Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1995, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1995, Blaðsíða 29
LAUGARDAGUR 1. APRÍL 1995 29 Baldur og heim- sóknartímamir Flestir, sem legið hafa á sjúkrahús- um, eru á einu máli um að það sé heldur leiðinleg reynsla. Dagamir eru einhæfir og tíminn lengi að hða. Maður er vakinn eldsnemma, látínn þvo sér upp úr htíum bakka og burstar tennur. Síðan er borðað- ur heldur óspennandi morgunmat- ur, þurrt brauð með smjörlíkis- khpu og gúmmíosti, egg og þunnt kaffi. Að loknum morgunmat er beðið eftir stofuganginum og síöan eftir einhverjum rannsóknum og svo eftir hádegismatnum. Að matn- um loknum er beðið eftir heim- sóknartímanum, kvöldmatnum og sjónvarpinu. Það er mikil þohn- mæðisvinna að vera sjúkhngur og krefst andlegrar hestaheilsu. Ég lá einu sinni á lyflæknisdeild á sjúkrahúsi vegna gruns um heila- himnubólgu. Með mér lá á stofunni miðaldra maður, Baldur P., með brjóst- og magaverki sem ekki hafði tekist að komast fyrir. Hann hafði um langt árabil haft bijóstsviða og ropa eftir máltíðir og stöku sinnum fékk hann slæman verk bak við bringubeinið sem gat staðið heilu dagana. Þá varð hann veikindaleg- ur, fólur og sveittur og gat sig vart hreyft og fékk súrt magainnihald uppímunninn. Langdregnar rannsóknir Læknar höfðu lengi tahð þessi einkenni stafa frá maganum og hann hafði fengið alls konar lyf en ekkert dugað til þessa. Hann var því lagður á sjúkrahús til frekari rannsókna til að útiloka að þessir verkir gætu stafað frá öðrum líf- færum. Þegar hér var komið sögu var hann búinn að fara í áreynslu- hjartarit sem hafði verið eðlilegt, gallmynd sem var eðlileg, óms- könnun af lifur og galli var eðlileg. Hann átti eftir að fara í magaspegl- un og magamynd með tilhti til þindarshts. Baldur P. var orðinn leiður á spít- aladvölinni. Rannsóknimar sóttust seint og honum fannst þetta ekkert ganga. Hann var vinmargur svo það voru ahtaf einhverjir sem komu í heimsóknartímunum. Ég fylgdist með heimsóknunum til Baldurs enda var hann mun ergi- legri eftir þær en fyrir. Gestirnir komu yfirleitt ahtaf með eitthvað matarkyns sem Baldur mátti ekki borða eða vildi ekki. Þannig fékk hann ótölulegan fjölda af Opal- pökkum og konfekti, sem hann hafði megnustu andstyggð á, eða einhveija ávexti sem hann hvorki vildi né mátti borða. Flestir sem heimsóttu Baldur sögðu honum sjúkdóma- og læknasögur en þær eru ákaflega vinsælar í heimsókn- artímum sjúkrahúsanna. Einn mánudag lágum við og bið- um þess að heimsóknartíminn skyhi á. Baldur andvarpaði og sagðist ekkert skilja í því hversu þungur hann yrði aUtaf eftir heim- sóknimar. Fyrstur kom vinnufé- lagi Baldurs með brúnan bréfpoka með eplum og appelsínum auk ann- ars poka með nokkrum ópalpökk- um. Baldur sagði af stakri þolin- mæði að hann mætti ekki borða þessa ávexti, hann væri í þannig rannsóknum. Maðurinn virtist hálfmóðgaður, settist á stól við rúmið, dæsti og tók upp eph og fór að naga það. „Hvenær á að skera þig?“ spurði hann. „Þaö er ekkert búið að ákveða með það ennþá?“ sagði Baldur. „Þú verður ábyggi- lega skorinn," sagði maðurinn, „ég átti einu sinni kunningja sem var með sömu einkenni og þú og hann var skorinn. Þegar lækniramir voru komnir inn þá lokuðu þeir honum aftur, það var nefnUega ekkert hægt að gera. Þetta var al- „Hann hafði um langt árabil haft brjóstsviða og ropa eftir máltiðir og stöku sinnum fékk hann slæman verk bak við bringubeinið sem gat staðið heilu dagana." Á lækravaktmni Óttar Guðmundsson læknir veg voðalegt." „Hvað var þá að honum?“ spurði Baldur og hafði fólnað. „Það veit ég ekkert,“ sagði maðurinn, „enlæknirarnirurðu bara að loka honum aftur. En það er ekkert víst að þetta sé svona með þig en þó er margt sem minnir á hann KaUa heitinn.“ Maðurinn hélt áfram og sagði sögur af KaUa heitnum í 10 mín. en stóð síðan upp og kvaddi. „Ég sé þig aftur eftir helgina ef þú lifir þetta af.“ Hann brosti gleðUausu brosi og fór. Bald- ur andvarpaði og leið greinilega ekkLvel. Maðurinn var ekki fyrr farinn en inn komu tvær eldri kon- ur, frænkur Baldurs sem komu stundum. „Hvenærverðurðuskor- inn?