Þjóðviljinn - 28.09.1990, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 28.09.1990, Blaðsíða 15
Þeirra daglega brauö 40.000 börn látast á hverjum sólarhring sökum vannœr- ingar, sjúkdóma og bágra efnahagslegra og félagslegra aðstœðna Síðasta sólarhring dóu yflr 40.000 börn um víða veröld. Ár- lega látast 14 miljónir barna í þriðja heiminum sk. af völdum vannæringar og sjúkdóma, s.s. mislinga, kíghósta, niðurgangs, malaríu, stífkrampa, en alla þessa sjúkdóma er tiltölulega auð- velt og kostnaðarlítið að koma í veg fyrir. Stærstur hluti þess- ara barna deyr áður en þau ná fímm ára aldri. Og það sem verra er, verði ekkert að gert mun þessi tala hækka ískyggilega á næstu árum og hafa sérfræðingar getið sér til að allt að 44.000 börn muni látast sérhvern dag ársins, eða 16 miljónir barna ár- visst. Þar við bætist að böm um víða veröld lifa við ömurlegar að- stæður. Vannæring, skortur á heilsugæslu og menntun, heilsu- spillandi húsnæði og bamaþrælk- un em daglegt brauð miljóna bama. Þessar staðreyndir láta óhugn- anlega í eyrum, en samt sem áður hafa ráðamenn og almenningur um víða veröld lengst af látið þær sér sem vind um eyru þjóta. Menn geta farið nærri um það hvílíkur harmagrátur yrði vakinn upp væri um dýr að ræða í stað bama. Nægir í því sambandi að minna á samhent átak stórveld- anna, Bandaríkjanna og Sovét- ríkjarina, er lögðust á eitt og kost- uðu formúgu fjár til að bjarga tveimur hvölum fostum í ís fyrir utan strendur Kanada fyrir einum tveimur ámm. Gott ef þeir Iags- bræður Reagan og Gorbatsjov lögðu ekki á ráðin með björgunar- aðgerðimar og gervöll heims- byggðin tók þátt í dauðastríði þessara ólánsömu skepna fyrir til- stilli sjónvarpsstöðva sem sendu þindarlaust beint af vettvangi! Sitthvað er orö og æði Um helgina verður sett í New York heljarmikil ráðstefria á veg- um Bamahjálpar Sameinuðu þjóðanna - UNICEF - sem ætlað er að vekja menn til umhugsunar um vandamál og aðgerða til hjálpar þeim sem jörðina eiga að erfa. Víst er að þar verður margt stórmennið samankomið og er haft á orði að aldrei hafi fleiri þjóðarleiðtogar séð sér fært að vera viðstaddir ráðstefnuhald á vegum Sameinuðu þjóðanna en einmitt nú. Hitt greinir menn á um hvort ekki hefði verið nær fyrir Bama- hjálpina að verja þeim kostnaði sem óhjákvæmilega hlýst af slíku ráðstefnuhaldi til brýnni mála. Þeir sem halda slíku fram segja sem svo að brýnni þörf sé fyrir aðgerðir en orð. Orð eru til alls fyrst Aðstandendur ráðstefnunnar vonast þó til að með henni verði stigið fyrsta skrefið til að snúa vöm í sókn í baráttunni fyrir bættu lífi bama um víða veröld. Gert er ráð fýrir að þjóðaleið- togamir muni samþykkja áskomn til þjóða heims um að taka hönd- um saman við að bæta kjör og að- búnað bama, þar sem m.a. verði stefnt að því fyrir árið 2000 að dauðsföll bama undir fimm ára aldri verði aðeins þriðjungur af því sem nú er, og lömunarveiki og stífkramapa verði útrýmt. Þá er stefrit að því að öllum konum standi til boða heilbrigðiseftirlit meðan á meðgöngu stendur, en mjög skortir á að þær njóti slíkrar þjónustu. Árið 1986 gekkst að- eins rúmur helmingur kvenna í Afríku, sem gengu með bam und- ir belti, undir mæðraskoðun. Ástandið var Iitlu betra víða ann- arsstaðar að undanskildum iðríkj- unum. Að sögn fréttaskýranda Tim- es má ef að líkum lætur reikna með að mörgum leiðtoganna sem mæta til leiks í New York um helgina leiki hugur á að nota tæki- færið og hitta kollega að málum til að ræða önnur mál sem ofar- lega em á baugi í alþjóðamálum, þróunina í Austur- Evrópu, deil- una fyrir