Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1995, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1995, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 1995 Vísnaþáttur Steingrímur Thorsteinsson Steingrímur Thorsteinsson var fæddur 19. maí 1831 á Arnarstapa undir Jökli. Faöir hans var Bjami amtmaður Thorsteinsson. Stein- grímur ólst upp á Amarstapa þar sem faðir hans gegndi embætti. Naut hann í föðurhúsum kennslu sem bjó hann undir inngöngu í Lærðaskólann í Reykjavík. Settist hann þar á skólabekk 1846 og lauk prófi 1851. Steingrímur sigldi utan til háskólanáms til Kaupmanna- hafnar sumarið 1851. Hann las fyrst lögfræði en hvarf svo frá því og hóf í staðinn nám í latínu, grísku og sögu og lauk kandídatsprófi í þeim greinum 1863. Steingrímur bjó í Höfn í nokkurn tíma eftir skólann og sinnti þar kennslu, þýðingum og starfaöi fyrir Árnanefnd. Stein- grímur tók ekki við föstu embætti fyrr en 1872 er hann fluttist alfar- inn til íslands. Hann var fyrst und- irkennari og seinna yfirkennari við Lærðaskólann og rektor 1904. Steingrímur var eitt ástsælasta skáld sinnar tíðar og voru ljóð- mæli hans þrívegis útgefin meðan hann lifði sem var mikið á þeirrar tíðar mælikvarða. Heimsádeila, skop og háð vora fyrirferðarmiklir póstar í vísna- gerð Steingríms. Svo kveður hann um álnavöru kaupmannsins: Veit ei meira veltiþing en vöruna yðar nýju: Seljið mér af sannfæring sex álnir og tíu. í æfisögu Steingríms varpar Hannes Pétursson fram þeirri til- gátu að vísan „Kráka og svanur", sem virðist vera ort á Hafnarárum Steingríms, sé ort út af skammar- greinum Gísla Brynjúifssonar um Jón forseta Sigurðsson. Vísan hljóðar svo: Slettir kráka á svaninn saur, sjálf er hún dökk sem áður. Og hann, sem fyrmm, undir aur alskær, mjallafjáður. Þegar heiðursmerkjum og skrautgripum var útbýtt eftir þjóð- hátíðina 1874 gleymdist Sigurður Guðmundsson málari eða að ekki stóð til að veita honum viðurkenn- ingu. Þá orti Steingrímur: Annar fékk hin innri hnoss, engum sóma skertur; Hinn fékk dósir, djásn og kross. og dó þó brennimerktur. Sumir era mjög rag- og raup- gjarnir og er fljótir að sjá hvemig hlutimir ganga fyrir sig. Svo kvað Steingrímur: Lastaranum líkar ei neitt, lætur hann ganga róginn; Finni hann laufblað fölnað eitt þá fordæmir hann skóginn. Vísan Oflof birtist í 2. útgáfu ljóð- mæla Steingríms og var hún kveð- in um Hannes Hafstein en eitthvað var stirt þeirra í milli um tíma: Með oflofi teygður á eyrunum var hann, svo öll við það sannindi rengdust, en ekki um einn þumlung hann vaxa þó vann, það vom aðeins eyrun sem lengd- ust. Oft er maður að nöldra og kvarta yfir því sem manni fmnst annarlegt og miður réttlátt. Víst er að Stein- grímur var ekki frekar en aðrir Vísnaþáttur Valdimar Tómasson sáttur að öllu leyti við veröldina. Sem ungur maður tók hann til dæmis þátt í uppreisn mikilli í Lærðaskólanum, Pereatinu, svo að eitthvað sé nefnt. Svo kveður Stein- grímur um verölina: Tíðum níðum veröld