Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1995, Síða 13
MIÐVIKUDAGUR 25. JANUAR 1995
29
Vilhjálmur Þorsteinsson hjá Islenskri forritaþróun hf. Hann hefur róttækar hugmyndir um að leggja Ijósleiðara
að hverju heimili i landinu. DV-mynd GVA
Vilhjálmur Þorsteinsson með róttækar hugmyndir:
Tölvan, síminn og sjón-
varpið tengt með alneti
- með ljósleiðara aö hverju heimili
Vilhjálmur Þorsteinsson, kerfis-
fræðingur hjá íslenskri forritaþróun
hf., er með róttækar hugmyndir í
tölvumálum sem hann segir í raun
vera spursmál um atvinnumál fram-
tíðarinnar. Hér er átt við að koma
ljósleiðara að öllum heimilum í land-
inu með tengingu við svokallað alnet
sem í framtíðinni mun tengja saman
tölvuna, sjónvarpið og símann. Vil-
hjálmur telur að með lagningu slíks
ljósleiðara myndi skapast fjöldi
starfa og verðmætaaukning yrði
mikil.
„Internetið byrjaði sem samteng-
ing milli skóla og ríkisstofnana í
Bandaríkjunum. Siðan hefur þetta
smám saman undið upp á sig. Áð
stórum hluta til er Internetið keyrt
enn í gegnum símalínur en hryggirn-
ir í því eru komnir á ljósleiðara í
Bandaríkjunum og víðar. Miklar
framfarir eru að verða í samskipta-
málum. Tilkoma ljósleiðaranna og
þróun á þeim hefur gjörbreytt stöð-
unni. Það er hægt að troða gríðarlegu
magni um þá og þeir eru líka mjög
áreiðanlegir. Margfalt færri villur
verða á sendingum um ljósleiðara
heldur en um koparþræði símkerf-
anna. Það mun gerast í framtíðinni
að dreifikerfum fyrir síma, sjónvarp
og tölvu verður slegið saman í eitt
alnet,“ segir Vilhjálmur.
Reykjavík tilvalin
í tilraunaskyni
- Hvemig mun þetta gerast?
„Það er verið að tala um að ljósleið-
ararnir liggi upp að húshlið. Þar
komi þeir inn í svartan kassa og úr
þeim kassa komi lagnir fyrir síma,
tölvu, sjónvarp og fleira. Öll merki
verða stafræn, að sjálfsögðu. Þetta
er ákveðin bylting. Internetið er hluti
af þessari þróun. Ég hef verið að
skjóta því að mönnum hvort Reykja-
vík sé ekki tilvalinn tilraunamarkað-
ur fyrir þessa tækni. Þetta er evrópsk
höfuðborg, ekkert alltof stór, vel
tæknivædd og fólk nýjungagjarnt.
Þrátt fyrir allt hefur Póstur og síma
staðið sig ágætlega. Þess vegna hefur
komiö upp sú hugmynd hvort ekki
væri möguleiki á samstöðu milli
Pósts og sínia, atvinnulífs, Háskól-
ans, borgaryfirvalda og hugsanlega
erlendra aðila um átak til að gera
Reykjavík að ljósleiðaravæddri
borg.“
VUhjálmur segist lita á þetta sem
atvinnumál, líkt og verið væri að
leggja hundruð milljóna króna í
átaksverkefni.
„Af hveiju ekki að nota peningana
til að grafa niður ljósleiðarastrengi?
Þetta er líka spuming um að gefa
íslenskum fyrirtækjum og Háskólan-
um færi á að þróa hugbúnað og stýr-
ingar í kringum þessa tækni í tíma.
Stóru síma- og samskiptafyrirtækin
í Bandaríkjunum eru komin í gang
með eitt og eitt bæjarfélag. Sem dæmi
er Time-Warner að fara í gang í Or-
lando á Flórída. En þessir staðir eru
teljandi á fingrum sér.“
Vilhjálmur segist hafa þær upplýs:
ingar frá Pósti og síma að þar sé ver-
ið að kanna möguleika á að leggja
ljósleiðara að 250 húsa hverfi í
Reykjavík í tilraunaskyni. Vilhjálm-
ur segir tilvalið að fá fleiri aöila að
Sound
blAsti
Við gerum PC-tölvunni
þinni kleift að tala,
spila og syngja!
