Þjóðviljinn - 23.05.1962, Qupperneq 4
Tryggvi Emilsson, ritari Dagsbrúnar:
Atkvœðisseðillinn er
vopní
í lok vei'kfallsátakanna í
fyrravor, kom það skýrt fram
svo engum lá til launungar. að
vinnuveitendur töldu höfuð-
nauðsyn í samningagerð, að
samið yrði til lang-s tíma, og
iþannig gert um alla málhnúta
að ekki kæmi til úrreks á
næstunni. Vinnufriður yrði
tryggður, og því gengust iþeir
að lokum undir ákvæðið um
4% kauphækkun, sem kemur
nú í vor til framkvæmda sam-
kvæmt samningum.
Milli línanna lá svo óskráð
viðurkenning á framhaldi raun-
verulegra, árlegra kjarabóta.
Að sjálfsögðu voru þeir
mðrgir sem ekki voru fullá-
næ'gðir með niðurstöðurnar.
Verkamenn troða gangstíg
vinnuþrælkunar, og laun svara
ekki til nauðþurfta. Samt sem
áður, ef verðlag héldist- stöð-
ugt, horfði til nokkurra úrbótá.
En hvað skeður? Eftir að full-
trúar verkamanna og vinnu-
veitenda stóðu upp frá samn-
ingaborði og verkamenn höfðu
tekið til óspilltra málanna við
öflun verðmæta á öllum vinnu-
stöðum, kemur upp úr kaf-
inu að ríkisstjórn íslands hafði
setið á svikráðum við at-
vinnuvegi landsmanna, og litið
hatursfullum augum samninga
til langs tíma. Viðreisnarloppan,
sem mörgum landsmönnurn
hefur veitt kröpp kiör, teygðist
út úr berginu og skar á fest-
ina, skar á festi frjálsra samn-
inga og vinnufriðar.
Sjálfir vissu ríkisstjórnar-
menn að þeir voru að vinna iilt
verk að yfirlögðu ráði. Gengis-
fellingin var hefndarráðstöfun
gagnvart verkafólki vegna þess
að þau sjónarmið sigruðu i
verkfallsátökunum, sem stefndu
til batnandi lífskjara fyrir
vinnandi fólk.
Síðastliðið ár di’aup smjör af
hverju strái og allir firðir voru
Nylon
hjólbarðar
Einnig margar stærðir
hjólbarða með hvítum
-hliðum, á fólks- og vöru-
bíla í flestum stærðum
Continental
Firestone
Englebert.
Sendum um allt land.
Gúmmívinnustolan h.i.
Skipholti 35, Reykjavík.
Sími 18955.
aróttunni
fullir fiskjar.
í góðærinu jós vinnandi fó!k
auðæfum á land.
Én sú ógæfa hvílir yfir þjóð-
inni að hafa enn á dögum mik-
illa möguleika ríkisstjórn og
meirihluta þings sem hrekjast
undan helköldum vestanstorm-
um í blindri velþóknun og
Tryggvi Emilsson
leitast sífellt við að soga þjóð-
ina í gin erlendra auðhringa.
Gengisfellingin er angi af
-meini sem grefur um sig inn-
an íhaldsram-mans þar sem
auðmannaþjónkun er í blóð-
færi við dýrmætustu strauma
,-þjóðlífsins, atvinnuvegina og
vinnuhendurnar.
Ríkisstjórnin taldi sig ekki
þurfa, vegna annarlegrar valds-
eflingar og þess auðs sem þeir
draga með sköttum, tollum og
okurvöxtum úr hendi vinnandi
fólks, að taka tillit til verka-
lýðssamtakanna. En við vinnu-
veitendur, sem töldu sig hafa
gert góða samninga og tryggt
vinnufrið í landinu, beitti rík-
isstjórnin þeirri hillingatækni,
að vinnuveitendur sneru and-
-litum sínum í vestur, og var þá
ekki lengur neitt höfuðmál að
vinnufriður héldist, og allt fór
þetta fram með þeirri -bak-
tjaldaleynd, að ekki hafa
vinnuveitendur heyrzt æmta né
skræmta, þvert á móti, enn er
höggvið á taug frjálsra samn-
inga hjá járnsmiðum og togar-
arnir stöðvaðir, þannig fótum-
troða ríkisstjómarmenn lýð-
ræðislegar samningagerðir og
í skjóli þeirra sleikja skjólstæð-
ingarnir viðbitið af köku
verkamannsins.
