Þjóðviljinn - 11.06.1964, Blaðsíða 3
SlÐA 3
Fímmtudagur 11. júní 1964
H6ÐVIUINN
Skorai á S-Afríkustjórn að
fuflnægja ekki dauðadómum
En fulltrúar vesturveldanna sátu hjá
Dómur í dag yfir Mandela og félögum
NEW YORK og PRETORIA 10/6 — Öryggisráð SÞ sam-
þykkti í nótt ályktun þar sem skorað er á stjórn Suður-
Afríku að gera þegar ráðstafanir til að koma í veg fyrir
að líflátsdómum yfir mönnum sem dæmdir hafa verið
fyrir andstöðu við kynþáttalög hennar sé fullnægt. Full-
trúar vesturveldanna sátu hjá við atkvæðagreiðsluna, sem
var hraðað sökum þess að á morgun, fimmtudag, er búizt
við dómum í máli þeirra N,elson Mandela og félaga.
Af ellefu fulltrúum í Öryggis-
ráðinu greiddu sjö atkvæði með
ályktuninni, þ.á.m. eini fulltrúi
Norðurlanda, Sivert Nielsen frá
Noregi, en fulltrúar vesturveld-
anna þriggja, Bretlands, Banda-
ríkjanna og Frakklands sátu
hjá ásamt fulltrúa Brasilíu.
í ályktuninni er til þess
mælzt við stjórn Suður-Afríku
að hún hætti þegar frekari rétt-
arhöldum í hinu svonefnda
Rivonia-máli gegn Nelson Man-
dela og félögum hans og veiti
öllum sakaruppgjöf sem sitja í
fangelsi eða sæta öðrum refs-
ingum fyrir baráttu sína gegn
apartheid. Þá er þess farið á
leit við öll ríki að þau beiti á-
hrifum sínum til þess að stjórn
Suður-Afríku verði við tilmæl-
um ráðsins.
Undansláttur
Fulltrúar vesturveldanna
reyndu ekki að halda uppi vörn-
um fyrir kynþáttaofsóknirnar i
Suður-Afríku, né þau ólög sem
ríkja þar í landi. En þeir reyndu
að bera í bætifláka fyrir sig og
afsökuðu hjásetu sina við at-
kvæðagreiðsluna með því að
slík áskorun frá Öryggisráðinu
myndi verða til ills eins og að-
eins gera stjórn Suður-Afríku
enn forhertari.
Norski fulltrúinn vísaði á bug
Súvanna Fúma setur bann við
njósnaflugi Bandaríkjamunna
Er sagður óttast að þeir stefni
að nýju Kóreustríði í Indókína
VIENTIANE 10/6 — Súvanna Fúma, forsætisráðherra í
Laos og leiðtogi hlutlausra, bannaði í dag Bandaríkja-
mönnum að- halda áfram njósnflugi sínu yfir þeim hér-
uðum landsins sem Pathet Lao hefur á valdi sínu. Sagt er
að hann óttist að Bandaríkjamenn hafi í hyggju að stofna
til nýs Kóreustríðs í Laos og öðrum hlutum Indókína.
Foringi hægi'imanna, Fúmi
Nosavan hershöfðingi, lýsti sig
þegar andvígan þessari ráðstöf-
un, Er talið sennilegt að hægri-
menn hugsi sér nú aftur til
hreyfings gegn Súvanna Fúma
og geti þá reitt sig á aðstoð
Bandaríkjanna. Nosavan sagði
þessum fullyrðingum og benti á l^þaðnægði ekki til að for
að ályktunin væri í fullu sam- •'sætisraðherrann fynrskipaði að
töðugar hótanir
Tvrkja um innrás
NICOSIA 10/6 — Makarios, for-
seti Kýpur, sagði í gærkvöld að
stjóm hans myndi nú neyðast
til þess að biðja Öryggisráðið
að taka Kýpurdeiiuna aftUr
fyrir vegna stöðugra hótana
tyrknesku stjórnarinnar um
innrás á eyna og allrar afstöðu
Xyrkja til Kýpurmálsins.
