Þjóðviljinn - 25.05.1975, Side 5

Þjóðviljinn - 25.05.1975, Side 5
Sunnudagur 25. mai 1975 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 Priðsamleg sambúð risaveldanna hefur verið mjög á dagskrá und- anfarið, og i sambandi við það er af þeirra hálfu látið i veðri vaka að tilgangurinn með viðleitni I þá átt sé að forða heiminum frá spennu og háska kaldra striða og þá enn frekar þeim gereyðandi voða, sem heitar nútimastyrjald- ir milli stúrvelda yrðu. En fleira liggur hér á bakvið, til dæmis kaldrifjuð viðleitni risaveldanna til að tryggja áfram yfirráð sin og itök með helmingaskiptum, og er þar um að ræða framhaid þeirrar sögu sem hófst þegar f Jalta og Teheran, er þeir Roosevelt og Stalin sömdu. En lika liggja hér á bakvið engu síður kaldrifjuð viö- skiptasjónarmið. David Rockefeller, sem kallaftur er stundum mesti auðjöfur heims, er meðal mestu áhugamanna um aukin viðskipti við Sovétrikin. Risarnir draga sig saman t sambandi við samningaum- leitanir um vinsamlegri sambúð risaveldanna og rikja þeim á- hangandi fara fram samninga- umleitanir um nánari efnahags- lega samvinnu austur- og vestur- blakkarinnar en áður hefur þekkst. Þegar i dag er talað um svokallaðan heimsmarkað, er venjulega aðeins átt við kapital- iska heiminn, og á þeim markaði eru hin iðnvæddu kapitalisku riki Norður-Ameriku og Vestur- Evrópu auk Japans mestu ráð- andi. Nánari efnahagssamvinna austurs og vesturs gæti þýtt að Sovétrikin og fylgiriki þeirra væru á leiðinni inn á þann mark- að. Gagnkvæm þörf Ekki vantar að bumbur séu barðar fyrir þessari efnahagslegu samvinnu jafnt i austri sem vestri, enda ljóst að báðir aðilar geta hagnast vel á samstarfinu. Vestrænu iðnveldin eru i sárri þörf fyrir hráefni, svo sem timbur og jarðgas, sem Sovétrikin geta látið þeim i té, og kreppan á Vest- urlöndum stafar meðal annars af þvi að neysluvörumarkaðurinn þar er mettur og tekur ekki við meiri framleiðsluaukningu. Vest- ræna neysluvöruiðnaðinum væri borgið úr þeim vandræðum i bráðina, ef Sovétrikin og fylgiriki þeirri opnuðu markaði sina fyrir framleiðslu hans. Sovétrikin standa hinsvegar i miklum fjárfestingum til aukn- ingar framleiðslu og nýtingar á náttúruauðlindum, og til þess hafa þau mikla þörf fyrir tækni- lega aðstoð, sem Vesturlönd ein geta haft aflögu, og stórlán hjá vestrænum peningastofnunum. Lifskjörin i Sovétrikjunum og Áustur-Evrópulöndum hafa batn- að stig af stigi og kaupgeta auk- ist, en hinsvegar standa flest þessara rikja Vesturlöndum enn verulega að baki i neysluvöru- framleiðslu. Eftirspurnin eftir neysluvörum er þvi i rikjum eins og Sovétrikjunum og Póllandi miklu meiri en svo að framboðið innanlands hafi við henni. Sovét- rikin sjá sér þvi hag i þvi að opna markað sinn fyrir vestrænum neysluvarningi —það myndi eyða þeirri viðtæku þjóöfélagslegu óá- nægju, sem lengi hefur verið þar eystra út af neysluvöruskortin- um. Strik í reikninginn Eins og menn muna setti bandariska þingið hér strik i reikninginn og gerði það að skil- yrði fyrir aukinni efnahagslegri samvinnu við sovéta að þeir leyfðu gyðingum óhindrað að flytjast úr landi. Sovétmenn brugðust við reiðir og kölluðu þetta grófa tilraun til ihlutunar um sovésk innanrikismál, og þeir voru ekki einir um það. Kissinger var ákaflega óhress yfir þessum viðbrögðum þingsins, og ennþá harðorðari var John Connor, full- trúi sovéskbandariska verslunar- og efnahagsráösins i Moskvu. Hann kallaði afstöðu þingsins ,,á- Kissinger og Bresjnéf á bjarndýraveiðum, eftir að þeir höfðu greitt veginn fyrir samningi um viðskiptasamstarf — þeim stærsta sem til þessa hafði verið gerður I heiminum. Margir sögðu að þeir hefðu selt björninn áður en hann var unninn, þegar Bandarikjaþing