Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1995, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 1995
27
Tækni - tölvur
Nýherji þjónustar Intemetsnotendur:
Leið til að minnka
samskiptakostnað
starfsmanna. Fjárfestingin getur því
verið mikil nema að fyrirtækin komi
sér í samband hjá okkur.“
Aðspurður segir Baldur að við-
brögð við Internetsþjónustu Nýherja
hafi verið góðar. Fyrirtækið hafi far-
ið rólega af stað, byrjað fyrir ári í
tilraunaskyni en núna væru áform
uppi um að efla þjónustuna.
„Við ætlum að gera þjónustuna að
stærri og virkari þætti í okkar starf-
semi. Hátt í annað hundrað notendur
og þónokkur fyrirtæki hafa tengst
Internetinu í gegnum okkur.“
- Hver er helsti kostur fyrir fyrir-
tæki við að tengjast Interneti?
„Fyrir þau er þetta leiö til að
minnka samskiptakostnað til út-
landa. Þau fá líka greiðari leið til al-
mennra samskipta. Forráðamenn
eða starfsmenn fyrirtækja geta rætt
saman, skipst á gögnum og hleypt
mönnum að tölvukerfum hver ann-
ars.“
Baldur segir þaö gríðarlega mikil-
vægt að fyrirtæki hugi að öryggis-
þættinum þegar tengjast eigi Inter-
neti.
„Internetið er ekki annað en þjóð-
vegur sem hver og einn getur ferðast
um. Það eru alls konar menn sem
ferðast um þennan þjóðveg í öðrum
tilgangi en aðrir. Þeir eru kannski
að leita að viðkvæmum upplýsingum
í hagnaðarskyni. Því verða menn að
byggja upp svokallaða eldveggi eða
vörn gegn óboðnum gestum. Það er
hluti af þeirri þjónustu sem við bjóð-
um upp á, að sjá um öryggisþáttinn."
Baldur segir að viðskiptaleg hlið
Intemet og Apple-umboðið
Fyrir Macintosh-tölvueigendur rukka fyrir er auðvitað leiðbein-
hefur Apple-umboðið verið í sam- ingar, áskrift og notkun. Ef menn
starfi við Miðheima í Tæknigarði ætla að vera í þessu myndræna
um tengingu við Intemetið. Apple- umhverfi þá 'þarf öflugt mótald.
umboðið býður almennum tölvu- Það má ekki vera minna en 14.400
notendum tengingu við Miðheima bita að stærð. Allar venjulegar
fyrir upphringisamband. Síðan er Macintosh-tölvur duga,“ sagði
Apple-umboðiö auðvitað tengt við Valdimar.
Intemet um háhraöanet Pósts og Valdimar sagði aö mikill sparn-
síma. Valdimar Óskarsson sagði aður væri fólginn í því fyrir Apple-
við DV að tölvunotendur gætu líka umboðið og viöskiptavini þess að
komist í samband við Apple- vera tengdir Interneti. Þarna væru
umboðið um Internetið. menn að greiða fast gjald, óháð
„Þeir sem þekkía vel til í báðum notkun, og auðveldara yröi að
„tölvuheimunum“ segja að hug- sækja nýjar uppfærslur.
búnaður eins og Mosaik sé „Internet er tískuorðið i dag. Það
skemmtílegri á Macintosh-tölvu en eru allir að spá 1 þetta,“ sagði Valdi-
PC-tölvum. Hugbúnaðurinn sem mar og bætti þvi við að Apple-
þarf til að komast í samband við umboðið væri að koma sér upp
Internet fylgir stýrikerfi okkar eða heimasíðu á Internetinu.
er ókeypis. Það sem Miðheimar
Nýherji hf. við Skaftahlíð býður upp
á tvenns konar þjónustu vegna Inter-
netsins, annars vegar fyrir einstakl-
inga og hins vegar fyrir fyrirtæki.
