Þjóðviljinn - 01.08.1984, Page 6
LANDIÐ
MUNIÐ
FERÐA
VASA
BOKINA
Handhægt uppsláttarrit sem veitir fleiri almennar
upplýsingar um ferðalög og ferðamöguleika
innanlands og utan en nokkur önnur íslensk bók.
Meðal efnis eru 48 litprentuð kort, vegalengdatöflur,
upplýsingar um gististaði og aðra
ferðamannaþjónustu, um sendiráð og ræðismenn
erlendis, vegaþjónustu, veðurfar á ýmsum stöðum og
margt fleira. Fæst í bókabúðum og
söluturnum um allt land.
Ferðavasabókin; ómissandi ferðafélagi!
FJÖLVÍS
Síðumúla 6 Reykjavík
Sími 91-81290
ÚTBOÐ
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í Efn-
isvinnsluogstyrkingu Norðurlandsvegar
í Skagafirði 1984. (40000 m3, 15.5 km).
Verkinu skal lokið fyrir 15. október 1984. Út-
boðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins
í Reykjavík og á Sauðárkróki frá og með 2.
ágúst 1984.
Skila skal tilboðum fyrir kl. 14.00 þann 13.
ágúst 1984.
VEGAMÁLASTJÓRI
bsfk
íbúð
Af sérstökum ástæðum er ein 4 herbergja
íbúð í 18. byggingaflokki B.S.F.K. (við Álfta-
tún) laus til endurúthlutunar.
íbúöin verður afhent fullfrágengin á þessu
ári.
Umsóknarfrestur ertil 7. ágúst n.k. Eldri um-
sóknir þarf að endurnýja.
Byggingasamvinnufélag Kópavogs
Hálfsdags starf
Hefur einhver áhuga á að sjá um léttan há-
degisverð fyrir okkur?
Starfsmenn Þjóðviljans
dráttar í rekstri eða að kaupa yrði
þjónustuna með öðrum hætti en
nú er gert.
Skólastarf
Alls stunduðu 122 nemendur
nám við skólann sl. vetur. Að-
sókn að Bændadeild var meiri en
unnt var að sinna, en mjög fáir
nemendur voru í Búvísindadeild
eða aðeins 3, allt piltar. í öðrum
bekk Bændadeildar voru 55, 39
piltar og 16 stúlkur og í fyrsta
bekk 64, 51 piltur og 13 stúlkur.
Nemendur eru úr öllum lands-
hlutum og bæði þéttbýli og
dreifbýli. Alls voru dreifbýlis-
nemendur 77, úr þéttbýli voru 44
og 1 af erlendu bergi brotinn.
Flestir nemendur sækja um
skólavist þegar að loknu grunn-
skólaprófi en nokkrir gera þó hlé
á skólagöngu. Síðastliðinn vetur
var meðalaldur nemenda 1.
bekkjar 18,9 ár og2. bekkjar 19,1
ár.
Á fyrra námsári eru nemendur
í skólanum eina námsönn en á
næstu önn dveija þeir við nám á
bændabýlum. Er þeim ætlað að
skiia þar 520 vinnustundum {
verklegu námi, afla sér ýmissa
gagna og upplýsinga og færa dag-
bók um megin viðfangsefnin dag
hvern. Verknámsbændur eru
víðsvegar um land eða eins og
eftirfarandi upptalning sýnir:
Borgarfjarðarsýsla 9. Mýra-
sýsla 7. Snæfellsnessýsla 3.
Strandasýsla 2. Vestur-
Húnavatnssýsla 4. Austur-
Húnavatnssýsla 5. Skagafjarðar-
sýsla 14. Eyjafjarðársýsla 14.
Suður-Þingeyiarsýsla 7. Rangár-
vallasýsla 8. Árnessýsla 21.
Aðsókn að bændaskólanum
virðist ekki bera vott um vantrú
ungs fólks á landbúnaði og fram-
tíðarmöguleikum hans. Aðsókn
að báðum skólunum er meiri en
unnt er að sinna. Og Búvísinda-
deild er á leið upp úr lægðinni.