setti skilyrði fyrir að staðfesta samninginn. En fjölþjóðlegu auðhringarnir hafa sin brögð til að sniðganga þess háttar hindranir.. byrgðarlausa” og fælist i henni að Sovétrikjunum væri sýnt mis- rétti. ,,Ég fagna þvi innilega, hve ákveðna afstöðu sovéska stjórnin hefur tekið þessu viðvikjandi,” sagði Connor ennfremur. „Meiri- hluti bandariskra fyrirtækja er hlynntur auknum viðskiptum við Sovétrikin, og ég vona að áður en mjög langt um liður muni vöru- viðskipti milli rikja okkar auk- ast.” Auðvaldið viðurkennir ekki landamæri Umrædd samþykkt Banda- rikjaþings, sem rússahatarinn og kaldastriðspostulinn Henry Jack- son beitti sér mest fyrir, kemur efalaust til með að tefja eitthvað fyrir þeirri þróun, sem fjallað er um i þessari grein. En óliklegt er að samþykktin stöðvi til lengdar umrædda viðskipaaukningu aust- urs og vesturs. Auðvaldið hefur aldrei viðurkennt nein landa- mæri, og fjölþjóðlegu auðhring- arnir eru fyrir löngu orðnir nógu öflugir til að sniðganga sam- þykktir þjóðþinga og tilskipanir rikisstjórna, ef þeimbýður svovið að horfa. Og áhuginn fyrir auk- inni efnahagslegri samvinnu við Comecon-rikin er fyrst og fremst hjá fjölþjóðlegu hringunum. Þetta sýndi sig greinilega þegar Bandarikjaþing hafði gert um- rædda samþykkt. Þá stóð ekki á mótmælunum frá kjarnanum i „big business” Bandarikjanna með Bank of America, Ford, General Motors, Pepsi Cola og oliuhringana i broddi fylkingar. Þessi fyrirtæki kepptust um að undirstrika að Sovétrikin væru hagstæðasti viðskiptavinur, sem hugsast gæti fyrir Bandarikin. Þar verður þvi varla sagt að „vinir” Sovétrikjanna i Banda- rikjunum séu af verri endanum! Ha m mer sa m stey pa n Þetta varpar ljósi á það, sem löngu var vitað, um hve algert vald fjölþjóðlegu auðhringanna er orðið i auðvaldsheiminum. Jafnvel rikisleiðtogar, sem á yfir- borðinu sýnast nokkuð sterkir, eins og raunin var á um Nixon meðan hann var upp á sitt besta, eru þegar til kastanna kemur ekki mikið meíra en íeikbrúður i höndum þeirra. Nixon sló sér upp sem sérstökum baráttumanni aukinna samskipta við Sovétrik- in. Nú er hann fallinn og þjóðþing Bandarikjanna hefur sett aukn- um viðskiptum við Sovét stólinn fyrir dyrnar — en þóunin i þá átt heldur áfram engu að siður. Sú staðreynd, að auðhringarnir eru fjölþjóðlegir, gerir þeim ein- mitt tiltöiulega hægt um hönd að fara i kringum samþykktir þinga og stjórnatilskipanir. Þetta hefur meðal annars komið fram af af- stöðu Occidental Oil, oliuhrings þess bandarisks sem stendur i nánustu sambandi við Sovétrikin. Firma þetta hefur öflugan stuðn- ing af Chase Manhattan Bank, þar sem David Rockefeller ræður lögum og lofum, og að nokkru leyti einnig af Bank of America i Kaliforniu. Sameiginlegum við- skiptum þessara aðila við Sovét- rikin er stjórnað af Armand Hammer, helsta stórlaxinum i Occidental Oil. Hammer-sam- steypan hefur þegar staðið að byggingu bandariskrar viðskipta- og iðnaðarmiðstöðvar i Moskvu og stóriðjuvers til framleiðslu á áburði i Kúibýséf við Volgu. Hammer hefur lika undirbúið fjárfestingu svo skiptir miljörð- um dollara til að vinna jarðgas i Jakútiu og ef til vill á Tjúmen- svæðinu i Vestur-Siberiu. Farið skal i kringum samþykkt þingsins Eftir að Bandarikjaþing setti fram skilyrðið um gyðingana og bandariski Otflutnings- og innflutningsbankinn skrúfaði i framhaldi af þvi fyrir lán af til- efni sovétviðskipta, lýsti Hammer þvi yfir engu að siður að hannmyndihaldaáframað hjálpa sovétum við að koma upp við- skipta- og iðnaðarmiðstöðinni i Moskvu og áburðarverinu við Volgu eins og ekkert heföi i skor- ist. Hann nefndi sem dæmi að eft- ir samþykkt Bandarikjaþings gæti Útflutnings- og innflutnings- bankinn að visu ekki veitt