Þjóðviljinn - 12.11.1982, Blaðsíða 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 12. nóbcmber 1982
DIOÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýðs-
hreyfingar og þjóðfrelsis
Utgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans.
Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan Ólafsson.
Umsjónarmaður Sunnudagsblaðs: Guðjón Friöriksson.
Augiýsingastjóri: Svanhildur Bjarnadóttir.
Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson.
Blaðamenn: Álfheiður Ingadóttir, Helgi Ólafsson, Luðvík Geirsson, Magnús
H. Gíslason, Ólafur Gíslason, Óskar Guðmundsson, Sigurdór Sigurdórsson,
Þórunn Sigurðardóttir, Valþór Hlöðversson.
íþróttafréttaritari: Víðir Sigurösson.
Útlit og hönnun: Andrea Jónsdóttir, Guðjón Sveinbjörnsson.
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Gunnar Elíasson.
Handrita- og prófarkalestur: Elías Mar, Gísli Sigurðsson, Guömundur Andri
Thorsson.
Auglýsingar: Áslaug Jóhannesdóttir, Sigríður H. Sigurbjörnsdóttir.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Jóhannes Haröarson.
Símavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, Kristín Pétursdóttir.
Húsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir.
Bílstjóri: Sigrún Bárðardóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Gunnar Sigmundsson.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir.
Útkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar: Síðumúla 6 Reykjavík, sími 8 13 33
Umbrot og setning: Prent.
Frentun: Blaðaprent h.f.
Alþýðuflokkur
til skiptanna?
• Alþýðuflokkurinn er mjög milli tannanna á
mönnum þessa dagana. Morgunblaðið hefur verið að
reyna að leggja út af nýafstöðnu þingi hans á þann veg,
að þar hafi sigrað eins konar vinstrisveifla og hefur
fordæmt þá villu harðlega. Ekki er ljóst hver hugur
fylgir máli í þeirri fordæmingu, en ljóst er að í Morgun-
blaðinu gætir nokkurrar gremju Sjálfstæðismanna yfir
því, að þeir geti ekki í sama mæli og oft áður skammtað
Alþýðuflokknum ákveðin lífskjör og tilvistarskilyrði.
Eessi gremja hefur m.a. birst í hótunum í þá veru, að
Sjálfstæðismenn verði nú að endurskoða eitthvað sem í
Morgunblaðinu er kallaður velvilji í garð Alþýðu-
flokksins.
• En það eru eins og fyrri daginn foringjar Alþýðu-
flokksins einir og óstuddir sem útvega fréttaefni af
flokki sínum. Fyrir skömmu var mjög hamrað á því í
leiðara í Alþýðublaðinu, að það væri æsifréttamennska
ein að halda, að það skipti nokkru máli þótt tveir menn
kepptu eftir að ná kjöri varaformanns flokksins frá
þingi hans. Þetta hefur reynst afar misskilin varúð hjá
blaðinu. Eins og kunnugter af fréttum tapaði Vilmund-
ur Gylfason orustunni um varaformannsembættið
með litlum mun. Þau úrslit sýnast heldur betur ætla að
draga dilk á eftir sér. Fjölmiðlar birta af því frásagnir að
Vilmundarmenn hyggi á sérframboð um allt land. Og
*má sannarlega sjá minna grand í mat sínum.
• Það á víst ekki af þeim flokki að ganga, svo undar-
lega skiptur sem hann er. Eins og komið hefur fram í
skoðanakönnun Dagblaðsins-Vísis eru um þessar
mundir 10,7% þeirra kjósenda sem einhverja afstöðu
taka reiðubúnir til að kjósa Alþýðuflokkinn. Forystu-
menn Alþýðuflokksins hafa svo huggað sig við það, að
flokkurinn væri þó að minnsta kosti heill í stjórnarand-
stöðunni. En ekki verður sama sagt um fylgið. ekki einu
sinni þessi tæplega ellefu prósent. Sé haldið áfram að
skoða skoðanakannanir, þá munu um sex af hverjum
tíu yfirlýstum stuðningsmönnum Alþýðuflokksins vera
í stjórnarandstöðu, en fjórir af hverjum tíu hallir undir
stjórn Gunnars Thoroddsens. Pær tölur koma og nokk-
uð saman við úrvinnslu úr fyrrgreindri skoðanakönnun
sem Dagblaðið-Vísir birti í gær og lýtur að jafnveiga-
miklu máli um framtíð ríkisstjórnarinnar og afstöðunni
til bráðabirgðalaganna. í úrvinnslu þessari kemur í ljós,
að tæplega 36% þeirra sem Alþýðuflokkinn vilja kjósa
eru fylgjandi bráðabirgðalögum ríkisstjórnarinnar. Og
þar með upp á kant við samanlagðan þingflokk Al-
þýðuflokksins og flokksforystu.
