Þjóðviljinn - 01.08.1984, Page 15
ÍÞRÓTTIR
OL-handbolti
Jafnt við júkka!
Islenska liðið kemur á óvart
Barfst á miðjunni: Guðmundur Torfason og Jósteinn Einarsson á stökki, tii hægri Willum Þórsson. Mynd:
Loftur.
Fram nappaöi sigri
KR betra lið í slökum leik á Valbjarnarvelli.
íslendingar höfðu lengst af
fjögurra marka forystu í leik sín-
um við Júgóslavíu í öðrum riðli í
handbolta á ólympíuleikunum
sem fram fóru í gær en á síðustu
mínútunum glotruðu þeir niður
þessari forystu er Júgóslavar
fengu tvö vítaköst I röð og náðu
góðum gegnumbrotum. Loka-
staðan var jafntefli, 22:22. Sann-
arlega vonbrigði eftir að flestir-
höfðu talið sigurinn vísan.
Reyndar voru Júgóslavar taldir
með sigurstranglegustu liðum
fyrirfram og áttu fæstir von á
þessari frammistöðu hjá okkar
mönnum.
Sigurður Gunnarsson skoraði
fyrsta mark leiksins en Júgósla-
varnir jöfnuðu fljótt og var
leikurinn í jafnvægi framanaf.
Komust Júgóslavar yfir 2:3 og var
það í eina skipti í leiknum sem
þeir höfðu yfirhöndina. Eftir að
staðan var 5:5 voru íslendingar
ávallt yfir og varð munurinn
mestur er fyrri hálfleik lauk 12:8.
Þessu forskoti héldu svo íslend-
ingarnir eins og fyrr segir mestall-
Siglfírðingar unnu Eyjamenn
2-1 í hörkuleik á Siglufírði í gær-
kvöldi. Barist á báða bóga og
hvergi gefið eftir. Eyjamenn sóttu
meira en framlínumenn KS voru
hættulegri og sendu gestina heim
stigalausa.
Björn lngimarsson skoraði
fyrsta mark leiksins úr góðu lang-
skoti á fímmtu mínútu og allan
hálfleikinn er járn í jám,
Vestmannaeyingar þó ívið betri.
Færin hinsvegar fá.
í seinni hálfleik byrja Eyja-
menn á stífri sókn og á 10. mínútu
leikur Kári Þorleifsson á þrjá
siglfirska varnarmenn og skorar
yfir markvörð. Jafnt, og leikur-
inn jafnast líka.
Á 17. mínútu skýtur Björn
Ingimars úr aukaspyrnu, Eyja-
an seinni hálfleik og á tímabili var
fimm marka munur. Um miðjan
seinni hálfleik var tveimur ís-
lendingum vísað út af í einu, þeim
Þorbirni og Alfreð sem sýnt
höfðu mjög góðan leik og söxuðu
þá Júgóslavar á forskotið og var
staðan þá um tíma 18:16. En ís-
lendingum tóks aftur að ná fjög-
urra marka forskoti og staðan var
22:18 þegar tæpar fjórar mínútur
voru eftir. Þá hófst ógæfukaflinn.
Flest mörkin skoraði Sigurður
eða 8 talsins, næstflest Þorbjörn
4, þá Atli 3, Kristján 2, Alfreð 2,
Þorgils 2 og Bjarni 1.
Varnarleikur íslendinga var
lengst af frábærlega góður, ekki
síst hjá Einari markmanni. Þetta
var harður og opinn leikur en
mörg marktækifæri fóru forgörð-
um hjá báðum liðum.
í hinum riðlinum í handbolta á
OL unnu frændur og vinir ágæta
sigra: Sviþjóð-S-Kórea 36-23,
Danmörk-Spánn 21-16.
markmaður ver mjög vel í stöng
og út en Friðfinnur Hauksson
fylgir vel á eftir og skorar sigur-
mark Siglfírðinga.
Mikil harka færist í leikinn eftir
þetta en einu færin eru sem fyrr
heimamanna: Björn kemst tvisv-
ar innúr en markmaður ver vel.
Kári Þorleifsson var hættuleg-
astur Vestmanneyinga, Þórður
Hallgrímsson liðugur í vörninni.
Siglfirðingar léku allir mjög vel;
oft fallegt að sjá til Colins hins
enska.
