Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1995, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1995, Blaðsíða 36
FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER iO 5000 MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER MÁNUDAGUR 25. SEPTEMBER 1995. Kumliö í Skriðdal: Beinin af há- vöxnum manni „Þetta er allt komiö í hús. Ég mun fara meö beinin í Þjóðminjasafnið í vikunni," segir Steinunn Kristjáns- dóttir, fomleifafræðingur og for- stööumaður Minjasafns Austur- lands, um kumlið sem fannst í Skriðdal. Steinunn segir líklegt að kumlið sé frá fyrri hluta 10. aldar. „Sverðið sem fannst þarna er í fljótu bragði mjög líkt sverði sem fannst í Hrafnkelsdal um síðustu aldamót. Það sverð var aldursgreint og reyndist vera frá 10. öld,“ segir Steinunn. Hún segir að maöurinn hafi verið mjög hávaxinn miðað við samtíma- menn. „Hann virðist hafa verið á bihnu 180 til 190 sentímetrar á hæð,“ segir Steinunn. -rt ísafjörður: Meðfíkniefniá flugvellinum Lögreglan á ísafirði handtók tvo menn á flugvellinum á ísafirði á laugardag vegna fikniefnamisferlis. Við leit á mönnunum fundust níu grömm af amfetamíni. Málið telst upplýst og var mönnunum, en annar þeirra hefur áður komið við sögu lögreglu, sleppt að loknum yfir- heyrslum. -pp sprengju: Huttu sprengjuna í rútu til lögreglu hópurinn var í stórhættu, segir sprengjusérfræðingur Landhelgisgæslunnar Sævar Benónýsson, niu ára drengur úr Myllubakkaskóla I Keflavik, sem fann sprengjuna. Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjabaœ „Hópurinn var í stórhættu. Sprengjan var virk, pinninn stóð ber út úr henni og ekkert sem varði kveikibúnaðinn. Þaðeru allar líkur á því að ef högg hefði komið á pinn- ann hefði hún sprungið,“ sagði Gylfi Geirsson, sprengjusérfræð- ingur Landhelgisgæslunnar, en á fóstudag fann niu ára drengur úr Myllubakkaskóla í Keflavík stór- hættulega og virka sprengju við Snorrastaðatjarnir, skammt frá Grindavikurafleggjaranum, en þar var hann i skoðunarferð ásamt 50 skólasystkínum sínum. Sprengjan, sem er lítt öflugri en handsprengja, er - 25 sentímetra löng og 60 millímetrar í þvermál. Um 1960 voru sams konar sprengj- ur notaðar í sprengjuvörpur og verða þær virkar um leið og þeim Brot úr sprengjunni eftir að hún hafði verið sprengd. DV-myndir Ægir Már er skotið úr slíkum tólum. Er get- um aö því leitt aö hún hafi lent í mjúkum jarðvegi, snjó eöa á hlið- inni og ekki sprtmgið. „Ég hélt að þetta væri gamalt drasl sem einhver hafði týnt. Ég var að tina ber þegar ég fann þenn- an hlut, tók harrn upp og fór með hann til kennarans,“ sagöi Sævar Benónýsson sem fann sprengjuna. „Vissulega brá mér í brún, eftir að hafa handfjatlað þetta, þegar mér var sagt að þetta væri sprengja. Ég reiknaöi með að þetta væri æfingaskot og alveg mein- laust. Auðvitað bregður manni eft- ir aö hafa verið með 50 nemendur og sprengjuna meó í rútunni til að afhenda lögreglunni hana,“ sagði Ingólfur Matthíasson, kennari hópsins. Snorrastaöatjarnir eru vinsælt útivistarsvæði á Suðurnesjum. Það var áður æfmgasvæöi hersins og átti að vera búið aö hreinsa það af öllum ummerkjumheræfinga. Seg- ir Ingólfur það eiga að vera ský- lausa kröfu stjórnvalda að svæöið verði fínkembt á ný til að svona lagað endurtaki sig ekki. Rotaði mink með spýtu í Skútuvoginum Bræðurnir Magnús og Guðmundur Sigtryggssynir virða fyrir sér minkinn sem Guðmundar. Þeir velta því fyrir sér að stoppa minkinn upp. endaði lífdaga sína fyrir höggi DV-mynd GVA Við vorum að tæma gám þegar einn okkar tók eftir einhverju sem var á vappi á bílastæðinu. Við héld- um að þetta væri köttur en þegar viö skoöuðum þetta betur sáum við að þetta var minkur. Við reyndum að króa hann af og ætluðum að ná hon- um lifandi en það tókst ekki nógu vel. Hann hljóp í gegnum klofið á mér en réðst aldrei á okkur. Það endaði með því að bróðir minn tók spýtu og hann náði að rota minkinn þegar hann hljóp úr einu skotinu í annað," segir Magnús Sigtryggsson, sem ásamt þremur ungum mönnum, þar á meðal bróður sínum, Guð- mundi, var við vinnu sína í Skútu- vogi í gærdag. Eins og Magnús segir var upphaf- lega stefnt að því að ná dýrinu lif- andi en þeir félagar voru að flytja vörur úr gáminum inn á lager fyrir- tækis í Skútuvoginum en matvæh eru geymd í húsnæðinu. í því ljósi hafi ekki verið hægt að láta dýrið spranga um óáreitt því það hefði get- að komist inn í lagerhúsnæðið og lif- að góðu lífi í vellystingum þar inni. Magnús segir föður þeirra bræðra hafa rætt um að stoppa dýrið upp en óljóst er hvort það verður gert. Ef sú verður ekki raunin verður líklega farið með skottið til yfirvalda og „premía" innheimt fyrir það. „Mig grunar helst að minkurinn hafi komið úr Elhðavoginum. Þótt þetta sé dáhtið langt þaðan þá er vel hugsanlegt að hann hafi haldiö þar til í sumar og gætt sér á laxi í ánum. Við vorum nú að ræða um það að þar sem fyrirtækið sem viö vinnum hjá flytur út æðardún þá hefði ekki verið hægt að sleppa dýrinu lifandi en eins og allir vita þá er minkur einn helsti skaðvaldur í æðarvarpi. Maður verður að vera samkvæmur sjálfur sér,“ segir Magnús. LOKI Á að ná sér í pels með þessum hætti? Veðriðámorgun: frostmarki Á morgun verður fremur hæg norðlæg átt. É1 verða norðan- lands, einkum á Norðaustur- landi, en nokkuð bjart veöur sunnanlands og á Vesturlandi. Hiti verður nálægt frostmarki, kaldast á Vestljörðum, en á Suð- urlandi ætti að verða frostlaust, en víða verður talsvert nætur- frost í innsveitum. Veðrið í dag er á bls. 44 / \ \ ■J V \ AO ” j c:‘ ■. f) || -l^ 0 'i0 ' 2Ó, -pp MEISTARAFELAG RAFEINDAVIRKJA S. 561 6744 Viðurkenndur RAFEINDAVERKTAKI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.