Þjóðviljinn - 04.10.1985, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 04.10.1985, Blaðsíða 13
Þorsteinn Gauti Sigurðsson heldur píanótónleika víðs vegar um landið í október. Tónlist Tónleikar ó tólf stöðum Þorsteinn Gauti Sigurðsson pí- anóleikari heldur tónleika á tólf stöðum á landinu í október. Fyrstu tónleikarnir verða á Bolungarvík laugardaginn 5. okt- óber kl. 17. Á sunnudag 6. októ- ber heldur Þorsteinn Gauti tón- leika á Flateyri kl. 17, laugardag- inn 12. október kl. 16 í Keflavík, sunnudaginn 13. október kl. 17 á Akranesi, á Egilsstöðum sunnu- daginn 20. október kl. 17, Nes- kaupsstað mánudaginn 21. októ- ber kl. 21, Akureyri laugardag- inn 26. október kl. 17., Sauðár- krók sunnudaginn 27. október kl. 17, Húsavík mánudaginn 28. okt- óber, Mývatnssveit þriðjudaginn 29. október, Borgarnesi sunnu- daginn 3. nóvember kl. 16 og í Vestmannaeyjum sunnudaginn 3. nóvember kl. 17. Á efnisskránni eru verk eftir Bach, Chopin, Stravinsky og Lizst. fþróttir Frjóls- íþróttamót framhalds- skóla Frjálsíþróttamót framhalds- skólanna verður haldið á laugar- dag og sunnudag. Keppnin fer fram á Laugardalsvellinum og byrjar kiukkan tvö báða dagana. Keppnin er stigakeppni milli skólanna og er keppt í tveimur riðlum. Á laugardag keppir A- riðill og B-riðill á sunnudag. Tveir efstu skólarnir í hvorum riðli keppa svo til úrslita helgina á eftir. Framhaldsskólarnir standa sjálfir að þessu móti sem er at- hyglisvert framtak og sýnir samtakamátt þeirra. Þarna mæt- ist margt af besta frjálsíþrótta- fólki Iandsins til keppni og verður örugglega jöfn og skemmtileg keppni í öllum greinum. Fyrirlestur Réttur Fœreyinga Erlendur Patursson heldur fyrirlestur í Norræna húsinu á sunnudag kl. 17 um réttarstöðu Færeyja. Erlendur Patursson er einn af forvígismönnum í sjálfstæðisbar- áttu Færeyinga og stofnaði ásamt fleirum Þjóðveldisflokkinn 1948. í erindi sínu rekur Erlendur Patursson hver réttarstaða Fær- eyja hefur verið á ýmsum tímum og færir rök að því hvers vegna Færeyingar eigi rétt á sálfstæði. Fyririesturinn verður fluttur á íslensku og eru allir velkomnir. UM HELGINA Stúdentaleikhúsið Rokk fyrir alla Reykjavíkurfrumsýning á rokkleiknum Ekkó Ferðin gekk ágætlega og við fengum mjög góðar viðtökur þar sem við sýndum, sagði Halldóra Friðjónsdóttir framkvæmda- stjóri Stúdentaleikhússins sem er nýkomið úr leikför um landið með rokkleikinn Ekkó. „ Allir virtust skemmta sér, það kom fólk á öllum aldri, og ég er hissa á að það skyldi koma svona mikið af fullorðnu fólki því orðið rokkmúsík fælir oft frá. Við erum óneitanlega reynslunni ríkari eftir þessa ferð og erum búin að læra hvað það er mikið í kringum svona leikferðir. Það þarf mikla skipuiagningu og undirbúning. Við keyrðum mjög stíft prógram, vorum með 22 sýningar á 28 dögum en frumsýningin var á Akranesi.“ Nú er komið að Reykjavíkur- frumsýningu og verður hún í fél- agsstofnun stúdenta við Hring- braut á sunnudag kl. 21. „Við verðum með fasta sýningardaga, mánudaga, miðvikudaga og fimmtudag, og stundum sunnu- daga en það er á planinu hjá okk- ur að fara í styttri ferðir því við eigum Suðurland alveg eftir“. „Stúdentaleikhúsið hefur aldrei sýnt úti á landi áður og þetta var rosalegt fyrirtæki, 19 manna hópur, 13 leikarar, 4 í hljómsveitinni og svo ljósamaður og hljóðmaður. Hver veit hvort við gerum þetta aftur!?