Á sérstökum ráðuneytisfundi
var Kyprianou utanríkisráðherra
falið að fara þess á leit við
Öryggisráðið að það kæmi hið
bráðasta saman til að ræða
Kýpurmálið.
í Aþenu sagði formælandi
grisku stjórnarinnar að hún
vaeri við öllu búin, hvort sem
Tyrkir gerðu alvöru úr hótun-
um sínum um innrás á Kýþur
eða ekki. öllum herafla Grikkja
var fyrirskipað á laugardaginn
að vera við öllu búinn.
Inönu forsætisráðherra Tyrk-
lands. hefur í svari við boð-
skap frá Johnson Bandaríkja-
forseta sagt að ef Tyrkir settu
lið á land á Kýpur myndi það
einungis gert í því skyni að
koma þar aftur á lögum og
reglu. Inönu mun hvorki hafa
tekið né neitað boði Johnsons
um að koma til Washingtons
áð ræða málið.
Aðstoðarutanríkisráðherra
Bandaríkjanna, George Ball,
kom í dag til Aþenu til að
ræða við grísku stjómina um
Kýpurmálið. Þaðan er ferð
hans heitið til Ankara.
ræmi við fyrri samþykktir bæði
Öryggisráðsins og allsherjar-
þings SÞ um kynþáttamálin í
Suður-Afríku. Stjórnin þar
beitti æ harðari tökum til að
knýja fram apartheid-stefnu
sína og þvi væri óhjákvæmilegt
fyrir Öryggisráðið að ítreka
fordæmingu sína á henni.
Dómar í dag
Búizt er við að dómar í hinu
svonefnda Rivonia-máli verði
kveðhir upp í dag. Málið er
höfðað gegn ýmsum helztu for-
ingjum andspyrnuhreyfingarinn-
ar í Suður-Afríku gegn kyn-
þáttaofsóknunum og er kennt
við bæ einn þar sem nokkrir
þeirra voiru handteknir í júlí í
fyrra.
Helzti forystumaður þeirra,
hinn þeldökki lögmaður Nelson
Mandela, afplánaði þá 5 ára
fangelsisdöm fyrir áróður. Þeim
var gefið að sök að hafa gert
samsæri gegn stjórn landsins í
því skyni að steypa henni af
’stÖli með valdi. Safcborriingarnir
hafa játað að þeir hafi búið sig
undir vopnaða baráttu ef þeir
ættu ekki annars úrkosta.
Sú játning þeirra er talin
munu nægja til þess að dómar-
inn dæmi þá, eða þá a.m.k.
helztu forsprakkana, til dauða.
njósnafluginu væri hætt. 1
ríkisstjóminni væru aðrir menn
sem vildu að því yrði hald’ð
áfram.
Ilalda þeir áfram?
Brezka útvarpið hafði það í
dag eftir fréttarifara sínum að
talið væri að Bandaríkjamenn
myndu halda njósnafluginu á-
fram hvað svo sem Súvanna
Fúma segði.
1 sendiráði Bandaríkjanna er
sagt að ákvörðun forsætisráð-
herrans hafi komið mjög á ó-
vart. Sendiherrann kvaðst ekki
telja að hægt yrði að hætta
njósnafluginu á þeirri forsendu
að ekki væri lengur nein þörf
fyrir það. Sendiherrann vildi
ekkert segja um þá tillögu Sú-
vanna Fúmar að fylgdarþotur
njósnaflugvélanna væru úr
flugher Laos en ekki Bandaríkj-
anna. Byrjað- var að senda
slíkar vopnaðar fylgdarþotur
með njósnaflugvélunum eftir að
ein þeirra síðarnefndu var skot-
in niður á laugardaginn. En
daginn eftir var ein af þotun-
um einnig skotin niður.
Ræddi við sovézka sendi-
fulltrúann
Erlendir sendimenn í Vienti-
ane telja að Súvanna Fúma hafi
Myndin er tekin þegar þau
Valentína og Andrían voru
gefin saman.
Valentína
ó! dóttur
MOSKVU 10/6 — Það vakti
fögnuð í Sovétríkjunum í dag
þegar það spurðist að geimfar-
arnir Valentína Teresjkova og
Andrían Nikolaééff hefðu eign-
azt dóttur.
