Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1994, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1994, Blaðsíða 28
36 FÖSTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1994 oo Ólafur G. Einarsson. Býr sig undir mikinn hvell „... ég get staðfest að niður- skurður til Kvikmyndasjóðs ís- lands verður mikill. Ég geri mér grein fyrir því að þessi niður- • skurður mun valda hinum mesta hvelli og bý mig undir hann,“ segir Olafur G. Einarsson menntamálaráðherra í DV. Viljum ekki hraðbraut fyrir framan stofugluggann . .Þetta eru æskustöðvar flestra sem hérna búa og hinir hafa keypt sér eignir gagngert til að komast út í sveit þar sem menn fá að vera í friði og ró. Hvorki þetta fólk né við sem þarna búum Ummæli höfum áhuga á að fá hraðbraut fyrir utan stofugluggann hjá okk- ur,“ sagði Ólafur Sigurgeirsson á Þaravöllum í Innri-Akranes- hreppi í Tímanum. Sinfónían vel rekin „Við nálgumst núna fjárlögin meira og meira. Það finnst mér ekki bera vott um lélega fjár- málastjórnun. Að mínu mati er Sinfónían eitt af best reknu ríkis- fyrirtækjum landsins," segir Runólfur Birgir Runólfsson framkvæmdastjóri í DV um gagn- rýni ungra sjálfstæðismanna. Erum frændur sem ekki viljum semja „Við erum þrátt fyrir allt frænd- ur og hugsum eins. Við erum reiðubúnir í viðræður en ég sé enga von um samninga," segir Jón Baldvin Hannibalsson í DV. Gegn árásar- ríkjannaí garð Kúbu Opinber fundur verður haldinn á vegum Vináttufélags íslands og Kúbu og Málfundarfélag alþjóöa- sinna á morgun, laugardaginn 3. september, kl 15.00 í sal Félags heymarlausra að Klapparstíg 28. Yfirskriftin er Gegn árásarstefnu Bandaríkjanna í garð Kúbu - af- léttið viðskiptabanninu - lokið bandarísku herstööinni. Ræðu- menn verða Ingibjörg Haralds- Fundir dóttir rithöfundur, Einar Valur Ingimundarson efnafræðingur og Sigurlaug Gunnlaugsdóttir skrif- stofumaður. Lesíð eftir litum Ann Wright mun halda fyrirlest- ur í Iönskóla Reykjavikur í dag kl. 17.00. Wright kemur frá stofn- un Helen Irlen sem hefúr þróað aðferö sem gagnast fólki með lestrarerfiðleika ákaflega vel. Aðferðin er kölluð Reading by the Colors og hefUr verið í gangi hér á iandi í tvö ár. Mun Ann Wríght svara spumingum fundarmanna aö fyrirlestrinum loknum. Hann er aö fara eitthvert út í buskann. Gætum tunguimar Rétt væri: Hann er að fara eitt- hvað út í buskann. Rigning á víð og dreif í dag verður suðaustankaldi eða stinningskaldi með rigningu á við og dreif, einkum þó suðaustan- og aust- Veðrið í dag anlands í fyrstu en síðan hægari sunnan- og suðvestanátt með skúr- um sunnanlands og vestan en léttir til á Norðausturlandi í dag. Allra austast á landinu verður áfram sunnan strekkingur og rigning eða súld en lægir og léttir einnig til þar í kvöld. Hlýtt verður í fyrstu en síðan kólnar heldur. Á höfuðborgarsvæð- inu verður suðvestangola eða kaldi og skúrir. Hiti 9-12 stig. Sólarlag í Reykjavík: 20.41 Sólarupprás á morgun: 6.15 Síðdegisflóð í Reykjavík: 16.17 Árdegisflóð á morgun: 04.42 Heimild: Almanak Háskólans Veðrið kl. 6 í morgun: Akureyri alskýjað 15 Akurnes rigning 11 Bergsstaðir skýjað 13 Keíla víkurílugvöllur skýjað 11 Kirkjubæjarklaustur súld 12 Raufarhöfn skýjað 13 Reykjavík skýjað 10 Stórhöíði súld 9 Bergen skýjað 12 Helsinki skýjað 10 Kaupmannahöfn súld 15 Berlín þokaásíð. kls 14 Feneyjar rigning 20 Frankfurt skýjað 13 Glasgow lágþoku- blettir 5 Hamborg þokumóða 13 London mistur 10 Nice hálfskýjað 18 Róm skýjað 24 Vín léttskýjað 18 Washington skýjað 19 Winnipeg heiðskírt 7 Þrándheimur léttskýjað 9 Gerða Halldórsdóttir, öldungameistari íslands í golfi: Ægir Mar Káraaon, DV, Suðumesjuiru „Það má segja að ég hafi fengiö golfáhugann árið 1982 þegar ég heimsótti bróður minn og mág- konu austur á Eskifjörð. Þar átti Maður dagsins hún son sem var í golfi og hana langaði að prófa svo við fórum báö- ar og fengum lánaða hjá honum sína kylfuna hvor og þar sýndi hann okkur gripið en þama sló ég mitt fyrsta högg,“ sagði Gerða Hall- dórsdóttir úr GS sem varð íslands- meistari öldunga í golfi eftir hörku- spennandi keppní sem fram fór á Hólmsvelli í Leirunni. Það var síðan árið eftir sem Gerða fór að spá meira í golfið er hún frétti aö Guðfinna Sigurþórs- dóttir, móðir Karenar Sævarsdótt- ur íslandsmeistara, væri að hjálpa konum að finna réttu handtökin. „Ég tók þátt í mínu fyrsta móti stuttu síðar sem hét Guðfinnumót- Gerða Hafldórsdóttir. ið. Vora leiknar 9 holur og lenti ég í íyrsta sæti á 63 höggum en getan var þá ekki meira en þaö. Þama fékk ég golfdelluna og er búin að vera mjög dugleg síðan í golfinu.