vér, vægjum samt því tetri; Hún er vond, en hluturinn er: vér höfum ei aðra betri. Hér er eitt heilræði Steingríms er Ofsæmd nefnist. Þetta átti við þá. En á þetta við nú þegar froða glansblaðanna vellur yflr og æfi- sögur miðaldra meöalmenna og þaðan af minna koma út í stríðum straumum og er að því góður róm- ur gerður. Ef að hlotnast ofsæmd þér, af því vertu ei gleiður, því illa brennir undan sér ómaklegur heiður. Hér í lokin eru tvær heilræða- stökur meistara Steingríms: Tækifærið gríptu greitt. Giftu mun það skapa. Járnið skaltu hamra heitt aö hika er sama og tapa. Göfugari væri mannkindin en hún er ef hún færi eftir heilræði þessu. Sér til happs að hrella mann hefnir sín með árum, flý sem helið fögnuð þann er fæst með annars támm. Til sölu Sport-Craft bátur með 146 ha. Volvo Penta inboard/outboard vél. Ýmis aukabúnaður, m.a. Power trim, útvarp/segulband og tal- stöð. Vagn fylgir. Bátur og vél í toppstandi. Lítið notað. Verð tilboð. Ath. skipti á snjósleða eða góðum bH. Uppl. í sima 552-6883 milli kl. 20 og 22. Matgæðingur vikurinar Falskt lasagna - indverskur fiskur og skálaterta „Mér finnst alveg rosalega gaman að matseld og að prófa nýja rétti. Ég hef svo gaman af því að kynna mér uppskriftir að ég get legið inni í rúmi með matreiðslubækur," seg- ir Friðrika Björnsdóttir, húsfreyja á Eskiflrði. Friðrika býður upp á falskt la- sagna, fisk að indverskum hætti og skálatertu. Tvo síðastnefndu rétt- ina fékk hún hjá vinkonu sinni í Keflavík. Falskt lasagna 8 til 10 soðnar kartöflur 700 g hakk olía grískt hvítlaukskrydd pastasósa, Napólí, með lauk og osti lítil dós tómatþykkni meö hvítlauk salt pipar season all paprikuduft 4 dl vatn Ostasósa: 50 g smjörlíki 4 til 5 msk. hveiti 6 dl mjólk 2 dl rifinn ostur 2 egg 100 g gráðostur 1 msk. paprikusmurostur pastakrydd salt pipar Eldfast mót smurt og gríska hvít- laukskryddinu stráð í mótið. Kart- öflumar skomar í sneiðar og lagð- ar í mótið. Hakkið er léttsteikt úr Friðrika Björnsdóttir. DV-mynd Emil Thorarensen olíu og kryddaö. Pastasósu og vatni blandað saman við. Kjötsósunni er hellt yfir kartöflurnar. Smjörlíkið brætt og hveitið sett saman við. Þynnt út með mjólk. Ostur settur út í og látinn bráðna. Eggin og kryddið em sett út í þegar búið er að taka pottinn af hellunni. Ostasósunni er hellt ofan á kjöt- sósuna í forminu og parmesanosti stráð yfir. Bakað í 20 mínútur í ofni við 200 gráða hita. Borið fram með brauði. Fiskur að indverskum hætti 800 g ýsuflök 2 dl hveiti 1 til 1 1/2 dl mjólk 2 tsk. sterkt karrí 1 tsk. timjan pipar salt 2 msk. kókósmjöl 2 egg Fiskurinn skorinn í litla bita. Öll- um hinum efnunum er blandað saman og fiskbitamir settir út í. Þegar fiskurinn hefur verið smá- stund í blöndunni er hann steiktur í olíu á pönnu. Borið fram með hrísgrjónum og ef til vill karrísósu. Skálaterta Svampbotn 1 heil dós jarðarber 1 poki súkkulaðispænir 4 eggjarauður 4 msk. sykur 1/2 dl sérrí 1 peh rjómi Botninn er settur í skál. Bleyttur með