botni Persaflóa og olíu- verðshækkanir svo fátt eitt sé nefnt. Hver hinn endanlegi árangur verður af ráðstefnunni getur tím- inn aðeins tíminn skorið úr um. Hvað sem gagnrýni á ráðstefnu- haldið Iíður skulum við vona að það fomkveðna eigi við hér að orð séu til alls fýrst. -rk Næg og rétt fæða ræður úrslitum um vöxt og þroskaskilyrði bama. Þessir þrfr pattaralegu krakkar i Afríku em sýni- lega sæmilega haldnir. bví miður er ekki sömu sögu að segja um miljónir jafnaldra þeirra. * Á hverjum sólarhring deyja yfir 40.000 börn undir fimm ára aldri af völdum sjúk- dóma sem auóvelt er aö koma í veg fyrir * Um 150 miljónir barna í heiminum eru vannærö, þar af eru um 25 miljón börn á hungurmörkunum * Ríflega 100 miljónir barna á skólaaldri hafa aldrei inn í kennslustofu stigiö. Þar af eru stúlkubörn í meirihluta * Yfir 30 miljónir barna eru heimilislaus og eru á vergangi á götum úti * Fyrir áriö 2000 munu yfir 10 miljónir barna í Miö- og Austur- Afríku hafa misst a.m.k annaö foreldri sitt úr eyöni * Sjö miljónir barna eru flóttamenn af völdum stríös og annarra hörmunga Með bólusetningu er hægt að draga verulega úr ótímabæmm dauðsföllum bama. Aðgerðin er einföld og kostnaðarlítil. Mengað drykkjarvatn er uppspretta sýkla og sjúkdóma. Hægt er að draga verulega úr bamadauða með nægu og góðu drykkj- arvatni. Lýsandi staðreyndir Lausnirnar eru oft einfaldari en menn kann að renna grun í Mafurer mannsins megin Það er löngu kunn staðreynd að matur er mannsins megin. Rekja má stóran hluta af dauðs- föllum bama bæði beint og óbeint til vannæringar. í Suður-Asíu þjást 50 miljónir sökum vannæringar og í Róm- önsku- Ameríku er eins ástatt fýr- ir öðmm 25 miljónum bama. Ar- lega verða 250.000 böm um víða veröld blind vegna vöntunar á A- vítamíni. I mörgum ríkjum þriðja heimsins hefur hlutfall vannærðra bama hækkað ískyggilega á síð- ustu árum. Nefna má að í Perú á árabilinu 1980 til 1983 hækkaði hlúttalfbáma undir sex ára aldri sem em vannærð úr 41% í 68% í Ghana hækkaði þetta hlut- fall úr 35 af hundraði í 54 milli 1980 og 1984. í Botswana erhlið- stæða sögu að segja, eða úr 25 af hundraði í 31. Vannæring hijáir ekki aðeins böm í þriðja heiminum. í Banda- ríkjunum, auðugasta landi verald- ar, er vannæring sökum fátæktar orðin stórtækt vandamál. Talið er að allt að því 12,6 miljónir banda- rískra ungmenna lifi undir fátækt- armörkum og þar af er stór hluti bama í fátækrahverfum stórborg- anna vannærður. Þar í landi er dánartíðni ungbama um 9,7 böm á hver 1000, sem er snöggtum meira heldur en gerist á meðal annarra iðnvæddra ríkja. í sumum borgum Bandaríkjanna er dánar- tíðnin mun hærri, s.s. í höfuð- borginni Washington sem slær fá- Hlutfall van- nærðra bama (nokkrum löndum. Með- altal 1980- 1986. BmgUdesh Guatemala Vtetnam Maurltanla Sudan Yemen, Dem Buriúna Pasc Tanzania tækum löndum eins og Jamaika og Chile við í þessum efnum. Móöurmjólkin er engulík Að sama skapi og rétt og næg fæða skiptir sköpum fyrir vöxt og þroska bama, kemur ekkert í stað móðurmjólkurinnar fyrstu mán- uðina í ævi sérhvers bams. Með því að hafa hvítvoðung á brjósti er tryggt að hann fái þau næring- arefni sem hann þarfnast til eðli- legs vaxtar og mótefni gegn ýms- um pestum og sjúkdómum, s.s. niðurgangi. Þá er ekki sama hætta á að mæður verði þungaðar með- an þær hafa böm á brjósti, sem leiðir aftur til þess að lífslíkur hvítvoðungsins em meiri en ella. Víða í löndum þriðja heims- ins hafa mæður hætt að hafa böm sín á bijósti. Kemur þar ekki síst til að ýmis fjölþjóðleg fyrirtæki sem ffamleiða þurrmjólk