Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1994, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1994, Page 2
2 MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 1994 Fréttir Ákærður fyrir grófa mis- notkun á unglingspiltum vann traust unglinga með sælgæti og klámspólum Ríkissaksóknari hefur geflö út ákæru á hendur 34 ára karlmanni fyrir aö hafa haft í frammi kynferðis- lega tilburði viö tvo 15 ára pilta. Máhð verður þingfest fyrir Héraðs- dómi Reykjavíkur á næstunni. Athæfið átti sér stað í sölutumi í austurbænum þar sem maðurinn starfaði. Samkvæmt upplýsingum DV viðurkenndi hann að hafa unnið sér traust unglinga í hverfinu með því að leyfa þeim að afgreiða í sölut- uminum, gefa þeim sælgæti og lána þeim myndbandsspólur. í ljósi þessa lokkaði hann drengina tvo til athæfis sem varðar við brot á hegningarlög- um og misnotaði þá á grófan máta. Þá er maðurinn einnig ákærður fyrir að hafa leigt út klámmyndir. Maðurinn var handtekinn í febrúar þegar unghngadeild Félagsmála- stofnunar lagði fram kæra á hendur honum. Þar á bæ hafði farið fram rannsókn á athæfmu og var skýrsla tekin af piltunum. Hann var síðan yfirheyrður af RLR og viöurkenndi athæfiö. Umræddur maður starfaði áður sem rannsóknarlögreglumaður á landsbyggðinni. Fyrir nokkrum árum var hann handtekinn og vikið úr starfi í kjölfariö. Það mál kom upp þegar hann var staddur í Reykjavík. Þá hringdi hann í unglingsstúlkur á Suðurnesjum og reyndi að lokka þær til lags við sig í kynferðislegum til- gangi. Ransókn mádsins leiddi th þess aö lögð var gildra fyrir manninn - hann beðinn að hitta stúlkuna á ákveðnum stað. Þar biðu hins vegar lögreglumenn eftir honum og viður- kenndi hann við yfirheyrslur að hafa hringt í stúlkuna. Fyrir það mál var maðurinn ekki ákærður á sínum tíma og ekki heldur nú. í samtali DV við við lögfróðan mann kom fram að maðurinn hefði að minnsta kosti átt að fá lögregluáminningu fyrir brotið, en svo var ekki. Krókabátarnir skipta sköpum fyrir atvinnulífiö hér, segir Ársæll Egilsson, hafnarvöröur á Tálknafirði. DV-mynd ÞÖK Umræðumar á Alþingi 1 gærkvöldi: Nýr stjórnmálaf lokkur boðaður Stuttar fréttir Bannólihiegt Sjávarútvegsráðherra telur ólíklegt að ríkisstjómin banni veiðar í Smugunni yfir vetrartím- ann eins og sjómenn hafa óskað eftir. Sjónvarpiö skýröi frá. Ferjur rannsakaðar Sighngamálastofnun hefur ákveðið að láta gera sérstaka at- hugun á íslenskum bílferjum. Hér á landi eru 4 ferjur þar sem ekið er að og frá borði um loku- búnað í stefni og skut. Sjónvarpið greindi frá þessu. óheimii losun Lyfjaúrgangur og gamlar sprautunálar fundust innan um jarpvegsúrgang á sorphaugunum í Gufunesi fyrir nokkrum vikum. Tahö er að áö úrgangurinn sé frá ; stórri sjúkrastofnun. ; /; Frambodsmál skýrast Jóhanna Siguröardóttir segir að þaö ráðíst í þessum raánuði hvemig staðið veröur að fram- boðsmálum hermar. Stöð tvö greindi frá þessu. Fjárhagsstaða Flugsstöðvar Leifs Eiríkssonar fer sífellt versn- andi. Skv. Stöð tvö vinnur utan- ríkisráðuneytið nú að tillögum um fjárhagslega endurskipulagn- ingu stöðvarinnar. Geðf atiaðir á götunni Tahð er aö 38 geðfatlaðir ein- staklingar séu á götunni, þar af 5 konur og 33 karlar. Skv, Morgun- blaðinu er meðalaldurinn 37 ár. Innmaturinn arðbær Innmatur er orðinn arðbær út- flutningsvara. Skv. RÚV fæst nú viðunandi verð fyrir innraat hjá fraraleiðendum gæludýrafóðurs. Jóhanna Sigurðardóttir, fyrram félagsmálaráðherra, boðaði stofnun nýs stjómmálaflokks í umræöum á Alþingi í gærkvöldi. Henni var tíð- rætt um misréttið í þjóðfélaginu og hvernig láglaunafólk hefur setið eft- ir. Hún sagði að fækka ætti alþingis- mönnum, gera landið allt að einu kjördæmi og blanda saman persónu- og hstakjöri til þings. Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, sagöi hægt að ná fram meiri hagvexti en nú er. Hann sagði þessa rikisstjóm vera stjóm sumra landsmanna en ekki allra. Hann sagðist vhja nota há- tekjuskatt til að hækka persónuaf- slátt hjá almenningi. Ólafur Ragnar Grímsson, formað- ur Alþýðubandalagsins, benti á að í tíð núverandi ríkisstjórnar hefðu hreinar skuldir ríkissjóðs aukist um 100 prósent. Hann sagði að grunnur að þeim stöðugleika sem nú ríkir hefði verið lagður í þjóðarsáttar- samningunyum 1990 og ríkisstjórn aðeins viðhaldið honum. Rannveig Guðmundsdóttir, for- maður þinghokks Alþýðuflokksins, kom nokkuð inn á erfiðleika flokks- ins um þessar mundir og sagði að umræðan um siðleysið í stjómmál- um gæti orðið til góðs. Guðrún Halldórsdóttir, þingkona Kvennalista, nefndi þá kyrrstöðu sem nú ríkir á öllum sviðum, shk kyrrstaða geti verið fyrsta skrefið í afturfór. Tálknafjörður: Afli krókabát- anna skiptir sköpum , -segirhafiiarvörður „Krókaleyfið er mjög mikhvægt hér. Við fáum meira hráefni hér af krókabátum en af öðram bátum. Þetta hefur nánast snúist við á tveim- ur árum,“ segir Ársæh Eghsson, hafnarvörður á Tálknafirði. Ársæh segir að það skipti sköpum fyrir atvinnulífið að hafa þessa báta á staðnum en þeir bára að landi rúm 2000 tonn af þorski á síðasta fisk- veiðiári. Hann segir að frá Tálkna- firði hafi róið 40 krókabátar á síðasta sumri en á staðnum era að staðaldri 14 bátar. Til gamans má geta þess að Tálkn- firðingar, sem eru í kringum 370 og teljast vera um 0,1 prósent af þjóð- inni, bera að landi fast að 7 prósent- um krókaaflans. Sj ómannasambandið: Vill stöðva veiðar Framkvæmdastjórn Sjómanna- sambands íslands tekur undir með austfirskum útgerðarmönnum og vhl stöðva veiðar íslenskra skipa og skipa mönnuðum íslendingum í Bar- entshafi um vetrartímann vegna ís- ingarhættu. Stjómin ályktaði um þessi mál á fundi sínum í gær. LeiðrétHng Mishermis gætti í gær í frétt DV um ummæh Kristjáns Jó- hannssonar í Mannlifi. Sagt var að hann teldi aö segja ætti upp hljóðfæraleikuranum i Sinfóní- hljómsveitinni og ráöa erlent fólk. Hið rétta er að Kristján sagði að segja ætti ölium upp, endur- ráöa þá hæfustu og „fá óviökom- andi aðha, t.d, nokkra hæfustu sinfóníustjómendur heims, th að vega og meta hæfni manna“. Innganga íslands 1ESB vart á dagskrá fyrr en eftir aldamót: Davíð boðar aukinn kaupmátt „Á undanfómum sjö áram hafa launþegar þurft að horía upp á kaup- mátt sinn falla ótt og títt. Aldrei þó jafn mikið og í tíð síðustu ríkisstjóm- ar, er kaupmáttur launafólks hrap- aöi stöðugt, ekki síst árin 1989 og 1990. Síðan hefur kaupmáttur minnkað hthlega en nú á þessu ári hefur tekist að varðveita hann og reyndar hefur hann aðeins aukist síðustu mánuðina. Nú, þegar kjara- samningar fara í hönd, er i fyrsta sinn í langan tíma hægt að gera ráð fyrir að þeir samningar ekki aðeins tryggi kaupmátt, heldur geti aukið hann, ef vel er á haldið og allrar var- fæmi gætt,“ sagði Davíð Oddsson forsætisráherra, meðal annars, í stefnuræðú sinni á Alþingi í gær- kveldi. Forsætisráðherra var tíðrætt um efiiahagsbata sem hann sagði að orðið hefði þrátt fyrir að öðra hefði verið spáð. Hann sagði að á þessu ári hefði verðbólgan orðið minni, vextir lægri og atvinnuleysi minna en spáð var í fyrra. Hagvöxtur hefði glæðst á ný og verði meiri í ár en hann hefur orð- ið nokkurt heht ár síðan 1987, en gert hefði verið ráð fyrir að hann yrði neikvæður í ár. Tekist hafi að lækka raunskuldir þjóðarinnar út á við um 23 mhljarða króna. Lánsflárþörf hins opinbera sé nú aðeins 14 milljarðar en nýspamaðurinn 35 mhljarðar króna. Fjárlagahallinn verði á mihi 6 og 7 mihjarðar króna eða 3 mihjörð- um minni en spáð var í fyrstu. Þann- ig hafi tekist að rjúfa tímabil stöðnun- ar og samdráttar sem ríkt hefur síð- ustu 7 árin. Þetta megi aö hluta þakka auknum afla á fjarlægum miðum og einnig auknum umsvifum í helstu viðskiptalöndum okkar. Þá sagði forsætisráðherra að deha íslendinga og Norðmanna um veiðar í Barentshafi yrði ekki leyst þannig að báöir hefðu sóma af nema Islend- ingar fengju sanngjarnan kvóta í þorskveiðum í Barentshafi. Varðandi inngöngu íslands í ESB taldi ráðherra ólíklegt að innganga íslands í ESB yrði á dagskrá fyrr en um eða eftir aldamót.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.