Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1995, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1995, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1995 Utlönd Marcia Clarke saksóknari gerir bókarsamning: Græöir vel á Simpson Marcia Clarke, aðalsaksóknarinn í morðmálinu gegn ruðningshetj- unni O.J. Simpson, hefur undirritað samning um að skrifa bók um mál- iö og fær hún margar milljónir doll- ara fyrir snúð sinn. í bókinni verð- ur einnig flett ofan af ýmsum mis- brestum í bandaríska réttarkerfinu. Fregnir herma að Clarke fái allt frá 200 til 270 milljónir króna fyrir bókina. Miklar vangaveltur hafa verið um bók Clarke frá því hún og annar saksóknari, Christopher Darden, gerðu samning við einhverja þekkt- ustu umoðsskrifstofuna í Los Angel- es. Talsmaður Viking bókaútgáfunn- ar i New York sagði að samningur- inn væri aðeins um þessa eina bók. Hann vildi ekkert tjá sig um upp- hæð hans, sagði aðeins að um marg- ar milijónir dollara væri að tefla. „Bók Clarke mun ekki aðeins fjalla um þátt hennar í réttarhöldun- um yfir Simpson, heldur einnig um það hvemig réttarhöldin reyndu á þolrifin i og brutu gegn grundvelli réttarkerfis okkar,“ sagði talsmað- urinn og vísaði þar til opinberrar umræðu í kjölfar sýknudómsins sem sumir töldu réttlátan en aðrir álitu að hefði ráðist af kynþætti sak- borningsins. Meirihluti kviðdóm- enda voru blökkumenn, rétt eins og Simpson. í kjölfar réttarhaldanna fengu Cl- arke, Darden og þriðji saksóknarinn ellefu prósenta launauppbót. Sam- starfsmenn þeirra á skrifstofu sak- sóknara eru ekki kátir. „Ég er meira en pirruð og sömu sögu er að segja um alla sem ég hef talað við,“ sagði aðstoðarsaksóknar- inn Lea D’Agostino, einn þeirra sak- sóknara sem íhuga að senda inn kvörtim vegna misréttis. „Ég hef aldrei orðið vitni að jafn mikilli reiði. Ef embættið vill gera þetta eí það í lagi en það ætti að láta alla njóta þess. Hvað eru hinir aðstoðar- mennimir á skrifstofunni, hökkuð lifur?“ sagði D’Agostino í viðtali við blaðið Los Angeles Times. Reuter Vinkona okkar úr Staupasteini, Kirstie Alley, hampar hér stjörnu til minning- ar um stjörnuna sem hún fékk í gangstéttina á Hollywood-breiðgötunni. Með henni er Ted Danson, félagi hennar af barnum, en hann á ekki stjörnu. Símamynd Reuter Expressen: Mona Sahlin hætt við framboð sitt Búist er við að Mona Sahlin gefi út yfírlýsingu í dag um að hún sæk- ist ekki eftir formennsku í sænska Jafnaðarmannaflokknum. Sænska blaðið Expressen hélt því fram í gær að Sahlin væri hætt við framboð en hefði ekki í hyggju að segja af sér sem aðstoðarforsætisráðherra. í gærkvöldi hitti Sahlin flokksfélaga sína í fyrstá sinn eftir uppþotið vegna meintrar misnotkunar henn- ar á opinberu greiðslukorti. Virtist Sahlin afslöppuð er hún kom á fúndinn þar sem rætt var um framtíð jafnaðarmannastefnunnar. Sagði Sahlin tíma kominn til að tak- ast á við framtíðina í stað þess að elta fortíðina og sagðist þá ekki bara eiga við það sem komið hefði fyrir sig. Ingvar Carlsson, forsætisráðherra Svíþjóðar, neitar enn að tjá sig frek- ar um mál Sahlin þrátt fyrir vax- andi gagnrýni þingmanna Jafnaðar- mannaflokksins gegn henni. TT, Reuter Leikur nr. 44 í Lengjunni: Ungverjaiand - ísland verður í beinni útsendingu á RÚV á morgun! Mestar líkur (lægsti stuðullinn) eru taidar á að landslið Ungverjalands vinni leikinn. En þú getur valið að tippa á ólíklegri úrslit og þannig hækkað upphæð vinningsins sem þú færð ef spá þín reynist rétt! 43 Lau. 11/11 14:30 Sunderland - Tranmere 44 Lau. 11/11 15:30 Ungverjaland - ísland 1,75 2,80 3,15 Knatt. 1.40 3.20 4.50 Knatt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.