Hversu lengi þjóðin unir íor-
ustu íhaldsins, fer að sjálf-
sögðu eftir því hve margir
festa sjón á vestræna gullkálf-
inum og blindast af falsbjarm-
anum. Þeir sem treysta á land-
ið og þjóðina eru í andstöðu
við forustumenn þeirra flokka
sem -blindstara þannig á er-
lendu viðreisnina.
Fólk.'ð er í andstöðu við
stefnu fhaldsins. ísland fyrir
íslendinga sjálfa, er það sem
helgast er og háleitast í lífs-
grunni hvers manns, þó áróður
íhaldsins trufli enn margan
mann og leitist við að vekjd ó-
trú fólksins á landinu og fiski-
miðurn þess, á atvinnuvegum
landsmanna og lífsmöguleikum,
en bendi sífellt á erlenda auð-
jöfra sem bjargvætti.
En öllum þeim sem ekki hafa
fengið vestangarrann á hjart-
að og heilann, sýnist nú að í
mikinn voða sé stefnt. Sjálf-
stæði landsins og atvinnuvegir
eru i fallpúnkti þeirrar axar
sem til höggs er reidd með svo-
kölluðu Efnahagsbandalagi. ís-
lenzkir valdamenn hafa -máski
ekki enn tekið um skaftið, en
því er að þeim otað, og vilji
þeirra er ótvíræður. Sjálfstæði
landsins og atvinnuvegir eru
þannig komnir á vogarskálina
og þar er mjótt mundang's-
hófið. En alþýða íslands getur
forðað voðanum. Á sunnudag-
inn -kemur hefur hver kjósandi
í hendi sér atkvæðaseðil. At-
vinnulif og arðskipting eru þá
í hendi kjósenda. I Reyikjavík
hefur borgarstjórn svo þýðing-
armikla tauma atvinnu og f jár-
magns í hendi sér, að afstaða
toorgarstjórnar til kaupgjalds-
máÍA, getur ráðið úrslitum i
þýðirigarmestu viririudeilum..
Með -því að fylkja sér um Al-
þýðubandalagið í þessum kosn-
ingum, er reykvísk alþýða að
leggja grunn að þeim toorgar-
lífsháttum, sem alhliða menn-
ingarl-íf verður reist á.
V.ið vitum öll að með rétt-
látri tekjuskiptingu er hægt að
-veita öllum sem vinna og erf-
iða þau lífskjör sem gefa hverj-
um manni tækifæri til menn-
ingarlegs líferni-s og borginni
svip þar af.
Að kjósa Alþýðubandalagið
er að kjósa öllum vinnandi
stéttum réttinn til aðlifamann-
sæmandi lífi í sínu auðuga
landi. Samtök vinnandi manna
er hin mifcla von borgarinnar
og von íslands.
Kjósurn því öll Alþýðubanda-
lagið.
Bannað er að auglýsa
vindlinga á Italíu
Róm — Hinn 15. maí sl. gcngn
í gtldi ný lög á Italíu, sem
banna að vindlingar séu auglýst-
ir.
Erlend vindlingafyrirtæki fengu
vikufrest til þess að taka niður
auglýsingar og skilti á almanna-
færi um allt landið. Þetta verður
umfangsmi-kið niðurrifsstarf, því
víða í stórborgum höfðu vind-
lingaverksmiðjurnar komið upp
risastórum ljósaauglýsingum. —
Vindlingaauglýsingar í kvik-
myndahúsu-m voru bannaðar
þegar frá gildistöku laganna.
Auglýsingabannið nær einnig
til ítalskra vindlingafyrirtækja,
og það verður ti-1 þess að ítalska
ríkið verður sjálft fyrir tals-
verðu fjárhagstjóni, þar sem rík-
ið hefur einkarétt á vindlinga-
framleiðslu í landinu.
Brot gegn þessum lögum varða
miklum sektum. Við fyrsta brot
nemur sektin allt að tveim millj-
ónum líra (ca. 150.000 ísl. kr.).
Hlutur Framsóknar verstur
• Klofningur meðal
S j áif stæ ðismanna
Það vakti verðskuldaða eftir-
tekt, þegar sannaðist klofning-
urinn og óánægjan innan Sjólf-
stæðisflokksins við kosninguna
í stjórn Sogsvirkjunarinnar.
Blandast nú engum hugur um
það lengur, að þar á sér stað
geysivíðtækur ágreiningur, sem
torýzt m.a. út í því að ein-hver
af forustumönnunum í borgar-
stjórn hagnýtir sér leynilegar
fcosningar til að undirstrika
það, að hann beygi sig ekki í
öllu og einu undir úrskurðar-
vald flokksklíkunnar, sem þar
ræður.