fé til þess að leggja leiðslur fyrir fljót- andi ammoniak frá Togliatti-iðju- verinu við Volgu til Svartahafs- ins. En leiðslurnar yrðu lagðar engu að siður. A yfirborðinu yrði bara látið svo heita að franskt fyrirtæki sæi um að fjármagna framkvæmdirnar! Auðmagnið fer yfir landamærin þar sem þvi hentar og þegar þvi hentar. Ef samþykkt Bandarikja- þings hindrar þarlend fyrirtæki að fjármagna framkvæmdir i Sovétrikjunum, er valdaaðilum fyrirtækjanna i lófa lagið að láta erlend fyrirtæki sjá um það fyrir sig. Fyrirtækin, hvort sem þau eru bandarisk, vesturevrópsk eöa skráð annarsstaðar, eru hvort sem er nátengd og undir sameig- inlegum yfirráðum fjölþjóðlegu auðhringanna. Auðvaldið fær hlutdeild Að minnsta kosti ehn ein ástæða er þung á metaskálunum hjá Vesturlandaauðvaldinu, þegar það sækist eftir auknum umsvif- um i Sovétrikjunum og Austur- Evrópu. Þegar gerðir og fyrir- hugaðir samningar Hammer- samsteypunnar við Sovétrikin hafa verið á þá leið að samsteyp- an veitir sovétum miljarði doll- ara i lán til framkvæmdanna, en fá á móti hlut i framleiðslunni um langt skeið. Með þessu sjá vest- rænu auðhringarnir sér færi á að öðlast óbeina eignarhlutdeild i sovéskum og austurevrópskum fyrirtækjum og draga til sin stór- gróða af framleiðslu þeirra. Varðandi þetta hyggja vestrænu hringarnir sér sérstaklega gott til glóðarinnar. Þeir vita sem er að Sovétrikin og fylgiriki þeirra hafa á að skipa hæfu, velskóluðu og velöguðu vinnuafli, og þar þarf ekki að óttast vinnutap vegna verkfalla, sem eru mestur þyrnir i augum atvinnurekenda á Vest- urlöndum. Af þessu stafar vax- andiásókn vestrænna auðhringa i að flytja fjármagn sitt til Come- con-landa, gegn hlutdeild i fram leiðslunni. Hiðhæfa og velskólaða vinnuafl Comecon-landa tryggir gæði framleiðslunnar, og góður vinnuagi og sumsstaðar tiltölu- lega lágt kaupgjald tryggir lágan framleiðslukostnað. //Transideólígísk" fyrirtæki Þesskonar samstarf við fram- leiðslu er á alþjóðlegu viðskipta- máli kallað „transideólógiskt.” Nokkur slik „transideólógisk” fyrirtæki eru þegar komin á legg, enda hafa sum Austur-Evrópuriki þegar hagrætt löggjöf sinni til að greiða þeim veginn. Júgóslavia gerði það fyrir löngu, Ungverja- land er búið að þvi, Rúmenia gerði það 1971 og Pólland er með það i undirbúningi. Sovétrikin hafa enn ekki slikt hlið á löggjöf sinni, en samningamenn vest- ræna auðvaldsins, til dæmis lög- fræðingurinn Samuel Pisar, sem er á vegum Hammer-samsteyp- unnar, gerir sér góðar vonir i þvi efni. Hvor gleypir hvorn? Á þvi er ekki vafi að Vestur- landaauðvaldið gæti hagnast stórlega á umræddum efnahags- tengslum og bjargað sér með þvi úr kreppunni, sem komin er vel inn i forstofuna hjá þvi. Giskað hefur verið á að áhugi Sovétrikj- anna á þessu stafaði sumpart af þvi, að þau vildu forðast að kreppan ýtti undir nýja öldu fas- isma á Vesturlöndum, eins og fyrrhefurskeð.Miðað við reynslu Sovétrikjanna af þessháttar er ekki ástæða til að efa, að sá ótti ráði einhverju um afstöðu þeirra. En beinir efnahagslegir hags- munir ráða einnig miklu um þessa afstöðu. Hitt er svo annað mál, að ýmsir marxiskir hug- myndafræðingar, eins og hinn kunni fyrirliði danskra kommún- ista Kai Moltke (sem auknefndur var rauði greifinn), efast um að slikt samkrull við auðvaldið geti samrýmst marxiskum megin- reglum. Enda þótt þetta geri að verkum að Vesturlönd verði efna- hagslega háðari Comeconrikjum en áður, gæti þetta einnig haft i för með sér að Sovétrikin og fylgi- riki þeirra drægjust að verulegu leyti inn á heimsmarkað auð- valdsins og yrðu lögmálum hans háð. dþ. Nýr „heimsmarkaður” Vesturlanda og Comecon-ríkja í uppsiglingu?

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.