Þjóðviljinn - 29.03.1973, Side 2
i2 SÍÐA — ÞJÓDVILJINN Fimmtudagur 29. marz 1973.
Að vera
ginreifur
Þegar Jóhann Hafstein, sem
Þjóöviljinn réttilega er farinn
aö kalla skottu-formann Sjálf-
stæöisflokksins, lætur frá sér
fara, að nú nýleyst togara-
verkfall sé þaö lengsta i sögu
þjóöarinnar, get ég ekki látið
hjá líða að segja þessum fyrr-
verandi forstjóra kollsteypu-
fyrirtækisins Hærings nokkur
orð til upplýsingar.
Arið 1950 var hálfs árs
togaraverkfall.
Arið 1964 stóð togaraverk-
fall frá þvi i marz og fram i
águst.
Þetta á auðvitaö skottu-for-
maðurinn að vita, og nú veit
hann það, ef hann nennir aö
lesa þessar Iinur minar.
En að skrökva svona, eöa
sýna af sér slika fávizku, eins
og skottu-formaðurinn gerði á
siðum Morgunblaðsins á dög-
unum, þegar Geir I Arvakri
hleypti honum á siöur blaösins
sins, er máske skýringin á þvi
nýyröi sem Jóhann kom fram
meö fyrir næstliðnar kosning-
ar, en þá hrópaði hann framan
i þjóðina, — göngum ginreif Jil
kosninga.
Að skrökva og sýna fávizku
er þá sama og að vera
ginreifur.
Togarakarl.
Sýning á verkum Jóhannes-
ar S. Kjarvals f Kjarvals-
stöðum á Klambratúni er opin
laugardaga og sunnudaga frá
klukkan 2—10; aðra daga frá
klukkan 4—10, nema mánu-
daga, en þá er lokað.
Verk Kjarvals eru sýnd I
tveimur sölum f húsinu. f
öðrum salnum eru málverk i
eigu Reykjavikurborgar, en I
hinum eru verk eftir
meistarann, sem eru I eigu
einstaklinga.
Aögangur aö sýningunni er
ókeypis.
Húsnæðiskostnaðurinn
upp um 59% á 5 árum
Visitala húsnœðiskostnaðar hœkkaði helmingi minna en byggingarkostnaður
Á landnýtingar-
ráðstefnuna
Borgarráð samþykkti á
fundi sinum s.l. föstudag að
tilnefna Elinu Pálmadóttur og
Kristján Benediktsson fulltrúa
borgarinnar á ráöstefnu
Landverndar um skipulag
landnýtingar á Islandi, sem
haldin verður i april.
Asfalt frá
Oliuverzluninni
Borgarráö hefur fallizt á til-
lögu Innkaupastofnunarinnar
um kaup á asfalti frá Oliu-
verzlun Islands.
Snyrting
i Laugarnesi
Borgarráð hefur heimilað
borgarverkfræðingi kaup a
bragga og verkstæöishúsi á
Laugarnestanga, en ætlunin
er aö fegra og snyrta til á
þessu svæði og verða bygging-
arnar rifnar i þvi skyni.
Tilnefndir
Borgarráðhefur tilnefnt Leif
Blumenstein I stjórn Árbæjar-
safns I staö Sigurjóns heitins
Sveinssonar byggingarfull-
trúa.
Þá var Sveinn Björnsson
kaupmaöur tilnefndur af
borgarráði i Þjóðhátiðarnefnd
Reykjavikur 1974 I staö Páls
Lindals, borgarlögmanns,
sem óskað hefur eftir lausn úr
nefndinni.
Fá að nota Vesturás
Samþykkt hefur verið i
borgarráði að leyfa Hrafnistu,
D.A.S. afnot til bráðabirgða af
húseigninni Vesturási /v
Kleppsveg, sem Reykjavikur-
borg keypti á s.l. ári. Stendur
húsið aö hluta á lóð D.A.S. og
einnig út I fyrirhugað gatna-
stæði Jökulgrunns, þar sem
gatan á að liggja niður á
Kleppsveginn, og verður rifið,
þegar gatan verður lögð.
Þangað til fær D.A.S. að nota
húsið og mun ætla það sem
barnaheimili fyrir börn
starfsfólks.
Iðnaðarlóðir i stað
útivistarsvæða
Akveðið er að breyta skipu-
laginu við Sfðumúla 2-4-6 sam-
kvæmt tillögu skipulagsnefnd-
ar og eiga nú að koma þar
þjónustu- og iönaðarlóðir i
staö útivistarsvæðis, sem
fyrirhugað var samkvæmt
aðalskipulaginu.
