Þjóðviljinn - 01.03.1985, Síða 6
FURÐUR
Auglýsing
um almenna skoðun
ökutækja í Reykjavík 1985
Skráð ökutæki skulu færð til almennrar skoðunar
1985 sem hér segir:
1. a. Bifreiðir til annarra nota en fólksflutninga.
b. Bifreiðir, er flytja mega 8 farþega eða fleiri.
c. Leigubifreiðir til mannflutninga.
d. Bifreiðir, sem ætlaðar eru til leigu
( atvinnuskyni án ökumanns.
e. Kennslubifreiðir.
f. Lögreglu-, sjúkra- og björgunarbifreiðir.
g. Tengi- og festivagna, sem eru meira en 1500 kg
að leyfðri heildarþyngd.
2. Aðrar bifreiðir en greinir í lið nr. 1, sem skráðar eru
nýjar og í fyrsta sinn 1981 eða fyrr.
Sama gildir um bifhjól. Auglýsing um skoðun léttra
bifhjóla verður birt síðar.
Skoðun fer fram virka daga aðra en laugardaga frá kl.
8.00 til 16.00 hjá bifreiðaeftirliti ríkisins, Bíldshöfða 8,
Reykjavík, á tímabilinu frá 1. mars til 18. október:
1. mars til 29. mars
1. apríl til 30. apríl
2. maí til 31. maí
3. júní til 28. júní
1. júlí til 12. júlí
26. ágúst til 30. ágúst
2. sept. til 30. sept.
1. okt. til 18. okt.
ökutæki nr. R-1 -R-15000
ökutæki nr. R-15001 - R-30000
ökutæki nr. R-30001 - R-43000
ökutæki nr. R-43001 - R-55000
ökutæki nr. R-55001 - R-60000
ökutæki nr. R-60001 - R-62000
ökutæki nr. R-62001 - R-70000
ökutækinr. R-70001 -R-74000
Við skoðun skulu menn leggja fram gild ökuskírteini,
kvittun fyrir greiðslu bifreiðaskatts og vottorð um að
vátrygging ökutækis sé í gildi.
Skráningarnúmer skulu vera vel læsileg. Á leigubif-
reiðum skal vera sérstakt merki með bókstafnum L,
einnig gjaldmælir sem sýnir rétt ökugjald á hverjum
tíma.
i skráningarskírteini skal vera áritun um það að
aðalljós bifreiðar hafi verið stillt eftir 31. júlí 1984.
Vanræki einhver að koma bifreið sinni til skoðun-
ar á auglýstum tima verður hann látinn sæta sekt-
um samkvæmt umferðarlögum og bifreiðin tekin
úr umferð hvar sem til hennar næst.
Lögreglustjórinn í Reykjavík,
25. febrúar 1985.
Sigurjón Sigurðsson.
Blaðberar óskast
Grettisgötu og Fossvog
uomiuiNN Sími 81333
Blikkiðjan
lönbúð 3, Garðabæ
Önnumst þakrennusmíði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíöi.
Gerum föst verötilboö
SÍMI 46711
ÓDÝRARI
bamaföt
bleyjur
leikföng
•sk'Pv
Dúlla
Snorrabraut
Lokað í dag f.h.
vegna jarðarfarar
Gunnars Ólafssonar
forstjóra Rannsóknarstofnunar landbúnaðarins
Rannsóknaráð ríkisins
Sálfrœði
Mánudagur
er ekki
til mæðu!
Ohöpp eru ekki tíðust
ámánudögum.
Mánudagur til mæðu er ís-
lenskt orðtak og í flestum löndum
finnast viðlíka orðhættir. Nú hafa
tveir bandarískir sálfræðingar við
háskóla í New York sýnt fram á
að þetta á ekki við rök að styðj-
ast. Þeir rannsökuðu nákvænt-
lega dagbækur 50 hjóna og kom-
ust að því, að slys eða óhöpp voru
ekki tíðari á mánudögum en öðr-
um vikudögum.