Baldur Johnsen, tölvunarfræðingur
hjá Nýherja, sagði í samtali við DV
að þessi þjónusta yrði sífelit viða-
meiri hjá fyrirtækinu.
„Við ýmist leyfum mönnum að
komast í samband með Unix-tölvu,
sem er tengd Interneti, og þar geta
menn unnið og notað allar þær auð-
lindir sem Internetið býður upp á,
eða menn geta tengst með svokölluðu
slip-sambandi og fengið myndrænt
notendaviðmót á Internetið, svona
svipað og Mosaik-hugbúnaðurinn.
Það sem er frábrugðið okkar þjón-
ustu miðað við aðra er að við byggj-
um hana á föstu áskriftargjaldi pr.
mánuð. Þannig að gjaldið er óháð
notkun," segir Baldur.
Gátt að Interneti
Fyrirtækjaþjónusta Nýherja bygg-
ist á því að gera fyrirtækin að fullum
þátttakanda í Interneti. Baldur segir
að Nýherji virki því sem nokkurs
konar gátt að Interneti fyrir fyrir-
tækin.
„Þá geta fyrirtækin tekið til sín
sjálf þá hluti sem þau vilja af netinu.
Við bjóðum fjölbreytta tengimögu-
leika, s.s. x-25, upphringisamband
eða jáfnvel fastlínutengingu. Við
sjáum um rekstur á þessu sambandi
og sjáum til þess að það gangi þokka-
lega. Vilji fyrirtæki tengjast Interneti
krefst það töluverðrar þekkingar
Baldur Johnsen hjá Nýherja sér um þá deild sem snýr að Internetsnotend-
um. DV-myndGVA
Internets sé stöðugt að aukast. Þetta
sé markaður tengdur 30-A0 milljón-
um manna.
Netfangjafndýr-
mætt og þorskkvóti
„íslensk fyrirtæki eru smám sam-
an að uppgötva þennan möguleika. í
dag eru ákveðnar takmarkanir á því
hvað menn mega gera hér innan-
lands. Viðskiptalegar takmarkanir
eru settar af þeim félagskap sem rek-
ur Internetið. En þessir hlutir eru í
mikilli gerjun nákvæmlega núna.
Upphaflega var Intérnetið notað af
rannsóknaraðilum og menntastofn-
unum en núna stendur til að stofna
hlutafélag um þá starfsemi sem SUR-
ÍS hefur haft með höndum. Á næstu
mánuðum verður fyrst fýsilegur
kostur að tengjast Interneti í við-
skiptalegum tilgangi. Þess veröur
ekki langt að bíða að netfóng á Inter-
neti verði orðin jafn algeng og fax-
númer fyrirtækja. Sumir ganga jafn-
vel svo langt að spá því að ef fyrir-
tæki verði ekki tengd Interneti innan
ákveöins tíma þá hreinlega verði þau
ekki með í viðskiptum. Menn spá því
einnig að það að eiga Internets-net-
fang verði jafn dýrmætt og að eiga
kvóta í þorskinum," segir Baldur
Johnsen hjá Nýherja.
HUGBUNAÐUR
FYRIR WINDOW'S
LAUNAKERFI
Frá kr. 14.940.-
KERFISÞRÓUN HF.
FÁKAFENI 11 - SÍMI 568-8055
Vilt þú taka skref
inn í framtíðina?
Það eru viðurkennd Novell námskeið framundan.
Hafðu samband við okkur núna ef þú vilt
auka við menntun þína í Novell netkerfum.
Þinn er ávinningurinn!
Tæknival
Skeifunni 17 - Sími 568-1665 - Fax 568-0664
nashuaíe«
★ MesA seldu Ijósritunarvélar á íslandi!
★ Faxtæki ★ Fjölritar ★ Kjölbinditæki
Vönduð þjónusta og traustar véiar tryggja vinninginn !
Verib velkomin í vinningsliðið!
Umboð: Hljómver, Akureyri
Póllinn, Isafirði
Geisli, Vestmannaeyjum
ARMULA 8 - SIMI 588-9000