i Fá að byggja
bilskúra
Bileigendur i Ibúðarhverf-
inu viö Fellsmúla og Háa-
leitisbraut fagna væntanlega
þeirri ákvöröun borgarráös og
skipulagsnefndar að gefa
þeim kost á byggingu bilskúra
og hefur deiliskipulaginu veriö
breytt samkvæmt þvi. Verður
nú möguleiki á bilskúr fyrir
hverja ibúð fjölbýlishúsanna,
en ðður hafði verið gert ráö
fyrir einhvers konar bilskýl-
um þarna. —vh
Stjórn Starfs-
mannafélagsins
endurkjörin
Aðalfundur Starfsmannafé-
lags Reykjavikurborgar var
haldinn 10. marz s.l. og var
stjórn þess endurkjörin án
þess að annað framboð kæmi
fram. Einn nýr maður bættist
i stjórniná, Sverrir Axelsson,
og er hún nú skipuð eftirfar-
andi:
Þórhallur Halldórsson for-
maður, Lárus Guðbjartsson
varaform., Hulda Guðmunds--
son ritari, Ingimar Karlsson
gjaldkeri, Lára Gunnarsdótt-
ir, Jón Björn Helgason og
Sverrir Axelsson meðstjórn-
endur. I varastjórn eru Bjarn-
héðinn Hallgrimsson, Kjartan
Þórólfsson og Frimann Richt-
er.
Bílstjórar virða
ekki biðskylduna
Hagstofan hefur nú um
fimm ára skeiö reiknaö
sérstaka vísitölu húsnæðis-
kostnaðar í Reykjavík,
miðað við tilkostnað þess
að eiga og reka íbúðarhús-
næði. Við seinasta útreikn-
ing, febrúar 1973, taldist sá
kostnaður 59% meiri en
hann hafði verið í ársbyrj-
un 1968. Á sama tíma hefur
visitala byggingarkostnað-
ar, þ.e. kostnaður við að
byggja nýtt ibúðarhús í
Reykjavík hækkað um
130%. En óheimilt er að
leigja út húsnæði með
meira en 49% hækkun leigu
frá ársbyrjun 1968 til þessa
dags.
Visitala húsnæðiskostnaðar,
reiknuö út i febrúar s.l., reyndist
159 stig að meðreiknaðri hækkun
vegna fasteignaskatts sem varð á
árinu 1972, en 147 stig án hans.
Visitala þessi var fyrst reiknuö út
i ársbyrjun 1958 og var þá 100.
Meginástæða þess að tekið var
að reikna og birta þessa visitölu á
sinum tima var sú, að margir
leigumálar, þ.á.m. hjá rikinu,
voru með visitöluákvæði, þ.e. að
leiga skyldi hækka i samræmi við
visitölu, og var þá oft farið eftir
visitölu byggingarkostnaðar. Það
þótti hins vegar vafasamt að til-
kostnaður við að eiga og reka
Ibúðarhúsnæði breyttist I sam-
ræmi við breytingar á byggingar-
kostnaði. Visitala byggingar-
kostnaðar i ársbyrjun 1968 var
rúmlega 300 stig (hún hafði verið
298 stig i október 1967 en varð 314 i
febrúar 1968). Byggingarvisital-
an var hins vegar 708 stig i febrú-
ar s.l., og nemur hækkunin frá
ársbyrjun 1968 um 130 prósentum.
Er þvi hækkunin á byggingar-
kostnaði um tvöfalt meiri á tima-
bilinu en hækkunin á húsnæðis-
kostnaðinum sjálfum.
Húsaleiga var undir verðstöðv-
un frá þvi i nóvember 1970 til árs-
loka 1972, og mátti þá miða leigu-
mála við visitölu 119. Hinn 21.
febrúar s.l. gerði Verðlagsnefnd
samþykkt um húsaleigu: ,,Verö-
lagsnefnd hefur ákveðið að láta
óátalda hækkun húsaleigu sem
svarar til hækkunar á visitölu
húsnæðiskostnaðar úr 119 stigum
i 149 stig, enda hafi sú hækkun
ekki verið reiknuð inn i húsaleig-
una áður".
Enginn efi er á þvi að meö þess-
um tviþættu opinberu ráðstöfun-
um: aö reikna sérstaka húsnæðis-
visitölu og binda húsaleigu meö
veröstöðvun, hafa leigutökum
verið sparaðar stórfúlgur i húsa-
leigugreiðslum, en ella heföu
farið i spekúlanta og verðbólgu-
hit. En með þessu er ekki sagt að
aðhaldið sé sem skyldi eöa að
eftirlit sé rækt með þvi aö reglun-
um sé fylgt.
Samkvæmt slysaskýrslu lög-
reglunnar i Reykjavik fyrir árið
1972 er talið aö rekja megi um
34% allra umferöaróhappa þar,
til þeirra orsaka, að bið- og stöðv-
unarskylda á gatnamótum er
ekki virt.
Vegna þessa hefur lögreglan að
undanförnu gefiö sérstakar gætur
umferðarbrotum I sambandi viö
umferðarljós og stöðvunarskyldu
á gatnamótum i borginni. A
timabilinu frá 7. til 21. þ.m. voru
62ökumenn kærðir fyrir að aka á
móti rauðu ljósi, og á sama tima
voru samtals 120 ökumenn kærðlr
fyrir brot á stöövunarskyldu.
