Þjóðviljinn - 15.03.1977, Blaðsíða 1
UÚÐVIUINN
Þriðjudagur 15. mars 1977 ^—42. árg. —61. tbl.
Reykjavíkurbréfj
• La .gardagur 12. marz «
Við þekkjum
afleiðingar
gerða okkar
Hverjir verða
fyrir barðinu á
verðbólgunni?
éméhÉMÉé
Morgunblaðið
hótar:
4 síður um íþrótta-
og skákviðburðina
Viötal við
Evrópu-
meistarann
í kúluvarpi
SJÁ SÍÐUR 12-15
Kauphækkun skal þýða
KJARASKERÐINGU!
Morgunblaðið reynir nú dag eftir dag að
hræða verkafólk frá stuðningi við kröfuna
um 100 þúsund króna lágmarkslaun á
mánuði.
Siðasta dæmið um þetta er Reykja-
víkurbréf Morgunblaðsins á sunnudaginn
var.
Morgunblaðið viðurkennir að engin f jöl-
skylda geti lifað mannsæmandi lifi á 100
þús. króna mánaðartekjum.
Samt hótar Morgunblaðið þvi, að verði
lágmarkskaupið hækkað i 100 þús. kr. á
mánuði, þá skuii sú kjarabót öll tekin til
baka með skipulagðri óðaverðbólgu.
Óþekkt hegðun, segir Axel Björnsson um Kröflu:
Þetta er
að taka
nýja stefnu
„Mér sýnist að þetta sé allt að
taka nýja stefnu, sem við þekkj-
um ekki frá fyrra landrisi og
sigi”, sagði Axel Björnsson
jarðeðlisfræðingur er við náðum
tali af honum við Kröflu i gær.
„Þegar landris náði hámarki i
september, oktöber og i janúar
sl. voru atburðirnir nær alltaf
eins Skjálftarnir náðu
hundraðinu á sóiarhring,og þeg-
ar landrisið náði ákveðinni hæð,
varð snögglega jarðsig. Nú er
þetta töluvert breytt.
Skjálftarnir hafa verið um 120 á
sólarhring i heiia viku og land-
risið er orðið meira en nokkru
sinni fyrr siðan fyrir Leir-
hnjúksgosið”, sagði Axel.
Hann sagði að ómögulegt
væri að segja til'um hvað þetta
boðaði, þar sem ástand eins og
þetta hefði ekki komið upp áður
á Kröflusvæðinu siðan gosvakt
var sett þar á.
Axel sagði að i gær hefði
Axel Björnsson
skjálftavirknin verið minni en
undanfarná daga, fjöldi skjálfta
hefði verið um 100 yfir sólar-
hringinn og eins hefði landrisið
hægt á sér. Norðurendi stöðvar-
hússins hefur risið um 8,3 mm.
miðað við suðurendann, sem er
meiri hæð en nokkru sinni hefur
áður mælst á gosvaktinni.
„Það er I rauninni ekkert
hægt að segja um ástandið eins
og það er núna, við getum ekk-
ert gert annað en biða og sjá til
hvað setur,” sagði Axel Björns-
son.
—S.dór
TAPA MEST
Verkalýðshreyfingin krefst 100 þús. króna lágmarkslauna og þess að
bilið milli lægstu launa og hæstu minnki mjög verulega.
Morgunblaðiðsegir, aö hinir lægst launuðu skuli tapa mest,verðl laun
þeirra hækkuð úr 70-80 þúsund á mánuðii litil 100 þúsund.
Veröbólgan skal sjá fyrir þvi,segir Morgunblaðiö og býöur fólkinu
sem hefur 75.000 krónur i mánaðarkaup aö hækka I krónur 78.000,- eða
um 4%!!
Verkalýðshreyfingin er ekki að heimta fleiri verðlausar krónur, hún
heimtar kjarabætur I raun. Verkalýðshreyfingin krefst ekki aðeins
þess, að lágmarkskaupið hækki I rúmlega 100 þús. krónur á mánuði.