Þeir komust líka að því, að
mánudagsþunglyndið svokallaða
er líka ekkert annað en goðsaga,
fólk er alveg jafn þunglynt á öðr-
um virkum dögum vikunnar!
Sálfræðingarnir athuguðu líka
hversu lengi fólk er yfirleitt í geð-
vonskuköstum og komust að því
út frá dagbóku.num að fáir eru
reiðir maka sínum lengur en sól-
arhring í einu. Jafnvel þó menn
legðu sig fram um að viðhalda
illskunni kom í ljós að það var
afskaplega erfitt að vera í fýlu
meir en dag í senn!
- ÖS
Stærðfræði
Bandarískir unglingar
slakastir
Japanir bestir. Af unglingum frá 22 löndum
voru þeir bandarísku slappastir
hvað verða margar eldspýtur not-
aðar í tíundu myndinni?
a) 30 b) 33 c) 36 d) 39 e) 42
Helmingur allra sem tóku þátt í
könnuninni svöruðu þessu rétt,
japönsku þátttakendurnir voru
bestir en 62 prósent þeirra voru
með rétta úrlausn. Bandaríkin
ráku lestina, einungis 41 prósent
gáfu rétt svar.
(Úr Science 84) Ac
•(q J3 JBAS »3H)
Einstakt
snoppufar
Á stórbúum erlendis þar sem
miklar nautgripahjarðir ganga
meira eða minna sjálfala er oft
erfitt að þekkja strokugripi.
Ýmsar aðferðir hafa verið
reyndar, þar á meðal brenni-
merkingar, frostbrunar, tattóver-
ingar auk hinna hefðbundnu á-
föstu merkja. En nú hefur gamal-
reyndur leynilögreglumaður frá
Wales, Moelwyn Llewellyn,
fundið upp nýja aðferð. Hann
hefur komist að því að sérhvert
dýr hefur einstakt snoppufar -
einsog mannskepnan hefur hver
sitt sérstaka fingrafar - og með
því að taka snoppuförin og
geyma á spjaldskrá er hægt að
búa til kerfi til að þekkja gripi í
sundur. Uppfinningamaðurinn
hefur sett upp fyrirtæki og auk
nautgripabænda hafa honum
borist fyrirspurnir frá dýragörð-
um og mönnum sem starfrækja
hundaveðhlaupabrautir.
Könnun á stærðfræðigetu ung-
linga frá 22 löndum leiddi í ljós að
á nær öllum sviðum stærðfræð-
innar voru bandarískir unglingar
við eða neðan við meðallag. Jap-
anskir unglingar voru hins vegar
langbestir.
Könnunin náði til 11 þúsund
bandarískra unglinga. Þeir sýndu
ágæta hæfni við að leysa einföld
reikningsdæmi en áttu hins vegar
mun erfiðar með að leysa úr
vandamálum sem kröfðust dýpri
hugsunar.
Það sem oili bandarískum
skólamönnum þó mestu hugar-
angri var, að frammistaða úrvals
námsmanna í bandarískum
skólum (þeirra sem sökum hæfi-
leika sinna höfðu verið valdir í
hina svokölluðu „advanced
placement calculus classes“), var
ekkert betri en meðalnáms-
manna í hinum löndunum 21.
Þegar úrlausnir þessara úrvals-
nema höfðu verið teknar úr hin-
um 11 þúsund og meðalhæfni
þeirra reiknuð sérstaklega, þá
kom í ljós að bandarísku úr-
valsnemarnir stóðu jafnfætis
meðalnemum hinna landanna,
og voru 10 prósent slakari en jap-
anski meðalneminn.
Eftirfarandi reikningsdæmi var
í prófinu, sem lagt var fyrir ne-
mendur í 22 löndum:
Eldspýtum er raðað á eftirfarandi
hátt:
|\
u
l~l\ i r
I I
J/
Ef mynstrinu er haldið áfram,
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 1. mars 1985