Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1995, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1995, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 1995 Fréttir Harðnandi átök í „hundablokkinni“ við Álakvísl: Ruddist inn í íbúðina og sló mig í andlitið - segir Runólfur Oddsson - danglaði til hans, segir nágranninn „Hann hringdi dyrabjöllunni og þegar ég opnaði dymar ruddist hann inn í íbúðina og sló mig í andlitið. Það bjargaöi mér aö hundurinn kom fram og þá bráði af manninum," seg- ir Runólfur Oddsson, hundaeigandi í fjölbýlishúsinu við Álakvísl 124-136, um samskipti sín við einn nágranna sinna. Runólfur segir að tönn hafi losnaö í sér við átökin, auk þess sem hann bólgnaði upp á kjálka. Átök hafa verið í fjölbýlishúsinu um langt skeið og hafa íbúarnir stað- ið í kærumálum. Máhð hefur komið til kasta borgarstjómar, félagsmála- ráðherra, lögreglu, umhverfisráðu- neytisins, Heilbrigðisnefndar Reykjavíkur og fleiri aðila. Runólfur, sem sviptur var leyfi til hundahalds frá 1. júní að telja, segist hafa verið nýkominn heim eftir að hafa dvalist erlendis í rúma viku. Við heimkomuna sá hann að ná- granninn var búinn að fjarlægja reiðhjóhm sem vom í hans eigu. Runólfur Oddsson með tíkina sína fyrir utan fjðtbýlishúsið þar sem hann býr. Þar loga nú ófriðareidar. DV-mynd ÞÖK Kærttil lögreglu „Mér virðist sem hann hafi verið búinn að ákveða að ég ætti að flytja út þann 1. júní þegar úrskuröurinn gengur í gildi. Ég hitti hann úti í garði og spurði hann hvort hann hefði tekiö reiðhjólin. Hann sagðist hafa tekið þau og hent þeim. Ég sagði honum strax að ég myndi kæra hann til lögreglunnar. Það hðu um 10 mín- útur þangað til hann hringdi bjöh- unni hjá mér og mddist inn,“ segir Runólfur. Hann segist hafa kært umsvifa- laust til lögreglunnar og fengið áverkavottvorð hjá lækni og málinu verði fylgt fast eftir. „Danglaði til hans“ Ólafur Benediktsson, umræddur nágranni Runólfs, viðurkennir að hafa veist að honum en hafnar því að það hafi valdiö honum skaða. Hann segist hafa slegið Runólf í hita augnabliksins. „Ég danglaði til hans og það er ekki hægt að kalla það högg. Ég hafna því alfarið að það hafi valdið honum skaða en auðvitað er ég ekki hreykinn af þessu og þetta var rangt af mér. Þetta átti sér þann aðdrag- anda að hann jós yfir mig fúkyröum í garðinum. Ég er búinn að taka ýmsu en það sem gerði það að verk- um að ég reiddist var að sjö ára dótt- ir mín, sem þama var að leik, hljóp grátandi inn undan fúkyrðunum," segir Ólafur Benediktsson. Hann segir að reiðhjólin, sem hent var, hafi verið drasl sem hafi verið fleygt þegar íbúamir tóku til. „Þetta var hálfónýtt drasl sem við vissum ekki hver átti. Við töldum reyndar að þau hefðu verið skihn eftir af fyrri íbúum. Ef einhverjum hefði dottið í hug að þetta væri í eigu Runólfs hefði ekki hvarflað að okkur að svo mikið sem hreyfa við þessu,“ segir Ólafur. -rt Sjöstafa símanúm- erum allt land Frá og með deginum í dag em öll almenn símanúmer á landinu orðin sjö stafa og svæðisnúmer þar með afnumin. Nýju númerin sýna þó enn hvaða landshluta þau tilheyra því nú byija öll númer á höfuðborgar- svæðinu á 55, 56 eða 58, á Vestur- landi á 43, á Vestfjörðum á 456, á Norðurlandi vestra á 45, á Norður- landi eystra á 46, á Austfjörðum á 47, á Suðurlandi á 48 og á Suðumesj- um á 42. Númer fyrir farsíma, talhólf og boðtæki sem áður byrjuðu á 985,988 og 984 byija nú á 85, 88 og 84, þ.e. stafurinn 9 hefur fallið brott, og í stað 99 í grænum númerum kemur nú 800 og í stað 99 í símatorgsnúmerum kemur 90 ásamt þriðja stafnum sem segir til um gjaldflokk. Gjaldskráin sem slík breytist ekkert. Ekki er lengur hægt að hringja í gömlu númerin en gjaldfijáls sím- svari hefur verið settur á þau öll, hvort sem hringt er innanlands eða frá útlöndum, þar