Valentína, sem fyrst allra
kvenna fór út í geiminn, ól
dóttur sína á sunnudaginn. Hún
fæddist fyrir tímann, var 12,4
merkur og var hjálpað í heim-
inn með keisaraskurði. Sagt er
að mæðgunum líði báðum vel.
Þau Valentína og Andrían
voru gefin saman 3. nóvember
í fyrra. nokkrum mánuðum
eftir að hún fór í geimferð
sína 48 umferðir um jörðu.
Eiginmaður hennar var einu ári
á undan henni út í geiminn.
SÓSÍALISTAFÉLAG REYKJAVÍKUR
Borgarfjaröarför
Fararstjóri: Björn Þorsteinsson, sagnfræðingur.
Farin verður skemmtiferð sunnudaginn 14. júní, um efri byggðir Borgarfjarðar. — Lagt
verður af stað frá Tjarnargötu 20 kl. 9.30 f.h.
Farið verður um Þingvöll og Kaldadal, yfir hjá Kalmannstungu að hellinum Víðgelmi,
sem er í Hallmundar-
hrauni móts við Fljóts-
tungu. Þar verður stað-
næmzt nokkurn tima, en
síðan snúið við og ekið
sömu leið til baka að Húsa-
felli og þaðan að Barna-
fossi og hann, ásamt Hraun-
fossum, skoðaður. — Það-
an verður ekið í Reykholt
og út fyrir Dali og um
Dragháls og Hvalfjörð til
Reykjavíkur. — VERÐ kr.
300,00. — Þátttakendur
þurfa að hafa með sér
nesti. Þátttakendur geta
pantað farseðla hjá Sósíal-
istafélagi Reykjavíkur að
Tjamargötu 20. Sími 17510
og Ferðaskrifstofunni LANDSÝN h.f. Týsgötu 3, sími 22890, sem veitir allar upplýsingar
viðvíkjandi ferðinni og afgreiðir farmiðana. — Ferðazt verður i I. flokks bílum. — Öllum
heimil þátttaka.
TRYGGIÐ YKKUR FARSEÐLA í TÍMA
bannað njósnaflugið vegna þess
að hann óttist að Bandaríkja-
menn hafi í hyggju að skerast
í leikinn í Laos og stofna þannig
til nýs Kóreustríðs í Indókína.
Hann ræddi í gær við sov-
ézka sendifulltrúann í Vienti-
ane og er talið víst að þeir
hafi fjallað um njósnaflug
Bandaríkjamanna.
Skotíð á bæi?
Fréttastofan „Nýja Kína“
skýrir frá því að sex bandarísk-
ar orustuþotur hafi skotið og
varpað sprengjum á bæina
Khang Khay og Fong Savang,
þar sem Pathet Lao hefur að-
alstöðvar sínar. Loftvamarskot
hæfðu tvær árásarflugvélanna.
segir fréttastofan.
Mannréttindafrumvarpið
Loks bundinn endi
á máijtófið á þingi
FERÐASKRIFSTOFAN
LANDSÝN H/F
Týsgötu 3
Sími 22890.
WASHINGTON 10/6 — And-
stæðingar aukinna réttinda
blökkumanna í Bandaríkjunum
biðu ósigur í öldungadeild þings-
ins í Washington í dag þegar
samþykkt var að binda enda á
málþófið sem tafið hefur af-
grciðslu frumvarpsins um jafn-
ari rétt allra þegna landsins.
Stöðvun málþófsins var sam-
þykkt með 71 atkvæði gegn 29
og var það fjórum atkvæðum
betur en þeir tveir briðju hlut-
ar atkvæða sem þurfti til að
tillagan næði fram að ganga. All-
iv öldungadeildgrmenn tóku
þátt í atkvæðagre'ðslunni.
Umræður í deildinni um
þetta fmmvarp sem var und-
irbúið og samið i stjórnartíð
Kennedys forseta hafa nú stað-
ið látlaust i 75 daga. Þingsköp
eru slík í Bandaríkjunum að
þingmönnum er heimilt að tefja
framgang mála með sleitulaus-
um ræðuhöldum sem þurfa
hvergi að koma nálægt því máli
sem fjallað er um. Með stöðvun
málþófsins er þó ekki tekið fyr-
ir umræður með öllu heldur er
ræðutími hvers þingmanns tak-
mai-kaður við eina klukkustund
í hæsta lagi.
