Þjóðviljinn - 26.01.1989, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 26.01.1989, Blaðsíða 5
VIÐHORF Það er með hreinum ólíkindum hvernig sumir fjölmiðlar, og þá ekki hvað síst Ríkissjónvarpið hamast gegn tilvist íslensku sauðkindarinnar og þá um leið gegn sauðfjárbændum. Allskonar gáfnaljós hafa látið ljós sitt skína um þennan bölvald gróðurs og mannlífs. Hinn vin- sæli fréttamaður Sjónvarpsins, Ómar Ragnarsson, hefur verið ákaflega iðinn við að upplýsa að sérhvert rofabarð og önnur ein- kenni uppblásturs, eigi rætur sínar að rekja til hinnar bölvuðu sauðkindar. Vafasöm „vísindi“ Fyrrverandi skógræktarstjóri og núverandi landgræðslustjóri hafa verið mjög iðnir við að ó- frægja sauðkindina, einkum sá fyrrnefndi. Muni ég rétt telur Hákon Bjarnason að aðeins 13 þús. ferkm. landsins séu grónir í • dag, eða þm 13% af flatarmáli landsins en um landnám hafi meira en 50% verið algróið. Nú er yfirborð landsins tæp- lega 103 þús. ferkm. en yfir- borðsflötur þess trúlega þriðj- ungi til helmingi stærri séu fjalls- hlíðar, dalir, gil, hólar og hæðir flatarmálsmæld. Venjulegur ís- lenskur dalur hefur um þrefalt stærri yfirborðsflöt, með hjöllum sínum og þvergiljum, heldur en yfirborðsflötur • milli dalbrúna. Samkvæmt þessu er ekki nema um 6-9% eða minna af flatarmáli landins gróið land. Svona „vísindum" er athuga- semdalaust dælt í landslýðinn gegnum fjölmiðla, næstum sem staðreyndum. Að sjálfsögðu er það sauðkindin, sem er aðalböl- valdurinn, að mati þessara manna. Hross, hreindýreða gras- ætur meðal fugla, koma hér naumast við sögu. Heiðagæsin, sem lifir þó mest á grasi, virðist ekki hafa neikvæð áhrif á gróð- urríki Þjórsárvera, jafnvel þvert á móti, enda mun hún með driti sínu víst skila því ríflega aftur, sem hún étur. Það væri nú eitthvað annað ef sauðkindin ætti hér hlut að máli. Eða hvað? Ræturnar lifa En snúum okkur að öðru. Veðurfarsbreytingar liðinna alda hafa ekki haft umtalsverð áhrif á gróðureyðingu á íslandi að mati þessara manna, fyrr en sauðkind- in hefur skapað skilyrði til upp- blásturs. Stofuspekin segir okkur nefnilega að þegar sauðkindin nagar upp gróðurþekjuna þá deyr rótin einnig, sbr. kenning- una um að ofbeitt land sé sama og eytt land. Samkvæmt þessari kenningu, hlýtur slegið land, að maður tali nú ekki um sinu- brennt, að vera uppblæstrinum ofurselt. Þessir sömu spekingar láta þó slá lóðir sínar, ekki einu sinni á ári, heldur mörgum sinn- um, og henda afraksrinum á rusl- ahaugana. Þeir telja, sem rétt er, að slátturinn þétti gróðurþekjuna og komi í veg fyrir mosamyndun af völdum sinuflóka. Ekki deyja rætur jurtanna í nauðbeittu landi frekar en nauðslegnu. Hér eru sömu öfl að verki gagnvart gróðr- inum og afleiðingarnar því hinar sömu þ.e. gróðurinn vex upp að nýju, þegar hlé verður á slætti og ofbeit. í mínum búskap, vorið 1944, höfðum við sambýlismaður minn ær okkar í fremur lítilli girðingu á sauðburði. Þetta var frumbýl- ingsár okkar Þorsteins Snædals á Skjöldólfsstöðum. Við áttum engin hey og fóðurbæti var ekki að fá á því vori. Við slepptum ánum út