Brot þessi varöa 2000 —4000
króna sektum, eftir nánari atvik-
um hverju sinni. Lögreglan mun
halda þessu eftirliti áfram, og
hvetur hún alla vegfarendur til
þess að virða umferðarreglurnar
i hvivetna. Er sérstök ástæða til
þess að brýna fyrir ökumönnum
hversu mikilvægt það er að fara
nákvæmlega eftir reglum um
umferðarljós. Sömuleiöis að
Börn úr barnaskólum Vest-
mannaeyja (þ.e. 1.-7. bekk)
stunda nú nám i 91 skóla á 60 stöð-
um á landinu, en auk þess eru tvö
i Noregi og tvö i Færeyjum.
Unglingar úr gagnfræðaskólum
(þ.e. 2.-5. bekk) stunda nám i 27
skólum á 26 stööum á landinu.
Fjöldi nemenda I barna og
gagnfræðaskólum Vestmanna-
nema skilyröislaust staðar, þar
sem stöðvunarskylda er á gatna-
mótum, og aka ekki af stað aftur
nema með fullu öryggi gagnvart
umferö á þeim vegi, sem nýtur
forgangsréttar.
eyja þegar gosiö hófst var alls
1135, þar af 871 i barnaskólum og
264 I Gagnfræðaskóla Vest-
mannaeyja.
Börn og unglingar úr Vest-
mannaeyjum eru þvi nú dreifð i
118 skóla viðsvegar um land,
þ.e.a.s. úr barnaskólum á 60 stöð-
um og úr gagnfræðaskólanum á
26 stöðum.
Y estmannaey j aböm
í 118 skólum
HORN
í SÍÐU
Af hverju ekki
að taka togar-
ana eignar-
námi ?
Fólk hefur velt þvi fyrir sér
nú siðustu daga hvernig á þvi
getur staðið að einstaklingar
reki togara á íslandi.
Þessum einstaklingum er
lánaö fé til kaupa á togurum
beint úr opinberum sjóöum
allt að 95% kaupverðsins. 5%
sem eftir standa eru i mörgum
tilvikum fengin að láni úr
rikisbönkum, eða öörum
bönkum, þannig aö i raun og
veru er allt fjármagniö, sem
notað er til togarakaupanna,
fengið hjá almenningi.
Siöan er ýtt úr vör, og þá
koma upp ný vandamál með
peninga, og þá er enn aftur
sótt fé til almennings. Halli á
útgerö, mismunurinn
greiddur úr rikissjóði; meiri
halli á útgeröinni, meira fé
greitt úr rikissjóði.
Þaö er þvi eölilegt, aö fólk
spyrji til hvers sé veriö að fá
einstaklingum þennan rekstur
upp I hendurnar.
Yröi ekki ódýrara aö togar-
ar landsmanna væru geröir út
af hinu opinbera? Þá undir
einni yfirstjórn, þannig aö
heildaryfirsýn fengist yfir
rekstrarkostnaöinn og hægt
væri að koma viö hagræöingu.
Þá kæmi I ljós, hvað raun-
verulega kostar að reka
togara, án þess aö þurfa aö
reka heimili núnefndra
eigenda, lystireisur um heim-
inn, bila, vin og veizluhöld.
Ef til vill færi þá togara-
útgeröaö bera sig; ríkissjóður
hætt að greiða svo og svo
mikið til heimtufrekra og
ósanngjarnra „eigenda” og
svo gæti fariö, að rikissjóður
hefði af sliku einhverjar auka-
tekjur áöur en yfir lyki.
Hvers vegna er þetta þá
ekki gert?
Ekki er það vegna þess að
útgerðarmenn eins og Sverrir
Hermannsson og aörir slikir
séu þvilikir bógar, að ekki
veröi við þá ráðið þegar
þjóöarheill stefnir I aöra átt en
þeir vilja láta stefna i.
Ekki er það heldur vegna
þess að slikt yrði slikur
kostnaðarauki fyrir rikissjóð á
meðan á þvi stæöi aö borga
útgerðarmönnum rauna-
bætur, þar sem rikissjóöur á
nú þegar stærstan hluta i
hverjum togara.
Ekki er það vegna þess að
löggjöf um slíka yfirtekt sé
svo margslungin og erfið i
samningu, þar sem I fyrsta
lagi eru til lög um eignarnám.
og i öðru lagi þyrfti ekki að
taka nema lítinn hluta togar-
anna eignarnámi, sem I raun
og veru yröi ekki annaö en
staðfesting á eignarhlut rikis-
sjóðs I togurunum.
Ekki er þaö heldur vegna
þess aö almenningur i landinu
sé slikri ráðstöfun andvigur,
þvi ef einhverntima hefur
veriö grundvöllur fyrir
eignarnámi i einhverri mynd,
þá er það nú með yfirtekt
togaranna.
Það yrði minnisvarði, sem
ekki yröi niður brotinn, ef
rikisstjórn Ólafs Jóhannes-
sonar auðnaðist sú gifta að
taka slikt skref til framfara.
Þaö er vissulega tækifæri
tiL —úþ.