Þjóðviljinn - 23.03.1974, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 23.03.1974, Blaðsíða 7
Laugadagur 23 marz 1974. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 7 Sverrir Kristjánsson, sagnfrœðingur: TILLAGA handa þjóðhátíðarnefnd Meöur þvi aö okkar ágæta þjóð- hátiðarnefnd hefur oröið að endurskoða ýmsar hugmyndir sinar og áætlanir, vil ég sem þegn i frjálsu landi leggja til eina litla nýjung á þessu fræga afmæli. Ljósmynd i Timanum, 22. mars 1974, vdkti mitt þungsvæfa imyndunarafl. Það er best aö lýsa myndinni likt og Guðbergur gerir nú i Þjóðviljanum. er hann túlkar koparstungur Goya, og finn ég þó fljótt til vanefna minna, er ég minnist hins snjalla islenska skálds. En myndin er svona: Tveir menn standa uppréttir: Ólafur Jóhannesson forsætisráð- herra og Eysteinn Jónsson þing- forseti. T svip þeirra má greina kalda meðaumkun, sem ljós- myndavélin hefur náð að tjá mæta vel. Fyrir framan þá er op- inn kassi eða skjóða, en fyrir framan þessa nýtiskulegu skjóðu er maður á knjám. Maðurinn heitir Þorsteinn Sæmundsson, dóttursonur skáldsins Þorsteins Erlingssonar. Maður sér ekki bakhluta stjörnufræðingsins nema að litlu leyti, en mennta- mannssvipurinn leynir sér ekki, og ég sé ekki betur en að hann sé á Sverrir Kristjánsson lakkskóm. Það er engu likara en hann sé að krjúpa hátigninni, og þó eru þarna staddir bara borg- aralegir framsóknarmenn. En Þorsteinn Sæmundsson kann vel að þjóna konungum, hvort heldur þeir eru af Guðs náð eða kjósend- anna. Hér krýpur stjarnfræðingurinn og færir rikisstjórninni gjafir sin- ar að fornislenskum sið. Það var nú raunar ekki hvitabjörn. Svo göfugt dýr átti hann ekki. Hann færði stjórninni skjálfandi undir- skriftir fimmtiu og fimm þúsund Islendinga og riflega fimm hundruðum betur, bænarskrá i þeim stíl, er við tslendingar vor- um vanir að senda einvaldskon- ungum okkar og erfðaherrum. Tak eigi frá oss bandaríska her- inn, herra'. En nú vikur aö tillögunni. Ef svo skyldi fara, að eitthvað mundi vanta á hugmyndafræði minna á- gætu vina i þjóðhátiðarnefnd, þá vil ég allra undirdánugast leggja til: Að þjóðhátiöarnefnd birti myndina af valdhöfum Islands og Þorsteini stjarnfræöingi á bréf- spjaldi, sem ekki má vera undir einni miljón eintaka. (Ef kostn- aður yrði oss ofurliði mætti leita til sjóða Sameinuðu þjóðanna handa vanþróuðum þjóðum, eða þá i Alþjóðabankann ef allt um þrýtur). t annan stað: Fyrir þann sparnað sem hefur orðiö af þvi að kaupá ekki náðhúsin frá MOnchen skulum vér kaupa þvottasnúrur og festa þær upp frá Sólheima- sandi til Siglufjarðar. Skulu þar á festar undirskriftir hinna fimm- tiu og fimm þúsund íslendinga, og vonandi verða veðurguðir is- lensku þjóðarinnar okkur svo vin- veittir, að tuskurnar blakti i blænum. TVÖ NÝ FRÍMERKI Póst- og simamálastjórnin hef- ur gefið út tvö ný Evrópu-fri- merki Á öðru merkinu, sem er 13. krónur að verðgildi, er mynd af gömlum tréskurði frá 17. öld. Sú mynd er varðveitt i Þjóöminja- safni tslands. Hitt merkiö er 20 krónur aö verðgildi, og á þvi er mynd af skúlptúr Ásmundar Sveinssonar ,,Gegnum hljóðmúrinn”. Flestir munu kannast við það listaverk, en það er staðsett fyrir framan Hótel Loftleiða. 90 ára í dag 90 ára er i dag, 23. mars, Jónina Oddsdóttir frá Ormskoti i Fljóts- hlið. Hún dvelur nú á Hrafnistu. I dag verður hún stödd á Austur- brún 37 frá kl. 3 til 6. Leiðrétting I>aii inistök urðu liér i Þjóövilj- anum i gær, að birt var i opnu m\iid, sem sögð var frá Breiðu- vik i Kauðasandshreppi, en hér var um misskilning aö ræða, þvi að myndin var frá Kollsvik i sama lireppi. Biðjum við lesendur velvirðingar á þessum mistökum. Atvinna J árnsmiðir- Y erkst j órn Viljum ráöa járnsmið er gæti tekið að sér verkstjórn i forföllum. Getum einnig bætt við okkur lagtækum mönnum. Hálfsdags- eða kvöldvinna kæmi til greina. Vélsmiðjan Normi, Súðarvogi 2(5. Simar 33110 og 84572. FAÁ FL UCFELACIIMU Radíóvirki óskast Flugfélag islands óskar eftir að ráða radióvirkja til starfa á verkstæði félagsins. Umsóknareyðublöðum, sem fást á skrif- stofum félagsins, sé skilað til starfs- mannahalds i siðasta lagi 1. april n.k. Upplýsingar hjá Aðalsteini Jónssyni yfir- manni radiódeildar. FLUGFELAGISLAJVDS I Hafnarfjörður-Verkamenn Hafnarfjarðarbær óskar að ráða verkamenn til ýmissa framkvæmda á vegum bæjarins. — Ath.:meðal annars vantar menn til hreinsunar gatna og opinna svæða til greina kemur að ráða til þeirra starfa liluta úr degi. Nánari upplýsingar gefa yfirverkstjóri og skrifstofa bæjarverkfræðings i sima 53444. Bæjarverkfræðingur. Ljósmvndin úr Timanum: „f svip þeirra má greina kalda mcð- aumkun". Tilboð óskast i að byggja vatnsgeymi og lokahús á Nes- kaupstað. Útboðsgögn verða afhent á bæjarskrifstofunum Neskaupstað og Verkfræðiskrifstofu Sigurðar Thoroddsen s/f Ármúla 4 Rvk gegn 3000 kr. skila- tryggingu. Tilboð skulu hafa borist bæjarskrifstofun- um Neskaupstað eigi siðar en þriðjudag- inn 23. april n.k. kl. 11 f.h. Tilkynning frá Sjálfsbjörg Alþjóðadagur fatlaðra er á morgun. Sjálfsbjörg L.S.F. hefur af þvi tilefni fengið hingað til lands herra Thor-Al- bert Henni/ormann landssambands fatlaðra i Noregi,til þess að flytja erindi um foreldrafræðslu vegna fatlaðra og fjölfatlaðra barna. Erindið verður haldið að Hótel Loftleiðum (Ráðstefnu- salnum) sunnudaginn 24. mars og hefst kl. 16. Að þvi loknu svarar herra Thor-Albert Henni fyrirspurnum. Það er von okkar.að foreldrar og aðrir áhugamenn noti þetta tækifæri og fjölmenni á fundinn. Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra. Aðalfundur Dagsbrúnar verður haldinn i Iðnó sunnu- daginn 31. mars 1974 kl. 2 eftir hádegi. REIKNINGAR Dagsbrúnar fyrir árið 1973 liggja frammi i skrifstofu félagsins frá og með 25. þ.m. Stjórnin.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.