Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1995, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1995, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 1995 Verkamannafélagið Dagsbrún Tillögur uppstillingarnefndar og trúnaðarráðs um stjórn og aðra trúnaðarmenn félagsins fyrir árið 1995 liggja frammi á skrifstofu félagsins frá og með fimmtudeginum 12. janúar 1995. Öðrum tillögum ber að skila á skrifstofu Dagsbúnar fyrir kl. 12.00 föstudaginn 13. janúar 1995. Tillögun- um skulu fylgja meðmæli minnst 75 og mest 100 fullgildra félagsmanna. Kjörstjórn Dagsbrúnar Húsbréf Utdráttur húsbréfa Nú hefur farið fram útdráttur húsbréfa í eftirtöldum flokki: 4. flokki 1992 - 5. útdráttur Koma þessi bréf til innlausnar 15. mars 1995. Öll númerin verða birt í næsta Lögbirtingablaði. Auk þess liggja upplýsingar frammi í Húsnæðis- stofnun ríkisins, á Húsnæðisskrifstofunni á Akureyri, í bönkum, sparisjóðum og verðbréfa- fyrirtækjum. húsnæðisstofnun ríkisins HÚSBRÉFADEIID • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVlK • Slttl 69 69 00 Verslanir - innkaupafólk Bylting í hönnun Ótvíræðir kostir FISLÉTT - teg. P40: táhlíf og millisóli úr stáli - 770 g - teg. P30: táhlíf úr stáli - 720 g - teg. P10: frístundastígvél - án öryggisatriða - 650 g EFNI: POLYURETHANE - kemískt frauðefni - einangrar vel gegn miklum kulda - sérstaklega þægileg vegna sveigjanleika efnisins, létt- leika þess og mýktar - skaðlausfrá sjónarmiði umhverfisverndar, þ.e. að efn- ið brotnar niður fyrir áhrif örvera - framleiðsla án CFC-efna - frábært viðnám gegn oliu og kemískum efnum AUKID ÖRYGGI - framleidd til aö standast staðlana DIN 4843 og CEN - aukastyrking í hæl, tá og við ökkla O sérstakt mynstur i sóla til að koma i veg fyrir óhapp I stiga eða þiepum g vísindalega hannað sólamynstur með tilliti til stöðug- leika - með skálínum í hæl O TÁHLÍF OG MILLISÓLI ÚR STÁLI - sérstaklega breið táhlíf úr stáli i samræmi við DIN 4843 stað- Q alinn - sveigjanlegur millisóli úr stáli, einnig I samræmi við DIN4843 staðalinn FOÐUR OG INNRISOLI - mjúkt bómullarfóður O - góður umskiptanlegur innrisóli NOTKUN: - við námuvinnslu og skógrækt - við mjólkurbú og matvælaiðnað - við almennan iðnað - við byggingarstörf og mannvirkjagerð - við hreinsunarfyrirtæki - við landbúnað og garðyrkju - við fisk- og kjötiðnað - við lækna- og lyfjafræðistörf - við efna- og oliuiðnað 0 STEPLITE V _ nýtt BEKINA STÍGVÉL, FRAMLEITT TIL AÐ ENDAST JON BERQSSON H.f. Langholtsvegi 82, s: 91-5888944 Fax: 5888881 Uflönd Kanadamenn gera fiskveiðieftirlitssamning við Norðmenn: Viðurkenna verndar- svæðið á Svalbarða - kanadíski sjávarútvegsráðherrann væntanlegur til íslands Kanadísk stjórnvöld hafa lýst því yfir við Norðmenn að þau viður- kenni sjónarmið þeirra á fiskvernd- arsvæðinu við Svalbarða. Verndar- svæðið er 200 mílur og var því komið á fót árið 1977. Hingað til hafa Finnar einir þjóða viðurkennt rétt Norð- manna á svæðinu. Það var Jan Henry T. Olsen, sjávar- útvegsráðherra Noregs, sem upplýsti um afstöðu kanadískra stjórnvalda í Ósló í gær þar sem Brian Tobin, starfsbróðir hans úr Kanada, er í heimsókn. Ráðherrarnir tveir voru að staðfesta samkomulag milli þjóö- anna um fiskveiðieftirlit utan 200 mílna lögsögu. Það er Norðmönnum pólitískt mjög mikilvægt að fá viðurkenningu Kanadamanna á fiskverndarsvæð- inu við Svalbarða en eins og öllum er í fersku minni áttu Norðmenn