rúmlega helmningnum af saf- anum úr dósinni. Jarðarberin sett út á botninn og súkkulaðinu stráð yfir. Eggjarauður og sykur þeytt saman og blandað saman við þeytt- an ijóma. Sérriinu blandað saman við. Rjómablandan sett yfir botn- inn. Má skreyta með rjóma og til dæmis kivi. Friðrika skorar á Guðnýju Ein- arsdóttur, frænku sína á Eskifirði, að verða næsti matgæðingur. „Guðný er mikil matarkona og verður öragglega með eitthvað spennandi." Eftir helgina má fá uppskriftina í Símatorgi DV. Simanúmerið er 904-1700. Hinhlidin Geir Sveinsson er minn maður - segir Stefán Sandholt bakarameistari Stefán Sandholt er formaður Landssambands bakarameistara en allt stefndi í að bakarar færu í verkfall á mánudag. Reyndar stóð verkfallið í sex klukkutíma en þá var samið og bakarar skiluðu sín- um brauðum og sætmeti til neyt- endanna á mánudagsmorgninum eins og veiyulega. Stefán Sandholt starfar hjá bakaríunum G. Sand- holt sem em bæði á Laugavegi og í Hverafold. Það er bakarameistar- inn sem sýnir hina hliðina að þessu sinni: Fullt nafn: Stefán Harald Sandholt. Fæðingardagur og ár: 28-11-45. Maki: Olga B. Magnúsdóttir. Börn: Þau em þijú, Þórir, Ingibjörg og Ásgeir. Bifreið: Volvo 340 DL ’86. Starf: Bakarameistari. Laun: Þau eru 3,3% hærri en í síð- ustu viku. Áhugamál: Það em brauð, kökur, útivera og íþróttir. Hefur þú unnið í happdrætti eða lottói? Nei, aldrei, því miður. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Vera til og leika mér með bamabömunum. Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Mér finnst leiðinlegast að þurfa að segja starfsfólki mínu sömu hlutina mörgum sinnum. Stefán Harald Sandholt bakara- meistari. DV-mynd S. Uppáhaldsmatur: Pylsa með öllu. Uppáhaldsdrykkur: Minnsta kókin í glerflösku. Hvaða íþróttamaður stendur fremstur í dag? Geir Sveinsson er minn maöur, að sjálfsögðu. Uppáhaldstímarit: Ekkert. Hver er fallegasta kona sem þú hefur séð fyrir utan eiginkonuna? Bo Derek. Ertu hlynntur eða andvigur ríkis- stjórninni? Hlynntur. Hvaða persónu langar þig mest að hitta? Þá persónu sem getur leist deiluna í fyrrum Júgóslavíu. Uppáhaidsleikari: Robert De Niro. Uppáhaldsleikkona: Demi Moore. Uppáhaldssöngvari: Cleo Lane og Vilhjálmur Vilhjálmsson. Uppáhaldsstjórnmálamaður: Eng- inn. Uppáhaldsteiknimyndapersóna: Högni sjálfur. Uppáhaldssjónvarpsefni: Fréttir. Uppáhaldsveitingahús: Hótel Holt. Hvaða bók langar þig mest að lesa? Sjálfstætt fólk eftir Halldór Lax- ness. Hver útvarpsrásanna fmnst þér best? Aðalstöðin. Uppáhaldsútvarpsmaður: Jónas Jónasson. Hvort horfir þú meira á Stöð 2 eða Sjónvarpið? Jafnt á báðar. Uppáhaldssjónvarpsmaður: Eng- inn sérstakur. Uppáhaldsskemmtistaður: Það fer nú eftir aðstæðum hveiju sinni. Uppáhaldsfélag i íþróttum: Valur - að sjálfsögðu. Stefnir þú að einhveiju sérstöku í framtíðinni? Já, að eiga meiri tíma með eiginkonunni. Hvað ætlar þú að gera i sumarfrí- inu? Ég hef ekki ákveðiö það ennþá.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.