Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1994, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1994, Blaðsíða 24
32 FÖSTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1994 Meiming_______-__________ Einar Falur Ingólfsson 1 Gallerí 11 Ferðalagamyndir Smáauglýsingar Bátar Bátur til sölu I Færeyjum. Búnaður: Radar 24 míl., Plottari innbyggóur í Loran C, Litafisksjá 1000 W, VHF tal- stöð. Verðhugmynd 600-650 þús. D.kr. Má semja um. Stærð: 9,2 m á 1. og 3,0 m á br. Vél: Cummings 180 hö. (1600 t.). Ganghraði 15 mílur, olíudrifió línuspil (oil-wind), 4 olíudrifnar handfærarúll- ur. Uppl. í s. vs. 686700 og hs. 657808, Þorsteinn Kristinsson. S Bílartilsölu Ódýr og mjög góður fyrir veturinn. Alfa 33, 4x4, station, rauóur, árgeró ‘88, skoðaður 94, í góðu lagi, gott lakk, verð aðeins kr. 395.000. Uppl. í síma 91-670579. ® Sport Vatnasleöaleiga aö Svínavatni býður öll- um sem hafa gaman af vatnasporti upp á sýningu sunnudaginn 4. september kl. 14 til 15, á staðnum munu vera slönguatriði: hnjábretti, sjóskiói og ýmsar kúnstir á vatnasleóum. Tímapantanir fyrir þá sem vilja leigja sér sleða fyrir og eftir sýninguna 1 síma 98-64437. Ljómyndalistin er svo víðfeðm að það er vart lengur hægt að tala um cillar hliðar hennar undir sömu for- merkjum, heldur verðum við að þrengja skilgreiningar okkar til að nálgast verk hvers ljósmyndara fyrir sig, meta þau og skilja. Einar Falur Ingólfsson hefur markað sér mjög ákveðna stefnu með sýningu sinni í Gallerí 11 og þótt vissulega megi finna þar sterk tengsl við verk Myndlist Jón Proppé annarra ljósmyndara og jafnvel við ljósmyndir sem við hin tökum stundum á ferðalögum án þess að hugsa okkur um, hafa myndir Ein- ars Fals yfirbragð og dýpt sem vitna um skýra myndsýn og tilætl- un ljósmyndarans. Myndirnar eru allar teknar á ferðalögum. í þeim festast augnabhk úr reynslu ferða- langsins sem sýna stundum varan- lega mynd, eins og mynd af Eiffelt- uminum, og stundum hverfulan atburð eins og mynd af fólki á veð- reiðum. Stundum er myndefnið hvers- dagslegt, eins og í mynd af götu- horni í Helsinki, og stundum ekki, eins og þegar Einar Falur nær að mynda Bretlandsdrottningu þar sem hún ekur hjá í bO sínum. Allar myndimar bera þó vitni sýn hins athugula ferðalangs sem sér fegurð og nýstárleika í öllu sem fyrir augu ber, jafnvel í heimalandi sínu, eins og sést á nokkrum myndum sem teknar em á íslandi. „Fyrii- mér er myndavélin einungis tæki til að skrásetja líf mitt, ferðir mínar um lífið, til að varðveita minnigar," segir Einar Falur í sýningarskrá, og bætir við: „Myndavélin er penn- inn sem ég nota til að skrifa dag- bókina mína. Sérhver mynd sem ég tek er eins og dagbókarfærsla; hún inniheldur persónulegar upp- lýsingar, skoðanir og lýsir upplif- un.“ Nú kann að vera að þetta sé bara hæverska af hálfu listamannsins því eitthvað hlýtur að búa að baki því aö hann ber þessar myndir á borð fyrir almenning og eitthvað hlýtur að ráða valinu þegar sýning myndanna er undirbúin. Engu að síður geta þessar athugasemdir hjálpaö okkur til að nálgast mynd- irnar ef við skiljum um leið að þær eru ekki aðeins einhvers konar minnispunktur eða aide-mémoire sem ferðalangurinn notar til að rifja upp reynslu sína, heldur í ein- hverjum skilningi minningin sjálf sem orðin er óháð augnabliksupp- lifun hans og getur því líka orðið skiljanleg áhorfandanum sem að öðru leyti þekkir ekki til ferðalaga ljósmyndarans. Þess vegna getur sýning af þessu tagi orðið athyglis- verð, þó að því tilskildu að ljós- myndaranum takist að kveikja í myndum sínum líf sem er marg- rætt og fijótt eins og veruleikinn. Þetta tekst Einari Fal ágætlega. Carolee Schneemann 1 Mokka Líkaminn er vígvöllur í Mokka stendur nú yflr sýning á ýmsu efni frá bandarísku myndlistakonunni Carolee Schneemann og spannar sýningin yfir árin frá 1963 til 1994. Strax í upphafi vakti list Carolee töluverða athygli, enda var hún í senn ögrandi og æsandi. Hún