Búizt er við að umræðumar
muni enn standa í um hálfan
mánuð, en nokkuð öruggt er
að frumvarpið verði þá sam-
þykkt. Gerðar hafa verið á
því nokkrar breytingar til að
þóknast afturhaldinu og það
nær þvi enn skemmra en það
frumvarp sem Kennedy lét
semja, en forystumenn blökku-
m.anna, flestir töldu ganga alltof
skam’mt.
Skipting þingmanna í at-
kvæðagreiðslunni var þessi: Með
stöðvun málþófsins voru 44
Demókratar og 27 Republikan-
ar, á móti 23 Demókratar og 6
Repúblikanar. Meðal þessara
sex var Barry Goldwater, sem
er nú talinn líklegasta forseta-
efni Repúblikana .
Sjómenn og LIÚ
Framhald af 1. síðu.
samningar stóðu til, einnig í
öSram verstöðvum. 1 Sandgerði
þurftu sjómenn að taka til
sinni ráða að knýja fram heið-
arlegt uppgjör.
Hafi einstakir útgerðarmof ■
farið eftir eða séu að reyna að
fara eftir fyrirskipun LlÚ, ættu
sjómenn tafarlaust að leita rétt-
ar síns og gera málið strax upp-
skátt.
LÍO scndir út
afsökunarplagg
Stjórnarklíkan í LÍU mun nú
hafa séð, að hún hefur beðið
herfilegan ósigur í þessari her-
ferð gegn sjómannakjörunum.
Hún sendi frá sér áróðursplagg
í gær þar sem reynt er að af-
saka framferði LlÚ-stjórnarinn-
ar og klóra í bakkann. Þó er
stjórnin komin það á undan-
hald, að hún segir nú „virðast
ljóst“ samkvæmt hinum marg-
umtalaða og mistúlkaða Hafn-
arfjarðardómi, að það skuli vera
lögskráningin ein sem gilda eigi
um skiptakjörin í vor, og sé
enginn samningur til um þorsk-
veiðamar.
Sjómenn ciga ekki að
heimta of mikið!
LlÚ-stjómin segir. að nú
verði að semja um þorskanóta-
kjör, og endar afsökunarplagg
sitt á þessari spaugilegu máls-
grein, sem virðist eiga að sanna
sjómönnum að peningar séu bet-
ur geymdir hjá útgerðarmönn-
um en sjómönnum sjálfum eða
ríkissjóði og bæjarsjóði. Afsök-
unarplagg LÍÚ endar á þessa
leið:
„Áður en sjómenn mæta til
þeirra samninga væri æskilegt
að þeir gerðu sér ljóst. að
^eirra hagsmunir eru ekki bezt
tryggðir með því að gera kröfu
11 of stórs hluta af verðmæti
því sem* skipin afla, sem þeir
síðan flytja að meira eða minna
leyti til ríkis- og bæja í opin-
berum gjöldum. Hagsmunir sjó-
manna eru betur tryggðir með
því að útgerðin geti gengið með
eðlilegum hætti, byggt ný og
glæsileg fiskiskip og fylgt nýj-
un'gum í útgerð hverju sinni.
Þær kauphækkanir, sem sjó-
menn eiga að fá eru fólgnar í
bættu og verðmeira fiskmagni,
en ekki stærri og stærri hluta
af því sem skipið aflar“.
Þetta er sem sagt nýjasta
spekin úr herbúðum LÍÚ-klík-
unnar, Sverris Júlíussonar í-
haldsþingmanns og félaga, til
sjómannanna!
Neskaunstaðar
Framhald af 12. síðu.
Lúðrasveit Neskaupstaðar lék
á milli atriða undir stjórn Har-
aldar Guðmundssonar. — Veð-
ur var leiðinlegt, norðaustan
kali með skúrum. en þrátt fyr-
ir það tók margt manna þátt
i hátíðahöldunum. sem fóru
vel fram. Lauk þeim með dans-
leik í Egilsbúð. — H.G.