Sound Blaster 16 Value Edition
Langvinsælasta hljóðkortið fyrir PCtölvur í
dag. Hentugt í alla almenna hljóðnotkun,
leiki, hreyfimyndir, tal o.fl. Með því að
tengja kortið við geisladrif (CD-ROM)
opnast nýjar víddir í margmiðlun - og ein-
hæf tölvan breystist í undratæki sem flytur
bæði tal og myndir!
Sound Blaster AWE 32
Flaggskipið frá Creative Labs. Hér er á
ferðinni eitt öflugasta hljóðkortið fyrir PC
tölvur. AWE32 hljóðkortið býður upp á
mikla möguleika fyrir kröfuharða tölvu-
notendur og tónlistaráhugafólk. - Fyrir þá
sem vilja besta hljóminn á lægra verði
bjóðum við SB AWE32 Value Edition.
ÞÓR HF
Ármúla 11 - Sími 568-1500
málinu svo að hægt sé að gera viða-
meiri tilraun.
Hugmyndinni
vel tekið
Vilhjálmur hefur rætt lítillega um
þessa hugmynd við Atvinnumála-
nefnd og Aflvaka Reykjavíkur.
Næsta skref er að vinna greinargerð
fyrir þessa aðila. Vilhjálmur segist
hafa fengið góð viðbrögð við hug-
Tækni - tölvur
myndinni. Ekki er farið að tala um
kostnað við lagningu ljósleiðara að
hverju heimili. í Bandaríkjunum er
kostnaður við uppsetningu um 70
þúsund krónur á hvert heimili.
„Ljósleiðaratæknin er komin og
mun verða allsráðandi á næstunni.
Þetta snýst um hvort við ætlum að
taka frumkvæðið eða að láta hlutina
bara gerast. Ef seinni kosturinn
verður tekinn munum við bara
kaupa allan búnaðinn erlendis frá,“
segir Vilhjálmur.
TAKaQdM ImmL
Hreint út sagtfrábær
RT-155B
Sambyggt tæki sími og símsvari
Á vegg eða borð - Endurval -
10 skammvalsnúmer - Hátalari -
R-hnappur - Músik á bið -
Fjarstýranlegur - O.fl.
AT-550
Símsvari
Tími og dagsetning - Fjarstýranlegur
úr síma - Sýnir fjölda skilaboða - V
Upptaka á símtölum - Raddstýrð 1
upptaka - O.fl
ixjpstei
Síöumúla 37-108 Reykjavík - S. 687570
.. .áénfftaAitt^nx i umamdtumf
Vinsælu Tulip margmiðlunartölvurnar
loksins komnar aftur!
Þú getur eignast Tulip
margmiðlunartölvu fyrir ^
aðeinsl
kr. 4.921
á mánudi (*)
. ' ÆHHHK9í
TulHp MARGMIÐLUN
OPNAR ÞÉR
NÝJA VERÖLD !
Fræðsluefni
Landafræði
Myndlist
Tónlist
Vísindi
unarbúnadur miðlar upplýsingum med
hljódi, myndum og texta. Nýttu þér nýjustu tækni til frædslu og
afþreyingar - þad er gód fjárfesting!
Leikir
(•) Miðað er við raðgreiðslur Eurocard og afborganir í 36 mánuði. Vextir (13.01.95), VSK og allur
kostnaður er innifalinn í verðinu. Staðgrciðsluvcrð er aðeins kr. 135.900
Að auki fylgir með í kaupunum:
TulipWare
Geisladiskur fullur af hugbúnaði !
Lcikir - Ciaris Works - Gagnagrunnur
Töflureiknir - Teikniforrit - Ritvinnsla
leiðandi fyrirtæki
imargmiðlun
CO&NYherji
<o>
NÝHERJI
SKAFTAHLlÐ 24 - SlMI 69 77 00
Alltaf skrefi á undan