og bamamat hafa haldið úti stöðug- um áróðri fýrir gildi framleiðsluvöru sinnar á kostnað brjóstagjafarinn- ar. Fremstur þar í flokki er auð- hringurinn Nestlé sem hefúr verið óþreytandi í áróðrinum fýrir þurr- mjólk og fóðrað sjúkrahús og heilsugæslustöðvar víða í löndum þriðja heimsins ókeypis á ffam- leiðsluvöru sinni. Talið er víst að unnt sé að draga verulega úr bamadauða með jafn einfaldri aðferð og að fá mæður til að gefa bömum sínum brjóst. Reikna má með að allt að 10 miljónum tilfella vannæringar og niðurgangs hjá bömum megi rekja til þess að mæður hafi hætt brjóstagjöf. Vitað er að í fátækari löndum heims em tvisvar sinnum meiri líkur á að pelaböm deyi en böm sem höfð em á bijósti. Einföld lausnvið vessaþunð Frá því árið 1949 hafa yfir 150 miljónir bama látist af vessa- þurrð af völdum niðurgangs. Þetta er snöggtum hærri tala en samanlagt mannfall í heimsstyij- öldunum báðum. Gera má ráð fýrir að vessaþurrð verði daglega 10.000 bömum að aldurtila. Samt sem áður er til ósköp einfold lausn til að stemma stigu við þessum vágesti. Salt og sykur- lausn í vatni í réttum hlutfollum er halbesta meðalið sem til er við þessum bráðabana. Aðferðin hef- ur svo sannarlega sannað gildi sitt þar sem henni hefúr verið mark- visst beitt, en talið er að lífi einn- ar miljón bama sé bjargað árlega með þessum hætti. Mengað vatn iro- spretta sjúkdóma Um það bil 80 af hundraði allra sjúkdóma er að rekja til mengaðs drykkjarvatns. Víða um lönd er drykkjarhæft vatn af skomum skammti. Víðasthvar er ástandið mun verra til sveita en í borgum og bæjum. Með mark- vissum aðgerðum víða um lönd hefúr um 700 miljónum manna sem ekki höfðu áður aðgang að ómenguðu vatni verið séð fyrir drykkjarvatni. Víða um lönd á þó fólk enn ekki aðgang að drykkjar- hæfu vatni. -rk Hlutfall íbúa I lönd- um þriðja heimsins sem aðgang eiga að ómenguðu drykkjarvatni 1970- 1985. -Við hjá Rauða krossinum er- um með í gangi tvö verkefni sem sérstaklega eru miðuð við þarfir bama. Bæði þessi verkefni em fjármögnuð með íslenskum fjár- munum en um framkvæmdina sjá Rauða kross félögin í löndunum, sagði Sigríður Guðmundsdóttir hjúkmnarfræðingur, sem starfar um þessar mundir hjá alþjóða- deild Rauða kross lslands. Sigríður hefúr unnið við hjálparstarf í um það bil áratug. Aðspurð sagði hún að á þessum tíu ámm mætti sjá ýms dæmi þess að tekist hefði að fækka dauðs- föllum hjá bömum, en hún sagði að sú barátta gengi seint. -Aðalvandamálið er fáfræði og fordómar. Þvi miður er það svo að mæðmm í þróunarlöndun- um er ekki kunnugt um að hægt er á mjög einfaldan hátt að komast hjá alls kyns sjúkdómum sem leiða bömin til dauða. I þvi sam- bandi er hægt að nefna niðurgang. emm við með tvö verkefni þar sem við fjármögnum. Fyrst er að nefna verkefni sem fengið hefúr nafnið Child alive, eins og það er kallað á ensku, þar sem við styðj- um 3.000 fjölskyldur í ákveðnu héraði í Bangladesh. Rauði kross- inn í Bangladesh sér um ffam- kvæmd þessa verkefnis. Verkefh- ið gengur fýrst og fremst út á fræðslu um það hvemig koma megi í veg fýrir niðurgang og hvemig bregðast eigi við honum. Þetta er hluti af enn stærra þróun- arverkefni sem þama er í gangi, sagði Sigríður. Jafnffamt verkefni í Bangla- desh fjármagnar Rauði kross Is- lands verkefni í Mósambik í sam- starfi við Rauða krossinn þar. -Þetta samstarfsverkefni snýst um aðstoð við götuböm þar í landi. Þau koma frá sveitunum - flýja til borganna vegna stríðs- ástands sem ríkt hefúr í Mosam- bik í mörg ár. Þessi böm lifa á íslendingar með tvö bamaverkefni