jarnharðan og þær báru. Þegar sauðburði lauk var girðing- arlandið sem var úthagi nánast svart yfir að líta, hvert strá nagað niður í grassvörð. Samkvæmt stofuspekinni var hér um gjöreytt land að ræða. Um sumarið var engin skepna í þessari girðingu. Að túnaslætti loknum, síðla sumars, fórum við að leita að út- hagaslægjum. Skjöldólfsstaða- land er mjög grösugt enda voru engjar þar miklar og góðar. Hin Bölvaldurinn mikli Skjöldur Eiríksson skrifar síðari ár hafði enginn úthagi verið sleginn. Afleiðing þess var niikil sina í engjalöndunum, nánast helmingur eða meira sinurubb og mosi. Svona voru nú hin gjöfulu engjalönd orðin eftir margra ára „friðun“. Við litum nú inn í hina eyddu girðingu frá vorinu. Sú bar ekki dauðamerkin. í hana var komið mokgras svo að flekkjaði sig á hluta hennar. Grasið var dökkgrænt og að sjálfsögðu sinu- laust. Svona var nú hinn ofbeitti úthagi orðinn í september. Þáttur veðurfarsins Lítum nánar á þátt veðurfars- ins á flóru íslands frá landnámi Norðmanna um og eftir 874. Ég hefi einhversstaðar lesið, að há- mark hlýviðraskeiðs eftir síðustu ísöld hafi verið um Kristsfæð- ingu, þ.e. fyrir 2000 árum, en síð- an hafi veðurfar í heild farið kóln- andi. Um landnám fslands er tal- ið að veðurfar hér hafi verið svip- að og á hlýviðraskeiðinu frá 1925- 1960. Jöklar minnkuðu mjög á því tímabili og gróður nam land á hálendinu, þar sem enginn gróður var áður. Möðrudalsfjallgarður var t.d. gróðurvana fyrir hlýviðraskeiðið og þurftu Möðrudælingar því ekki að smala hann lengi vel. En þegar líða tók á hlýviðraskeiðið var gróðurnál hvarvetna farin að festa rætur og það svo mikið, að fé fór að halda sig hvarvetna, jafnt uppi á efstu hnjúkum sem og á lægri stöðum. Jón heitinn Jóhannesson, sem lengi bjó í Möðrudal, lét einu sinni svo um mælt, að nú væri orðið illbúandi í Möðrudal sökum stækkunar smalasvæða jarðarinnar með tilkomu gróð- ursins á þessum óhemjustóra landsvæði, sem bæst hafði við hið stóra smölunarland sem fyrir var. Jöklar og fljót Annað hvort heyrði ég það í fréttum eða las í fræðiriti á vegum náttúruvísindamanna okkar, að á landnámsöld hefði enginn Tungnaárjökull verið til ogTung- naá því verið bergvatnsá. Hvaða öfl á liðnum öldum skyldu hafa skapað Tungnaárskriðjökulinn, sem í dag fóðrar jökulflótið Tungnaá, eina af hinum stærri jökulám landins? Ljóst er að margir aðrir skriðjöklar landsins hafa orðið til eftir landnám líkt og Tungnaárjökull. Hvað um höf- uðbólið Breiðá, þar sem höfðing- inn Kári Sölmundarson bjó og Breiðamerkurjökull síðar lagði undir sig? Þessi skriðjökull hefur því, eins og Tungnaárjökull ekki verið til á dögum Kára. Máva- byggðirnar, hamratindar upp af Breiðamerkurjökli í um 1400 m. hæð, laða víst fáa máva nú í dag til dvalar. Á dögum Kára hafa þess- ir tindar því trúlega verið efsti hluti geysistórs fjalls, sem teygði hlíðar sínar niður að Breiðumörk og mávar haft hreiðurgerð og aðra vist í hlíðum þessa mikla fjalllendis. Fleiri skriðjöklar hafa ýmist verið miklu minni eða ekki til á landnámsöld. Hvað með Norð- lingalægðina í Vatnajökli