notaði líkama sinn sem viðfangsefni í gjörningum, líkt og Yayoi Kusama gerði í Japan um svipað leyti, og ögraði jafnt listaheim- inum sem almennu siðgæði án þess að blygðast sín. Þetta var reyndar á þeim tímum þegar nekt í listum þótti ekkert tiltökumál, að minnsta kosti ekki 1 hópi framsæknari hstamanna, og krafan um frjálsar ástir var að verða að slagorði heillar kynslóðar af ungmenn- um en Carolee tókst samt að hneyksla fólk og ganga fram af þvi. í stað þess að sveipa líkamann og kynfærin leyndar- móðu sýndi hún þau á hispurslausan og jafnvel örlítið kaldhæðinn hátt eins og lesa má í titli eins þekktasta verks hennar frá þessum árum, Meat Joy, þar sem hópur af nöktu fólki iðaði í lostafullri kös á gólfi sýn- ingarsalarins. Glennt kvenmannssköp í galleríum eru kannski út af fyrir sig nóg til aö hneyksla en líklega er það ekki það eitt sem veldur því að verk Carolee hafa ætið verið svo ögrandi sem raun ber vitni heldur frekar hitt að það er hún sjálf sem er höfundur verk- anna. Hún er ekki aðeins verkfæri listamanns sem stillir henni upp sem hveijum öðrum hlut á sýningu heldur býður hún hkama sinn fram sem sitt eigið lista- verk og rýfur þannig takið sem karlaveldið hefur á kvenlíkamanum. Hún er kona sem á sig sjálf og sýnir það með því aö gefa sig blygðunarlaust af sál og hkama Myndlist Jón Proppé í verk sín. Um leið getur hún tekist á markvissari hátt á við ýmsar erfiðar spumingar sem varða stöðu kvenna og vald þeirra yfir sjálfum sér og reynslu sinni. Þannig varð Carolee að leiðandi afh í gjöminga- list og er fmmkvöðuh hreyfingar kvenna á þessu sviði sem orðin er eitt fijóasta og róttækasta afhð í banda- rískri samtímahst. Sýningin í Mokka er aðeins yfirht og þar er aðeins að finna brot af því sem Carolee Schneemann hefur gert en þetta er engu að síður afar þörf og merkileg sýning sem vonandi verður til þess að fleiri fara að kynna sér verk þessarar hstakonu og hinna sem fylgt hafa í fótspor hennar. Þeir sem hafa áhuga á því geta byijað á því að ná sér í eintak af heftinu Angry Wom- en sem gefið var út af tímaritinu Re-search í Kalifor- níu. Uppboð Uppboð mun byrja á skrifstofu embættisins að Strandgötu 52, Eskifirði, mánudaginn 5. september 1994 kl. 10.00 á eftirfarandi eignum: Öldugata 6, Reyðarfirði, þingl. eig. Sverrir Benediktsson, gerðarbeiðendur Byggingarsjóður ríkisins og sýslumaðurinn á Eskifirði. ' SÝSLUMAÐURINN Á ESKIFIRÐI Uppboð Eftirtaldar bifreiðar verða boðnar upp á Þjóðbraut 13, Akranesi, föstudaginn 9. september 1994, kl. 14.00. FZ-640 GD-066 GD-493 HB-657 HI-376 IC-375 IR-487 IZ-584 JV-278 KS-117 ZZ-200 Þá verður þar og boðið upp eftirtalið lausafé. Ignis frystikista, Finlux sjónvarpstaeki, Kenwood hljómtækjasamstæða með hátölurum og dökkur, tvöfaldur stofuskápur. Vænta má að greiðsla verði áskilinn við hamarshögg. SÝSLUMAÐURINN Á AKRANESI Aðaltölur: Helldarupphæð þessa viku: 49.440.496 á isi.: 2.030.4961 UPPLÝSINGAR, SÍMSVARI91- 68 15 11 LUKKUUNA 99 10 00 - TEXTAVARP 451 SIRT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTVILIUR imtt# Vinn ngstölur miðvikudaginn:! 31.ágúst1994 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING [1 6 af 6 0 47.410.000 n 5 af 6 Itffl+bónus 0 1.195.006 KB 5 af 6 2 127.595 J 4 af 6 222 1.828 d 3 af 6 ICfl+bónus 724 241 [Jjvinningur er tvöfaldur næst Sviðsljós Sif Björk Birgisdóttir, Birna Dröfn Birgisdóttir og Tinna Bergmann. Á myndina vantar fjórðu stúlkuna en hún heit- ir Sigríður Maria Jónsdóttir. Söfnuðu37 þúsund krónum Fjórar ungar stúlkur tóku sig sam- an snemma í sumar og seldu vörur í Kolaportinu tíl styrktar krabba- meinssjúkum bömum. Stúlkunum tókst með aöstoð gjaf- mhdra fyrirtækja að safna alls 36.694 kr. og geri aðrir betur. Að sögn stúlknanna var þetta spennandi verkefni og skemmthegt. Þær vhdu þó í lokin koma þakklæti á framfæri th þeirra fyrirtækja sem styrktu þær í þessari fjáröflun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.