sem svarað verður út júní 1996. QJirva mman amefa 456 bætast framan við öll símanúmer á Vestfjörðum (94) 5000 verður 456 5000 43 bætast framan viö öll símanúmer á Vesturlandi (93) 11000 verður 4311000 Mí&ím 42 bætast framan við öll símanúmer á Suðurnesjum (92) 15000 verður 45 bætast framan viö öll símanúmer á Norðurl. vestra (95) 35100 verður 453 5100 46 bætast framan við öll símanúmer á Noröurl. eystra (96)30600 verður 463 0600 Höfuðborgarsvæðið 55 bætast framan viö 5 bætast framan viö fimm stafa símanúmer sex stafa símanúmer (91) 26000 verður (91)636000 verður 552 6 riiiina 563 6 31211 47 bætast framan við öll símanúmer á Austurlandi (97) 11100 verður •HJ x npz -<r. 48 bætast framan viö öll símanúmer á Suðurlandi (98) 21100 verður Norðurá í Borgarflrði og Brenn- an í Borgarfiröí voru opnaðar um sjöleytið á finuntudag en Laxá á Asum klukkan fiögur. „Það voru aöeins þrír laxar fýrsta veiðivöröur í Norðurá. „Guðlaugur Bergmann veiddi tvo laxa á maðkinn og annar fékkst á Eyrinni og hinn á Skerinu. Þetta voru 11 og 10 punda laxar. Þetta er róleg byijun enda áin töluvert lituö," sagði Halldór. „Viö fengum einn lax neðarlega i Dulsunum og þetta var 11 punda fiskur sem tók rauða franses túbu,“ sagði Jón Þ. Jónsson á bökkum Laxár á Ásum. Vetrarríki er við er eins og febrúar, mars við ána enda mikil snjór viö hana. Það eru himinháir skaflar og tnikið vatn í þessa dagana. Það er gott aö fá lax eins og staðan er við ána núna,“ „Viö fengum engan lax enda áin fituð Iiérna en við reynum fram á laugardag. Það getur allt skeð enn- þá,“ sagði Jón Pétursson við Brennuna. -G. Bender Formaöur húsfélagsins: reiðhjólamáli. Það var ákveöið á húsfundi að henda þessurn hjól- um sem var ofeukið í hjóla- geymslunni. Þessi hjól voru gjarðalaus og í slæmu ástandi og við spurðum þá íbúa hússins sem náðist til hvort þeir ættu þetta en svo var ekki,“ segir Anna Karen Hauksdóttír, formaöur húsfé- lagsins í Álakvísl 124-136, vegna ágreinings Runólfs Oddsonar og Ólafs Benediktssonar sem leiddi til þess að Ólafur sló til Runólfs. Anna Karen sem býr í íbúðinni fyrir ofan Runólf segir að ástand- ið í húsinu sé orðið algjörlega óþolandi. „Runólfur ofeækir okkur og er meö sífelldar hótanir í okkar garð. Þaö hefur hvarflað aö flest- um okkar að flytja úr þessu húsi því ástandiö er við það að vera óbærilegt. Maður fyllist orðið kvíða við að koma heim,“ segir Anna Karen. stjómar Hollustuvemdar ríkis- ins ogþangaðtil úrskurður hemv ar liggur fyrir er biðstaöa,“ segir Tryggvi Þórðarson, deildarstjóri hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavík- ur um framkvæmd þeirrar ákvöröunar að svipta Runólf Oddsson leyfi til að halda hund. Urskuröurinn átti að taka gildi þann 1. júni sl. en samkvæmt þessu kemur hann ekki til fram- kvæmda strax. Þetta er í annað sinn sem úr- skurði Heilbrigðisnefndar Reykjavíkur er áfrýjað en í fyrra tilvikinu var um að ræða bann viö heímabakstri á kleinuro. Kópavogslögreglan: Ákeyrslan á Júlíus upplýst Rannsóknardeild lögreglunnar í Kópavogi hefur upplýst mál það sem áttí sér stað fyrir utan sölu- turnvið Engihjalla ívikunniþeg- ar gulum fólksvagni var ekið á Júlíus F. Ajayi. Málsaöilum, það er Júhusi, ökumamiinum og vitni í málinu, ber saman um framburð í stómm dráttum og er Ijóst að ungur mað- urók bílnum að Júliusi að tilefh- islausu. Júlíus hélt: þvf reyndar fram að hann sæi enga aöra ástæðu fyrir verknaðinum en að hann sé dökkur á hörund. Ekki er Ijóst hvernig tekið verður á þessum þætti málsins. Sýslumaðurhm í Kópavogi hef- ur fengið máliö öl meðferðar frá lögreglunni þar sem það telst upplýst en hann hefúr ákæruvald í málum sem þessum. Búast iná við að embættið taki ákvöröun um það fljótlega hvort ákæra verðurgefinút. -ótt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.