Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1995, Side 30

Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1995, Side 30
LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 1995 JLlV Flestir foreldrar kannast víst við það þegar börn þeirra, þá oftast komin á táningaaldurinn, neita að taka mark á þeim og telja allar ráð- leggingar hinna eldri og fyrirmæli þeirra bera vitni úreltum sjónar- miðum, skammsýni, heimsku og skorti á skilningi og þörfum ungu kynslóðarinnar. Oftast fer þannig, sem betur fer, að foreldrunum tekst að tala um fyrir unga fólkinu en það er ekki alltaf svo. Afleiðingamar eru ekki alltaf alvarlegar en fyrir kemur að þær verða svo skelfílegar aö þær verða opinbert umfjöllunar- efni eða komast jafnvel á forsíður dagblaðanna og í kvöldfréttir sjón- varps, eins og í því tilviki sem hér segir frá. Yfirburðir á flestum sviðum Þeir kölluðu sig „Skytturnar þrjár“, ungu mennirnir, og höfðu um tíma fjarlægst ættingja sína og vini til að fullkomna þá heimsmynd sem þeir voru að gera sér. Langar umræður þeirra í eigin hópi höfðu sannfært þá um hve mikla yfirburði þeir hefðu yfir foreldra sína, systk- ini og aðra, en þó einkum lögregl- una, fulltrúa valds sem þeir gátu með engu móti sætt sig við. Þegar þremenningarnir, Wylie Gates, Damian Rosney og Miles McDonald, höfðu komist að þeirri niðurstöðu að sérstaða þeirra, gáfur og almennir yfirburöir hefðu skipað þeim á annan bekk en flestum öðr- um í þjóðfélaginu þótti þeim timi til kominn að sýna í verki að þeir heföu rétt fyrir sér. Og þá tóku við innbrot og þjófnaðir að næturlagi. En í æfingaskyni brutust tveir þeirra fyrst inn á heimili hins sjálf- skipaða leiðtoga hópsins, Wylies Gates, sem var þá átján ára. Hann og Damian Rosney stálu þar .32 hlaupvíddar skammbyssu af Walther PPK-gerð, öflugu skotvopni. Þessi þjófnaður reyndist síðar hafa sérstök áhrif á það sem síðar gerðist í málum piltanna og tengdist leyni- legri áætlun Wylies sem hann nefndi ekki við hina tvo. Ósigrandi Innbrotið tókst vel og Wylie sann- færðist um að hann væri ósigrandi. Nú væru þeir félagar komnir með vopn sem gæfi í engu eftir því sem sæist í kvikmyndum. Walther PPK- skammbyssa þykir afarfullkomin en getur meitt þá sem hafa ekki fengið sérstaka tilsögn í meðferð hennar. Innbrotinu á heimili Gates-fjöl- skyldunnar fylgdu nú ýmis önnur innbrot og hvert um sig jók vissu þremenninganna um að þeim væru færir flestir vegir sem öðrum þjóðfé- lagsþegnum væri skynsamlegast að leggja ekki út á. Og þann 13. des- ember 1990 leiddi þessi trú piltanna til óhugnanlegs atburðar i litla bæn- um Gatham í New York ríki í Bandaríkjunum. Gates-fjölskyldan bjó við Maple Drive. Seint um kvöldið hringdi Wylie Gates til lögreglunnar og til- kynnti henni að þegar hann hefði komið heim úr kvikmyndahúsi, skömmu áður, hefði hann komið að foreldrum sínum og bræðrum látn- um. Hefðu þau öll verið skotin til bana. Ljót aðkoma Rannsóknarlögreglumenn komu þegar á vettvang og viö þeim blasti ófógur sjón. Heimilisfaöirinn, Ro- bert, lá skotinn í setustofunni ásamt konu sinni og stjúpmóður Wylies. Bobbie, nítján ára, hafði veriö skot- inn þar sem hann sat við trommu- sett sitt í bílskúrnum, en þar hafði hann greinilega verið að æfa sig þegar lokastundin rann upp. Og á efri hæð hússins lá Jason, þriggja Ættingjar Gates-fjölskyldunnar við útförina eftir morðið. Damian Rosney. Miles McDonald. ára ættleiddur sonur Gates-hjón- anna, andvana í rúmi sínu, þar sem hann hafði verið skotinn. Walter Shook fulltrúi var meðal þeirra sem fyrstir komu á vettvang, og að honum setti hrylling því hann hafði ekki séð slíkt fjöldadráp síðan hann var í Víetnamstríðinu. Hann var hins vegar undrandi yfir þvi hve rólegur Wylie virtist, sá eini sem var enn á lífi af allri fjölskyld- unni. Og hefði hann ekki farið í kvikmyndahús væri hann ekki leng- ur á lifi. Shook velti því fyrir sér hvort pilturinn væri í einhvers konar losti eða hvort hann væri svona kaldrifj- aður og ef svo væri hvað byggi þá að baki því. Særður fingur Rannsóknarlögreglumennirnir tóku nú að kanna fortíð Gates-fjöl- skyldunnar ef vera mætti að það varpaöi einhverju ljósi á voðaverk- ið. Þá kom fram að þremur mánuð- um fyrir það hafði fjölskyldufaðir- inn tilkynnt innbrot og stuld á .32 hlaupvíddar Walther PPK-skamm- byssu. Rannsókn á kúlum þeim sem fundist höfðu í líkum hinna látnu sýndu að þær kom úr .32 hlaupvídd- ar byssu. En víðtæk leit að morð- vopninu reyndist árangurslaus. Við fyrstu yfirheyrslu yfir piltun- um þremur höfðu þeir Shook og fé- lagi hans, John