Þjóðviljinn - 03.03.1977, Qupperneq 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 3. mars 1977
Maí verði breytt
á sama hátt og
Víkingi
Opið bréf tii Þorsteins Glsla-
sonar, skipstjóra, varafiski-
málastjóra varaalþingismanns
og formanns stjórnar Sildar-
verksmiðja rlkisins:
Þetta bréf er ritað i tilefni
komu hins glæsilega skips Vik-
ings AK 100 til Akraness, eftir
breytingu þá sem gerð var á
skipinu I nótaskip i Noregi, og
margir horfðu á i sjónvarpinu er
lagðist að bryggju. Samkvæmt
umsögn mins gamla útgerðar-
manns og framkvæmdastjóra,
Valdimars Indriöasonar, kost-
uðu þessar gagngeru breyt- '
ingar, sem orönar eru á skipinu,
ekki nema um 200 miljónir
króna. I tilefni af þessu langar
mig til þess aö beina athygli yð-
ar, herra formaöur stjórnar
Sildarverksmiðja rikisins, að
þvi að þér beitiö öllum þeim
möguleikum, sem þér hafið yfir
að ráða, til þess aö rikisverk-
smiöjurnar, annaðhvort Sildar-
verksmiðja rikisins á Raufar-
höfn eöa Sildarverksmiðja
rikisins á Siglufiröi, kaupi
togarann Mai GK 346, systur-
skip Vikings AK 100, og að skip-
in verði þá gerð út af þessum
verksmiöjum, annarri eða báð-
um, eftir að gagnger breyting
hefur átt sér staö á Mai, saman-
ber breytinguna á Vikingi. Þvi
aö það blæðir mér mjög i aug-
um, sem gömlum skipverja á
Vikingi AK 100, aö sjá systur-
skip hans bv. Mai grotna niöur
bundinn við bryggju suður I
Hafnarfjarðarhöfn, þar sem
skipiö hefur legiö um margra
vikna skeiö, og það um hábjarg-
ræðistimann á loðnuvertið
þeirri, er nú stendur yfir og á ef
til vill eftir að verða sú gjöful-
asta vertið, sem íslendingar
hafa átt að fagna i mannaminn-
um.
Ég vil taka fram, að undirrit-
aöur fór ungur að stunda sjóinn,
liölega fjórtán eða fimmtán ára
gamall, og hefur siðan stundað
sjó á alls konar skipum, stórum
og smáum, i flota okkar Islend-
inga. Og það þori ég að fullyrða,
að ekkert af þeim skipum sem
ég hef komiö út i, hafa verið
betri og hæfari sjóskip en Vik-
ingur AK 100 og systurskip
hans.Má i þvi sambandi nefna
sjóhæfni og ganghraða (loggar:
14,2 sjómilur), snúningslipurð
skipanna, sem er geysigóð og
vélar, sem eru með eindæmum
góöar, en þær eru af hollensku
gerðinni Spoorwerk. Þá eru all-
ar vistarverur skipverja mjög
góðar og lestarrými gott og
miki&Með tilliti til alls þessa er
það blóöugur fjandi, ef á að fara
að gefa þetta skip úr landi, eins
og heyrst hefur aö standi til,
fyrir 30 miljónir króna.
Hún er ekki á horriminni
islenska þjóðin I dag, þótt blöðin
séu full af allskonar vaöli og
slúðri frá degi til dags, ef eitt
bæjarfélag eins og Hafnarfjörð-
ur fær heimild rikisstjórnarinn-
ar fyrir þvi aö láta þetta skip
hverfa sjónum islenskrar
þjóðar fyrir fullt og allt. Og vil
ég svo taka fram að lokum, að
ónkt sýndist mér það ’vænlegra
fyrir land og þjóð að verksmiöj-
ur rikisins á Raufinni yrðu látn-
ar njóta þessa góða skips, og að
það yrði i framtiðinni látiö
draga afla á land til heilla fyrir
alþýðu manna noröur við
Dumbshaf.
Arni J. Jóhannsson.
VERÐLAUNAGETRAUN Hvaö heitir skipiö?
?
Aö þessu sinni birtist mynd af
skipi nr. 18 i skipagetrauninni.
Hvað heitir skipiö? I þessari
viku birtast myndir af fimm
skipum frá þriðjudegi til
laugardags (nr. 16—20). Ef þú
veist nöfn þeirra allra sendu
þau þá til Póstsins, Þjóöviljan-
um, Siðumúla 6 og þú átt von á
verðlaunum.
