Þjóðviljinn - 04.10.1985, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 04.10.1985, Blaðsíða 7
w * c 3 1=5' si 3* < 2' ° CQ C £1) 3? ‘ CD CQ CQ o5' 0)> -* 0) 0> 3 CO QjO < LLI ll CÖ 'O 2^ ^ w CÖ CD o c JO ÍÖ C'Ö) «? to S’l x E ^-^Félagsmiðstöð í Kópavogi Félagsmiðstöðin Agnarögn í Kópavogi átti tveggja ára afmæli um síðustu helgi. Af því tilefni brá Glætan sér í afmælisveisluna og spjallaði við unga og eldhressa Kópavogsbúa og einnig við for- stöðumanninn Ólaf Sigurðsson (sem einnig er ungur og eldhress að mati krakkanna í Agnarögn). „Við komum hingað aðallega til þess að dansa“, sögðu krakk- arnir í Agnarögn. „En einnig til þess að kjafta, spila borðtennis, horfa á vídeó, starfa í klúbbum og til að losna að heiman svona stund og stund“. Hvenær er opið? „Það er opið á mánud., þriðjud., fimmtud. og sunnu- dögum frá kl. 8-11. Svo er diskó- tek annan hvern föstudag og stundum á laugardögum. Flestir koma hingað svona 3-4 sinnum í viku. Á venjulegu kvöldi eru svona um 40-50 manns hér. En í gær voru hér um 160-170 krakkar því það var glæsilegt ball í tilefni afmælisins“, sagði Ólafur Sig- urðsson. Fá krakkarnir að hafa mikil áhrif á það sem fram fer hér? „Já, þau geta það ef þau vilja. T.d. þegar Agnarögn byrjaði máluðu krakkarnir allt sjálfir. Svo er starfandi framkvæmda- nefnd sem skipuleggur starfið hér. f>að verða kosningar í nefnd- ina um helgina. f nefndinni eiga sæti ca. 6 krakkar + starfsmenn. Ef þeir sem sæti eiga í nefndinni eru duglegir geta þeir ráðið miklu“. Krakkar, hvaða klúbbar hafa verið starfræktir hér? „Um tíma var starfandi skíða- klúbbur, við vonum að hann verði stofnaður aftur. Svo er pílu- kastsklúbbur og hinn frábæri vídeóklúbbur sem hefur afrekað ýmislegt. Við erum búin að gera fjórar vídeómyndir. Það var geysispennandi og lærdómsríkt. Svo var starfandi ferðaklúbbur semfórm.a. til Akureyrarífyrra. Við viljum gjarnan stofna billjardklúbb á næstunni“. Er Agnarögn ekki of lftil fé- lagsmiðstöð fyrir alian Kópavog- inn? „Jú, en það stendur til að stofna félagsmiðstöð einnig í vesturbænum. Annars er bara gaman hérna þótt þetta sé lítil fé- lagsmiðstöð.“ Ólafur forstöðu- maður var sammála því. „Það myndast svo náið samband við krakkana þegar staðurinn er ekki stærri en þetta“, sagði Ólafur. Hvernig er reksturinn fjár- magnaður? Ölafur: „Það kostar inn á diskótekin, hingað til hefur kost- að 50 krónur. En Kópavogsbær sér um rekstur, borgar laun, o.fl.. Við vildum að vísu gjarnan fá hærri fárveitingu. T.d. vantar nýja hátalara og nýtt loftræsti- kerfi, en við vonumst til þess að geta bætt úr þessu eftir áramót." Mega krakkarnir vera undir áhrifum áfengis hér? „Nei, ég vill vera stífur á því að ekki sé drukkið hér. Við höfum rætt þessi mál við unglingana og þau skilja þetta vel. Þau vita að þau verða að fara eitthvað annað til að drekka. Þau skilja líka að það er ekki hægt að 16 ára krakk- ar séu að drekka vín hér því þau eru fyrirmynd yngri krakkanna. Og ekki viljum við vera að ýta undir það að 13 ára krakkar séu að byrja á þessu“, sagði Ólafur Sigurðsson að lokum en nú sneri Glætan sér að nokkrum ung- lingum og spurði þau eftirfarandi spurningar: „Hvað myndir þú gera ef þú væri forstöðumaður Agnaragnar og með fullar hendur af peningum?“ Myndi fara með skíðaklúbbnum til Sviss Margrét Einarsdóttir: „Ég myndi stækka dansgólfið, kaupa fleiri plötur og betri græjur. Svo ef nægir peningar væru fyrir hendi myndi ég setja aftur á fót skíða- klúbb og fara með hann til Austurríkis og Sviss á skíði. Svo væri ekki amalegt að stofna aftur ferðaklúbbinn og fara með hann til Grikklands eða bara til Akur- eyrar. Einnig myndi ég láta kynna Agnarögn betur í skólum svo að fleiri komi hingað. Ég er sammála því að það sé bannað að drekka vín hérna en ég myndi hins vegar láta staðinn vera opinn lengur um helgar, til svona 3 þeg- ar diskótek eru haldin“, sagði Margrét hress í bragði. Margrét Einarsdóttir, 15 ára nemi í MK Föstudagur 4. október 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.