Þjóðviljinn - 23.03.1974, Page 4

Þjóðviljinn - 23.03.1974, Page 4
4 SIÐA — ÞJÓDVILJINN Laugadagur 23 marz 1974. Að láta hægri menn starfa verður eitt af verkefnum nýkjörins Stúdentaráðs Rœtt við Sigurð Tómasson, efsta mann á lista vinstri manna Eins og skýrt var frá i blaðinu i fyrradag unnu vinstri menn sigur i kosningum til Stúdentaráös Hl. Hlutu þeir 901 atkvæöi og 8 menn kjörna, þar af einn fulltrúa stúd- enta i Háskólaráð sem einnig á sæti í Stúdentaráöi. Hægri menn hlutu 721 atkvæði og sex menn kjörna. Kjörsókn var með eindæmum mikil að þessu sinni. Alls greiddu Skákmót Hið árlega skákmót skólanna hefst i dag, 23. mars, og verður haldið áfram viku siöar, eða 30. mars, en þvi lýkur sunnudag 31. mars. Keppt verður i 2 flokkum, (ýngri nemendur úr 1. og 2. bekk gagnfræöastigs) og eldri (3. bekk og eldri). Keppendur eru úr tóm- stundaflokkum i skák, er starfa i skólunum sem þáttur i tóm- stundastarfi æskulýðsráðs, en Taflfélag Reykjavikur hefur ann- ast skipulag og leiðsögn i þvi starfi. Keppnin fer fram i félagsheim- ili Taflfélags Reykjavikur, Grensásvegi 46. Hver skóli sendir 4ra manna sveit, en keppnin er sveit^keppni eftir Monroe-kerfi. Keppt er um verðlaunagripi gefna af æskulýðsráði. 1 fyrra tóku 11 skólar þátt i keppninni, og sigraði þá sveit Hagaskóla i eldri deild og Alfta- mýrarskóli i yngri deild. um 1650 manns atkvæði sem er um 70 prósent atkvæðabærra stúdenta. Orslitin nú eru mjög svipuð þeim sem urðu i kosning- um fulltrúa i Háskólaráð i fyrra- vetur en þá var kjörsókn heldur minni. Hins vegar var mjórra á mununum i haust er kosið var i 1. des. nefnd stúdenta. Þá munaði einungis 22atkvæðum,en hafa ber i huga að kjörsókn þá var einung- is um 900 manns. Stuðningur við stefnu SHÍ og vinstri manna Blaðið náði tali af Sigurði Tómassyni islenskunema sem skipaði efsta sæti á lista vinstri manna i kosningunum. Fyrst var hann spurður um það hvernig vinstri menn túlka kosningaúr- slitin. — Við túlkum þau sem stuðn- ingsyfirlýsingu við stefnu Stúd- entaráðs og vinstri manna. Höfuðatriöi þessara kosninga var það hvort einangra beri málefni stúdenta frá öðrum þjóðfélags- málum. Með þessum úrslitum er SHl veitt heimild til að starfa á pólitiskum grundvelli. — Hver verða helstu störf hins nýja Stúdentaráðs? — Ahérslan verður lögð á þá málaflokka sem ráðið hefur unnið að undanfarin tvö ár. Einkum verður unnið að svökölluðum sér hagsmunamálum stúdenta eins og lánamálum, húsnæðismálum o.þ.h. Einnig verður fjallað um stjórnskipan háskólans og stefnt að þvi að brjóta niður deildamúra og að stúdentar fái meiri hlut- deild i stjórnun skólans. Þá er mikilvægt að efla upplýsinga- streymið innan skólans og auka samband ráösins við stúdenta. Leggja þarf áherslu á hraðvirka upplýsingamiðlun þegar mál eins og læknadeildarmálið risa þannig að stúdentar geti fylgst vel með þvi sem gerist og ráðið ráðum sinum. Aukin upplýsingamiðlun veitir lika Stúdentaráði aðhald. Það þarf einnig að endurskoða og athuga tengsl kennara og stúd- enta. Er það ekki einstakt að prófessor einn sem sæti á i Há- skólaráði skuli ekki vita að SHl má gera pólitiskar ályktanir? Það þarf að styrkja þau utan- rikistengsl stúdenta sem fráfar- andi meirihluti i Stúdentaráði hefur unnið að þvi að koma á eftir að hægri menn höfðu algerlega rofið öll utanrikistengsl stúdenta. Þá verður það skemmtilegt verkefni að fá hægri menn til að vinna að þeim málum sem þeir hafa verið að gaspra um. 1 kosn- ingabaráttunni komu þeir fram með margar tillögur um fram- kvæmdir og byggingar fyrir hinar ýmsu deildir. Nú fá þeir tæki- færi til að vinna að þeim. Auövaldið vill aö stúdentar þegi — Hvað viltu segja um þann á- róður Vökustaura að Stúdentaráð hafi ekkert unnið að undanförnu? — Þeir sem standa að þessum áróðri eru sjálfir