Og dettur nokkrum það i
hug, að óánægjan meðal ó-
-breyttra kjósenda sé minni?
Þeir hafa nú fengið fordæmið
og geta breytt í samræmi við
það á sunnudaginn. Sú gagn-
rýni Sjálfstæðismanna á valda-
Skrifstofumaður
Óskum að ráða ungsn reglusaman mann til starfa á skrif-
stofu vorri.
Umsóknir ásamt upplýsíngum um menntun og fyrri störf
svo og meðmæium, óskast sendar skrifstofu vorri fyrir
1. júní n.k. mevktar „Skrifstofustarf".
H.F. EIMSKIPAFÉIÁG ÍSLANDS.
brölt nazistaklíkunnar í Sjálf-
stæðisflokknum, sem ein getur
dregið úr þeim áhrifum, er að
efla aðalandstöðuflokkinn í
borgarstjórnarkosningunum, og
kjósa G-listann eins og flokks-
félagi þeirra gerði í borgar-
stjórn.
• Hlutleysi ekki til
En það er Framsóknarflokk-
urinn, sem einna gleggst upp-
lýsir í þessu máli sitt rétta
eðli og staðfestir greinilega,
hvers af honum má vænta. Er
þetta þörf ábending, sérstak-
lega fyrir þá, sem alið hafa i
brjósti von um að stuðningur
við Framsókn væri yfirlýsing
um íhaldsandstöðu.
Sjálfstæðisflokkurinn með
sína 10 borgarfulltrúa á ekki
tilkall til að fá kjörna nema
tvo menn af þremur í nefndir
sem borgarstjórn kýs, og breyt-
ir :þar engu um, þótt hjálpar-
kokkurinn Magnús krati ellefti
sláist í för með þeim. Hitt er
svo aðeins í samræmi við lýð-
ræðishugsjón íhaldsins að
reyna að hagnýta sér sundrung
minnihlutans og freista þess að
fá alla þrjá fulltrúana í stjórn
Sogsvirkjunarinnar kjörna úr
sínum hópi.
Þriðji maður á lista Sjálf-
stæðisflokksins gat fengið rúm-
lega þrjú atkvæði, en listi Al-
þýðubandalagsins átti nákvæm-
lega þrjú atkvæði. Það kom
því í hlut Framsóknarfulltrú-
ans að velja þarna á milli. Það
var ekkert til, sem hét hlut-
leysi.
Með því að kjósa annað-
hvort lista Sjálfstæðisflokksins
eða Alþýðubandalagsins, þá
réði Framsókn úrslitum kosn-
ingarinnar. Með því að sitja
hjá eða tojóða fram sinn eigin
lista þá tók hún líka afstöðu,
þ.e.a.s. -með Sjálfstæðisflokkn-
um.
• Framsókn í
íhaldsþjónustu
Framsókn valdi þann kost-
inn, sem hennar var von og
vísa, hún lagði fram sinn eig-
inn lista. Og það er út af fyr-
ir sig lærdómsríkt, að þriðji
maður á framiboðslista Fram-
sóknar, Björn Guðmundsson
skyldi láta hafa sig í að -vera
toendlaður við slíka íhaldsþjón-
ustu. Því hefur e.t.v. ekki
verið trúað að óreyndú, að ein-
lægir vinstri sinnaðir menn
létu óttann við sundrungaráróð-
ur' Morgun-blaðsins villa svo
um fyrir sér, að -þeir rynnu á
íhaldsandstöðunni er á. hólminn
var komið. Þar rættist vissu-
lega óskadraumur íhaldsins að
eiga hrædda og c-sjálfstæða
andstæðinga.
En öllum þeim, sem vilja í
raun og veru hnekkja veldi nú-
verandi borgarstjórnarmeiri-
-hluta var þessi kosning holl
lexía. Framsóknarflokkurinn
læzt aðeins vera íhaldsandstæð-
ingur í orði, én stuðlar að ó-
eðlilega miklum á.-hrifum þess
á borði.
Nú getur því enginn kjós-
andi, sem telui’ -sig vinstri sinn-
aðan, með nokkrum rétti kosið
Framsóknarflokkinn. Það er
ekki lengur bara Varðbergs-
armurinn sem þjónar íhaldinu,
heldur allur flokkurinn.
Vinstri merin éiga því aðeins
einn málsvara í þessum kosn-
ingum, Alþýðubandalagið.
— ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 23. maí 1962