Þjóðviljinn - 25.05.1975, Page 12

Þjóðviljinn - 25.05.1975, Page 12
12 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 25. mai 1975 Sunnudagur 25. mai 1975 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13 MYND- OG HANDMENNTIR í GRUNNSKÓLANUM AÐ VERA LÆS Á UMHVERFIÐ ...Strax hjá smábörnum finn- um við þörfina til að kanna um- hverfið, Iæra að þekkja og not- færa sér þaö. Barnið getur mjög snemma tjáð hugsun í mynd og með myndmerkjum, mas. strax á öðru ári. Það er af eigin hvöt og meöfæddur eiginleiki hjá barninu að þaö tjáir sig á mynd- máli, en þaö myndmái er ekki alitaf auðiesið fyrir hvern sem er, enda oft byggt upp af tákn- rænum merkjum og myndum... Málræn kunnátta og þjálfun er af mjög skornum skammti hjá 2—5 ára börnum og þ.v. er hin myndræna þjálfun þess afar þýðingarmíkil... Það er algengt aö foreldrar og annað fullorðið fölk reyna að leiðrétta eða betrumbæta „ófullkomnar” (að þeirra dómi) myndir barnsins. Þessi veimeinta uppeldisfræði hefur þveröfug áhrif á getu og vilja barnsins til að tjá sig I mynd. Ef myndir barnsins eru ekki viðurkenndar og skiidar af fullorðna fólkinu, uppfyllir myndgerðin ekki þá brýnu þörf barnsins að tjá sig f mynd. Annað hvort fer þá barnið að teikna myndir fyrir sig sjáift sér til ánægju eða þaö lætur undan kröfum þeirra fuilorðnu og beygir sig undir formmál þeirra. 1 þvi tilfelli verður barn- ið oft óöruggt með sig sjáift, sjálfsgagnrýni vex óhófiega og smámsaman hættir þaö að gera myndir.... ... Á timum aukinnar iðnvæð- ingar verður ekki gengiö fram hjá þeirri staðreynd, að ineginhluti þjóöarinnar vinnur að verklegum störfum, og hiýt- ur sá stóri hluti að eiga rétt til góðrar undirstöðukennslu i verklegum greinum þegar i æsku. Mikilvægt er, að sá náms- kjarni verkmennta, sem lagður er, sé skipuiagður þannig, aö hann veröi tenging til atvinnu- greina þjóðlifsins. Fram til þessa hefur verkkunnátta alþýðu manna veriö á háu stigi og á mörgum sviðum til fyrir- myndar, en nú á timum neyslu- þjóðfélags er verkkunnátta almennings I hættu-, verður þvi að teljast skylda okkar við framtiðina að viðhalda þessum menningarþætti þjóðarinnar, en giata honum hvorki né rýra. Tii að svo megi verða, hljóta verk- menntir að skipa vegiegan sess i skóiakerfinu... Námsskrárnefnd mynd- og handmennta. Sitjandi frá vinstri: Katrfn Pálsdóttir myndlistarkennari, Hólmfrfður Arnadóttir kennari viö KHl, Sigriður Halldórsdóttir vefnaðarkennari og Ingimundur ólafs- son smiðakennari. Standandi frá vinstri: Júllus Sigurbjörnsson smiðakennari og Þórir Sigurðsson eftir- litskennari og formaöur nefndarinnar. Hugmynd myndiöanefndar að skipuiagi húsnæðis fyrir kennslu mynd- og handmennta. Sagt frá endurskoöun kennsluhátta í teiknun, smíðum, hannyrðum, vefnaði og skyldum greinum. — Rætt við Þóri Sigurðsson og Hjálmar Þorsteinsson um tilraunakennslu sem fram fór f fjórum skólum f vetur. Margrét Jónsdóttir leiðbeinir 8 ára akurnesingum viö leirmótun. Krossfestingin eftir 8 ára listamann. í vetur fór fram I fjórum skól- um á landinu tilraunakennsla I tveim fyrstu bekkjum barna- skóla. Þar voru gerðar tilraunir með nýja kennsluhætti i náms- gr. sem hlotið hefur nafnið mynd- og handmenntir. Þessi grein spannar og samþættir teiknun, smiðar, hannyrðir, vefnað, leir- mótun og fleiri skyldar greinar. Forsaga þessa máls er sú að 29. desember skipaði menntamála- ráðuneytið nefnd sem hlaut nafn- ið Myndiðanefnd. Hún var ein af fjölmörgum nefndum sem starfa skyldu að þeirri endurskoðun námsskrár og kennsluhátta sem grunnskólalögin gera ráð fyrir. í nefndinni áttu þessir sæti: for- maður var Kjartan