“. -aró Vindóshlfð Kaffihlað- borð hjá KFUK KFUK efnir til kaffihlaðborðs sunnudaginn 6. október til styrkt- ar sumarbúðum í Vindáshlíð og hefst það kl. 15.00 í húsi KFUM og K við Amtmannsstíg 2B, Reykjavík. KFTJK hefur rekið sumarbúð- irnar í Vindáshlíð frá árinu 1949. í sumar voru þar 11 flokkar. Dvaldi hver flokkur að jafnaði viku í senn. Flestir flokkarnir Á vegum Ferðafélags íslands verður farið í tvær gönguferðir á sunnudag. í fyrri ferðinni er lagt af stað kl. 10.30 frá Umferðarmiðstöð og gengið verður milli hrauns og hlíða á Hrómundartind og niður í Vindáshlíð, sumarbúðir KFUK. í sumar var skipt um glugga og komið fyrir gluggahlerum á matar- og svefn- skálum. voru fyrir telpur á aldrinum 9 til 12 ár en auk þess voru unglinga- flokkar, fjölskylduflokkur og flokkur fyrir 17 ára og eldri. Grafning. Verð ferðarinnar er 400 krónur. Eftir hádegi kl. 13.00 verður lagt af stað í seinni ferðina sem er í Jórukleif í Grafningi. Verðið er 400 krónur. í báðar ferðirnar er frítt fyrir börn í fylgd fullorðinna og verða farmiðar seldir við bfl. Útivist Fimmþúsundasti farþeginn Ferðafélagið Útivist efnir til nokkurra heigarferða og eins- dagsferða um næstu helgi. Helgarferðir verða í Jökulheima- Veiðivötn og síðasta hlaustlitaferðin í Þórsmörk. Á sunnudag kl. 8 verður síðasta einsdagsferðin í Þórsmörk. Á sunnudag kl. 10.30 verður gengin ný gönguleið á Reykja- nesskaga. Gengið verður frá Þórðarfelli um Haugsvörðugjá að Reykjanesi. Kl. 13.00 verður lagt af stað í gönguferð um strandlengjuna frá Háleyjar- bungu að Reykjanesi. Á Reykjanestá verður meðal ann- ars skoðuð Valborgargjá og Val- borgarvilpa. Utivist er nú 10 ára og hefur það að markmiði að stuðla að úti- vist almennings með því að skipu- Sa lengri og skemmri ferðir sland. Farþegafjöldinn í Úti- vistarferðum er nú að nálgast 5 þúsund í 170 ferðum. Er búist við fimmþúsundasta farþeganum í einhverri ferð Útivistar um þessa helgi og hlýtur sá hinn sami ferða- verðlaun. Brottfararstaður er Umferðarmiðstöð. Ferðafélag íslands Gönguferð í Grafning ÞRÍR FRAKKAR CAFE RESTAURANT Baldursgötu 14 í Reykjavík VIÐ OPNUM í DAG 23939 Kópavogsbúar — Kópavogsbúar. Sigurbergur Baldursson leikur á orgel föstudags- og laugardagskvöld, frá kl. 10.30. i líeataumut jipbpiaofgi 20, ; 2001iópaU03iir, s&imi 42541 ÞJÚÐVIUINN Góðar stundir í gamla miðbænum í elsta húsi Reykjavíkur VEITINGAHÚSID FÓGETINN Aðalstræti 10 — 101 Reykjavík. • Veitingahúsið FÓGETINN er opið daglega frá kl. 11.30—14.30 og frá 18.00 • Ljúffengir réttir bornir fram jafnt aí matseðli dagsins sem af fjölbreyttum sérréttaseðli • Vönduð og lipur þjónusta • Hljómsveitir leika 5 kvöld vikunnar • Kreditkortaþjónusta Upplýsingar og borðapantanir í síma: 16323 VEITINGAHÚSID FÓGETINN — SVO SANNARLEGA í HjARTA REYKJAVÍKUR! — SÍÐA 13

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.