Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1995, Blaðsíða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1995, Blaðsíða 56
FRÉTTASKOTIÐ 562•2525 Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 562 2525. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið- ast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. RITSTJ0RN - AUGLYSINGAR - ASKRIFT - DREIFING: 563 2700 BLAÐAAFGREIÐSLA 0G ÁSKRiFT ER OPifi: Laugardaga: 6-14 Sunnudaga: lokað Mánudaga: 6-20 Þriðjudaga - föstudaga: 9-20 BEINN SÍMI BLAÐA- AFGREIÐSLU: 563 2777 KL 6-8 LAUGAffDAGS- OG MANUDAGSMORGNA Frjálst,óháð dagblað LAUGARDAGUR 3. JÚNl 1995. Rósa Svavarsdóttir: Höfum enn enga leiðrétt- ingufengið „Hér er allt óbreytt aö öðru leyti en því aö framkvæmdastjórinn kom með smáræöi af leirtaui til mín. Við höfum enn enga leiðréttingu fengið á okkar málum,“ sagði Rósa Svavars- dóttir, fiskvinnslukona í Kiberg í Noregi, við DV í gær þar sem hún var stödd í almenningssímaklefa í Kiberg. Eins og fram kom í DV í gær íhug- ar norski framkvæmdastj órinn að greiða hluta af umboðslaunum til íslensku kvennanna sem sárabætur vegna óánægju þeirra með að fá ekki fargjald og húsaleigu greidda. „Það er okkur að sársaukalausu þótt hún greiði helminginn af um- boðslaununum til kvennanna, svo ég tali nú ekki um ef hún greiddi okkur hinn helminginn," segir Ingvar Ingv- arsson hjá Ingvarco hf. sem réði kon- umartilvinnuíKIiberg. -rt Hvltasunnuhelgin: „Engirstór- flutningar" „Hvítasunnuhelgin hefur breyst —mikið frá því sem var, að því leyti að þetta er ekki að verða eins mikii ferðahelgi og áður. Það verða engir stórflutningar hjá okkur og það eina sem sérstaklega er bundið við helg- ina eru sætaferðir á ball í Logalandi í Borgarfirði," sagði Gunnar Sveins- son, framkvæmdastjóri BSÍ. Hjá Umferðarráði fengust þær upp- lýsingar að enginn sérstakur viðbún- aðir yrði af þess hálfu vegna helgar- innar. -sv Boða ÍSAL-verkfall Verkalýösfélögin sem aðild eiga að Álverinu í Straumsvík hafa boðað til vinnustöðvunar frá og með 10. júní. I yfirlýsingu frá samninganefnd verkalýðsfélaganna segir að orðið hafi að slíta sáttafundi, sem boðað var til hjá sáttasemjara í gær, vegna þess að hluti samningamanna vinnu- veitenda hafi ekki talið sig hafa tíma til viðræðna. -sv DV kemur næst út eldsnemma að morgni þriðjudagsins 6. júní. Smáauglýsingadeild DV er opin í dag, laugardag, kl. 9-14. Lokað á morgun, hvítasunnudag. Opið mánudag kl. 16-22. Síminn er 5632700. Þorbjörgu Magnúsdóttur, sem rænd var veski sínu sem í voru peningar sem hún hafði ætlað að kaupa kjól fyrir, var boðið í Verðlistann við l.auga- læk í gær eftir að Erla Wigelund verslunareigandi hafði lesið um raunir hennar. Erla klæddl Þorbjörgu i ný sumarföt á sinn kostnað enda Þorbjörg gamall viðskiptavinur. Þorbjörg var alsæl i nýju fötunum. DV-mynd GVA Þrir á hjartadeild eftir alsæluneyslu: Fékk krampa og nístandi verkfyrir brjóstið - segir einn þeirra sem höföu taliö efniö saklaust „Ég fékk krampa og datt út af froðufellandi með nístandi verk fyrir bijóstinu. Þá varð ég sjóðandi heitur á bringunni. Félagar mínir uröu dauðskelkaðir og ég var drifinn út í bíl. Á leiðinni á Borgarspítalann fengu þeir sömu einkenni. Við vorum að mínu viti á mörkum llfs og dauða," segir sjómaður um tvítugt sem eyddi nóttinni á Borgarspítalan- um ásamt tveimur félögum sínum eftir að hafa tekið inn alsælu. Tveir mannanna samþy.kktu að lýsa reynslu sinni í samtali við DV en óskuðu nafnleyndar af ótta við að verða fyrir hefndaraðgerðum. Þeir