• Þegar nú Vilmundarmenn gera sig líklega til að fara
sína leið, en liðsmenn Kjartans Jóhannssonar og Jóns
Baldvins Hannibalssonar aðra, þá er í raun ekki verið
að skipta 10,7% kjósenda, heldur svona sex og hálfu
prósenti kjósenda landsins. Þá koma rösk þrjú prósent í
hlut, ef jöfnuðar verður gætt í skiptingunni. Pað er nú
allt og sumt.
• Af hverju stafar sá klofningur sem nú sýnist í upp-
siglingu í Alþýðuflokknum? Pað væri freistandi að
rekja hann til skiptingar í hægri og vinstri og eitthvað
blandast slíkar tilhneigingar í málið. En þegar að er
gáð, dugir slík skipting skammt. Við okkur blasa mjög
almennar yfirlýsingar um mismunandi stíl og ólíkar
áherslur. En hvað það þýðir veit enginn.
áb.
klippt
Bannað að
lifa í synd
Sagt er að drjúgur tími hafi far-
ið í það á flokksþingi krata að
ræða hvort ekki væri réttast að
meina fólki að búa í óvígðri
sambúð. í frásögn Alþýðu-
blaðsins af flokksþinginu hafa
umræður um þetta ekki komið
fram. Hins vegar birtir blaðið
mynd með ályktuninni um fjöl-
skyldumál, þar sem lítið og fail-
egt lamb prýðir forgrunn. Það
kemur trúlega í stað ályktana um
landbúnaðarmál.
Deilunum um óvígðu sam-
búðina lauk sem sagt nokkuð
friðsamlega hjá krötum og ekki
nema fáir sem vilja innleiða
Stóradóm að nýju.
„Guð agar
þann sem hann
elskar”
Það er einmitt um Stóradóm
sem Þorgeir Kjartansson skrifar
bráðskemmtilega grein í nýút-
komnu vönduðu tímariti sagn-
fræðinema (Sagnir)
Við grípum þar niður, þar sem
segir frá ófrelsinu á árdaga Lúter-
skunnar:
„Þetta var ströng bókstafstrú
þar sem merking svo að segja
hvers einstasta orðs Biblíunnar
og Lúthers var skilgreind í eitt
skipti fyrir öll og sérhver vottur
efasemdar harðbannaður með
hnefum og hnúum. Grimmilega
húmorslaus alvara og strangleiki
skyldu nú leggja sína þrúgandi
blessun yfir rammvillta sauðina
og kæfa síðustu glæðurnar sem
enn lýstu af hinum lífsglaða húm-
anisma, þeirri léttúðarpest sem
Jón Arason og svoleiðis dónar
höfðu smitað út frá sér. Maður-
inn skyldi beygja sig í duftið,
kveljast fyrir sakir síns bersynd-
uga eðlis og fagna svipuhöggum
hins heilaga réttlætis í anda þeirra
speki sem hin jarðnesku máttarv-
öld endurtóku í sfbylgju: „Guð
agar þann sem hann elskar“”
Að mergsjúga
lýðinn og
safna gulli
„Að baki þessu kenningafári
má sjá nýja stétt vera að hefjast
til aukinna valda, stétt borgara
sem skelfdist upplausnina og
krafðist raðar og reglu atvinnu-
vegum sínum til bjargar. Hag-
speki þessarar stéttar, merkantíl-
isminn, var í burðarliðunum með
sitt evangelíum: að mergsjúga
lýðinn og safna gulli....
Borgararnir þurftu á að halda
öflugri miðstýringu konungs-
valdsins til að tryggja festuna og í
samræmi við það var nauðsynlegt
að innprenta iýðnum nógu ræki-
lega undirgefni við hið metafýs-
íska miðstjórnarvald sköpunar-
verksins: guðalmáttugan, sem
tróndi líkt og einvaldskonungur
yfir táradalnum, refsiglaður og
duttlungafullur. Allt miðaðistvið
að halda múgnum föstum undir
okinu, gera hvern og einn að
óttaslegnum þræl rétttrúnaðar og
hagskipulags merkantílismans.”
Plássins vegna verðum við því
miður að láta hér staðar numið
enda verður brunnurinn seint
þurrausinn.
-óg
dropar
Snúa Jón Baldvin
og Vilmundur
bökum saman?