Guðjónsson kennari við Myndlista- og hand- iöaskólann og aðrir nefndarmenn Gislrún Sigurbjörnsdóttir kennari við Réttarholtsskóla, Gunnar Klængsson kennari við Kennara- háskólann, Hólmfriður Árna- dóttir kennari við sama skóla, Július Sigurbjörnsson kennari við Hvassaleitisskóla, Katri'n Páls- dóttir kennari við Lækjarskóla i Hafnarfirði, Valgerður Briem kennari við MHÍ og Þórir Sigurðsson eftirlitskennari. Samræmd námsgrein I erindisbréfi nefndarinnar er hlutverki hennar lýst þannig: Til- lögugerð nefndarinnar skal grundvölluð á þeirri meginstefnu, að I barna og gagnfræðaskólum skuli gerð tilraun með samræmda námsskrá og kennslu myndlista og handiða. Er áformað, að kennsla I hinni samræmdu náms- grein — myndið — verði i forskóla og á fyrstu árum barnaskóla byggð á sameiginlegum stofni frjálsrar myndlistar og handiða. Sfðan verði gert ráð fyrir þvi, að námsefnið greinist að nokkru i þætti og að nemendur geti þ.á.m. — varðandi tiltekinn hluta náms- timans — valið milli ýmissa greina lista og handiða. Jafnan skal þó séð fyrir nánum tengslum allra námsefnaþátta, þannig að myndíð verði I reynd samræmd námsgrein. Auk þessa átti nefndin að gera tillögur um markmið námsins, kennslumagn, meginatriði náms- efnis og röðun þess á 9 námsár, tengsl myndiðanáms við aðrar greinar, kennsluaðferðir og kennsluskipulag, námsmat, framhaldsvinnu að námsefni, vinnuaðstöðu (þ.á.m. húsnæði), kennslutæki og menntun kennara. Leikur að legg og skel Nefnd þessi skilaði áliti i júni 1973 og hafði þá breytt nafni námsgreinarinnar i mynd- og handmenntir. Við berum fyrst niður I kafla sem ber heitið „Heildarmarkmið mynd- og handmennta”. Þar eru markmið kennslunnar I greininni m.a. orð- uð svo: 1. Stuðlun að viðsýnum náms- viðhorfum skólaskyldrar æsku, að námskvöð verði vettvangur á- hugasviða og námsnautnar, nem- endur verði læsir á umhverfi sitt og sjálfbjarga f verki. 2. Skapandi tilraunastarf með fjölbreytilegan efnivið, unnið með margvlslegum tækjum og aðferð- um, þannig að hver verkmátinn æfist strax frá blautu barnsbeini sem leikur að legg og skel og tengist I verkefnavali öðrum skyldunámsgreinum grunnskól- ans. 3. Lita-, forms- og efnisþekking verði samhæfð núti'ma afstöðu til vinnutækni og myndgildis, mótuð af sögulegri yfirsýn um mynd-, verkmenntunar- og tækniþróun sem þátt umhverfismótunar hvers timabils mannkynssögunn- ar, þannig að fortiðin auðveldi nemendum skyggni á þau nútima viðhorf, er varða náttúruvernd og vistfræðilega ábyrgð, sem mað- urinnber gagnvart umhverfi sinu i allri áætlun um framtiðarþróun verkmennta. Látum þetta nægja um mark- miðin en snúum okkur að leiðun- um, þeim breytingum sem nefnd- in bryddar á að gerðar verði á kennsluháttum. Kennsla hefst fyrr — timum fjölgar Fram til þessa hefur kennsla i smlðum og hannyrðum hafist i 3. bekk barnaskóla en teiknun ári siðar. Nefndin leggur til að þessi kennsla hefjist strax i 1. bekk til að byrja með en að hún nái siðar meir til forskólans. 011 skipting verkefna eftir kynjum á að hverfa. Lagt er til, að kennslu- stundum verði fjölgað. 1 tillögum nefndarinnar er gert ráð fyrir að þær verði 4 á viku i 1. og 2. bekk, 6 13.-6. bekk en i' 7.