Að þessu sinni verður veitt i
verölaun bókin Reykjavlk 11100
ár sem Sögufélagiö gaf út I til-
efni af þjóðhátlðarárinu 1974.
Dregið verður úr réttum lausn-
um.
Einn af 10 diseltogurum sem á slnum tima voru keyptir til tslands. Þessi var skirður I höfuðið á reyk-
vlskri konu.
I HANA HEKLU
Þeir sem halda að leigubil-
stjórar séu ómerkilegir vaða i
svima. Margir hafa ekið svo
lengi sem elstu menn muna og
viðað að sér þekkingu með sam-
tölum við farþega, háa sem
lága, snjalla sem heimska, fulla
sem ófulla og athugað atferli
þeirra gaumgæfilega i bak-
sýnisspegli og hlustað opnum
eyrum á hljótt hjal sem stund-
um er i aftursætinu.
Ég hef tekið eftir þvi að speki
leigubilstjóra er i réttu hlutfalli
við hvað þeir aka hægt. Sumir
aka mjög hægt. Þegar litið er að
gera hafa þeir lika nógan tima
til að hugsa undir stýri. Sumir
eru heimspekingar og ráð-
snillingar. Aðrir eru ber-
dreymnir og segja farþegum
drauma.
Um daginn tók ég mér bil. Ég
settist i aftursætið niðursokkinn
I veraldlegar og ómerkilegar
hugsanir eins og mér er gjarnt
til.
Skyndilega kveður bilstjórinn
upp úr eins manns hljóði:
,,Nú er stutt i hana Hekiu.”
„Ha!” hvái ég.
„Nú er stutt i hana Hekiu”,
endurtekur hann.
„Jæja”, segi ég.
Nú varð spakleg vangaveltu-
þögn.
„Hvað hefurðu til marks um
það?” segi ég loks.
„Ég sá það fyrir nokkrum ár-
um. Það verður um nótt”.
„Jæja,” segi ég.
„Ég sá Heimaeyjargosið
nokkrum árum áður en það varð,
og nú er svipaður timi liðinn. Ég
sá Surtseyjargosið og Heklugos-
ið siðasta.”
„Jæja, já”, segi ég, „þetta er
býsna merkilegt.”
„Svo sá ég eldsvoðann á
Mön.”
„Ha?”. segi ég.
„Já, manstu ekki eftir hon-
um? Þar fórst fjöldi manns.”
„Jú, mig rámar eitthvað i
hann”, segi ég.
„Mig dreymdi fyrir honum og
sagði konunni minni. Svo
kveiktum við á morgunút-
varpinu og þá var sagt frá elds-
voðannm á Mön. Þar fórst f jöldi
manns. Ég sá hvar eldurinn
kom upp. Efsta hæðin varð al-
elda á svipstundu.”
„Þetta er merkilegt”, segi ég.
„Svo var mér sýndur staður
þar sem bora má eftir oliu. Það
var framliðinn maður sem
sýndi mér þetta. Það er i
Rangárvallasýslu. Þessir sér-
fræðingar tækju bara ekkert
mark á mér þó að ég segði þeim
frá þvi.”
„Nei liklega ekki”, segi ég.
Svo var bilferðin búin. Ég
steig út úr bilnum og hann
silaðist i burtu. Eftir stóð ég i
svölum andvara góðveturs og
klóraði mér i kolli.
Um leið og ég gekk inn i Þjóð-
viljahúsið leit ég eins og óvart i
austurátt,en þar var ekkert að
sjá. —GFr
ALDARSPEGILL
Ur íslenskum blöðum á 19. öld
Iljcr imct) cr öllum fyrirboðið að ríða hart
cða rcka hart hcsta um stueti Akurcyiar kaup-
slaðar frá kongsvörðu í suður, mega þeir er
uppvísir verða úm slíkt, búast við að verða
fyrir pölitírjctti sektaðir fyrir reið sína. Söniu-
lciðis fyriibytst að siga linndum ;í lausa hesla
á strætuin biujarins og mega þcir er slíkt
gjöra, og þeir, scin ekki liindra liunda sína
frá að þjóla í ríðandi mcnn á strætum lia:jar-
ins búaft við að verða sektaðir fyrir pólití-
rjelli kaupstaðarins.
tSkrifittofii ba’Jarfófieta íi Akurt'yri 2Í5. maí 1HÍ54.
8. 'niotaron.scn.
Norðurfari, mai 1864