Hún krefst einnig fullrar verötryggingar á lágmarkslaunin.
Hótun Morgunblaðsins er sú, að rifta sllkum samningum með laga-
boði verði þeir gerðir. Morgunblaðið talar eins og það sé náttúrulög-
mál, að óðaverðbólgan skuii eyðieggjaárangurkjarásamninga.Svo er
að sjálfsögðu ekki, en það eru pólitiskar hótanir, sem búa að baki þess-
um skrifum Morgunblaðsins.
4% KENNINGIN
Samkvæmt kenningu Morgunblaðsins þýöir kauphækkun kjara-
skerðingu. Samkvæmt þeirri kenningu er þá leiðin til bættra llfskjara
væntanlega sú að lækka kaupið enn meir.
Morgunblaðið talar um að pólitlk sé komin í spilið i sambandi við
kjarasamningana I vor. Engin sönnun er betri fyrir þvl,að svo sé, en
einmitt skrif Morgunblaðsins sjálfs sem hótar þvl að pólitlskum að-
geröum skuli beitt til að gera árangur kjarasamninga að engu, verði
samningarnir ekki I samræmi við 4% kenningu Morgunblaðsins.
En fólkið i landinu getur ráðiö þvi hvort það gefur núverandi
stjórnarflokkum tækifæri til slikrar pólitlskrar valdbeitingar.
Við væntum þess að láglaunafólk á Islandi láti ekki MorgunblaðiC
telja sér trú um að kjörin séu og verði þeim mun betri eftir þvl sem
kaupið sé lægra.
- k.
FUNDUR RÍKISSTIÓRNAR OG ASÍ í GÆRs
5 starfshópar um pólitísku
t gær gekk 36 manna samninga-
nefnd ASÍ á fund rikisstjórnar-
innar og lagði formlega fram
pólitiskar kröfur sinar til rikis-
valdsins. Fundurinn fór fram I
ráðherrabústaðnum og stóð i um
tvær klukkustundir. Að
sögn Guðjóns Jónssonar, for
manns Málm- og skipasmiöa-
sambandsins, sem á sæti i
samninganefndinni, tók rlkis-
stjórnin vel i að hefja nú fljótlega
viðræður um þessi mál þó að sér-
kröfur einstakra félaga séu ekki
fram komnar.
Björn Jónsson forseti ASÍ, af
henti forsætisráðherra greinar-
gerð Alþýðusambands tslands frá
16. febrúar sl. um hvernig megi
auka svigrúm til kjarabóta og
tryggja fulla atvinnu án þess aö
kröfurnar
það leiði til verðbólgu (Sjá Þjv.
26. febr.). Svaraði Geir Hall-
grimsson siðan með nokkrum
orðum og tók vel I að hefja
samningaumræður eins og áður
sagði.
Guðjón Jónsson sagöi I samtal-
inu við Þjóðviljann að samninga-
' nefndin hefði lagt áherslu á aö
viðræðurnar gætu hafist mjög
fljótlega og áöur en samninga-
viðræöur við atvinnurekendur
héldu áfram, en ekki er búist við
sérkröfum frá einstökum sam-
böndum og félögum fyrr en
eftir 20. mars.
Bjóst Guöjón við að fljótlega
yrði myndaðir starfshópar rikis-
stjórnar og ASt um eftirtalin
mál: 1. llfeyrissjóðsmál, 2.
skattamál, 3. húsnæðismál, 4.
vinnuverndarmál og 5. dag-
vistunarmál.
Torfi Hjartarson sáttasemjari
rlkisins sat fundinn I gær— GFr
Rikisstjórnin bauð upp á kaffiog kökur I gær,en pólitlskum kröfum ASt
er ósvarað enn. Lengst til vinstri er Torfi Hjartarson sáttasemjari.en
slðan koma fjármálaráðherra, forsætisráðherra og dómsmálaráð-
herra. Andspænis þeim má ma. sjá Björn Jónsson forseta ASt og
Snorra Jónsson varaforseta ASt (Ljósm.: GEL)