í illdeilum við íslenska togara sem veiddu þar í fyrra. Tobin reyndi að gera lítið úr stuðn- ingi Kanadastjórnar við stjórn Norð- manna á Svalbarðasvæöinu og sagði mikilvægast að koma á árangursríku eftirliti og vernd fiskstofnanna. Varfærnisleg orð Brians Tobins er hægt að skýra með því að hann heim- sækir ísland innan fárra daga. Vafa- samt þykir að íslensk stjórnvöld muni samþykkja stuðning Kanada- manna við Jan Henry T. Olsen og sjónarmið hans. Samkomulagið sem þeir Tobin og Olsen staöfestu í gær gerir ráð fyrir sameiginlegum reglum um hvernig framfylgja beri fiskveiðihagsmunum utan 200 mílna. Það snertir beint vanda Norðmanna vegna veiða m.a. íslenskra skipa í Smugunni og vanda Kanadamanna vegna rányrkju er- lendra skipa undan austurströnd landsins. Samkomulagið heimilar Norð- mönnum að taka kanadísk fiskiskip á veiðum t.d. í Smugunni og Kanada- mönnum að taka norsk skip á veið- um utan kanadískrar lögsögu. Þar sem það gildir einungis fyrir þessar tvær þjóðir veitir það Norðmönnum ekki heimild til að taka íslensk skip í Smugunni. „Samkomulag þetta er stórt skref fram á við í átt til árangursríkara eftirlits með auðlindunum. Það er nauðsynlegt að sýna tennurnar þeg- ar verndun auðlinda hafsins er ann- ars vegar,“ sagði Brian Tobin, sjáv- arútvegsráðherra Kanada. ntb Stórtenórinn Luciano Pavarotti kom til Lima í Perú í gær í fyrstu heimsókn sína og við komuna á hótelið veifaði hann til fréttamanna sem biðu hans þar. Pavarotti heldur tónleika í L.ima annað kvöld. Með honum á myndinni er perúski tenórinn Luis Alva. Símamynd Reuter Rússneskar hersveitir nálaast forsetahöllina Rússneskar hersveitir héldu hægt og bítandi inn í Grosní í gær og vörpuðu sprengjum á forsetahöllina úr návígi Forsetahöllin: Aðalstöövar Dzhokhars Dúdajevs, leiðtoga Tsjetsjena, og tákn þriggja ára uppreisnar lýðveld- isins gegn rússneskum yfirráðum Vopnahlé í Tsjetsjeníu í morgun Vopnahléið sem Rússar lýstu yfir í stríði sínu gegn aðskilnaðarsinnum í Tsjetsjeníu gekk í gildi klukkan fimm í morgun að íslenskum tíma en ekki var ljóst hvort bardögum var hætt. Vopnahléið gildir í tvo sólar- hringa og á að nýta þann tíma til að reyna að finna friðsamlega lausn á deilunni. Tilkynning Moskvuvaldsins um vopnahlé kom mönnum í opna skjöldu. Undanfama þrjá daga hafa bardagar um höfuðborgina Grosní verið gífurlega harðir og hafa rúss- nesk stjórnvöld sætt sívaxandi gagn- rýni heima og heiman fyrir herfór- ina. Niels Helveg Petersen, utanrík- isráðherra Danmerkur, sagði að þrátt fyrir að vopnahléið héldi mundu Danir ekki staðfesta sam- starfssamninga Evrópusambandsins við Rússa á fyrri helmingi þessa árs. Rússneskar hersveitir voru komn- ar í minna en kílómetra fjarlægð frá forsetahöllinni í Grosní. Reuter, Ritzau UppþotíMalaví þegar Banda var neitað um lausn gegntryggingu Þúsundir reiðra Malavíbúa grýttu lögregluna í gær fyrir utan dómsal þar sem dómari hafnaöi beiðni lögfræðinga Kamuzu Banda, fyrrum forseta, og John Tembo, náins samverkamanns hans, um að þeir yrðu látnir laus- ir gegn tryggingu. Þeir eru, ásamt tveimur lög- regluþjónum, ákæröir fyrir að hafa staðið fyrir morðunum á tjórum stjómmálamönnum árið 1983. Banda komst ekki i réttar- salinn í gær þar sem hann er orð- inn elliær. Réttarhöldin yfir fjórmenning- unum lietjast þann 18. janúar. Reuter Kamuzu Banda, fyrrum Malaví- forseti.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.