Um miðjan júlí lágu fyrir 12 um-
sóknir. Og allmargir stúdentar
sækja um Bændadeildina með
framhaldsnám í huga.
Helstu framkvœmdir
Þegar um er spurt hvaða nýjum
framkvæmdum sé nú einkum
unnið að á Hvanneyri er svarið að
þær séu sérstaklega tvær:
rannsóknahús og loðdýrahús.
Rannsóknarstofan, sem Jónína
Valsdóttir veitir forstöðu, hefur
sína bækistöð á loftinu yfir því
fræga Hvanneyrarfjósi, en sú
bygging olli miklum deilum á sín-
um tíma. Ýmsum fannst ofrausn
að bera svo mikið í hús yfir
nautgripi að það tæki langt fram
mörgum mannabústaðnum.
Hið nýja hús yfir
rannsóknarstarfsemina er 460
ferm. Kjallari er undir því að
hluta til og nokkurt rými í risi.
Bygging þess hófst í júní í fyrra og
er nú fokhelt orðið. Gert er ráð
fyrir því að húsið verði fullfrá-
gengið upp úr áramótum 1985/
1986.
Byrjað verður á byggingu loð-
dýrahúss í ár. Þar á að verða
kennslu- og rannsóknaraðstaða í
loðdýrarækt, rými fyrir 50 tófur
og 250 minkalæður. Áætlað er að
byggingunni verði lokið í byrjun
árs 1986 eða um svipað leyti og
rannsóknahúsið kemur í gagnið.
-mhg
Landbúnaður
Búnaðarblaðið Freyr
Forystugrein síðasta tbl. Freys
nefnist „Það harðnar á dainum“
og er eftir Matthías Eggertsson,
ritstjóra. Ræðir hann þar um
framleiðsluvandamál landbúnað-
arins og þær afleiðingar, sem
samdráttur í búvöruframleiðslu
hefur á atvinnu og efnahagsaf-
komu ýmissa annarra þjóðfélags-
þegna.
Sigurður Blöndal, skógræktar-
stjóri, skrifar um innflutning trjá-
tegunda til íslands. Þá birtist
síðari hluti greinar Ólafs Guð-
mundssonar, fóðurfræðings hjá
RALA, um innlend hráefni til
fóðurgerðar. Birt er greinargerð
frá Stéttarsambandi bænda og
Ferðaþjónustu bænda um gjöld
fyrir sumardvalarbörn í sveit, frá
1. júní 1984. Björn S. Stefánsson,
hagfræðingur hjá RALA, ritar
grein um áhrif beitarþunga á arð-
semi á Auðkúluheiði, en á árun-
um 1975-1980 stóð RALA fyrir
tilraunum með sauðfjárbeit á
heiðinni. Greint er frá því að í vor
var Rannveig Albertsdóttir, hús-
freyja á Hallkelsstöðum í
Grímsnesi, sæmd Dannebrogs-
orðunni „fyrir mikil og óeigin-
gjörn störf í þágu grænlensk-
íslenskra samskipta14. Einar
Hannesson, fulltrúi hjá Veiði-
málastofnun, skrifar um veiði-
vötn og virkjanir. Stefán Aðal-
steinsson ber saman lömb í
Bakka í Viðvíkursveit, ættuð frá
Reykhólum, og lömb frá öðrum
búum. SigurjónBláfeld, loðdýra-
ræktarráðunautur, gefur loð-
Tálknfirðingar
dýrabændum góð ráð, sem eink-
um gilda fyrir tímabilið júlí til 15.
ágúst. Guðmundur Þorsteinsson,
bóndi á Skálpastöðum í Lunda-
reykjadal, ræðir um verðlagn-
ingu búvara. Þá er sagt frá af-
greiðslu mála á fundi Fram-
leiðsluráðs 22. júní sl., reglum
um endurgreiðslu áburðarverðs
og nýjum starfsmönnum búnað-
arsambanda og bændaskóla.
