Þjóðviljinn - 28.09.1990, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 28.09.1990, Blaðsíða 6
Vargöld í Líberíu Horfur eru á að borgarastríðið, sem lagt hefur landið að miklu leyti í eyði, snúist upp í átök milli Vestur-Afríkuríkja Heimurinn, að Vestur-Afríku frátalinni, hefur verið áhugalítill um líberíska borgarastríðið. Hann hefur verið upptekinn við annað, endalok kalda stríðs, umskiptin í austantjaldslöndunum fyrrver- andi, sameiningu Þýskalands og nú síðast Persaflóadeilu. Svo hefði varla orðið ef kalda stríðið hefði staðið enn; þá hefðu a.m.k. Bandaríkjamenn að líkindum að einhverju marki skorist í leikinn, þó ekki væri nema til að tryggja að Sovétmenn fengju ekki færi á að ná fótfestu í landinu með því að styðja einhvem stríðsaðilann. Bandaríkjamenn hafa raunar vissar ástæður til áhuga á Líberíu umfram öll Afríkuríki önnur. Lí- bería hefur þá sérstöðu þar í álfu að sem ríki getur hún kallast öld- ungur í samanburði við flest hin; af núverandi ríkjum sunnan Sa- hara er Eþíópía ein eldri. Líbería á það sammerkt með Eþíópíu að hún er án nýlendufortíðar, sem flestum þykir auðmýkjandi. Stofnendur þessa litla Vestur- Afríkuríkis voru raunar Banda- ríkjamenn, nánar tiltekið leys- ingjar. Má segja með sanni að Lí- bería hafi komið til sögunnar sem afkvæmi bandarísku þræiahalds- andstöðunnar, sem efldist hröðum skrefum á fyrri hluta 19. aldar. Ríki bandarískra leysingja Leysingjar voru þar þá þegar íjölmennir en höfðu það flestir litlu eða engu betra en kynbræður þeirra sem enn voru í þrældómi. Komust þá sumir hvítra þræla- haldsandstæðinga að þeirri niður- stöðu að gæfulegast myndi reyn- ast að hjálpa frjálsum blökku- mönnum til að setjast að i álfúnni sem forfeður þeirra eða jafnvel sumir þeirra sjálfra voru frá komnir. Þetta varð til þess að keyptir voru handa leysingjunum land- skikar nokkrir á Vestur-Afríku- strönd og úr þeim var búið til lýð- veldið Líbería 1847. Minna varð þó úr en til stóð, því að þegar til kom reyndust flestir leysingjanna vera orðnir það miklir Banda- Einn stríðsmanna Taylors í Monróvíu - stríðsaðilar skreyta gjaman umhverfi sitt með höfuðkúpum og öðr- um iíkamsleifum myrtra og fallinna fjenda. ríkjamenn að þeir vísuðu á bug þessu tækifæri til að flytjast til álfu feðra sinna. Líberíumenn þeir, sem komnir eru af leysingj- unum, eru á að giska aðeins þrír af hundraði landsmanna, eða um 60.000-70.000 af 2,3 miljónum íbúa. Þeim tókst eigi að síður að leggja undir sig allstórt svæði inn af ströndinni, enda kunnu þeir meira fyrir sér og voru betur skipulagðir en innfæddir. Þeir gerðu sig að hástétt, bandaríska að menningu, og tileinkuðu sér eftir bestu getu lífsstíl hástéttar „gamla landsins“, einkum hús- bænda forfeðra sinna í Suðurríkj- unum. Bandarískum ferðamönn- um sem til landsins komu þótti furðumargt minna á gamla Suðr- ið. Innfæddum stjómaði yfirstétt þessi með harðri hendi og hafði marga þeirra í þrældómi i raun, enda þótt þrælahald væri bannað í stjómarskránni, sem var eftir- mynd þeirrar bandarísku. Bandaríkin slepptu aldrei al- veg hendinni af þessu afkvæmi sínu og á fýrri hluta þessarar ald- ar náðu bandarísk stóríyrirtæki slíkum ítökum í landinu að það var kallað „Firestone Country“ eftir umsvifamesta bandaríska fyrirtækinu þar, sem framleiddi gúm. Þegar kalda stríðið gekk í garð jókst pólitískur áhugi Bandaríkjanna á Affíku og fannst þeim þá þjóðráð að nota Líberíu sem brúarsporð til eflingar ítök- um sínum þar í álfu. Um skeið eftir heimsstyrjöldina síðari var Líbería í raun réttri bandarískt leppríki. En síðustu áratugi hafa umsvif Bandaríkjanna þar minnk- að, bæði vegna minnkandi áhuga bandarískra stórfýrirtækja á land- inu og nú síðast vegna þess að kalda stríðið er ekki lengur. 