Með sigrinum eru norðan-
menn komnir í þriðja sætið í
deildinni, stigi á eftir Völsung-
Af hverju eru undanúrslit í
bikarkeppninni látin fara fram á
Valbjarnarvelli og ekki á aðal-
leikvanginum? Til hvers er hinn
eiginlegi Laugardalsvöllur? Og af
hverju er ekki reynt að hieypa lífí
í undanúrslitaleik í bikarnum
með einhverjum hætti, til dæmis
þeim að auglýsa víðar en í Mogga
til að fá fleiri áhorfendur? Bikar-
leikir eru oftast skemmtilegri en
venjulegir deildarleikir, ekki síst
nú þegar úrslitin eru nær ráðin á
toppi deildarinnar, - og í bikar-
leikjum eru skoruð mörk, - það
sem fólk kemur til að horfa á.
Áhorfendur í gær á leik Fram og
KR voru ekki nema rúm Val-
bjarnarvallarstúka. En aðal-
spurningin er: af hverju leika lið-
in ekki betri knattspyrnu?
Fram er komið í úrslit í bikarn-
um gegn Skagamönnum eftir 3-1
sigur á KR-ingum í gær. Leikur-
inn var harður en ekki góður, kýl-
ingar og þvögur. KR betra liðið,
tilhlaup á miðju og í sókn, en
Fram skoraði mörkin.
Frammarar áttu fyrsta færið á
fimmtu mínútu þegar Sverrir
Haraldsson fékk boltann framan-
við hálfopið mark, en stöðvar
hann með hendinni og ekki fætin-
um. Frammarar sóttu meira á
fyrstu mínútunum en það snerist
fljótt við og KR-ingar voru mun
betri í fyrri hálfleiknum. Á
fimmtándu mínútu sendir besti
maður vallarins Sæbjörn Guð-
mundsson KR boltann á Ágúst
Má sem skallar yfir í þokkalegu
færi.
Um miðjan hálfleik lendir í
þvögu framanvið KR-markið,
Stefán markmaður áttar sig ekki
á ferðum knattarins og fellur
afturfyrir sig og skömmu síðar
lallar boltinn í netið. 1-0 fyrir
Fram, og Guðmundur Steinsson
er talinn hafa skorað. Sumir vall-
argesta segja sjálfsmark en enn
fleiri segja hendi á Fram.
KR-ingar sækja nokkuð stíft
frammað hléi og stundum netti-
lega, en Frammarar náðu
skæðum skyndiupphlaupum
gegnum leka KR-vörn. Þannig
átti Hálfdán Örlygsson mögu-
leika á síðustu mínútu en missti
boltann í einvígi við síðasta mó-
híkanann í KR-vörninni.
KR hefur seinni hálfleik á
sókn, missir boltann og Framarar
hlaupa gegnum varnarmenn KR-
inga sem horfa hissa á Guðmund
Torfason spila sig inná teiginn og
skora fjærstöngina inn án þess að
Stefán markmaður áttaði sig á að
leikurinn var byrjaður aftur.
Óskastart í seinni hálfleiknum
sem var mun jafnari en sá fyrri og
raunar grófari líka. KR sótti
meira og fékk gott færi á 22. mín-
útu þegar sent er innfyrir Fram-
vörn, sem hleypur áfram í mis-
heppnuðum rangstöðuleik, en
Sævar er of fljótur á sér og skýtur
framhjá.
KR-mark í loftinu, og kom
þegar rúmt korter var eftir með
góðu skoti Hálfdáns Örlygssonar
í hornið fjær. KR-sóknir það sem
eftir var en ekki nógu beittar og
Frammarar eiga hættuleg fram-
hlaup. Þegar 8 mínútur lifa leiks-
ins eiga Frammarar dauðafæri úr
einu slíku en skotið framhjá. Og
þegar tvær-þrjár mínútur eru
eftir brýst Viðar Þorkelsson inn-
úr KR-vörninni og eina bjargráð
Stefáns í markinu er að fella
Viðar. Víti, og úr því skorar
Kristinn Jónsson. Þrjú eitt.
Guðmundur Steinsson og
nafni hans Baldursson í markinu
bestir Frammara sem ekki sýndu
í þessum leik að þeir hafi neitt í
Evrópukeppni að gera en þangað
eru þeir nú komnir nema tíðindi
verði í 1. deild. Snæbjörn sívinn-
andi og besti maður á vellinum,
honum næstir af KR-ingum
Gunnar Gíslason og Jón G.
Bjarnason. Liðið er loksins farið
að ná sér á strik í sókninni en
miðjan sein að koma vörninni til
aðstoðar.