milli Kverkfjalla og Kverkfjallahryggs annars vegar og Breiðubungu hinsvegar? Frá þessari lægð skríður hinn ca 40 km. breiði Brúarjökull, faðir jökulfljótanna niiklu, Jökulsár á Dal og Kreppu. í „lægð“ þessari er nú allt að 600- 700 m þykkur jökull að mig minnir. Að sögn jöklafræðinga hefði enginn jökull safnast saman í Norðlingalægð, væri sá jökull, sem þar er nú horfinn og veðurfar væri svipað og það var á nefndu hlýviðraskeiði, eða svipað hita- stig og var hér á landi fyrir og um landnámsöld. Fáum myndi nú í dag detta í hug að skíra Jökulsá á Sólheimasandi Fúlalæk, en það þröng sund Skriðdals grundar, Völlur, Fljótsdalur, Fellin, - fullt er það allt af sulti. Skyldi sauðfjárfjöldinn ekki hafa ógnað gróðri landsins á þess- um tíma? Vísa þessi er þó ort all- löngu eftir 1630. Eldgos og öskuföll Eldgos og öskufall telja Hákon og hans sálufélagar ekki hafa haft umtalsverð áhrif á eyðingu gróð- ursins, a.m.k. smávægileg, sam- anborið við meindýrið mikla, sauðkindina. Skaftáreldar einir og sér lögðu þó undir hraun 565 ferkm. lands. Var þó það tjón um, þ.e. Hallormsstað, Hrafn- kelsstöðum í Fljótsdal, Stóra- Sandfelli í Skriðdal, Egilsstöð- um, Eiðum, Hjaltastað og Kir- kjubæ. Á tveim síðastnefndu bæ- junum er um víðáttumikið birk- ikjarr að ræða. í Vopnafirði er aðeins ein jörð, sem skartar af allstórum birki- skógi, en það er hið gamla höfuð- ból ogvaldsmannasetur, Burstar- fell. Einkennilegt er að stórbýlin, þar sem auður byggðist í veru- legum mæli á gripaeign, skuli hafa stærstu skógana. Það skyldi þó aldrei vera, að fátækt, samfara gripafátækt smábýlanna hafi orð- ið skógarkjarri og skógum hættu- leg þar sem eldsneyti varð allt að taka þar þegar sauðatað var ekki að hafa? Raftvið allan varð að taka úr skóginum því allur reki tilheyrði ýmsum hinum ríkari býlum. Lausnarsvarið Sjónvarpið hefur sýnt Ómar okkar Ragnarsson sprangandi suður í Krísuvík. Gróðureyðing- in á Reykjanesskaga var þar að sjálfsögðu á dagskrá, ekki síst sumarið 1987. Ekki þarf að eyða orðum að því að bölvaldurinn margnefndi var þar að verki. Ómar vissi auðvitað miklu betur um þetta en bóndinn, sem hann ræddi við stundarkorn, en sá var á allt öðru máli, þ.é. að engin ofbeit ætti sér stað. Auðvitað var engum kastljósum beint að þess- um manni né hann beðinn að rök- styðja mál sitt. Þess í stað var kastljósinu beint að einhverjum hagfræðingi í Seðlabankanum, sem sannarlega veitti Ómari lausnarsvarið. Efnislega var það eitthvað á þessa leið: Þið þurfið ekki að hafa áhyggjur af of mörgu sauðfé í landinu. Með breyttum neysluvenjum hverfur bráðlega eftirspurnin eftir íslensku kind- akjöti og þar af leiðandi hætta tnenn framleiðslu á vöru, sem enginn vill kaupa. Þá veit maður það. Ekki kom fram í sjónvarps- þættinum að þetta sumar var eitt hið sólríkasta og þar með þur- rkasamasta, sem yfir Reykjanes- skaga hefur gengið. Hraunið undir gróðurþekju þessa svæðis er ekki geymið á raka. Því er gróðri Reykjaness lífsnauðsyn að úrkomur séu tíðar, annars er hann í hættu. Sauðfé hefur stór- fækkað á þessu svæði hin síðari ár, en