1980 urðu þáttaskil í Líberíu- sögu. Undirforingjar í hemum stóðu fýrir uppreisn og steyptu af stóli amerísk-afrísku yfirstéttinni. Forkólfur þeirra var 28 ára gamall yfirliðþjálfi, ómenntaður og lítt mælandi á ensku, máli yfirstéttar- innar og opinberri tungu landsins. Samuel Doe hét hann, gerði sig írak að forseta og stjómaði einvaldur í áratug. Forvera sinn í embætti lét hann drepa, sem og marga aðra ráðamenn og fjölmarga fleiri fýrir það eitt, að þeir vom amerísk- afrískrar ættar. Vinur Reagans I þann mund kom Ronald Re- agan til valda vestanhafs, blés nýju lífi í kalda stríðið á loka- skeiði þess og hélt það við áhuga Bandaríkjanna á Líberíu enn í nokkur ár. Afkomendur banda- rísku landnemanna vora of fáir og of óvinsælir af þorra landslýðs til að ráðamönnum í Washington þætti borga sig að hjálpa þeim til að endurheimta völdin. Tóku þeir því það ráð að gera Doe að „sín- um tíkarsyni“, þótt ekki væri nema til að tryggja að hann ving- aðist ekki við þá í Kreml og menn eins og Gaddafi Líbýuleiðtoga. Bauð Bandaríkjastjóm honum í heimsókn til Reagans og var svo örlát á efnahagshjálp við hann, að á níunda áratugnum hefúr ekkert ríki sunnan Sahara fengið meira af bandaríkjadollurum en Líbería, að tiltölu við fólksfjölda. Að því er séð verður, dró það ekkert úr þessu örlæti Bandaríkjastjómar að Doe var svo afkastamikill við hryðjuverk á þegnum sínum, að fréttamenn þar kunnugir jafna honum við Idi Amin í Úganda og Bokassa Mið-Afríkukeisara. Dolluranum frá Bandaríkjunum stakk Doe mestanpart í eigin vasa og varð einn mestu ríkismanna álfunnar, jafnframt því sem landsmenn almennt höfðu það heldur verra en fýrr. Stjóm efna- hagsmála var eftir öðru og þegar borgarastríðið hófst var Líbería gjaldþrota í raun. Hagskýrslur gefa að einhverju marki hugmynd um þetta, sem og það að hvað sem líður háum aldri Líberíu á afrískan mælikvarða, þá var hagur landsmanna við upphaf borgarastríðsins engu betri, nema síður væri, en nýsjálfstæðu ríkj- anna yfirleitt. Væntanleg meðal- ævilengd var þá 50 ár og ólæsi 75 af hundraði. Landsmenn eru einn- ig eftir rúmlega 140 ára sögu rík- isins jafn sundraðir í þjóðflokka og ættbálka og lausir við samein- andi hollustu við ríkið og íbúar Afríkuríkja sem ekki eiga nema þijá áratugi að baki. Doe varð um síðir hált á því að hann var ekki jafn örlátur á landsins gæði og sérstaklega bandarísku dollarana við gæðinga sína og við sjálfan sig. Hann brást þannig reiður við er einn gæðing- anna, Charles Taylor að nafni, nældi sér í eina miljón dollara úr ríkiskassanum. Vera má að Tayl- or hafi og orðið tortryggilegur í augum forseta síns vegna þess að hann er amerísk-afrískur í aðra ættina. Taylor flúði land með dollar- ana sem hann hafði náð í og brúk- aði þá til að leigja sér 200 manna herflokk. Vopn, þjálfún og aðra hjálp fékk hann frá Líbýu, Búr- kína Faso og Fílabeinsströnd og gerði síðan frá síðastnefnda land- inu innrás í föðurland sitt um síð- ustu jól. Hann var sem sé liðfár í byrjun, en fékk fljótt mikinn