fulltrúar i Stúdentaráði, margir þeirra alla- vega. Heilindi þeirra lýsa sér best i þvi að þeir hafa unnið minnst og mæting þeirra á fund- um ráðsins og nefnda þess hefur farið niður i 10% i vetur. En fyrir utan lygina i áróðri Vöku er annað mikilsvert atriði i honum, sem er kostnaðurinn við kosningabaráttu þeirra. Senni- lega hefur hver fulltrúi þeirra i Stúdentaráði kostað þá um 40 þúsund krónur i útlögðum pening- um. Hvaðan kemur þetta fé? Það kemur frá auðvaldinu i Reykja- vik, feita kjarnanum i Sjálf- stæðisflokknum sem hefur hag af þvi að stúdentar þegi. Þessum ihaldskempum er að sjálfsögðu sama um hverja þeir dubba upp til þessara starfa meðal stúdenta. Þessi óeðlilega fjármögnun er al- varlegt mál og veldur aðstöðu- mun og mismunun sem þarf að taka til athugunar. —ÞH Mynd: Francisco Goya y Lucientes KENJAR Mál: Guöbergur Bergsson 35. Hún rakar af honum Hirðmeyjan rakar álfalegan unnust- ann meðan hann rennir til hennar ástarbliðum augum, slefandi af ánægju. Þannig rakar hún af honum, táknrænt séð, hvern eyri, þvi að mynd- ir Goya eru ætið táknræns eðlis, og myndmál þeirra er táknmál, eins og mál allrar æðri listar. Goya gengur aldrei beint að efninu, heldur læðist hann að kjarna hverrar rhyndar eftir krókaleiðum völundarhússins, þar sem er fullt af reimleikum og hugar- leik óvenjulegs listamanns, sem flétt- ar saman svo margvislega þræði, að til þess að njóta myndlistar hans, þarf maðurinn helst að dvelja á milli svefns og vöku og hafa hvort tveggja á valdi sinu, martröð lifsins og martröð svefnsins. Raunsæi myndanna er raunsæi óraunsæisins, einhvers konar myndljós, sem ætlað er auganu og hugboðinu. Af þessum ástæðum finnur áhorfandinn myndina á sér, gerir sér hana I grun; og sé þekking hans við og margvisleg, getur hann meö talsverðri áreynslu gert sér fremur heillega mynd af myndinni: annars ekki. Feg- urðarskyn áhorfandans kemur honum að litlu eða engu gagni, enda er sjald- an skirskotað til þess vafasama skyn með myndum, heldur til ,,the pleasure of the imagination” — „unaðar imynd- unaraflsins”, eins og Addison hafði sagt, þótt Goya hafi ekkert vitað um orð hans. Inuk- maðurinn í Norrœna húsinu Leikrit um Eskimóa verður sýnt i Norræna húsinu á morgun, sunnudag kl. 18:00. Þetta er leik- ritið ,,Inuk — maðurinn —”, sem er samið og æft i hópvinnu á veg- um Þjóðleikhússins. Semjendur og flytjendur eru Brynja Bene- diktsdóttir, Kristbjörg Kjeld, Helga Jónsdóttir, Ketill Larsen, Þórhallur Sigurðsson og Harald- ur Ólafsson, lektor. Atli Heimir Sveinsson hefur æft tónlistina. Framkvæmdastjóri leikhópsins er Þorlákur Þórðarson. 1 leikritinu „Inuk — maðurinn—” er sagt frá fornri menningu Eskimóa og ástandinu eins og það er i dag. Þetta er stutt leikrit, sem ætlaðer að taki um 45 minútur i sýningu eða samsvar- andi einni kennslustund, en það hefur verið sýnt i mörgum skól- um undanfarið. Óskir hafa komið fram um það, að almenningi gefist einnig kost- ur á að sjá verkið, og þvi var á- kveðið að hafa þessa sýningu i Norræna húsinu, til að öðrum en skólanemendum gæfist kostur á að sjá það; Ef timi verður til, gefst áhorf- endum kostur á að bera fram fyrirspurningu og skoða áhöld og muni frá Grænlandi, sem notað er i leikritinu. Eins og undanfarin ár gengst Æskulýðsráð Reykjavikur fyrir borðtennismóti skólanemenda á gagnfræðastigi, þ.e. úr þeim skól- um, þar sem tómstundahópar starfa i þessari iþróttagrein. Keppnin fer fram i Laugardals- höllinni i dag, 23. mars, og hefst kl. 13,30. Fyrirkomulagið er ein- menningskeppni sem hver skóli sendir fjögurra manna sveit auk tveggja varamanna. Siðastliðið ár bar sveit Hagaskóla sigur úr býtum, en þá tóku 10 skólar þátt i mótinu. Borðtennisklúbburinn örninn sér um framkvæmd móts- ins.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.