Nýlega héldu stúlkurnar tvær á mynd- inni, þær Elsa og Hafdís, tombólu til styrktar Hjálparsjóði Rauöa kross ís- lands. Alls söfnuðu þær 2.763 krónum. Með þeim á myndinni em Óskar Freyr og Daði. Gjábakki, félagsheimili eldri borgara í Kópavogi í dag verður opið hús frá kl. 13. Heitt á könnunni og heimabakað meðlæti. Upp- lýsingar í síma 43400. Nýirtímar Annað tölublað af Nýjum tímum er kom- ið út og fjallar um andleg málefni, um- hverfismál og tilvist mannsins á jákvæð- an og uppbyggilegan máta. Stefna ritsins er að gefa sem flestum kost á því að fjalla um áðurgreind efnistök án öfga eða of- stækis. Blaöið er 64 síður og kemur út annan hvern mánuð. Hafnargönguhópurinn í kvöld, 13. júlí, verður gengið með strönd Kollafjarðar. Mæting við Hafnarhúsið kl. 21. Þaðan verður gengið vestur í Ána- naust og síðan með sjónum út í Örfirisey og áfram með höfninni aö Hafnarhúsinu en þar lýkur göngunni. Öllum er heimil þáttfaka í ferðum Hafnargönguhópsins. Silfurlínan Sími 616262. Síma- og viðvikaþjónusta fyrir eldri borgara alla virka daga kl. 16-18. Bessastaðakirkja Vestur-íslendingar eru sérstaklega boðn- ir velkomnir tjl helgiathafnar í Bessa- staðakirkju í kvöld, 13. júlí kl. 20.30. Bíl- ferð verður frá Umferðarmiðstöðinni kl. 20. Menntamálaráðherra, Ólafur G. Ein- arsson, flytur ávarp og býður Vestur- íslendingum til veitinga og samveru í samkomusal íþróttahússins á Álftanesi' að athöfn lokinni. „Ég held ég gnngi heim“ Efiir einn -eiaki neinn UUMFEROAR RÁD

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.