stuðning frá sumum þjóðflokka landsins, sem gripu þetta tækifæri Utlendingum bönnuð matarkaup Um tvær miljónir þeirra eru enn þarlendis og í Kúvœt þarlendis og Írösk stjómvöld tilkynntu í gær að útlendingum þarlendis (sem og í Kúvæt, sem írakar líta nú á sem eitt af fylkjum lands síns) yrði frá og með n.k. mánu- degi bannað að kaupa skammtað- ar matvörur. Þar sem flestar helstu matvörur hafa verið skammtaðar þar í landi vegna af- leiðinga viðskiptabanns Samein- uðu þjóðanna, þýðir þetta í raun að útlendingum er bannað að kaupa mat nema á svörtum mark- aði. Á þeim markaði er nú Iítið af vörum og ekki nema á upp- sprengdu verði. Þetta era ógnvænleg tíðindi fyrir útlendinga í írak og Kúvæt. Oryggisráð S.þ. hefur að vísu ákveðið að leyfa matvælaflutn- inga til útlendinganna að því til- skildu að alþjóðlegar hjálpar- stofnanir útbýti vöranum. En Ir- aksstjóm neitar að ganga að því skilyrði. I tilkynningu Iraksstjómar um téða ráðstöfún segir, að hún telji sig ekki ábyrga þótt útlendinga hijái matarskortur. Ætla má að ráðstöfun þessi sé svar Iraks við flugflutningabanni Öryggisráðs S.þ., sem samþykkt var í ráðinu á þriðjudagskvöld. Samkvæmt nýjustu tölum frá Reuter um útlendinga í Irak og Kúvæt era um tvær miljónir þeirra þar ennþá, langflestir frá Arabalöndum og Suður-Asíu. Egyptar eru yfir helmingur þeirra og þar næstir að fjölda eru Palest- ínumenn, Bangladeshmenn og Indveijar. Hætt var á laugardag flugi með vestrænar konur og böm frá Irak, þar eð talið var þá að allar þær af konum þessum, Ahmed Ben Bella, fýrsti for- seti Alsírs, sem verið hefur í fangelsi og útlegð frá því að hon- um var steypt af stóli 1965, kom aftur til föðurlandsins í gær og var ákaft fagnað af tugþúsundum stuðningsmanna í Algeirsborg. Ben Bella, sem greinilega ætlar sér drjúgan hlut í stjómmálum lands síns á næstunni, lýsti við þetta tækifæri yfir fullum stuðn- ingi við Saddam Hussein íraks- forseta og hvatti landa sína til að gerast í hundruðþúsunda tali sjálfboðaliðar í her hans. Forsetinn fyrrverandi, sem sem komast vildu úr landi, væru famar. Nokkrar konur, sem áttu þess kost að fara, kusu að verða eftir hjá eiginmönnum sínum, sem era í gíslingu hjá Irökum. Af Evrópu- og Norður-Amer- margir Alsíringar hafa í hávegum sem hetju frá því í sjálfstæðis- stríðinu gegn Frökkum, hafði áð- ur sagt að hann teldi að Saddam hefði haft fullan rétt á að taka vesturlandamenn í írak og Kúvæt í gíslingu. í ræðunni til stuðnings- Þing Póllands samþykkti í gær að stytta kjörtímabil Wojciechs Jarazelski, forseta, og láta kjósa eftirmann hans í al- mennum kosningum innan fárra mánaða. Verkalýðsleiðtoginn íkumönnum þeim, sem enn eru í Irak og Kúvæt, era Sovétmenn flestir (5800) og þar næst Júgó- slavar (3500), Bretar (1430), Pól- veijar (1213) og Bandaríkjamenn (um 1000). manna sinna í gær sló Ben Bella, sem kominn er yfir sjötugt en em að sjá, mjög á sömu strengi og ís- lamskir bókstafstrúarmenn, sem era öflugir þarlendis, og for- dæmdi vestræn áhrif á alsírska menningu. Lech Walesa hefur lýst því yfir að hann muni bjóða sig fram til for- setaembættisins og er hann talinn hafa mikla möguleika á að vinna kosningamar. Dagur Þorleifsson 6 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 28. september 1990 Ben Bella Sjálfsagt af Saddam að taka gísla Jaruzelski hættir

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.