“ spucðu þær. Baldur sagðist ekki vita það. Þær tóku upp poka með eplum og konfekti og Baldur útskýrði fyrir þeim að hann mætti ekki borða þetta aUt eins og á stæði. Þær fóru þá sjálfar að borða konf- ektið af þessari miklu varfærni feitiaginna kvenna, með þessum venjulegu upphrópunum um að þær mættu þetta nú alls ekki þar sem þær væru í megrun eina ferð- ina enn. Baldur sagði fátt. Þær fóru nú að tala um skurðaðgerðir eins og flestir sem heimsóttu Baldur. Þær sögðu frá einhverri voðalegri aðgerð sem vinkona þeirra hafði farið í einmitt vegna svona maga- verkja. Þessi aðgerð hafði staðið í 5 klst. og hún fengið 10 poka af blóði, að því er önnur konan sagði. Hin greip þá fram í og leiðrétti sög- una, konan hefði ekki fengið nema 5 poka af blóði en aðgerðin hefði staðið í 10 klst. Sú fyrri sagði þetta ekki rétt og svo þráttuðu þær um þetta smástund. „En hvað varð um konuna?“ spurði svo Baldur þegar honum var farið að leiðast þófið. „Hún dó,“ sagði önnur konan og fékk sér feitan konfektmola. „En það er kannski ekki svo slæmt með þig.“ Konumar kláruðu konfektið, fóru og lofuðu að koma einhvem tímannaftur. Fleiri læknabrandarar Þegar þessar konur vora farnar komu tveir vinnufélagar Baldurs rétt sem snöggvast. Þetta voru snaggaralegir menn á besta aldri og komu með konfekt í poka. Þeir voru hressir í lund og báðu Baldur blessaðan að láta sér batna sem fyrst. Þeir spurðu hvort hann vildi ekki heyra nokkra læknahrandara og fóm svo að segja mistakasögur af hinum og öðrum læknum meðan þeir hámuðu í sig konfektið. Þeir sögðu söguna af skurðlækninum sem gleymdi alltaf einhverju í sjúklingum sínum við aðgerðir. Við Baldur vorum búnir að heyra sög- una tvisvar svo við vissum alveg hvert framhaldið yrði. Sagan end- aði á því að læknirinn kom inn á stofuna til sjúkhngsins og spurði: „Hefur einhver séð hattinn minn?“ Mennirnir hlógu dátt og slógu í rúmið hjá Baldri. „Hefurðu heyrt söguna um skjálfhenta skurðlækn- inn?“ spurðu þeir. „Nei,“ sagði Baldur. Hann var ofsalega skjálf- hentur og sagði einu sinni: „Eg ætlaði að verða rakari en gat það ekki af því að ég var svo skjálfhent- ur svo ég varð skurðlæknir í stað- inn.“ Nú hlógu mennirnir svo að undir tók í sjúkrastofunni. Þeir fóm að svo búnu. Eftir svona heim- sóknartíma var Baldur alltaf ör- magna og lengi að jafna sig. Um kvöldið kom konan hans en hún sagði alltaf fátt og sat oftast þegj- andi og las lífsreynslusögur í Heimsmynd eða Mannlífi meðan Baldur reyndi að halda uppi sam- ræðum. „Það þarf mikil andleg hraustmenni til að vera veikur á spítala og fá heimsóknir á hveijum degi,“ sagði Baldur stundum. Þindarslit og aðgerð Læknarnir fundu að lokum það út úr einkennum Baldurs að senni- lega væri hann með þindarslit þeg- ar öllu væri á botninn hvolft. Þind- arsht er hálfgert rangnefni. Hring- vöðvi milU maga og véUnda er þá slappari en hann á að vera svo að magainnihald leitar upp í véUndað og veldur þar ákveðinni ertingu. Þessi hringvöðvi á undir eðlilegum kringumstæðum að vera lokaður þegar meltingin fer fram. Ekkert var að Baldri í hjarta eða galU. Læknarnir reyndu ýmislegt til að lækna þetta, hækkuðu undir höfða- gaflinum í rúminu, breyttu matar- æðinu og gáfu magalyf eins og Tagamet eða Zantac. Þeir ráðlögðu Baldri að hætta að reykja. Þessi ráð dugðu ekki svo að lokum var tekin sú ákvörðun að gera aðgerð og reyna þannig að styrkja þennan hringvöðva. Við vorum útskrifaðir sama daginn; hann inn á skurð- deild en ég heim. Að skilnaði gaf hann mér nokkra brúna bréfpoka með konfekti. „Ég var búinn að gefast upp á að segja fólki að ég vildi þetta ekki,“ sagði hann og brosti dapurlega. Ég frétti það næst til Baldurs að aðgerðin hefði tekist ágætiega og hann náð sér fullkom- lega. Við hittumst löngu seinna á einhverjum spítalanum þar sem ég var að vinna. Þá kom ég inn á stofu á heimsóknartíma og heyrði ein- mitt mann vera að segja einum sjúklingnum mergjaðan lækna- brandara. SjúkUngurinn lá fblur og þegjandi í rúminu en gesturinn hló og sló sér á lær. Þetta var Bald- ur. Sunnudaginn 2. apríl ÍR-Fram kl. 20.00 Gervigrasið Laugardal FÉLAG JÁRNIÐNAÐARMANNA Vorfundur Félags Járniðnaðarmannsi. verður haldinn mánudaginn 3. apríl kl. 20.00 að Suðurlandsbraut 30. DAGSKRÁ: 1. Félagsmál 2. Verkefni á þingi Samiðnar 3. Kosning fulltrúa á 1. þing Samiðnar , 4. Niðurstöður könnunar á viðhorfum til verkalýðs- hreyfingarinnar Halldór Grönvold frá ASÍ Kaffiveitingar í fundarlok po/tunette' undirfatnaður ímikluúrvali Tegund: Défilé Stærðir: \' Brjóstahðldari V\ * \ 32A-38DD \ \ (70A-100DD) Nærbuxur 'MJtmh ■ fcí1' / S, M,L , r Litin Hvítt, svart, grátt Veró: Brjóstahaldari kr. 2.700 Nærbuxur J§ 1111 kr. 1500-2700 i ml'l ,,o fOR EVER-BÚÐ\ti ^ r— LBIáiftglinn •• "/'•j
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.