-9. bekk verði 4 skyldustundir og 2—3 valtimar. Nái þessar tillögur fram að ganga verður það alger nýbreytni að nemendur fái að miklu leyti frjálsar hendur um val á við- fangsefnum á þessu sviði en þar er af mörgu að taka. Það er svo annað mál, hvort þessi fjölgun kennslustunda nær fram að ganga þar sem hinar ýmsu kennslugreinar bitast hart um tima barnanna. Þessar grein- ar hafa löngum átt undir högg að sækja og margir skólastjórar fallið I þá freistni að skera niður verklegar greinar vegna ágangs þeirra bóklegu. Vonandi verður þó ofan á sú aukna athygli sem ráðamenn hafa sýnt verkmennt- un að undanförnu, a.m.k. i orði. Hitt ber svo einnig að lita á að myndmál verður æ rikari þáttur i umhverfi manna og þvi brýn þörf á að kenna börnum að skilja kjamann frá hisminu I öllu þvi myndaflóði sem dengt er yfir þau úr sjónvarpi, blöðum og viðar. Að rækta gagnrýni. Næstu kaflar nefndarálitsins eru ýtarlegar tillögur um hvað skuli kenna i hinum einstöku greinum og er það of langt mál til að þvi verði gerð einhver skil hér. Sameiginlegt einkenni þeirra er að stefnt er að þvi að vikka svið kennslunnar, gera hana fjöl- breyttari. Við skulum taka dæmi af teiknun. Fram til þessa hefur teikni- kennslu verið ansi þröngur stakk- ur sniðinn og kennarar haft litið svigrúm til athafna þótt margir hafi unnið afrek miðað við að- stæður. Hafa þeir yfirleitt orðið að takmarka kennsluna við einföldustu atriði teiknunar og litameðferðar. í tillögum nefnd- arinnar er hins vegar gert ráð fyrir að ekki verði látið staðar numið við hreina myndsköpun heldur verði barninu kennt að lesa i mýndir. Myndin — hvort sem það er teikning, málverk, ljósmynd, kvikmynd, sjónvarps- mynd — er tengd umhverfinu, viðfangsefni hennar skoðað og rætt, tæknin sem hún byggir á og siðast en ekki si'st er nemandaiv um kennt að beita þeirri tæjprti. Lögð skal rækt við að ala með honum gagnrýni, jafnt fagur- fræöilega sem efnislega. Þetta má segja að gildi um myndhliöina. Um verkmennta- fögin segir m.a. svo: — Efla skal virðingu nemenda fyrir góðu handbragði, fornu sem nýju, og miða að þvi, að hver nemandi nái þeirri hæfni að geta frjálslega og með öryggi tjáð hugmyndir sin- ar... Markmið hannyrðakennslu er að kenna ýmiss konar vinnu- brögð, vekja sköpunargleði hvers nemanda, glæða með þeim feg- urðarskyn og smekkvisi. Þá fjallar álitið um skörun mynd- og handmennta við aðrar námsgreinar grunnskólans. Vita- skuld er þar um margvisleg tengsl að ræða og skulu nefnd nokkur dæmi. Smiðar og hann- yröar tengjast sögu og samfé- lagsfræðum að þvi er varðar vinnubrögð, vinnuhætti og verk- færi, stærðfræði um mælingar efnis, islensku með orðum og orðasamböndum sem runnin eru frá fomum vinnuháttum, efna- fræði að þvi er tekur til hráefna o.s.frv. Teiknun tengist t.d. eðlis- og efnafræði að þvi er varðar lit- róf og samsetningu lita, stærð- fræði tengist mjög myndbygg- ingu, hlutfallaskynjun og fjar- viddarteiknun, tónlist og teiknun falla mjög vel hvort að öðru, listasaga er drjúgur þáttur mannkynssögunnar, náttúran er ótæmandi brunnur viðfangsefna fyrir teiknara og svo mætti lengi telja. Framkvæmdir Siðari helmingur álitsins fjallar um framkvæmdahliðina. Þar eru gerðar tillögur um námsbækur, t.d. er bent á leiðir til að láta námsbækur i öðrum fögum skar- ast -vit) mypd- og handmenntir. Einnig er þar fjallað um náms- mat. Næst er fjallað um húsnæði fyrir mynd- og handmenntir. Húsnæði fyrir þessar greinar hef- ur löngum verið hálfgerð horn- reka við skólabyggingar, oft er það látið mæta afgangi og tefst þvi iðul. ef fé er af skornum skammti. I álitinu segir m.a.: — Myndiðanefnd vill eindregið and- mæla þeirri áráttu skólayfirvalda og þeirra sem hanna skólabygg- ingar að ætla kennslustofum stað ikjallara. Það hefur iðulega orð- Þessir sómamenn eru að fagna áramótum. Atvinnulifið býöur upp á margvisleg viðfangsefni fyrir 8 ára barn vopnað tússlitum. Þessi náttúrulifsmynd 8 ára akurnesings er saumuð undir handleiðslu Sigurlaugar Guömundsdóttur. ið hlutskipti mynd- og hand- menntagreina að vera