slíkt skiptir víst engu máli. Landeyðingin heldur áfram með- an nokkur sauðkind sést bíta gróður landsins. Þetta eru launin, sem þessi lífgjafi þjóðarinnar um aldir fær í áhrifaríkasta fjölmiðli þjóðarinnar. Útrýming sauðkindarinnar og þar með eyðing byggðar í dreifbýli. Og nú spyr maður: í hverra þágu er þessi byggðaeyðingarstefna rek- in? Hverjir græða á henni? Hverjir eiga ísland, Jón Baldvin? Skjöldur Eiríksson Skjöldur er fyrrverandi bóndi og skólastjóri. „Svona „vísindum“ er athugasemdalaust dœlt ílandslýðinn gegnumfjölmiðla, næstum sem staðreyndum. Að sjálfsögðu erþað sauðkindin, sem er aðalbölvaldurinn, að mati þessaramanna. Hross, hreindýr eða grasœtur meðalfugla koma hér naumast við sögu. “ var nafn hennar á fyrstu öldum byggðar hér á landi. Hversu stór var Mýrdalsjökull þá er þessi elfa bar lækjarnafn? Mörgum öldum eftir landnám eyddi jökulhlaup Dynskógahverfi, samfara Kötlu- gosi. Þar er nú Mýrdalssandur. Var þetta fyrsta Kötlugos? Eða var Mýrdalsjökull, á fyrstu öldum byggðar, ekki af þeirri stærð, að Kötlugos ylli jökul- hlaupi? Ég nefni ekki fleiri dæmi að sinni en bendi um leið á þá firru fyrrverandi skógræktarstjóra og hans trúbræðra, að kólnandi veðurfar hafi ekki haft nein telj- andi áhrif á gróðureyðinguna hér á landi á liðnum öldum og þá sér- staklega á hálendinu. Á 17. öld og raunar upp úr miðri 16. öld tók mjög að kólna og náði það kuldaskeið hámarki um og rétt eftir 1630. Var þá svo kalt í Evrópu að talað var um „ísöld hina minni“. Skyldi gróð- urinn á hálendi íslands hafa verið blómlegur þá? Stefán Ölafsson prestur og prófastur í Vallanesi, annað höfuðskáld 17. aldar, f. 1619, kveður vísu eina, er hann nefnir „Harðindi": Jökuldals byggðin bleika, byljum stríðum vön Hlíðin, kringvögð vötnum Tunga, veitug LJtmannasveitin, þjóðkunn þingin Eiða, smámunir miðað við það ægilega öskufall, sem gosinu fylgdi, bæði meðan á því stóð og lengi á eftir „Móðuharðindin“ hefur þetta ömurlega tímaskeið verið nefnt. Menn og málleysingjar dóu unnvörpum af völdum þessara náttúruhamfara, enda askan eitruð. Til tals kom að flytja alla íslendinga, sem þá voru komnir niður fyrir 40 þús., burtu til Dan- merkur, þar sem vart væri lífvænt fyrir fólk né búfénað á landinu. Skyldi gróðurinn á íslandi, einkum á hálendinu, ekki hafa tekið fjörkipp eftir móðuharð- indin og hrun sauðfjárins, sem þó var ekki margt fyrir? Að dómi stofuspekinnar höfðu hvorki Síð- ueldar né önnur stórgos stórvægi- leg áhrif á flóru íslands og að sjálfsögðu ekki heldur hafísár og fimbulkuldar þeim samfara. Samkvæmt heimildum úr „Landið þitt“, eftir Steindór Steindórsson. er áætlað að fallið hafi 90 þús. sauðfjár í móðuharð- indunum, eða 83% alls sauðfjár í landinu, 53% nauta og 72% hrossa. Samkvæmt þessu hafa verið tæp 39 þús. sauðfjár eftir í landinu er fellinum lauk. Birkiskógar En snúum nú að öðru. Á Fljótsdalshéraði eru flestir birki- skógar landsins á afmörkuðu svæði. Athyglisvert er, að þeir eru næstum allir á fyrrum stórbýl- Fimmtudagur 26. janúar 1989 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.