Þjóðviljinn - 10.04.1981, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 10.04.1981, Blaðsíða 15
frá El Hringiö i sima 81333 kl. 9-5 alla virka daga, eöa skrifiö Þjóöviljanum lesendum Þröngsýnismeinvörp og fordómasmíð kirkjunnar Nú fyrir skömmu lauk i sjön- varpi þátturruim hin ýmsu trúar- brögð mannkynsins, sem báru nafnið Leitin mikia. i iokaþætt- inum komst stjórnandi þáttar- ins svo að orði, eftir að hafa rætt við flesta andans menn á jarð- kringlunni: ,,Ef aliir stofn- endur trúarbragða og helstu mikiimenni þeirra væru samankomnir hér inni i þessu herbergi þá er ég viss um að á milli þeirra myndi rikja gagn- kvæm virðing. Kyrrlátar sam- ræður myndu eigá sér stað eða . jafnvel rikja þögn. Ef hingað væru hinsvegar komnir fylgj- endur þessara manna og helstu umboðsmenn þeirra, myndu þeir innan skamms vera komnir i hár saman, fara að slást og aö lokum skjóta hver á annan úr vélbyssumi’. Meðan þessi orð lifa ennþá fersk i huga landsmanna, þorir kirkjan að bjóða hingað dönsk- um klerki, Johannes AgSrd að nafni, sérfræðingi i yfirburðum kirkjunnar yfir öllum öðrum trúarbrögðum og öðrum and- legum visindum. Þessir yfir- burðir kirkjunnar eru fengnir með þvi að súrra saman óhróðri um alla aðra sem hafa látið ein- hver andleg spakmæli sér um munn fara. bessi vinnubrögð minna óneitanlega á kristni- fræðikennarann hans Andra i sögunni..., — „betta er yndis- legasti sálmur islenskrar tungu, andvarpaði séra Uni dasaður. Siðan byrjaði hann að gera ýmis trúarbrögð hlægileg: ,,í Búddasið trúa menn j>vi að þeir geti breyst i ánamaðk, Mú- hamestrúarmenn mega eiga margar konur en ekki borða svin”. Þegar önnur trúarbrögð voru orðin óæt rann kristindóm- urinn ljúflega ofan i þau”. Aðgreining og sjálfsupphafn- ing er andstæð heimspeki An- anda Marga. Við teljum að and- leg visindi og ýmis trúarbrögð séu af þvi góða. Þau öfl sem greina mennina að, þ.e. flokka þá i bása eftir gæðum og trúar- brögðum, eru i grundvallar- atriðum slæm. Þannig vinnur kirkjan gegn þvi að almenn- ingur fái að sjá hlutina i sam- hengi og reyni að finna skyld- leika allra andlegra kenninga en vinnur i stað þess við aö draga imynduð landamæri milli kenninga Krists og annarra fræðara. Það er helst gert með skitkasti. Þetta heitir þröng- sýni. Hér fylgja nokkur dæmi um glósur sem hinn danski doktor lét fjúka i þvi helga húsi Hallgrimskirkju, i garö þeirrar hreyfingar sem mér er annt um: „Félagsþjónusta Ananda Marga er lymskulegt herbragð til þess að koma heiminum undir stofnanda hreyfingar- innar, Shri Shri Anandamurti. Sammerkt með öllum félögum i Ananda Marga er að þeir hafa fengið brenglað uppeldi. An- anda Marga hreyfingin er fasisk. Stofnandi hreyfingar- innar er hommi. (Hið siðast- nefnda er enn eitt dæmið um að- för að homosexualistum.) Siðan vék „visindamaðurinn” máli sinu að Andlegum fræðurum (guru) á Indlandi. „Þar þykir heiður aö fá að drekka baðvatn þeirra”, sagði hann. Þá sá biskup Islands sig knúinn til þess að risa úr sæti og bæta við „Og hlandið úr þeim lika”. Þessi málefnalegi fræði- maður var að miklum hluta til kostaður af Háskóla tslands. — Hinar ýmsu deildir Háskóla Is- lands þurfa árlega að bitast um 7 dýrmæta styrki sem nota á til þess að bjóða virtum fræöi- mönnum hingað til fyrirlestrar- halds i Háskólanum. Þurfa sumar deildirnar að biöa árum saman eftir að styrkurinn falli i þeirra hlut. Þennan styrk notaði Guðfræðideildin og þjóðkirkjan til þess að sinna eiginhags- munasnatti og skltkasti úti i bæ. Þessi maður er fenginn hingað til lands af þeirri stofnun sem sér um menntun flestra þeirra manna sem kenna hina hlutlausu og viðsýnu trúar- bragðafræði i grunnskólum landsins. (Trúarbragðafræði er þó viða ekki kennd þó svo að hún hafi verið á námsskrá um nokk- urt skeið.) Það er stefna' Ananda Marga að gagnrýna ekki trúarbrögð, en okkur þykir það miður ef- skynsemi er bannorð i andleg- um visindum og ef kirkjunnar menn kunna ekki að greina milli hagnýtra æfinga til hugarskýr- leiks, annars vegar, og yfirlýs- inga og játninga i fjölmenni um trú á þetta eða hitt, hinsi- vegar. Ég vona að ég hafi engan kristinn mann sært með þessum skrifum. Andrés Magnússon. Svör við gátum 1. Á n. 2. Hægri olnboginn. 