Dómarinn Sævar Sigurðsson
átti erfiðan dag í hörðum leik.
Það er auðvitað ekkert vit fyrir
dómara að þurfa að sæta ákúrum
vallargesta í dagblöðum, en fyrir
utan fýrsta markið varð ekki ann-
að séð við hliðarlínu en hann
hefði gleymt tveimur vítum á
hendi, sínu hvorum megin í
seinni hálfleik.
Gul spjöld: (réttilega): Þor-
steinn Þorsteinsson, Örn Vald-
imarsson, Viðar Þorkelsson,
Fram; Ágúst Már Jónsson, KR.
-m
Eftir tvo fyrstu dagana í Los
Angeies hafa verðlaun hlotnast
þessum þjóðum: G S B
Bandaríkin 9 6
Kanada 3 3
Kína 3 2 1
V-Þýskaland 3 1 3
Ástralía — 1 4
Frakkland _ 1 1
Svíþjóð - 1
Brasilía _ 1
Bretland — — 2
Japan - - 2
Holland — — 2
Noregur - - 1
Belgía — —
OL
Ingi féll út
Ingi Þór Jónsson komst ekki
áfram úr undanriðli í 100 metra
skriðsundi á leikunum í gær.
Hann synti á 56,31, sem er rétt við
íslandsmetið og varð 6. af 7 í sín-
um riðli.
íslendingar á OL
Rolegt í dag
Það verður lítið um að vera hjá
íslendingum í Los Angeles í dag.
Aðeins siglingamennirnir Jón
Pétursson og Gunnlaugur Jónas-
son eru í gangi, - ef þeir hafa ekki
fallið úr keppninni í gærkvöld,
sem ekki var ljóst þegar blaðið
fór í prentun, vegna tímamunar-
ins.
um.
RB-Siglufírði/m
OL
Skotfimi-sund-lyftingar
Austrið er rautt við lóðin
Úrslit á mánudaginn í Los Ange-
les:
Lyftingar, 56 kg flokkur
Asíumenn kraftmiklir.
1. Wu Stude, Kína (267,5 kg)
2. Lai Runming, Kína
3. Kotaka Mashiro, Japan
Hjólreiðar, 1000 m
1. Freddy Schmidtke, V-Þýskal.
(1: 06,10)
2. Curtis Harett, Kanada
3. Fabrice Colas, Frakkl.
Skotfimi, rifill
1. Ed Etzel, Bandar.
2. Michel Bury, Frakkl.
3. Michail Sullivan, Bretl.
400 m fjórsund karla
Fyrsta sundgull kanadamanna í
72 ár og nýtt heimsmet.
1. Alex Bauman, Kanada (4:
17,41)
I
2. Ricardo Prado, Brasilíu (4:
18,45)
3. Richard Woodhouse, Ástralíu
(4: 20,50)
200 m bringa kvenna
Kanadamenn héldu áfram í gull-
inu. íslandsmetið sem Guðrún
Fema setti í undanriðlinum var 2:
44,85.
1. Anne Ottenbrite, Kanada (2:
30,38)
2. Susan Rapp, Bandar. (2:
31,15)
3. Ingrid Lempereur, Belgíu (2:
31,40)
4x200 m skriðsund karla
Hörð keppni milli v-þýsku og
bandarísku sveitarinnar. Gull-
mennið Gross var næstum búinn
að stela sigrinum fyrir Þjóðverja
á síðasta spretti en hafði það
ekki, enda heimsmet hjá
innfæddum.
1. Bandaríkin (7: 15,69)
2. V-Þýskaland (7: 15,73)
3. Bretland (7: 24,78)
100 m flug karla
Gross hinn þýski vann annað gull
sitt og bætti metið sem Morales
setti í undankeppninni banda-
rísku. Hnífjöfn keppni. Ingi Þór
synti í undanriðli á 1: 00,68.
1. Michael Gross, V-Þýskal.
(53,08)
2. Pablo Morales, Bandar.
(53,23)
3. Glen Buchanan, Ástralíu
(53,85)
200 m skrið kvenna
1. Mary Wayte, Bandar. (1:
59,23)
2. Cynthia Woohead, Bandar.
(1: 59,50)
3. Anne Werstappen, Holland
(1: 59,59)
Næsti leikur íslendinganna er á
morgun við Rúmeni.
-GFr
2. deild
KS í 3. sæti
Jafn og harður leikur Siglfirðinga við Eyja-
menn
Mi&vikudagur 1. ágúst 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15