■ Menn hafa gerl sér mat úr
þ\i þessa dagana ai> Jnn Bald-
vin Hanninalsson naúi ekki
kjiiri i framkvæmdasljórn Al-
þvóuflokksins á þingi flokksins
nú um helgina. Ilafa andslæð-
ingar Jóns Baldvins einkum
viljað meina að með þessu tapi
sinu hafi hann goldið mikið
afhroð og einangrast innan
flokksins. Dropaleljari hilti
Jón Baldvin aö máli í hinu haa
Alþingi í gær og spurði hann
hvaða augum hann liti þella
kosningatap sitt. Sagðist JBH
hafa boðið sig þarna fram i
ákvcðnum tilgangi, þ.e. til
þevs að kanna að hve miklu
levti þama væri um bundna
kosningu að ræða, þar sem
formenn kvenfélaga. ungra
krata og landsfulltruar ættu sin
ákveðnu sæti og að hve miklu
leyti hún væri óbundin. Hann
hefði komist að þeirri niður-
stöðu að hún væri með öllu
bundin. „Annars er ákaflega
gott til þes$ að vita," sagði Jón
Baldvin, „að við Vilmundur
hófum tapað sinni kosningunni
hvor. Fað er bara spurningin
um það hvort við eigum ekki
að snúa bökum saman!" Og
her mcð koma Dropar þessum
orðum Jóns Baldvins á fram-
færi, i dálki þeim i blaðinu sem
Dropar hafa fyrir satt að skipi
fyrsta sæti á vinsældalista Vil-
mundar.
1750 kall
dagurinn
■ Laxveiðitímabilinu á þessu
ári er tiltölulega nylokið. Þrátt
fyrir það hefur þegar verið
tekið til við skipulagningu
Ofurviðkvœmni
prófkjörskrata
Skelfing virðast prófkjör leika
menn illa. Nú er svo komið að
tilhugsunin ein tekur völd af
mönnum og þeir taka að rífa
flokksbræður sína á hol (pólit-
ískt).
Átakanlegt dæmi um þetta er
prófkjörið hjá krötunum hvort
sem það er nú prófkjörinu eða
krötunum sjálfum um að kenna,
nema hvort tveggja komi til.
Einn þeirra sem standa í próf-
kjöri árum saman - og spanna
ekki margar aðrar víddir í pólitík-
inni - er fyrrverandi ritstjóri Al-
þýðublaðsins. Eitthvað virðist
manninum hafa brugðið við rýrt
kjörfylgi til framkvæmdastjórnar
á flokksþingi Alþýðuflokksins.
Hann reiðir upp pennann og segir
í Þjóðviijanum í gær að blaðið
hafi gerst „sérstakt málgagn Vil-
mundar Gylfasonar vegna próf-
kjörs Alþýðuflokksmanna í
Reykjavík.”
Af því sumir menn hugsa í pó-
litísku einingunum „prófkjör”,
geta þeir ómögulega skilið að sla-
gurinn stendur um pólitíska hug-
myndafræði. Ritstjórinn fyrrver-
andi sem afrekaði það svo misser-
um skipti að sjá Staksteinari og
Morgunblaðinu gjörvöllu fyrir
andlegu fóðri, virðist ekki skilja
andstöðu og ímugust Þjóðviljans
á frjálshyggjuskotnum viðhorf-
um af þeim toga. Ætli sú pólitík
Jóns Baldvins hafi ekki átt ein-
hvern þátt í því, að hann náði
ekki kjöri í framkvæmdastjórn
Alþýðuflokksins?
Annars gerir Þjóðviljinn sér
það að leik að styðja Geir Hall-
grímsson í allar vegtyllur hjá
Sjálfstæðisflokknum. Það má
vera umhugsunarefni.
Skilaboðin
Viðkvæmninni hjá ritstjóran-
um fyrrverandi er við brugðið. í
fyrradag virðist hann hafa lagst
undir feld og komist að þeirri
niðurstöðu, að affarasælast væri
að Ijúka krossferðinni gegn Vil-
mundi. Niðurstaða flokksþing-
sins er nefnilega sú, að Vilmund-
ur styrkti stöðu sína - fékk 114
atkvæði í varaformannskosning-
unni, meðan Jón Baldvin varð að
láta sé lynda að ná ekki kjöri í
framkvæmdastjórn (í sex manna
kosningu) með aðeins 79 at-
kvæði.
Það er trúlega þess vegna sem
Jón Baldvin velur þá smekklegu
aðferð að koma skilaboðum til
Vilmundar í gegnum kjafta-
sagnadálk Tímans í fyrradag:
„Annars er ákaflega gott til
þess að vita”, sagði Jón Baldvin,
„að við Vilmundur höfum tapað
sinni kosningunni hvor. Það er
bara spurningin um það hvort við
eigum ekki að snúa bökum
saman.”
Síðustu fréttir benda hins veg-
ar til þess, að þungu fargi sé létt af
Jóni Baldvin. Það gerir Vilmund-
ur, sem ætlar ekki og hefur trú-
lega aldrei ætlað að fara í próf-
kjör með Jóni Baldvin.
-ÓR