3. Tíminn. 4. Lífið. 5. Leyndarmál. Barnahornid <irnro Pappa eða þykkan pappir. Liti og blýant. Sand. Lim. Dagblöð. 1. Breiddu dagblöð yf ir borðið sem þú vinnur á. 2. Teiknaðu einfalda mynd á blaðið eða pappann. Ákveddu á hvaða hl uta sandurinn á að vera. 3. Litaðu það sem sandurinn á ekki að vera á. Láttu þorna vel ef þú notar vatnsliti. 4. Berðu lím á það ólitaða. 5. Stráðu sandinum á blautt Ifmið og reyndu að þekja fletina jafnt. .Láttu límið þorna. 6. Hristu myndina létt svo lausi sandurinn fari af. 7. Hreinsaðusvoallt vel eftir þig. Föstudagur 10. april 1981 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15 ymsum löndum Hasar í Líbanon Meöal viöfangsefna Frétta- spegils ikvöld veröur ástandiö i Líbanon, senv mjög hefur verið i fréttum aö undanförnu. Blóðug átök hafa nýlega bioss- að þar upp rétt eina feröina. Ögmundur Jónasson frétta- maöur kvaöst ætla aö ræöa úm Libanon viö Arnór Sigurjóns- son, Isiending sem er i norska hernum og hefur veriö i Libanon i hálft ár meö gæslu- liði Sameinuöu þjóöanna. Geimferjan bandariska, sem skotið er á loft i dag, verður erlent viðfangsefni númer tvö. Ferja þessi á sér skrautlega sögu, hún er 3 ár- um á eftir áætlun og kostnað- urinn hefur lika farið fram úr öllum áætlunum. Flestir eru A M Sjónvarp f"F kl. 21,15: sammáia um að hún boði miklar framfarir i geimvis- indum, en jafnframt eru menn uggandi um hernaðarhlutverk hennar, og telja sumir að til- koma hennar sé fyrsta skrefið i átt að geimstriði. Af Islenskum vettvangi verða tvö mál tekin fyrir: dragnótaveiði i Faxaflóa og jafnréttisfrumvarp Jóhönnu Sigurðardóttur alþingis- manns. Ingvi Hrafn Jónsson sér um Islandshliðina á Fréttasþegli. Tónlist Tónlistin i útvarpinu I dag er af ýmsum toga spunnin. 1 morgunútvarpinu fáum viö t.d. aö heyra tvö verk eftir Woifgang Amadeus Mozart: Fiautukvartett I D—dúr og Dúó i B—dúr fyrir fiðlu og víólu. Þaö veröa ljúfir tónar. Fyrir hádegi fáum viö lika aö heyra spænska gitartónlist, sem ætti að örva blóðrásina og hrista úr fólki sleniö. Spán- verjar hafa áttmárga frábæra gitarista gegnum aldirnar, enda er gitarinn þeirra þjóö- arsál. Eftir hádegi kynnir Margrét Guðmundsdóttir óskalög sjómanna, og blessuö börnin fá lika að heyra sin uppáhaldslög kl. 17.20 þegar Helga Þ. Stephensen kemur að hljóðnemanum. Þá verða reyndar afstaðnir siödegistón- leikar þar sem gefur að heyra tónverk eftir Weber, William Jón Múii — rúsínan i pylsu- endanum Boyce og Jan Ladislav Dussek. Poppið kemur eftir kvöld- mat, i umsjá Gunnars Salvarssonar, og siöar um kvöldið verður útvarpað dag- skrá frá Berlinarútvarpinu. Þar leikur útvarpshljómsveit- in i Berlin undir stjórn David Shallons frá ísrael, og einleik- ari á fiðlu er Kolja Blacher frá Berlin. En rúsinan I pylsu- endanum kemur ekki fyrr en kl. 23.05: djassþáttur Jóns Múla. Atök hafa nú blossaö upp aftur íl Libanon. Þessi mynd er frá höfuöborginni, Beirút. Ekki eru allar f eröir til f jár, gæti Leó litli veriö aö hugsa. Krakkaormarnir Hefur ykkur aldrei langaö til aö gera at i löggunni, les- endur góöir? Aöalpersónan I föstudagsmynd sjónvarpsins, 11 ára strákur aö nafni Leó, er uppfuliur af þessari löngun, og hann lætur þaö eftir sér, sem er þó nokkuð sjaldgæft. Myndin heitir Krakkaorm- arnir, og er svotil ný, bresk sjónvarpsmynd. Handritið er eftir S. Poliakov, en leikstjóri er Stephen Frears. Jack Douglas og Derrick O’Connor leika löggur, og Richard \ Sjónvarp kl. 22,25: Thomas og Peter Clarke leika Leó og vin hans, sem tekur þátt i atinu. Þetta grin hefur þó aðrar og meiri afleiðingar en þá félagana hafði órað fyrir. Þýðandi er Jón O. Edwald. —ih

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.