- mhg
Samvinnusöluboð
Hagnaður neytenda 3-4 miljónir
Sjö samvinnusöluboðum er nú
lokið en þau hófust 4. aprfl í vor.
Hafa þau gengið mjög vel. Þarna
hafa verið á boðstólum rúmlega
50 vörutegundir. Selst hafa meira
en 45 þús. kassar að heildsölu-
verðmæti tæpar 16 mi|j. kr.
Varla er offlagt þótt gert sé ráð
fyrir að söluboðin hafl sparað
neytendum 3-4 mifj. kr.
Nú verður nokkurt hlé á en
þráðurinn trúlega tekinn upp á ný
í september.
-mhg
Hólaskóli:
Námskeið í fiskeldi
Verður 24. - 26. ágúst n.k.
Eins og frá var greint í fjölmiðl-
um á sínum tíma gekkst Bænda-
skólinn á Hólum fyrir kynningar-
hátíð í flskeldi dagana 18.-20. maí
í vor. Umsóknir fóru langt fram
úr því, sem búist var við, urðu um
130. Ogerlegt var að sinna nema
hluta af þeim hópi.
Nú hefur Bændaskólinn á Hól-
um ákveðið að efna til annars
kynningarnámskeiðs í fiskeldi og
koma þannig til móts við þann
mikla áhuga, sem er á þessum
málum. Verður það dagana 24.-
26. ágústn.k. Eins og áðurverða,
auk starfsmanna skólans, ýmsir
starfandi sérfræðingar í fiskeldis-
málum, leiðbeinendur á nám-
skeiðinu.
Þátttaka óskast tilkynnt til
skólans í síma 95-5962 fyrir 10.
ágúst n.k. en bent skal á, að ein-
ungis er hægt að taka á móti tak-
mörkuðum fjölda umsókna. mhg
Hnífsdalur
Ný tæki í
Rækjuverksmiðjuna
Hin einu hérlendis
Byggja
stórt
Langsamlega fyrirferðarmesta
verkefnið, sem Tálknafjarðar-
hreppur hefur nú með höndum,
er bygging félagsheimilis og
íþróttahúss. Er ráð fyrir því gert,
að mestur hluti framkvæmdafjár
sveitarfélagsins á allra næstu
árum, renni til þessara bygginga.
Að því er stefnt að steypa húsið
upp í sumar og vonir standa til að
það verði komið undir þak í
haust. Á næsta ári er svo hug-
myndin að taka í notkun bún-
ingsklefa og hreinlætisaðstöðu
fyrir sundlaugina jafnframt því
sem unnið verður að innréttingu
á sal hússins.
- mhg
Settur hefur verið upp nýr
tækjabúnaður í Rækjuverk-
smiðjuna í Hnífsdal og munu slík
tæki ekki til í öðrum rækjuverk-
smiðjum hérlendis. Þarna er um
að ræða þvottakerfi fyrir rækj-
una áður en hún fer inn í vélarn-
ar, þá er vigtun inn í hverja pill-
unarvél og loks er aftur vigtað frá
böndunum, þar sem konurnar
vinna.
Þetta gerir kleift að fylgjast vel
með nýtingu á hverri vél fyrir sig.
Rækjan er nú losuð á eitt færi
band í móttökunni og færist síðan
eftir þörfum sjálfkrafa í vélarnar.
Rækjuvélar eru nú þrjár í verk-
smiðjunni.
Þetta nýja kerfi er danskt, frá
Scamac í Glostrup, en það fyrir-
tæki sérhæfir sig í rækjuvinnslu-
kerfum. Kerfið kostar uppsett
um 1 milj. danskra kr. Fram-
leiðendur sjá sjálfir um uppsetn-
ingu þess.
- mhg
6 SÍÐA - ÞJÖÐVILJINN Miðvikudagur 1. ágúst 1984