“ Gerða fékk síðan barnabarn sitt, Guömund Rúnar Hallgrímsson, meö sér i golfið en sá piltur er nú einn sá efiúlegasti hjá Golfklúbbi Suðurnesja. „Hann tölti með mér þegar ég var að byrja og áttum við ánægjulegar stundir saman. Þá var hann 8 ára en í dag er hann 19 ára.“ Gerða er hógvær kona og lætur þennan íslandsmeistaratitil ekkert á sig fá og spáir meira í félagsskap- iim í kringum golfið. „Þetta er geysilega góður félagsskapur í kringum þetta og gefur manni geysilega mikið. Mun ég stunda golfið um ókomna framtíö á meðan heilsan leyfir. Ég reyni að skjótast daglega í golf og spila þá helst 9 holur.“ Gerða stundaði á sínum yngri árum handbolta og spilaði með Austra á Eskifiröi og þar þótti hún mjög efniieg. Hún er gift sjómanni i Keflavík, Guðmundi Rúnari Hall- grimssyni, eiganda Happasæls, og eiga þau fimm börn. „Maöurinn minn hefur stutt mig og hvatt mig áfram, en hann byrjaði sjálfur í golfi 1984. Og ef ekki heföi verið fyrir hans stuöning hefði ég ekki náð þessura árangri." Myndgátan Myndgátan hér að ofan lýsir athöfn. Þriðju deildar slagur á Suður nesjum Frekar lítið er um að vera í íþróttum í dag en það er aðeins lognið á undan storminum því að mjög mikið er um að vera þessa helgi og keppt í mörgum iþrótta- Útivera greinum. Má nefha Brúarhlaupið á Selfossi þar sem boðið er upp á sömu vegalengdir og í Reykjavík- urmaraþoni og er þetta hlaup að verða eitt allra vinsælasta al- menningshlaup á landinu, enda fá bæjarfélög sem geta boðið upp á jafn sléttar og góðar hiaupaleið- ir. Á morgun verða einníg leikir í 1. deildinni í fótbolta, bæði karla og kvenna. í dag er aftur á móti aðeins einn leikur í 3. deild karla og er þar um sannkallaðan Suð- urnesjaslag að ræða, Víðir, Garöi, tekur á móti Reyni, Sandgerði, á heimavelli. Skák Á vel skipuðu minmngarmóti um hol- lenska stórmeistarann Donner, en því er að ljúka í Amsterdam, kom þessi staða upp í skák enska stórmeistarans Micha- els Adams, sem hafði svart og átti leik, og Xies Juns, kínverska heimsmeistara kvenna. Svartur leikur og vinnur: 32. - Bd3! 33. Dc3 Ekki 33. Dxd3 c4 (frá- skák) og drottningin fellur í næsta leik. 33. - c4+ 34. Khl Df2! og hvitur gafst upp. Ef 35. Bxc4 Dfl + 36. Kh2 Dxf4 + og biskupinn fellur. Jón L. Árnason Bridge Leikur S. Ármanns Magnússonar og Landsbréfa í Qórðungsúrslitum í Bikar- keppni BSÍ var æsispennandi og aðeins munaði 3 impum í lokin, fyrrnefndu sveitinni í hag. Sveiflur voru margar í leiknum í báðar áttir og hér er eitt spil úr leiknum þar sem sveit S. Ármanns tapaði 12 impum. Sagnir gengu þannig í lokuðum sal, austur gjafari og NS á hættu: ♦ G97654 V 7 ♦ 9 + Á10965 * K3 V KG98 ♦ 10763 + D87 ♦ D108 ¥ ÁD10532 ♦ -- + KG42 Austur Suður Vestur Norður Hrannar Jón.B. Sveinn Sævar Pass 1» 5Ó p/h Sveinn Rúnar Eiríksson batt strax enda á allar sagnir með því aö stökkva í 5 tígla sem fóru einn niður. Þaö virtist vera góð niðurstaða því 5 spaðar virðast standa á spil NS. En sagnir voru Qörugri í opnum sal: Austur Suöur Vestur Norður Þorlákur Matthías Guðm. P. Jakob Pass 1» Dobl 14 1 G 2* 3 G 4* Pass Pass 4 G Pass Pass Dobl p/h Þama voru sagnir mjög fjörugar og svo virtist sem sveit S. Ármanns gæti grætt mikið á spilinu því vömin getur tekið 7 fyrstu slagina. En útspilið var spaði svo sagnhafi renndi heim sínum 10 upplögðu slögum og sveit Lkndsbréfa græddi 12 impa. ísak Örn Sigurðsson V 64 ♦ AKDG8542 J. Q

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.