Cozzolino, tekið eft- ir því að stór heftiplástur var á hægri þumalfingri Wylies. Cozzol- ino, sem var áhugamaður um skot- vopn, lét sér ýmislegt til hugar koma í því sambandi en sagði þó ekkert í þetta sinn. Ljóst varð fljótlega að piltarnir þrir höfðu þá fjarvistarsönnun sem þeir höfðu tUgreint. Þeir reyndust hafa verið í kvikmyndahúsi því sem þeir tilgreindu. Það útilokaði þó ekki að þeir hefðu framið glæpinn. Erfitt yrði hins vegar að tengja þá honum. En svo gerðist dálítið óvænt í rannsókn málsins. Yfirheyrslur fóru nú fram yfir piltunum hverjum í sínu lagi. Voru þeir spurðir i þaula um margt og að lokum játaði Miles McDonald að „skytturnar þrjár“ hefðu framið mörg innbrot til að sanna yfirburði sína. Kom þá fram að fyrst var brot- ist inn á heimili Gates-hjónanna og þar hafði Walther PPK-skammbyssa verið hluti þýfisins. Miles neitaði því nú hins vegar að hafa verið með þeim Wylie og Damian morðkvöld- ið. Wylie var nú beðinn að koma í lygamælispróf. Hann neitaði að gangast undir það en sagði aftur á móti, viðstöddum til undrunar: „En ég skipulagði morðin og drap þau öll.“ Wylie skýrði nú frá því að hann hefði hatað stjúpmóður sína og alla aðra í fjölskyldunni því þau hefðu verið „smásmuguleg". Og hann sagðist hafa haft mikla andúð á föð- ur sínum því hann hefði látið sig vinna í jólafríinu þannig að hann hefði ekki getað verið nægilega mik- ið með félögum sínum á þeim tíma. Wylie lauk þessari játningu sinni með því að segja að hann hefði um allangt skeið verið búinn að íhuga að ráða alla fjölskylduna af dögum og því hefði hann ákveðið, sem leið- togi skyttnanna, að fyrst yrði brotist inn heima hjá sér því hann hefði þurft að komast yfir byssuna án þess að hann yrði síðar grunaður um að hafa haft hana. Lýsingin Wylie lýsti nú atburðum morð- kvöldsins. Hann sagðist hafa gengið inn í setustofuna með skammbyss- una í hendi og haldið um skeftið með báðum höndum. Siðan hefði hann farið að skjóta. Þegar hann hafði skotið stjúpmóð- ur sína og fóður gekk hann út í bíl- skúrinn. Þar var þá, eins og fyrr segir, bróðir hans Bobbie að æfa sig á trommur. Vegna hávaðans í þeim hafði hann ekki heyrt skothvellina og kom Wylie honum því að óvör- um. Bobbie bað bróður sinn að þyrma lífi sínu en Wylie skaut hann í brjóstið og féll hann fram á tromm- urnar. í barnaherberginu á efri hæðinni lá Jason litli í rúminu og heyrði skothvellina. Þeir skutu honum skelk í bringu. „Ég neyddist til að skjóta hann líka,“ sagði Wylie. „Annars hefði hann komið upp um mig.“ Eftir morðin fór Wylie til Dami- ans og saman fóru þeir í kvik- myndahús. Skýringin á plástrinum á hægri þumalfmgri Wylies reyndist vera sú að haldi óvanur maður báðum hönd- um um skefti Walther PPK-skamm- byssu á hann á hættu að pinni sláist í hann þegar skot ríður af. Sé hins vegar haldið um skeftið með annarri hendi gerist það ekki. Wylie hafði haldið um byssuna með báð- um höndum og fengið pinnann í þumalfingurinn. Mistök lögreglunnar Wylie Gates var ákærður fyrir moröin á grundvelli játningar sinn- ar. Og Damian Rosney var sömu- leiðis handtekinn og ákæröur fyrir morð en skammbyssan fannst heima hjá honum. í upphafi töldu flestir að það væri í raun aðeins formsatriði að fá þá dæmda en svo kom í ljós að við rannsókn málsins og frágang skýrslna höfðu verið gerð mistök. Játningin hafði þótt svo skýr og ljós að látið var undir höfuð leggjast að leita fingrafara á skammbyssunni. Þá hafði heldur ekki verið leitað brunna púðurleifa á höndum drengjanna sjálft morð- kvöldið en hefði það verið gert hefði getað komið í ljós að Wylie hefði verið nýbúinn að skjóta af skamm- byssu. Þriðju mistökin voru svo þau að munnleg játning Wylies hafði verið látin duga, enda var hún gefin í vitna viðurvist. Þessi þrjú atriði gat verjandi Wylies nýtt sér þegar málið kom fyr- ir rétt. Hann hélt því fram að ekki væri hægt að sanna að skjólstæðing- ur sinn hefði, hleypt af skotunum sem urðu foreldrum hans og bræðr- um að bana. Óvíst væri því hvort hann eða Damian hefðu gert það og yrði sá vafi sem upp væri kominn að túlkast Wylie í hag. Að þessi staða skyldi kom upp við réttarhöldin olli bæöi saksóknara og rannsóknarlögreglumönnunum von- brigðum. Og kviðdómendum þótti ekki annað fært en að taka tillit til þeirra efasemda sem þannig höfðu verið vaktar. Þeir fundu Wylie ekki sekan um morð að yfirlögðu ráði heldur um að hafa skipulagt morð- in. Fékk hann átta til tuttugu og fimm ára fangelsisdóm. Ári síðar var Damian dæmdur til sömu fangelsisvistar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.