Sigríður Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur: Fáfræðin og fordóm- amir versti óvinur bamanna Árlega er talið að um 7 miljónir bama látist af niðurgangi. Enn þann dag í dag er það útbreiddur misskilningur hjá mæðmm víða í heiminum að þegar böm fá niður- gang þá eigi ekkert að gefa þeim að borða eða drekka. Nú er unnið að því markvisst að eyða þessum fordómum og koma því inn hjá mæðmnum að í stað þess að svelta bömin eigi að gefa þeim að borða og drekka auk þess sem þau eiga að fá salt- eða sykumpp- lausn. Flestir hafa aðgang bæði að salti og sykri og það eina sem þarf að gera er að gefa bömunum hreint vatn með salti eða sykri í, á þann hátt er hægt að koma í veg fýrir ótímabæran dauða þessarar bama, sagði Sigríður, og bætti við að fáffæðin segði einnig til sín hvað varðaði bólusetningar. -Það hefur gengið misvel að koma mæðmm bama í þróunar- löndum í skilning um að hægt sé að koma í veg fýrir marga sjúk- dóma með bólusetningu. Það er ekki skortur á bóluefni eða fólki til að annast hana, heldur skortir mikið á að koma mæðrum í skiln- ingum um að bólusetning hafi eitthvað að segja. Til þess að koma þessari fræðslu á framfæri hefúr verið gripið til ýmissa ráða og get ég nefnt sem dæmi að þeg- ar ég var í Súdan var ég viðstödd leiksýningu sem Rauði krossinn þar stóð að. Þessi leiksýning var þannig uppbyggð að þeir sem hana sáu skiidu alvöm þess að láta bólusetja bömin sin, en þar sem íbúar Súdan em múhameðs- trúar, komu einungis karlmenn á þessar leiksýningar en það var séð til þess að konumar, sem vom fyrir utan, heyrðu það sem fór fram, því það em þær sem sjá um bömin. Þetta dæmi sýnir að það er ekki nóg að segja þessu fólki hvað bólusetning getur gert, held- ur verður að sýna því það með áþreifanlegum hætti, sagði Sig- ríður. - íslendingar hafa gert ýmsi- legt, sagði Sigríður þegar hún var spurð um framlag Islendinga til baráttunnar við bamadauða. -Um þessar mundir er Rauði kross Is- lands með átta starfsmenn á sín- um vegum í þróunarlöndunum og þar af em sjö hjúkmnafræðingar. Þeir starfa bæði á sjúkrahúsum og úti í sveitum, gegnum gangandi i starfi þessa fólk sem við sendum er ffæðsla, eins og reyndar allra annarra sem vinna við þróunarað- stoð. það má því segja að á þann hátt sinnum við baráttunni gegn bamadauða. Auk þess sem við er- um með þessa starfsmenn á okkar vegum við störf í þróunarlöndum, betli og sofa á götum úti. Það er verið að reyna að hjálpa þessum bömum með því að koma þeim af götimni. Við byrjum smátt og gef- um þeim að borða fýrst til að byija með, en með tlð og tírna komum við þeim vonandi í skóla þannig að þau geti séð um sig sjálf. Ríkisstjóm íslands hefur styrkt þetta verkefni með fimm miljóna króna framlagi, sagði Sigríður. Hún sagði að þeir peningar sem notaðir væm í þessi verkefni kæmu að mestu leyti úr spilaköss- um Rauða krossins víðsvegar um land. Auk þessara verkefna hefur Rauði krossinn svarað um tuttugu aðstoðarbeiðnum erlendis frá með fjárframlagi. Að lokum nefndi Sigriður að Rauði krossinn stæði fýrir um- fangsmiklum fatasendingum til þróunarlandanna. -Þetta er góð aðstoð sem við veitum og það er skemmtilegt hvað það em margir einstaklingar sem taka þátt í þessu. I raun er það með ólíkindum hve mikið af fotum við fáum, en þau em öll mjög vel þegin, sagði Sigríður Guðmundsdóttir hjá alþjóðadeild Rauða kross Islands. -sg 14 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 28. september 1990 Föstudagur 28. september 1990 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA15

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.