segjast ekki hafa notað efniö áður. „Við vorum að skemmta okkur í heimahúsi þegar einhver hringdi og pantaði alsælu. Manni er tahn trú um að þessari neyslu fylgi engin áhætta og mikil sælutilfmning. í ein- hveiju kæruleysi slógum við því til og borguðum 4 þúsund krónur hver fyrir þetta,“ segja þeir félagar sem báöir starfa sem sjómenn úti á landi. Þeir tóku efnið inn og fljótlega eftir neysluna komu áhrifin. Þeir segja að þau hafi verið likari martröð en al- sælu. „Þessi skelfilegu áhrif stóðu í 6 klukkustundir og þetta var algjör truflun." Félagarnir þrír voru lagðir inn á slysadeild Borgarspítalans þar sem bráöavakt tók við þeim. Þaðan fóru þeir á hjartadeild til meðferðar í nótt og voru útskrifaðir í dag. Mikil hætta á ferðum Jón Baldursson, yfirlæknir á slysa- deild Borgarspítalans, staðfesti að komið hefði verið með mennina þrjá til meðferðar í nótt vegna neyslunn- ar. Hann sagði ljóst að þama hefði verið hætta á ferðum. „Það var komið með þessa menn í nótt vegna neyslu. Það er alveg ljóst að þegar sterk eitrunaráhrif koma fram þá er mikil hætta á ferðum. Þetta getur orsakað vefjaskemmdir og menn geta dáið úr hjartsláttar- truflunum. Þá getur þetta orsakað nýrnabilun og fleira. Kramparnir geta orðið til þess að fólk deyi af þess- um völdum," segir Jón. Jón segir ljóst að einhverjir ævin- týramenn stundi það að telja fólki trú um að efnið sé skaðlaust. Eins og fram hefur komið í DV hafa aö minnsta kosti 30 látið lífiö í Bretlandi eftiraðhafaneyttalsælu. -rt Ólga innan Flugmálastjómar vegna nýs skipurits fjármáladeildar: Tveir yf irmenn lækkaðir í tign - annar átti þátt 1 aö meint fjársvik framkvæmdastjóra yröu rannsökuö Ólga er nú meðal starfsmanna Flugmálastjómar eftir að nýtt skipu- rit fyrir fjármáladeild stofnunarinn- ar var tflkynnt nýlega. í skipuritinu er m.a. gert ráð fyrir að fjármála- stjórinn og starfsmannastjórinn verði lækkaðir í tign með því að breyta starfsheitum þeirra í inn- heimtustjóra og launaritara. Samkvæmt heimfldum DV eru bæði fjármálastjórinn og starfs- mannastjórinn ósáttir við skipuritið auk þess sem mikfl óánægja ríkir á meðal starfsmanna með hvemig að þvi var staðið. Fjármálastjórinn og starfsmannastjórinn hafa báðir leit- að tfl lögfræðings. Þá hefur DV heim- ildir fyrir því að starfsmannafélög flugmálastarfsmanna ríkisins og BSRB séu komin í máhð. Skipuritið var unnið í vetur af Ein- ari Kristni Jónssyni rekstrarhag- fræðingi samkvæmt beiðni flugmála- stjóra, Þorgeirs Pálssonar. Beiðnin kom eftir að framkvæmdastjóra fjár- máladefldar var gert að segja upp störfum vegna gmns um mflljóna króna fjársvik og skjalafals í starfi. Hvorki fjármálastjórinn né starfs- mannastjórinn tengdust þessum meintu fjársvikum á nokkum hátt heldur átti fjármálastjórinn þvert á móti þátt í að farið var að rannsaka þau. Það mál fór tfl Rannsóknarlög- reglu ríkisins. Þegar haft var samband við fjár- málastjórann og starfsmannastjór- ann vildu þeir hvomgir tjá sig um máhð en þeir hafa unnið hjá Flug- málastjórn til fjölda ára. -bjb LOKI Já, það verður sko enginn til lengdar alsæll af alsælu! Veöriö á sunnudag ogmánudag: Kaldastvið norður- ströndina Á sunnudag og mánudag er gert ráð fyrir breytflegri átt, golu eöa kalda og skúram. Hiti verður á bfl- inu 2 til 12 stig, kaldast við norður- ströndina en hlýjast sunnanlands. Veðrið í dag er á bls. 61. NSK kúlulegur Vtnuisen SuAurlandsbraut 10. S. 686483. K I N G L#TT# alltaf á Miðvikudögum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.