holað niður I slikar vistarverur. Þess konar kennslustofur hljóta að hafa bæði þrúgandi áhrif á nemendur og kennara. Siðan eru tiundaðar tillögur nefndarinnar um húsnæði sem hæfir þessum grenum. Gert er ráö fyrir að höfuðgreinarnar þrjár, teiknun, smiði og hannyrð- ar, fái rúmgóðar stofur búnar fjölbreyttum verkfærum, val- greinar fái ýmist sérstofur eða sameiginlegar og loks verði sér- stakt húsnæði — kjarni — þar sem hægt er að stunda hópkennslu fyrir allt að 60 nemendur, þar á að vera handbókasafn og aðstaða til sýninga á kvikmyndum og skuggamyndum. Þetta húsnæði þarf svo að tengjast sérstofum eða verkstæðum þannig að allur samgangur sé auðveldur og þar með að hægt sé að láta skörun námsgreina njóta sin til fulls. Sérstakur kennaraskóli. Næsti kafli fjallar um menntun kennara. Þar er bent á i upphafi aö aukin skörun námsgreina krefjist þess að menntun allra kennara við grunnskólann verði samræmd, þ.e. að ein og sama stofnunin annist hana. Nú fer kennaranám i mynd- og hand- menntum fram i tveimur skólum, teiknun og vefnaður i Myndlista- og handiðaskólanum og smiðar og hannyrðar við Kennarahá- skólann. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að við svo búið mætti ekki standa þar sem þessir skólar eru ólikir að allri gerð og ekkert samband á milli þeirra. Gerir hún það að tillögu sinni að stofnaður verði sérstakur skóli, mynd- og handmenntakennaraskóli, sem taki við nemendum úr áðurnefnd- um skólum og eirinigmenntaskól- um, fósturskólum og fjölbrauta- skólum og veiti réttindi til kennslu eftir 1—3 ára nám, lengd- in ræðst af undirbúningi nemand- ans og þvi til hvaða skólastiga kennsluréttindin ná. __ Næstu kaflar fjalla um kenn- araþörf á sviði mynd- og hand menntakennslu — niðurstaða: 486 kennara þarf til að annast alla kennslu i þessum greinum i grunnskólanum — námsstjórn og eftirlit, innkaupastofnun til að kaupa efni og tæki vegna mynd- og handmenntakennslu og ferðir á söfn og sýningar. Nefndarálitinu lýkur svo á ýt- arlegri framkvæmdaáætlun. Er gert ráð fyrir að 10 ár taki að koma kennslunni i endanlegt horf. Á þeim tima þarf að halda kennaranámskeið, endurskoða námsskrár, námsefni og náms- mat, kynna námsefnið og prófa það og koma á kennslueftirliti. Áætlunin hefur staðist Til þess að annast framkvæmd- ir var i ársbyrjun 1974 skipuð Námsskrárnefnd mynd- og hand- mennta (sjá mynd). Formaður þeirrar nefndar er Þórir Sigurðs- son eftirlitskennari og fengum við hann til að segja okkur stuttlega frá helstu störfum nefndarinnar. — Meginverkefni nefndarinnar er að semja námsskrá i þessari grein og að fylgja eftir áætlun myndiðanefndar. Við höfum haldið vikulega fundi og eigum að skila drögum að námsskrá I sum- ar. — En hvað með áætlunina, hef- ur hún staðist? — Já, hún hefur staðist að mestu leyti og ekkert af þvi sem hún gerir ráð fyrir hefur verið fellt út. Við höfum haldið námskeið fyrir þá kennara sem hyggjast taka að sér tilrauna- kennslu i greininni og komið. þeirri tilraunakennslu af stað. Þess utan höfum við leyst úr dag- legum vandamálum og raunar farið með námsstjórn i greininni fyrir allt landið. Kennarar og skólastjórar leita til okkar i vax- andi mæli. Við höfum veitt ráð- gjöf varðandi húsnæðismál grein- arinnar, bæði vegna nýbygginga og endurbóta á gömlu húsnæði. Þá veitum við ráðgjöf varðandi endurmenntun kennara og höfum haft hönd i bagga með kennara- námskeiðum, bæði úti um land og á vegum Kennaraháskólans. Námsstjóri skipaður — Geturðu sagt okkur frá til- raunakennslunni? — Hún fór fram i fjórum Framhald á 22. siðu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.